Morgunblaðið - 11.09.1986, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
í hringiðunni
Því er stundum haldið fram að
í fréttum ljósvakafjölmiðlanna
sé sjónum beint í of ríkum mæli til
átakasvæða jarðarinnar. Er jafnvel
staðhæft að fréttamenn risafrétta-
stofanna nærist á eymd og volæði
mannskepnunnar og allur þessi
ósómi slævi sjónvarpsáhorfendur
og útvarpshlustendur þannig að
þjáningar meðbræðranna hætti
smám saman að snerta strenginn í
btjóstinu. Má vera, en getum við
lokað augunum fyrir þjáningum
meðbræðranna? Hvað segir ekki
Sigríður Ingvarsdóttir formaður
mannréttindasamtakanna Amnesty
Intemational hér í blaðinu í gæn
Úrræði þeirra sem eru þolendur
mannréttindabrota eru fá. Ofureflið
sem þetta fólk á við að etja er siíkt
að oft verða vamir til þess eins að
stjómvöld svara slíku með enn
meira harðræði sem aðeins eykur
böi hins þjáða. Fjölskyldur þeirra
sem þannig er ástatt fyrir eru oft
í bráðri hættu. Lögfræðingar sem
m.a. hafa það starf að hjálpa fólki
að ná rétti sínum hljóta stundum
sömu örlög. Þess vegna er það mjög
mikilvægt að þetta fólk fái utanað-
komandi aðstoð.
Nýtt hlutverk
Eins og sjá má á þessari lýsingu
formanns Islandsdeildar Amnesty
Intemational þá eru þeir margir í
heimi hér sem mega sín einskis
gegn ofríki glæpamannanna á
valdastólunum. Eina von þessa
þjáða fólks er oft á tíðum kastljós
fjölmiðlanna er lýsir upp hin myrku
skúmaskot þar sem böðlamir
þrífast líkt og rottumar. í ljósi þessa
er fréttamönnum alþjóðafjölmiðl-
anna ætlað nýtt hlutverk. Þeir eru
ekki lengur hlutlausir skrásetjarar
atburða heldur í raun og veru bein-
ir þátttakendur í leiknum. Þannig
sáum við til dæmis í ágætum mið-
vikudagsfréttatíma sjónvarps
blóðhunda Pinochet troða þing-
mönnum inn í lögreglubíla. Sá
atburður er þar með skjalfestur og
kann fréttamyndin að reynast mik-
ilvægt sönnunargagn ef Pinochet
verður sóttur til saka fyrir glæpa-
verkin. Vissulega er ekki geðslegt
að horfa upp á slíkt ofbeldisverk í
fréttatímum sjónvarps kvöld eftir
kvöld. En getum við setið hjá þegar
þjáningar meðbræðranna em svo
yfírþyrmandi sem raun ber vitni?
ístööugri hœttu
Handtaka bandaríska blaða-
mannsins Nicholas Daniloff er skýrt
dæmi um hvílík ógnun fréttamenn
eru orðnir hinum purkunarlausu
valdsmönnum. Einræðisherramir í
Moskvu eru dauðhræddir um að
glæpaverk þeirra í Afghanistan
verði heyrumkunnugt og því ákæra
þeir Daniloff fyrir njósnir. Eftirleik-
urinn er auðveldur alræðisstjóminni
því hún ræður dómsstólunum og
getur því hagað réttarhöldunum að
vild. Hinn frjálsi heimur verður að
taka höndum saman gegn alræðis-
stjóminni í Moskvu og knýja hana
til að leysa Daniloff úr haldi því
annars er mikil hætta á að aðrar
kúgunarstjómir sjái sér leik á borði
að handtaka fréttamenn eða myrða
undir því yfírskyni að þeir séu
njósnarar. Hugsum til allra þeirra
kúguðu meðbræðra okkar og systra
er dvelja í myrkum dýflissum á
geðveikrahælum í þrælkunarbúðum
og eiga máski allt sitt undir því að
fréttamenn nái til þeirra með
myndavélamar eða segulbandsupp-
tökutækin. Kúgunaröflin verða æ
hræddari við hið ftjálsa orð og því
má búast við að þau beiti senn
fréttamenn alþjóðafréttastofanna
meira harðræði en tíðkast hefur.
En framrás sögunnar verður eigi
stöðvuð. í krafti hinna frjálsu al-
þjóðaflölmiðla og aukinnar upplýs-
ingar almennings verður harðstjór-
unum og kúgurunum velt úr sessi
og lýðræðið kemst á um veröld víða.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Eskifjörður 200 ára
22—
í kvöld verður
flutt á rás 1
dagskrá í tilefni
200 ára afmælis Eskifjarð-
arkaupstaðar. Einar Bragi
og Hilmar Bjamason ætla
í sameiningu að rekja sögu
staðarins. Flutt verður brot
úr hátíðardagskránni frá
18. ágúst sl. og ennfremur
mun Eskjukórinn syngja,
en sú upptaka er frá því
er forseti íslands kom í
heimsókn þann 21. ágúst.
Við sama tækifæri var
frumflutt lag og ljóð til
Eskifjarðar sem Georg
Halldórsson söng. Umsjón
með þættinum hefur Inga
Rósa Þórðardóttir.
Torgið
■■^M í þættinum á
■| 745 fimmtudögum
verður fjallað
um tómstundaiðju al-
mennt.
Byijað verður á því að
fjalla um nám og námskeið
sem hefja göngu sína nú á
haustdögum. Fyrst verður
grennslast fyrir um list-
nám, þ.e. í myndlist og
tónmennt. Rætt verður við
kennara í þeim greinum um
uppbyggingu námsins og
gildi þess. Síðar verður
sagt frá öðrum þáttum
tómstundanáms, svo sem
tungumálanámi, hand-
mennt, tölvunámi o.fL
Umsjón annast Óðinn
Jónsson.
Vinsældalisti rásar 2
2022
Vinsældalisti
rásar 2 verður
leikinn í kvöld,
fimmtudagskvöld, eins og
venja er. Eins og margir
eflaust muna varð mikið
íjaðrafok út af lagi Skrið-
jöklanna, „Hestinum".
Skriðjöklamir heimsóttu
rás 2 eitt fimmtudagssíð-
degið og mun sá fundur
hafa orðið nokkuð söguleg-
ur. Á meðfýlgjandi mynd
má sjá hvemig Helgi Már
Barðason reynir að veijast
þegar sveitungi hans, Jak-
ob Jónsson Skriðjökull,
reynir að gefa honum ein-
tak af plötunni Manstu
eftir Berlín bollan ðfn.
Fimmtudagsleikrit Ríkisútvarpsins:
Skóarakonan dæmalausa
■■■■ Fimmtudags-
90 00 leikrit Ríkisút-
" O varpsins að
þessu sinni er gamanleik-
ritið Skóarakonan dæma-
lausa, eftir Frederico
Garcia Lorca, í þýðingu
Geirs Kristjánssonar.
Leikritið gerist í
spænsku sveitaþorpi þar
sem allir fylgjast grannt
með náunganum. Hinn ráð-
setti skóari þorpsins hefur
kvænst ungri skapmikilli
konu sem karlmennimir
þrá en konumar hata. Einn
góðan veðurdag er hinn
friðsami skóari búinn að fá
nóg af þorpsslúðrinu og
heimiliseijunum og tekur
til sinna ráða.
Leikstjóri er Helgi
Skúlason en með aðalhlut-
verk fara Guðrún Þ.
Stephensen, Þorsteinn Ö.
Stephensen, Róbert Am-
finnsson, Valur Gíslason
og Valgerður Dan.
Leikritið var frumflutt
árið 1967.
UTVARP
FIMMTUDAGUR
11. september
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.30 Fréttir. Tilkynningar
8.00 Fréttir. Tilkynningar
8.15 Veðurfregnir
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Hús 60 feðra" eftir
Meindert Dejong. Guðrún
Jónsdóttir les þýðingu sína
(11).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.45 Lesið úr forystugreinum
dagblaðanna.
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir
10.30 Ég man þá tíð
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum
árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Söngleikir á Broadway
'86. Sjötti þáttur: „Dames
at Sea". Umsjón: Árni Blan-
don.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn - Efri ár-
in. Umsjón: Inga Rósa
Þórðardóttir.
14.00 Miödegissagan: „Ma-
hatma Gandhi og lærisvein-
ar hans'' eftir Ved Mehta.
Haukur Sigurðsson les þýð-
ingu sina (11)
14.30 ílagasmiöjuJennaJóns.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Frá
Svæðisútvarpi Reykjavíkur
og nágrennis.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Strengjakvartettar eftir
Dmitri Sjostakovitsj. Kvart-
ett nr. 4 í D-dúr op. 83.
Saulesco-kvartettinn leikur.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpiö. Umsjón:
Vernharður Linnet og Sigur-
laug M. Jónasdóttir.
17.45 Torgið — Tómstunda-
iðja. Umsjón: Óðinn Jóns-
son. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Guðmund-
ur Sæmundsson flytur
þáttinn.
20.00 Leikrit: „Skóarakonan
dæmalausa" eftir Federico
Garcia Lorca. Þýðandi: Geir
Kristjánsson. Leikstjóri:
Helgi Skúlason. Leikendur:
Róbert Arnfinnsson, Guð-
rún Þ. Stephensen, Þor-
steinn Ö. Stephensen,
Valgerður Dan, Valur Gísla-
son, Jón Aðils, Pétur Einars-
son, Borgar Garðarsson,
Anna Guömundsdóttir,
Margrét Ólafsdóttir, Kristín
Anna Þórarinsdóttir, Mar-
grét Magnúsdóttir og Helga
Kristin Hjörvar.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Eskifjörður i 200 ár.
Dagskrá í tilefni af því að
liðin eru 200 ár frá þvi að
Eskifjöröur fékk fyrst kaup-
staöarréttindi. Umsjón: Inga
Rósa Þórðardóttir.
23.00 Á slóöum Jóhanns Se-
bastians Bach. Þáttaröð
eftir Hermann Börner frá
austur-þýska útvarpinu
Sjötti og síöasti þáttur. Jór-
unn Viöar þýðir og flytur.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
SJÓNVARP
19.15 Á döfinni
Umsjónarmaður Maríanna
Friðjónsdóttir.
19.25 Litlu Prúðuleikararnir
(Muppet Babies) Áttundi
þáttur. Teiknimyndaflokkur
eftir Jim Henson. Þýðandi
Guöni Kolbeinsson.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Rokkarnir geta ekki
þagnað
Hljómsveitin Röddin kynnt.
Umsjón: Jón Gústafsson.
FOSTUDAGUR
12. september
Stjórn upptöku: Bjöm Emils-
son.
21.05 Bergerac
Áttundi þáttur. Breskur
sakamálamyndaflokkur í tíu
þáttum. Aðalhlutverk John
Nettles. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.00 Seinni fréttir
22.05 Launráð í Vonbrigöa-
skarði
(Breakheart Pass) Banda-
rískur vestri frá 1975,
geröur eftir samnefndri
spennusögu eftir Alistair
MacLean. Leikstjóri Tom
Gries. Aðalhlutverk: Charles
Bronson, Ben Johnson,
Richard Crenna og Jill Ire-
land. Sagan gerist árið
1873. Járnbrautarlest er á
leið til umsetins virkis með
liðsauka. Meðal farþega eru
einnig samsærismenn um
rán og smygl og harösnúinn
spæjari sem settur hefur
verið þeim til höfuðs. Þýð-
andi Björn Baldursson.
Atriði í myndinni eru ekki viA
hæfi ungra barna.
FIMMTUDAGUR
11. september
9.00 Morgunþáttur
í umsjá Ásgeirs Tómassonar,
Gunnlaugs Helgasonar og
Kolbrúnar Halldórsdóttur.
Elisabet Brekkan sér um
barnaefni kl. 10.05,
12.00 Hlé.
14.00 Andrá
Stjórnandi: Ragnheiður Dav-
iðsdóttir.
15.00 Sólarmegin
Þáttur um soul- og fönktónlist
í umsjá Tómasar Gunnars-
sonar. (Frá Akureyri).
16.00 Hitt og þetta
Stjórnandi: Andrea Guð-
mundsdóttir.
17.00 Gullöldin.
Vignir Sveinsson kynnir lög frá
sjöunda áratugnum.
FIMMTUDAGUR
11. september
6.00—7.00 Tónlist i morg-
unsárið
Fréttirkl. 7.00.
7.00—9.00 Á fætur með Sig-
urði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blöðin, og
spjallar við hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 8.00 og 9.00.
9.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur öll uppáhaldslögin og
ræðir við hlustendur til há-
degis.
Fréttir kl. 10.00. 11.00 og
12.00.
12.00-14.00 Á Hádegis-
markaði með Jóhönnu
Harðardóttur. Jóhanna leik-
ur létta tónlist, spjallar um
18.00 Hlé.
20.00 Vinsældalisti hlustenda
rásar tvö
Leopold Sveinsson kynnir tíu
vinsælustu lög vikunnar.
21.00 Um náttmál
Jónatan Garðarsson sér um
þáttinn.
22.00 Rökkurtónar
Stjómandi: Svavar Gests.
23.00 Heitar krásir úr köldu stríði
„Napur gjóstur næddi um
menn og dýr. — Ár almyrkv-
ans." Sjöttj þáttur. Umsjónar
menn: Magnús Þór Jónsson
og Trausti Jónsson.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 15.00, 16.00
og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæðisútvarp fyr-
ir Reykjavik og nágrenni — FM
90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp fyr
ir Akureyri og nágrenni — FM
96,5 MHz.
neytendamál og stýrir flóa-
markaöi kl. 13.20.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar og spjallar við hlustendur
og tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Hallgrimur
Thorsteinsson i Reykjavík
síðdegis. Hallgrimur leikur
tónlist, litur yfir fréttirnar og
spjallar við fólk sem kemur
við sögu.
Fréttir kl. 18.00 og 19.00.
19.00—20.00 Tónlist með
léttum takti.
20.00—21.30 Jónína Leós
dóttir á fimmtudegi. Jónina
tekur á móti kaffigestum og
spilar tónlist eftir þeirra
höfði.
21.30—23.00 Spurningaleik-
ur. Bjarni Ó. Guömundsson
stýrir verðlaunagetraun um
popptónlist.
23.00—24.00 Vökulok. Frétta
menn Bylgjunnar Ijúka
dagskránni með frétta-
tengdu efni og Ijúfri tónlist