Morgunblaðið - 28.06.1986, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1986
Splundraði njósna-
neti CIA í Moskvu
Los Angeles, AP.
BANDARÍSKA stórblaðið Los Angeles Times scgir, að fyrrverandi
bandariskur njósnari hafi veitt Sovétmönnum upplýsingar, sem urðu
til að eyðileggja njósnanet bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, i
Moskvu. Hafi einn mikilvægasti Sovétmaður i þjónustu CIA í borg-
inni, Tolkachev að nafni, verið tekinn af lífi.
Dagblaðið segist hafa upplýsing- Forstjóri CLA, William Casey,
ar sfnar frá aðilum, sem hafi að- vildi ekkert um málið segja, en
gang að strangleynilegri skýrslu
um málið.
Bandaríski njósnarinn heitir
Ekiward Lee Howard og var rekinn
frá CLA árið 1983 vegna eiturlyfja-
misnotkunar og geðrænna erfið-
leika. Hann svaraði fyrir sig með
því að gefa Sovétmönnum full-
komnar upplýsingar um njósnakerfi
Bandaríkjamanna í Moskvu, en
skömmu áður en hann var rekinn,
hafði hann fengið þjálfun til að
gerast tengiliður Sovétmannsins
Tolkachevs, verkfræðings, er látið
hafði CLA í té mikiivægar upplýs-
ingar um sovésk flugskeyti.
í skýrslunni er leyniþjónustan
harðlega gagnrýnd fyrir ótrúleg
mistök varðandi ráðningu Howards.
Rannsókn á æviferli hans hafi
verið einskis nýt; þegar veilumar
komu í ljós hafi hann einfaldlega
verið rekinn án þess að nokkur
hafi haft áhyggjur af stórhættulegri
vitneskju hans um þjónustuna.
íinnig er gagnrýnt, að ríkislög-
reglan, FBI, fékk ekki upplýsingar
um brottrekstur Howards fyrr en
1985, en það sama ár tókst honum
að snúa á FBI-menn og fiýja til
Sovétríkjanna. Leit FBI að honum
í Bandarfkjunum er sömuleiðis sögð
hafa verið slæleg.
blaðið upplýsir, að Reagan forseta
hafí verið afhent leyniskýrslan í
þessum mánuði.
Alþjóðadómstóllinn í Haag kveður upp úrskurð sínn f gær.
Alþjóðadómstóllinn í Haag:
Aðstoð Bandaríkjamanna við
contra-skæruliða fordæmd
Haag, AP.
ALÞJÓÐADÓMSTÓLLINNN í Haag kvað í gær upp úrskurð, þar
sem stuðningur Bandaríkjamanna við contra-skæruliða í Nicaragua
er formdæmdur. Er stjórn Ronalds Reagan hvött til að hætta allri
hernaðaraðstoð við skæruliða og gert að greiða stjómvöldum i
Nicaragua skaðabætur.
Eftir að úrskurðurinn var kunn-
gerður lýstu Bandaríkjamenn yfir
því að þeir hygðust hundsa niður-
stöður dómstólsins, þar sem hann
hefði ekki lögsögu í málinu. Tals-
maður bandaríska utanríkisráðu-
neytisins, Charles Redman, sagði
að dómurinn sýndi aðeins að dóm-
stóllinn væri engan veginn fær um
að dæma í þessu máli. Það væri
allt of flókið og snerist að veruiegu
leyti um ieynilegar upplýsingar,
sem ekki hefðu verið gerðar opin-
berar.
„Við vitum að stjómin í Nic-
aragua hefur staðið á bak við ólög-
legar hemaðaraðgerðir gegn ná-
grannaríkjum sínum," sagði Red-
man.
Utanríkisráðherra Nicaragua
Miguel D’Escoto, sem staddur var
í Haag þegar dómurinn var kveðinn
upp, fagnaði hins vegar úrskurði
dómstólsins. „Þrátt fyrir þá stefnu
stjómar Reagans forseta að styðja
skæruhemað er dómurinn spor í
átt að friði í heiminum," sagði
D’Escoto.
Negendra Singh, forseti alþjóða-
dómstólsins, sagði að dómstóllinn
Geimskutlutil-
raun heppnaðist
St. Louis, AP.
Geimskutlumótor var ræstur í
t’traunaskyni á fimmtudaginn f
fyrsta skipti síðan í Challenger-
slysinu. Tilraunin tókst vel að
sögn jforráðamanns á rannsókna-
stofunni, sem framkvæmdi til-
raunina.
Næsta tilraun verður gerð eftir
tvær vikur.
Ætlunin var að gera tilraunina
31. janúar sfðastliðinn, en því var
frestað vegna slyssins, sem varð
nokkmm dögum fyrr.
Grænfriðungar handteknir
Hér fjarlægja norskir lögreglumenn tvo menn úr gúmbáti skips
grænfriðunga, Moby Dick, á miðvikudag. Moby Dick var fært
til hafnar öðru sinni á -veimur vikum fyrir að reyna að koma
f veg fyrir hvalveiðar ínnan norskrar landhelgi.
hefði komist að þeirri niðurstöðu
að Bandaríkjamenn brytu alþjóða-
lög með því að sjá skæruliðum fyrir
vopnum og þjálfa þá til að steypa
stjóminni í Nicaragua af stóli.
Hann sagði ennfremur að túlka
bæri ljárhagsstuðning Bandaríkja-
manna við skæruliða á þann hátt
að hér væri um afskipti af innan-
ríkismálum Nicaragua að ræða.
Þess vegna ættu Bandarfkjamenn
að hætta aðstoð við þá án tafar.
í dómsorði er einnig vfsað á bug
þeirri röksemd Bandaríkjamanna
að dómstóllinn hafi ekki lögsögu í
málinu. Ennfremur hafnaði dóm-
stóllinn þeirri fullyrðingu Banda-
ríkjamanna að stuðningur þeirra við
contra-skæruliða jafngilti sjáifs-
Var kort Titovs
til Treholts grín?
Fjárfúlga fannst í klefa Treholts
Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunbladsins.
PÓSTKORTIÐ, sem Arne Treholt fékk í fangelsi
og sagt var frá Genadij Titov, yfirmanni hans
hjá KGB, var líklega sent f grfni. Það var alla-
vega álit þeirra, sem skoðuðu póst til Treholts.
Kortið var sent frá Leníngrað í Sovétríkjunum rétt
fyrir réttarhöldin yfir Treholt. Undirskriftin var
Titov. í kortinu samhryggist sendandi Treholt vegna
þeirra vandræða sem hann væri kominn í, en þakkar
honum alla aðstoðina, sem hann hefði veitt.
Allur póstur, sem Treholt barst í fangelsi, var
skoðaður. Dómarinn, sem það gerði, sýndi sækjend-
um f málinu gegn honum kortið. Þeir litu á kortið
sem grín og töldu að einhver háðfugl hefði skrifað
það og falsað undirskrift Titovs. Var Treholt því
afhent kortið.
Ef talið hefði verið að kortið væri frá Titov hefði
það verið lagt fram í réttinum sem málsskjal og
sönnunargagn gegn Treholt.
Treholt var hins vegar ekki á því að kortið væri
grín, þvf í bréfí, sem hann skrifaði Titov, og smygl-
að var út úr fangelsinu, þakkaði hann fyrir kortið.
Af þessum sökum er sá möguleiki ekki útilokaður
að Treholt hafí fengið kort á iaun frá Titov, eða
að kortið, sem slapp f gegnum póstskoðunina hafí
haft að geyma dulmál, sem Treholt einn kunni skil
á.
Skýrt var frá því f gær að Treholt hefði sankað
að sér peningum í fangelsið og ætlaði hann að brúka
þá á flóttanum. Alls fundust rúmlega 300 þúsund
norskar krónur, hátt á aðra milljón ísl.kr., í klefa
hans í Ila-fangelsinu eftir að hann var fluttur í
öruggara fangelsi sl. föstudag.
Vegabréfin fölsuðu, sem Arne Treholt og vin-
kona hans höfðu orðið sér úti um. Þau voru
brezk og þar var Treholt sagður heita George
Lewis.
GENGI
GJALDMIÐLA
London, AP.
Bandarikjadalur lækkaði
gagnvart öllum helstu gjald-
miðlum á gjaldeyrismörkuðum i
Evrópu i gær. I Tókýó fengust
fyrir hann 165,85 jen (166,10),
þegar gjaldeyrismörkuðum þar
var lokað. Verð á gulli var nánast
óbreytt.
Síðdegis í gær var gengi banda-
ríkjadals sem hér segin 2,2110
vesturþýsk mörk (2,2195), 1.80825
svissneskir frankar (1.8185),
7,0550 franskir frankar (7,0895),
2,4910 hollensk gyllini (2,5005),
1.518,50 ítalskar lírur (1.524,50)
og 1,3900 kanadadalir (1,38945).
Júgóslavía:
Leiðtogar
gagnrýndir
Belgrad, AP.
LEIÐTOGAR kommúnistaflokks
Júgóslaviu hafa verið gagnrýnd-
ir harðlega fyrir slælega efna-
hagsstjórn á 13. þingi flokksins,
sem lýkur i dag. Þrátt fyrir
gagnrýnina er búist við að allir
uúverandi meðlimir miðstjóraar-
innar haldi sætum sinum.
A þinginu hefur einkum verið
rætt um efnahagsmál en erlendar
skuldir Júgóslava nema 19 miiljörð-
um Bandaríkjadala. Verðbólga er
80% og kaupmáttur almennings
hefur farið minnkandi.
Júgóslavía er eitt fárra kommún-
istaríkja sem heimilar gagnrýni á
leiðtoga landsins í blöðum. Stöðugt
háværari kröfur hafa birst um að
þeir og embættismenn ríkisins taki'
á sig ábyrgð á hinu dapurlega
efnahagsástandi landsins.
Bein sjónvarpsútsending var frá
flokksþinginu en því lýkur í dag
með kosningu til miðstjómar
flokksins.
Filippseyjar:
Enrile hvetur til sam-
stöðu með Aquino
M.nll. AP
VARNARMÁLARÁÐHERRA Filippseyja, Juan Ponce Enrile, hvatti
i gær til stuðnings við tilraunir stjórnarinnar til að binda enda á
skæruhernað kommúnista, sem staðið hefur í 17 ár.
Enrile stjómaði uppreisninni,
sem velti Marcosi, fyrmrn forseta,
frá völdum og kom Corazon Aquino
í forsetastólinn.
Að undanfömu hefur Enrile oft
látið í ljósi efasemdir varðandi til-
raunir Aquinos til að semja um
pólitíska lausn á deilunum við
kommúnista, enda þótt hann segði
jafnframt, að hann vildi friðarvið-
ræður.
í ræðu sinni í gær sagði Enrile,
að fengi Aquino ekki nauðsynlegan
stuðning, gæti svo farið, að skæm-
liðar sigmðu og kæmu á marxista-
einræði í landinu.
Hann vísaði á bug orðrómi um
ágreining milli sín og Aquinos,
sagði, að þvert á móti væri nú sí-
fellt batnandi samvinna milli borg-
aralegra og hemaðarlegra yfir-
valda.