Morgunblaðið - 28.06.1986, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 28.06.1986, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1986 Splundraði njósna- neti CIA í Moskvu Los Angeles, AP. BANDARÍSKA stórblaðið Los Angeles Times scgir, að fyrrverandi bandariskur njósnari hafi veitt Sovétmönnum upplýsingar, sem urðu til að eyðileggja njósnanet bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, i Moskvu. Hafi einn mikilvægasti Sovétmaður i þjónustu CIA í borg- inni, Tolkachev að nafni, verið tekinn af lífi. Dagblaðið segist hafa upplýsing- Forstjóri CLA, William Casey, ar sfnar frá aðilum, sem hafi að- vildi ekkert um málið segja, en gang að strangleynilegri skýrslu um málið. Bandaríski njósnarinn heitir Ekiward Lee Howard og var rekinn frá CLA árið 1983 vegna eiturlyfja- misnotkunar og geðrænna erfið- leika. Hann svaraði fyrir sig með því að gefa Sovétmönnum full- komnar upplýsingar um njósnakerfi Bandaríkjamanna í Moskvu, en skömmu áður en hann var rekinn, hafði hann fengið þjálfun til að gerast tengiliður Sovétmannsins Tolkachevs, verkfræðings, er látið hafði CLA í té mikiivægar upplýs- ingar um sovésk flugskeyti. í skýrslunni er leyniþjónustan harðlega gagnrýnd fyrir ótrúleg mistök varðandi ráðningu Howards. Rannsókn á æviferli hans hafi verið einskis nýt; þegar veilumar komu í ljós hafi hann einfaldlega verið rekinn án þess að nokkur hafi haft áhyggjur af stórhættulegri vitneskju hans um þjónustuna. íinnig er gagnrýnt, að ríkislög- reglan, FBI, fékk ekki upplýsingar um brottrekstur Howards fyrr en 1985, en það sama ár tókst honum að snúa á FBI-menn og fiýja til Sovétríkjanna. Leit FBI að honum í Bandarfkjunum er sömuleiðis sögð hafa verið slæleg. blaðið upplýsir, að Reagan forseta hafí verið afhent leyniskýrslan í þessum mánuði. Alþjóðadómstóllinn í Haag kveður upp úrskurð sínn f gær. Alþjóðadómstóllinn í Haag: Aðstoð Bandaríkjamanna við contra-skæruliða fordæmd Haag, AP. ALÞJÓÐADÓMSTÓLLINNN í Haag kvað í gær upp úrskurð, þar sem stuðningur Bandaríkjamanna við contra-skæruliða í Nicaragua er formdæmdur. Er stjórn Ronalds Reagan hvött til að hætta allri hernaðaraðstoð við skæruliða og gert að greiða stjómvöldum i Nicaragua skaðabætur. Eftir að úrskurðurinn var kunn- gerður lýstu Bandaríkjamenn yfir því að þeir hygðust hundsa niður- stöður dómstólsins, þar sem hann hefði ekki lögsögu í málinu. Tals- maður bandaríska utanríkisráðu- neytisins, Charles Redman, sagði að dómurinn sýndi aðeins að dóm- stóllinn væri engan veginn fær um að dæma í þessu máli. Það væri allt of flókið og snerist að veruiegu leyti um ieynilegar upplýsingar, sem ekki hefðu verið gerðar opin- berar. „Við vitum að stjómin í Nic- aragua hefur staðið á bak við ólög- legar hemaðaraðgerðir gegn ná- grannaríkjum sínum," sagði Red- man. Utanríkisráðherra Nicaragua Miguel D’Escoto, sem staddur var í Haag þegar dómurinn var kveðinn upp, fagnaði hins vegar úrskurði dómstólsins. „Þrátt fyrir þá stefnu stjómar Reagans forseta að styðja skæruhemað er dómurinn spor í átt að friði í heiminum," sagði D’Escoto. Negendra Singh, forseti alþjóða- dómstólsins, sagði að dómstóllinn Geimskutlutil- raun heppnaðist St. Louis, AP. Geimskutlumótor var ræstur í t’traunaskyni á fimmtudaginn f fyrsta skipti síðan í Challenger- slysinu. Tilraunin tókst vel að sögn jforráðamanns á rannsókna- stofunni, sem framkvæmdi til- raunina. Næsta tilraun verður gerð eftir tvær vikur. Ætlunin var að gera tilraunina 31. janúar sfðastliðinn, en því var frestað vegna slyssins, sem varð nokkmm dögum fyrr. Grænfriðungar handteknir Hér fjarlægja norskir lögreglumenn tvo menn úr gúmbáti skips grænfriðunga, Moby Dick, á miðvikudag. Moby Dick var fært til hafnar öðru sinni á -veimur vikum fyrir að reyna að koma f veg fyrir hvalveiðar ínnan norskrar landhelgi. hefði komist að þeirri niðurstöðu að Bandaríkjamenn brytu alþjóða- lög með því að sjá skæruliðum fyrir vopnum og þjálfa þá til að steypa stjóminni í Nicaragua af stóli. Hann sagði ennfremur að túlka bæri ljárhagsstuðning Bandaríkja- manna við skæruliða á þann hátt að hér væri um afskipti af innan- ríkismálum Nicaragua að ræða. Þess vegna ættu Bandarfkjamenn að hætta aðstoð við þá án tafar. í dómsorði er einnig vfsað á bug þeirri röksemd Bandaríkjamanna að dómstóllinn hafi ekki lögsögu í málinu. Ennfremur hafnaði dóm- stóllinn þeirri fullyrðingu Banda- ríkjamanna að stuðningur þeirra við contra-skæruliða jafngilti sjáifs- Var kort Titovs til Treholts grín? Fjárfúlga fannst í klefa Treholts Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunbladsins. PÓSTKORTIÐ, sem Arne Treholt fékk í fangelsi og sagt var frá Genadij Titov, yfirmanni hans hjá KGB, var líklega sent f grfni. Það var alla- vega álit þeirra, sem skoðuðu póst til Treholts. Kortið var sent frá Leníngrað í Sovétríkjunum rétt fyrir réttarhöldin yfir Treholt. Undirskriftin var Titov. í kortinu samhryggist sendandi Treholt vegna þeirra vandræða sem hann væri kominn í, en þakkar honum alla aðstoðina, sem hann hefði veitt. Allur póstur, sem Treholt barst í fangelsi, var skoðaður. Dómarinn, sem það gerði, sýndi sækjend- um f málinu gegn honum kortið. Þeir litu á kortið sem grín og töldu að einhver háðfugl hefði skrifað það og falsað undirskrift Titovs. Var Treholt því afhent kortið. Ef talið hefði verið að kortið væri frá Titov hefði það verið lagt fram í réttinum sem málsskjal og sönnunargagn gegn Treholt. Treholt var hins vegar ekki á því að kortið væri grín, þvf í bréfí, sem hann skrifaði Titov, og smygl- að var út úr fangelsinu, þakkaði hann fyrir kortið. Af þessum sökum er sá möguleiki ekki útilokaður að Treholt hafí fengið kort á iaun frá Titov, eða að kortið, sem slapp f gegnum póstskoðunina hafí haft að geyma dulmál, sem Treholt einn kunni skil á. Skýrt var frá því f gær að Treholt hefði sankað að sér peningum í fangelsið og ætlaði hann að brúka þá á flóttanum. Alls fundust rúmlega 300 þúsund norskar krónur, hátt á aðra milljón ísl.kr., í klefa hans í Ila-fangelsinu eftir að hann var fluttur í öruggara fangelsi sl. föstudag. Vegabréfin fölsuðu, sem Arne Treholt og vin- kona hans höfðu orðið sér úti um. Þau voru brezk og þar var Treholt sagður heita George Lewis. GENGI GJALDMIÐLA London, AP. Bandarikjadalur lækkaði gagnvart öllum helstu gjald- miðlum á gjaldeyrismörkuðum i Evrópu i gær. I Tókýó fengust fyrir hann 165,85 jen (166,10), þegar gjaldeyrismörkuðum þar var lokað. Verð á gulli var nánast óbreytt. Síðdegis í gær var gengi banda- ríkjadals sem hér segin 2,2110 vesturþýsk mörk (2,2195), 1.80825 svissneskir frankar (1.8185), 7,0550 franskir frankar (7,0895), 2,4910 hollensk gyllini (2,5005), 1.518,50 ítalskar lírur (1.524,50) og 1,3900 kanadadalir (1,38945). Júgóslavía: Leiðtogar gagnrýndir Belgrad, AP. LEIÐTOGAR kommúnistaflokks Júgóslaviu hafa verið gagnrýnd- ir harðlega fyrir slælega efna- hagsstjórn á 13. þingi flokksins, sem lýkur i dag. Þrátt fyrir gagnrýnina er búist við að allir uúverandi meðlimir miðstjóraar- innar haldi sætum sinum. A þinginu hefur einkum verið rætt um efnahagsmál en erlendar skuldir Júgóslava nema 19 miiljörð- um Bandaríkjadala. Verðbólga er 80% og kaupmáttur almennings hefur farið minnkandi. Júgóslavía er eitt fárra kommún- istaríkja sem heimilar gagnrýni á leiðtoga landsins í blöðum. Stöðugt háværari kröfur hafa birst um að þeir og embættismenn ríkisins taki' á sig ábyrgð á hinu dapurlega efnahagsástandi landsins. Bein sjónvarpsútsending var frá flokksþinginu en því lýkur í dag með kosningu til miðstjómar flokksins. Filippseyjar: Enrile hvetur til sam- stöðu með Aquino M.nll. AP VARNARMÁLARÁÐHERRA Filippseyja, Juan Ponce Enrile, hvatti i gær til stuðnings við tilraunir stjórnarinnar til að binda enda á skæruhernað kommúnista, sem staðið hefur í 17 ár. Enrile stjómaði uppreisninni, sem velti Marcosi, fyrmrn forseta, frá völdum og kom Corazon Aquino í forsetastólinn. Að undanfömu hefur Enrile oft látið í ljósi efasemdir varðandi til- raunir Aquinos til að semja um pólitíska lausn á deilunum við kommúnista, enda þótt hann segði jafnframt, að hann vildi friðarvið- ræður. í ræðu sinni í gær sagði Enrile, að fengi Aquino ekki nauðsynlegan stuðning, gæti svo farið, að skæm- liðar sigmðu og kæmu á marxista- einræði í landinu. Hann vísaði á bug orðrómi um ágreining milli sín og Aquinos, sagði, að þvert á móti væri nú sí- fellt batnandi samvinna milli borg- aralegra og hemaðarlegra yfir- valda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.