Morgunblaðið - 11.09.1986, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 11.09.1986, Qupperneq 23
ljóst að það eru sjálfsögð mannrétt- indi að ráða því hvemig þetta umhverfi mótast og hvaða leikregl- ur gilda þar. Lýðræði á vinnustað nær auðvit- að til þess að fólk geti samið um hvernig skiptingu arðs af rekstri fyrirtækisins er háttað. Starfsfólk þarf að fá upplýsingar um rekstur- inn og þarf að hafa yfirsýn um hann svo það geti tekið þátt í ákvörðunum svo sem varðandi skipulag, starfsmannahald og markaðsmál. Til þess að vinnustaðasamningar skiii þeim bótum sem eiga að geta orðið á launum fólks og afkomu fyrirtækisins, er nauðsynlegt að frelsi sé fyrir hendi bæði utan og innan fyrirtækisins til að bæta rekstur þess. Utan fyrirtækisins þarf að ríkja athafnafrelsi í sambandi við mark- aðsmál, skattamál, gengismál og bankamál. Þannig gætu duglegir starfsmenn rifið fyrirtæki sitt upp og bætt rekstur þess og þar með hag sinn, án þess að vera þrúgaðir eða njörvaðir niður af kreppuhugs- unarhætti og miðstýringu í efna- hagslífi. Innan fyrirtækisins þarf að ríkja sá hugsunarháttur að starfsmenn hafí möguleika á því að gera breyt- ingar á rekstri sem þeir telja nauðsynlegar. ZVI BARLEV ISATTEN VAR MIN VÉNN 81 I nákvæmni og mikilli sannfæringu og lýsingarnar á hörmungunum sem nauðungarvinnubúðafólkið varð að þola eru án allrar tilfínn- ingasemi, en settar fram af hispurs- leysi. Það sem, gefur þessari bók gildi, að mínum dómi, er hversu skorinorður og einlægur höfundur er. Og umfram allt hversu frásögn- in er laus við allan hávaða og göslaragang. Evelyn Anthony: The Avenue of the Dead. Útg. Arrow Books 1985. Þeir sem hafa lesið bækur Ant- honys um Davinu Graham, hina íðilsnöllu brezku leyniþjónustukonu, hafa hér fengið ágætis lesefni. Davina er að syrgja eiginmann sinn, Rússann Ivan Sasanov, en hann hafði strokið vestur og auðvitað þurftu Rússar og þeir vondu KGB- menn að hefna sín á honum. Davina kennir fyrrverandi yfirmönnum sínum í „þjónustunni“ um morðið að nokkru, þar sem ekki hafí verið hirt um að gæta öryggis Sasanovs MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986 23 Segja má að þegar vinnustaða- samningar ganga vel, verði allir starfsmenn fyrirtækisins um leið áhugamenn um aukinn ágóða þess. En þá verða þeir að hafa leiðir til að fínna áhuga sínum farveg. Minni truflanir Þegar samið er innan fyrirtækis- ins verða minni truflanir á starfsemi þess, því einstakir hópar innan þess stöðva ekki lengur reksturinn vegna launabaráttu sinnar. í Álverinu í Straumsvík vinnur fólk úr ýmsum verkalýðsfélögum. Þar eru jám- smiðir, trésmiðir, verkfræðingar og skrifstofufólk. Undir venjulegum kringumstæðum gæti rekstur stöðvast æ ofan í æ vegna launabar- áttu einstakra hópa. I Álverinu er hins vegar samið eins og um vinnu- staðasamninga væri að ræða. Það er gert með því að heildarsamning- amir innan vinnustaðarins fá blessun hinna einstöku verkalýðs- félaga. Dæmi um hið gagnstæða eru flutningafyrirtæki hérlendis eins og skipafélögin og Flugleiðir. Þau stöðvast æ ofan í æ af þeim ástæð- um sem raktar eru hér að framan. Gamlar atvinnugreinar og nýjar Rétt er að gera greinarmun á hinum hefðbundna atvinnurekstri eins og vert væri. Hún ætlar aldrei að lyfta litla putta fyrir þjónustuna. En þegar hún er beðin að fara til Washington og hitta gamla skóla- systur, Elizabeth Fleming, stenzt hún ekki mátið. Vegna þess að það er trúlegt að sá, sem skipulagði morðið á manninum hennar, sé á bak við þessa kyndugu atburði í Washington. Fleming er einn nán- asti ráðgjafi forseta Bandaríkjanna og hin unga og yndislega kona hans er allt í einu orðin fyllibytta af verstu sort og segir að maður sinn sitji um líf sitt, því að hún hafí komizt að þvi að hann njósni fyrir Rússa. Leiðindapúkinn Colin Lomax, sem lesendur Evelyn Anthony mega einnig kannast vð, kemur hér við sögu. Og er ekki eins leiðinlegur og hann lítur út fyrir í fyrstu. Og málið verður æ flóknara og at- burðarásin æsilegri. Prýðileg afþreying. Og það hefðu ekki allir leikið eftir þeim félögum Davinu og Lomax að leysa þessa gátu. Auglýsingar 22480 Afgreiðsla 83033 okkar og nýju atvinnugreinunum svokölluðu. I „gömlu greinunum" hafa ávallt verið fyrir hendi hin glöggu skil fjármagns og vinnuafls, sem hafa sett mark sitt á skipulag lq'arabaráttu undanfarinnar ára- tuga. í „nýju greinunum“ eru mörkin hins vegar miklu óljósari. Þar ganga menn til samstarfs á meiri jafnréttisgrundvelli. Frum- kvæði, hugvit og sérþekking eru jafn mikilvæg og fjármagn til að reka fyrirtæki á tölvusviðinu, svo dæmi sé tekið. Sérþekking og þjálfun starfsfólks verður sífellt mikilvægari fyrir sam- keppnisfæra framleiðslu í sjvarút- vegi, landbúnaði og iðnaði. Þess vegna munu hin gömlu skil flár- magns og vinnuafls, sem þar hafa ríkt, riðlast með árunum. Gegn meðaltalssýkinni Vinnustaðasamningar geta sótt arð í fyrirtæki, sem meðaltalssamn- ingar Garðastrætisins geta ekki. Starfsfólkið á að geta vitað nægi- lega mikið um rekstur fyrirtækisins til að gera sér glögga grein fyrir greiðslugetu þess. Þess vegna er lítill vafi á því að vinnustaðasamn- ingar myndu í heild hækka launa- greiðslur á íslandi, enda myndi greiðslugeta fyrirtækjanna aukast við bætt samskipti stjórnenda og hins almenna starfsfólks. Meðaltalssamningar eins og nú eru tíðkaðir eru gerðir á grundvelli einhvers konar mats á heildaraf- komu fyrirtækja í tilteknum at- vinnugreinum. I þessum útreikning- um fylgjast að fyrirtæki sem eru vel og illa rekin. Þannig leitast meðaltalssamningamir ekki við að teygja upp laun, heldur setja þeir öryggisnet undir þau fyrirtæki sem verst eru stödd. Þetta er rangt vegna þess að það má ekki til lengd- ar reyna að halda lífínu í illa reknum fyrirtækjum. Aukinn jöfnuður launa Núverandi fyrirkomulag heildar- samninganna hefur búið til launa- mun sem búið er að læsa í hlutföllum sem virðist ómögulegt að hrófla við. Þess vegna hefur ekki tekist í heildarsamningnum og mun ekki takast, að rétta hlut þeirra sem eru lægstir. Þegar samið er innan fyrirtækis fæst aukinn launajöfnuður. Það er staðreynd að stéttir sem hafa lægstu launin í fyrirtækjunum, svo sem fólk í eldhúsi eða við ræstingu, njóta þeirra samkenndar sem myndast þegar starfsmannafélagið semur í heild fyrir alla. Þess vegna eru þessi hópar fólk tiltölulega bet- ur launaðir í fyrirtækjum þar sem samið er innan fyrirtækis í heild heldur en þar sem heildarsamning- amir gilda. Um hvað er hægt að semja? í vinnustaðasamningum er hægt að semja um hvað sem starfsfólk álítur til hagsbóta. Fólk getur sam- ið um beinar launahækkanir, aðstöðu, s.s. orlofsferðir og sérstök launakerfi, s.s. bónus. Erlendis fer mjög í vöxt að laun séu tengd ágóða fyrirtækja. Ef samið er um ágóðahlut næst hvatn- ing til að bæta afkomu fyrirtækis í heild, en ekki einungis til að bæta afköst, eins og launakerfi í fiskiðn- aði hérlendis gera. Höfundur er þingmaður Banda■ lags jafnaðarmanna. portobcluTs Peysur og jakkapeysur GARÐURINN Adalstræti9, simi 12234.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.