Morgunblaðið - 11.09.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR ll. SEPTEMBER 1986
Morgunbladið/Bjöm Guðmundsson
Tíkin Skotta.
Ólafsvík:
Lagfæringar
í Sjómanna-
garðinum
Ólafsvík.
Sjómannadagsráð í Ól-
afsvík hefir að undanfömu
látið gera miklar lagfær-
ingar á Sjómannagarðin-
um hér.
Göngustígur frá hliði að sjó-
mannastyttunni hefir verið
hellulagður og einnig hliðarstíg-
ur að kaffihúsinu Kaldalæk, sem
er innan garðsins. Ymislegt
Morgunblaðið/Bjöm Guðmundsson
Geirlaug Geirsdóttir við styttuna til minningar um látna sjómenn.
fleira hefir orðið til þess að Sjó-
mannagarðurinn er hinn snyrti-
legasti.
Björn Guðmundsson tók þess-
ar myndir á dögunum. Geirlaug
Geirsdóttir, sem snyrt hefir
garðinn undanfarin sumur, var
þá stödd þar ásamt tíkinni
Skottu, sem aðstóðar húsmóður
sína. Helgi
Reykjavíkurflugvöllur:
Girðingin var sett upp til að
minnka óviðkomandi umferð
„VERÐMÆTI hér inni á vallarsvæðinu eru upp á tugi milljóna
króna og ástæðan fyrir því að sett var upp girðing var sú að
hér hefur fólk getað rápað um án þess að nokkuð hafi verið
því til hindrunar og slökkviliðið hefur þurft að hafa afskipti
af fólki í hátt á annað þúsund skipti á ári,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson, slökkviliðsstjóri á Reykjavíkurflugvelli, þegar
hann var spurður að því hvernig á þvi stæði að vírgirðingu
við austanverðan flugvöllinn hefði verið komið fyrir.
Guðmundur sagði dæmi þess að hættu stafa af mannaferðum inn á
inn á svæðið hefði komið fólk án
þess að eiga þangað beint erindi
og hefði komið fyrir að það hefði
valdið tjóni. Þá kvað hann einnig
flugbrautirnar og vissi hann dæmi
þess að manneskja hefði þurft að
leggjast kylliflöt á braut vegna þess
að þota var að koma inn til lending-
ar. „Þá höfum við einnig dæmi um
Slátrun hefst
eftir helgina
Kirkjubæjarklaustur o g Húsavík fyrst af
stærri sláturhúsunum að þessu sinni
Blönduós:
Mikill ferða-
mannastraumur
Blönduósi.
FERÐAMÁLAFÉLAG Húnvetn-
inga gengst fyrir kynningu á
Húnavatnssýslum dagana 11. og
12. sept. Fyrirkomulag þessarar
kynningar verður með þeim
hætti að fulltrúum frá fjöimiðl-
um og ferðaskrifstofum verður
boðið í útsýnisferð um Húna-
vatnssýslur og kvöldvöku á Hótel
Blönduós.
Bessi Þorsteinsson hótelstjóri á
Hótel Blönduós er formaður Ferða-
málafélags Húnvetninga. í tilefni
af þessu ferðamálaátaki Húnvetn-
inga var Bessi spurður hvernig
rekstur Hótels Blönduóss hefði
gengið í sumar. Að sögn Bessa
hefur fjöldi gesta á Hótel Blönduós
aldrei verið meiri og er um 20%
aukningu að ræða milli ára. íslend-
ingar eru í meirihluta eða um %
gesta. Nýting á gistirými í júlí var
74% og dvöldu á hótelinu júlímánuð
samtals 826 gestir. í tengslum við
hótelið er aðstaða fyrir þá sem vilja
gista á ódýran hátt í svefnpoka-
plássi og var nýting þar einnig góð.
Hótel Blönduós er staðsett utan við
alfaraleið í rólegu umhverfí í gamla
bænum. Stutt er niður í fjöru þar
sem fjöldi sela á laxveiðum hafa
skemmt hótelgestum og öðrum.
Sólarlag við Húnaflóa er eftirminni-
legt hverjum sem upplifað hefur það
og það hafa margir ferðamenn upp-
lifað sem leið hafa átt um Húna-
vatnssýslur nú í sumar.
Klæðningar á
tvo vegarkafla
Borg í Miklaholtshreppi.
f SÍÐUSTU viku var klárað að
setja seinna klæðningarlagið á
nýja vegarkaflann frá Vegamót-
um að Stóru-Þúfu. Þá var einnig
sett fyrra klæðningarlagið á
kaflann frá Kolbeinsstöðum að
Haffjarðará. Á miðvikudag í
þessari viku var verið að setja
þar seinna klæðningarlagið.
Er hér um góða samgöngubót
að ræða. Einnig stendur til að und-
irbyggja fleiri vegarkafla sem sett
verður klæðning á næsta sumar.
Við hljótum að fagna hveijum kíló-
metranum sem þannig vinnst, því
nóg er hér af holóttum og illa upp-
byggðum vegum.
Ennþá er blíðskaparveður. í nótt
varð vart við frost og hélu við jörðu.
Er það fyrsta frostnóttin hér sunn-
an fialls.
- Páll
Norræna húsið:
CarlNiel-
sen í tali
og tónum
SUNNUDAGINN 14. septem-
ber kl. 16.00 les danska leikkon-
an Birte Sterup Rafn úr bréfum
tónskáldsins Carls Nielsen og
konu hans Anne Marie Broder-
sen, sem var myndhöggvari.
Með upplestrinum leikur Jorg-
en Westh tónlist eftir Carl
Nielsen á píanó.
Þau Birte Starup Rafn og Jacob
Westh hafa sett saman dagskrá í
tali og tónum um hjónaband Carls
og Anne Marie Nielsen undir nafn-
inu „Facetter af et kunstnerægte-
skab“ (Fletir á hjónabandi
listamanna) og flutt hana víða í
Danmörku auk þess sem þau komu
fram í Munch-safninu í Ósló í
mars síðastliðnum.
Birte Sterup Rafn er þekkt leik-
kona í Danmörku, en hún hefur
einnig starfað um árabil sem upp-
lesari og jafnframt kennt mælsku-
list (retorik) við Kaupmannahafn-
Birte Sterup Rafn
arháskóla. Hún hefur gert mikið
af því undanfarin ár að flytja slíka
dagskrá um tónskáld ásamt píanó-
leikurum og sjálfsagt ininnast
margir komu hennar og norska
píanóleikarans Einars Steen-
Noklebergs sumarið 1984, þegar
hún las úr bréfum Griegs og Chop-
ins og hann lék verk þeirra á píanó.
Carl Nielsen-dagskráin í Nor-
ræna húsinu hefst eins og fyrr
segir kl. 16.00 á sunnudaginn.
Aðgöngumiðar verða seldir við inn-
ganginn.
Haustslátrun sauðfjár
hefst í fyrstu sláturhúsunum
í byrjun næstu viku, en í
mörgum sláturhúsum hefst
slátrun ekki fyrr en eftir 20.
september.
Matthías Gíslason fulltrúi for-
stjóra Sláturfélags Suðurlands
sagði að regluleg haustslátrun
hæfist í sláturhúsi SS á Kirkjubæj-
arklaustri næstkomandi þriðjudag,
16. september, og síðan hæfíst
slátrun í öðrum húsum SS fljótlega
upp úr því. Síðasta sláturhús SS
fer í gang 24. september. I sumar-
slátrun sem fram fór í sláturhúsi
SS á Hvolsvelli var slátrað um
4.000 dilkum. SS rekur 6 sláturhús
og sagði Matthías að flest benti
tvö dauðsföll og alvarlegt slys
vegna þess að manneskjur fóru í
skrúfur flugvéla sem voru í gangi.
Þessi girðing er því ekki til annars
en að reyna að stemma stigu við
ferðum óviðkomandi inn á svæðið,
og í framtíðinni er meiningin að
girða allt svæðið af, en það veltur
á fjárveitingu hvenær það tekst.
Það er því alveg ástæðulaust að
gera veður út af þessu því það eru
einungis 25 metrar sem menn þurfa
að labba í viðbót til að komast inn
á svæðið um hlið sem fylgst er
með,“ sagði Guðmundur að lokum.
til að slátrun yrði svipuð og á
síðastliðnu hausti, eða um 137
þúsund íjár. Er það tæplega 73%
af því fé sem slátrað var á félags-
svæðinu, en 51 þúsundi var slátrað
í 5 einkasláturhúsum á Suðurlandi.
Magnús Friðgeirsson fram-
kvæmdastjóri búvörudeildar SÍS
sagði að sláturhúsið á Húsavík
hæfi slátrun strax eftir helgi, fyrst
þeirra sláturhúsa sem eiga aðild
að búvörudeildinni. Síðan færu
húsin í gang eitt af öðru, en mörg
þó ekki fyrr en eftir aðra helgi.
Sumarslátrun fór fram á vegum
búvörudeildarinnar í sláturhúsun-
um í Borgarnesi og Hvammstanga
í tengslum við námskeið fyrir
starfsfólk sláturhúsanna og var
1.600 lömbum slátrað.
-43
Loðnuveiðin:
Rúmlega sjö
þúsund tonn á
tveimur dögnm
ÁGÆT veiði hefur verið á loðnu-1
miðunum norður af landinu að
undanförnu. Á þriðjudag til-
kynntu fimm bátar um afla,
samtals 3.110 tonn, og á hádegi
á miðvikudag höfðu fimm til við-
bótar tilkynnt um afla, samtals
4.060 tonn.
Bátarnir sem tilkynntu afla á
þriðjudag voru Ljósfari RE 530
tonn, Hákon ÞH 800 tonn, Þórs-
hamar GK 600, Magnús NK 530
tonn og Skarðsvík SH 650 tonn.
Fimm bátar tilkynntu um afla frá
því um miðja nótt og fram á há- ^
degi á miðvikudag. Þeir voru: Gísli
Árni RE 640 tonn, Öm KE 580,
Þórður Jónasson EA 700 tonn,
Svanur RE 740 tonn og Eldborg
HF 1420 tonn.
Nýtt verð á
hörpudiski
ÁKVEÐIÐ hefur verið nýtt lág-
marksverð á hörpudiski og gildir
það frá 1. september til áramóta.
Verðið var ákveðið af oddamanni
nefndarinnar og fulltrúum kaup-
enda gegn atkvæðum fulltrúa
seljenda.
Heildarverð hvers kflós af hörpu-
diski í vinnsluhæfu ástandi, 7 sm á
hæð og yfir, er 22 krónur en skipta-
verðið 15,62 krónur. Verð á
hörpudiski 6-7 sm á hæð er 18
krónur kílóið en skiptaverð 12,78
krónur. Afhendingarskilmálar eru
óbreyttir og verðið er uppsegjanlegt
með viku fyrirvara frá 1. nóvember
næstkomandi, að þvi er segir í
fréttatilkynningu frá Verðlagsráði
sjávarútvegsins.
í yfimefnd ráðsins áttu sæti þeir
Bolli Þór Bollason, sem var odda-
maður, Ámi Benediktsson og
Marías Þ. Guðmundsson af hálfu
kaupenda og Helgi Laxdal og
Sveinn Hjörtur Hjartarson af hálfu
seljenda.
Tvö skip seldu
í Bretlandi *
Gott verð á gámaf iski
GOTT verð hefur verið á gáma-
fiski á Bretlandsmarkaði það
sem af er vikunni. Á þriðjudag
voru seld 524 tonn á meðalverði
63.60 krónur á kíló, sem er gott
verð.
Tvö skip seldu í Bretlandi í gær-
morgun, Álbert Ólafsson KE seldi
í Grimsby 39,5 tonn, mest þorsk
fyrir tæpar 2 milljónir, eða 49,54
krónur að meðalverði. Þá seldi
Hafnarey SU í Hull 97 tonn fyrir
tæpar 5,2 milljónir eða 53,64 krón-
ur að meðalverði. 55,5 tonn aflans —
var þorskur og fékkst fyrir hann
69,23 krónur, sem er gott verð.
Gráröndungar
í Þorlákshöfn
GRÁRÖNDUNGAR hafa veiðst
víðar en á Húsavík í sumar þvi
maður í Þorlákshöfn hafði sam-
band við blaðið og sagði að þar f
hefðu að minnsta kosti tveir
slíkir fiskar veiðst í sumar.
Maðurinn sagði að gráröndung-
amir hefðu veiðst í silunganet alveg
við land skammt frá Þorlákshöfn.
Annar var 40 sm löng hrygna, en
hinn var nærri 60 sm langur.