Morgunblaðið - 11.09.1986, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
203. tbl. 72. árg.
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Afganistan:
Skæruliðar sagðir
vera í mikilli sókn
Islamabad, Pakistan, AP.
FRELSISSVEITIR skæruliða gera nú ákafar árásir á Kabúl, höfuð-
borg Afganistans. Kunnugir telja þetta mestu árás skæruliða í mörg
ár. Stjórnarherinn og Sovétmenn tefla fram skriðdrekum og her-
þotum og freista þess að reka árásarliðið á flótta.
Talsmenn skæruliða í landa-
mærabænum Peshawar í Pakistan
segja að síðustu vikuna hafí verið
barist af hörku í Paghman-héraði
um 20 kílómetra frá Kabúl. Vest-
rænir sendimenn sögðu í gær að
ísrael - Egyptaland:
Taba-deil-
an leyst
Kaíró, AP.
EGYPTAR og ísraelar komust í
gærkvöldi að samkomulagi um
lausn Taba-deilunnar svonefndu.
Virðist því ekkert standa í vegi
fyrir fundi þeirra Hosnis Mubar-
ak, forseta Egyptalands, og
Shimons Peres, forsætisráðherra
ísraels. Ef af fundi þeirra verður
er það í fyrsta skipti í fimm ár
sem leiðtogar þessara tveggja
ríkja eiga viðræður.
Samkomulagið kveður á um að
deilan verði sett í gerðardóm og
skuldbundu bæði ríkin sig til að
hlíta úrskurði hans. Ekki fékkst
gefið upp hveijir myndu skipa dóm-
inn en sagt var að það yrðu „mjög
hæfír lögfræðingar".
Ríkin tvö hafa deiit í fjögur ár
um yfirráð yfir Taba, sem er eins
ferkílómetra stórt svæði á strönd
Sínaí-skaga. Hosni Mubarak hafði
sagt fund þeirra Peres óhugsandi
án þess að Taba-deilan væri úr sög-
unni.
ísraelar náðu Taba-svæðinu á
sitt vald í sex-daga-stríðinu árið
1967. Fyrir milligöngu Bandaríkja-
stjómar fengu Egyptar aftur yfir-
ráð yfir öllum þeim svæðum, sem
þeir misstu, að Taba undanskildu,
árið 1979.
herþotur hefðu varpað sprengjum i
nágrenni borgarinnar og að eld-
flaugar skæruliða hefðu valdið
miklu tjóni.
Abdul Haq, einn helsti herforingi
skæruliða, sem nýlega kom til Pak-
istan frá Kabúl, sagði fréttamönn-
um að frelsissveitir skæmliða hefðu
að undanfömu skotið eldflaugum á
höfuðborgina á degi hveijum.
1 tilkynningu frá stjórnvöldum í
Afganistan sagði að stjómarher-
menn hefðu unnið sigur á sveitum
skæmliða í Paghman-héraði eftir
mjög harða bardaga. Tilkynning
þessi var óvenjuleg fyrir þær sakir
að viðurkennt var að barist væri í
nágrenni höfuðborgarinnar.
„Afganska upplýsingaskrifstof-
an“ í Peshawar sagði að svo virtist
sem frelsissveitimar væm mjög vel
skipulagðar og að árásirnar á Kab-
úl væm hinar hörðustu í þijú eðá
fjögur ár.
Morgunblaðið/Júlíus
Þyrlan til aðstoðar eftir bílveltu
Um klukkan 15 í gær steyptist bifreið fram af veginum í Hvalfirði og hafnaði í fjörunni 50 metr-
um neðar. Atburðurinn átti sér stað norðan við Fossá. Karlmaður ók bílnum og hlaut hann nokkur
innvortis meiðsl. Þrátt fyrir að svigrúm væri mjög takmarkað gat þyrla Landhelgisgæslunnar lent
i fjörunni og flutti hún manninn í sjúkrahús.
Daniloff leggur til að honum og Zakharov verði sleppt:
Kveðst óttast versnandi
samskipti risaveldanna
Sovétmenn ekki taldir andvígir hugmyndinni
Moskva, AP.
BANDARÍSKI blaðamaðurinn
Nicholas Daniloff telur unnt að
lægja deilur stórveldanna um
mál hans. Hann vill að honum
og Sovétmanninum Gennadiy
Zakharov verði sleppt og þeir
fluttir í sendiráð heimalanda
sinna þar til réttað verður í mál-
Hinsta kveðjan
Gyðingarnir, sem myrtir voru í bænahúsi í Istanbúl um síðustu
helgi, voru bornir til grafar í gær. Um 1.000 manns komu saman
í bænahúsinu til að minnast hinna látnu en að athöfninni lok-
inni voru líkin flutt til greftrunar í kirkjugarði gyðinga í
Istanbúl.
um þeirra. Ruth Daniloff skýrði
fréttamönnum frá þessu í gær
eftir að eiginmaður hennar hafði
hringt til hennar á skrifstofu
tímaritsins US News And World
Reportí Moskvu. Sagði hún Dani-
loff óttast að mál hans myndi
spilla fyrir samskiptum stórveld-
anna og fyrirhuguðum fundi
þeirra Reagans og Gorbachevs.
Bandarískir embættismenn
íhuga nú kosti og galla hugsan-
legra gagnaðgerða gegn Sovét-
stjórninni.
Ruth Daniloff kvað eiginmann
sinn hlynntan því að hann og Zak-
harov, sem var formlega ákærður
í fyrradag fyrir njósnir í þágu Sov-
étríkjanna, fengju frelsi. Lagði
Daniloff til að sjálfur yrði hann
fluttur í sendiráðið í Moskvu en
Zakharov í sendiráð Sovétríkjanna
í Washington. KGB-menn hafa
jafnan fylgt Daniloff þegar hann
hefur fengið leyfi til að hringja í
konu sína og kann það að benda
til þess að Sovétstjórnin telji hug-
myndina ekki fráleita. Frú Daniloff
sagði fréttamönnum að eiginmaður
sinn væri því enn andvígur að höfð
yrðu fangaskipti á honum og
Gennadiy Zakharov. Stjórn Ronalds
Reagan er mótfallin slíkum skiptum
og segir Daniloff saklausan af
ákærum um njósnir.
í fréttatilkynningu frá Hvíta hús-
inu í gær sagði að fangelsun
Daniloffs spillti stórlega fyrir bætt-
um samskiptum risaveldanna.
Sagði ennfremur að mál hans hlyti
að verða eitt helsta umræðuefni
þeirra aðila sem undirbúa fyrir-
hugaðari fund leiðtoga stórveld-
anna.
Enn hefur ekki verið skýrt frá
ákærunni á hendur Gennadiy Zak-
harov í sovéskum fjölmiðlum en
þeir hafa birt fréttir um mál Dani-
loffs. Dagblaðið Sovietskaya Ross-
iya sagði í gær að hafin væri
„áróðursherferð gegn Sovétríkjun-
um á Vesturlöndum". Tass frétta-
stofan sagði bandarísku leyniþjón-
ustuna CIA oftlega nýta sér
blaðamenn til að afla leynilegra
upplýsinga.
Að sögn ónafngreindra banda-
rískra heimildarmanna kann svo að
fara að sovéskum sendimönnum hjá
Sameinuðu þjóðunum verði vikið
úr landi, fáeinum í senn, þar til
Daniloff fær frelsi á ný.
Líbanon:
ísraelar hefna
eldflaugaárása
Sprengjum varpað á Sidon
Sidon, Líbanon, AP.
ÍSRAELSKAR herþotur gerðu í gær sprengjuárásir á herbúðir pal-
est.ínskra skæruliða skammt frá hafnarborginni Sidon í suðurhluta
Líbanons. Að minnsta kosti þrír menn létu lífið og 13 særðust. Atta
klukkustundum áður en árásin var gerð var sovéskum eldflaugum
af Katyusha-gerð skotið á norðurhluta ísraels. Eldflaugunum var
skotið frá Suður-Líbanon og ollu þær miklu tjóni, að sögn talsmanna
Israelshers.
Aðfaranótt þriðjudags skaut ísra-
elskur fallbyssubátur á fjóra
Palestínuskæruliða í gúmbát
skammt undan strönd Sidon. Einn
skæruliði féll í skotbardaganum.
ísraelar sögðu skæruliðana hafa
ætlað að taka land í Israel og vinna
þar hermdarverk.
Loftárásin á Sidon var, að sögn
talsmanna Israelshers, gerð í hefnd-
arskyni við landgöngutilraun
skæruliða og eldflaugaárásir þeirra.
Lögreglan í Sidon sagði flestar
sprengjurnar hafa fallið á iðnaðar-
hverfi í borginni.
Palestínuskæruliðar hafa oftlega
gert eldfalaugaárásir á Israel en
þetta er í fyrsta skipti, sem þær
valda tjóni. F.nginn lét lífið í árás-
inni en nokkrir þurftu á aðhlynn-
ingu lækna að halda, að því er sagði
í útvarpinu í Israel.