Morgunblaðið - 11.09.1986, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 11.09.1986, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986 Hópurinn í kaffisamsæti hjá Ellihjálpinni á Litlu Grund. Danskir Islending- ar í boði Grundar KVENSKÓR m.a. í no. 42 til 44 í ótrúlegu r 1 • Spariskór, götuskór, töfflur og leðurstígvél. T.d. eru 150 gerð- ir til í no. 42. í TILEFNI af 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar á dögunum bauð Elliheimilið Grund öldruðum Islendingum, sem búsettir hafa verið í Danmörku undanfarna áratugi, til Islands. Komu 7 manns til Is- lands I fylgd með sendiráðsprestinum, Ágúst Sigurðssyni. Dvaldi hópurinn i Asi í Hveragerði í vikutíma. Fór hópurinn um Suðurland og skoðaði Gullfoss og Geysi og var við guðsþjónustu í Hveragerðis- kirkju, þar sem Agúst prédikaði. Að lokinni dvölinni í Ási í Hvera- gerði kom hópurinn til Reykjavíkur og fóru sumir af stað aftur ti! Dan- merkur strax að lokinni vikudvöl- inni í Hveragerði, en sumir ætla að dvelja aðeins lengur hjá ættingj- um og vinum á íslandi áður en farið verður aftur út. Sumir íslendingamir höfðu ekki ■'Jcomið til íslands í áraraðir, og sú sem lengst hafði dvalið ytra sam- fellt hafði ekki komið til landsins í 24 ár. Sagðist hún verða 70 ára á næsta ári, og sennilega yrði þetta í síðasta sinn, sem hún fengi að sjá Gullfoss. Hópurinn var ánægður með dvöl- ina í Hveragerði og þakklátur Gísla Sigurbjönssyni forstjóra fyrir þetta rausnarlega boð til þessara öldruðu Islendinga í Danmörku að gera þeim kleift að komast enn einu sinni til Islands áður en yfír lyki. Þing sambands ungra jafnaðarmanna: Alþýðuflokkurinn verði í næstu ríkisstjórn SAMBAND ungra jafnaðar- manna (SUJ) telur, að Alþýðu- flokkurinn eigi að taka sæti í næstu ríkisstjórn. Aftur á móti telur sambandið einsýnt, að Framsóknarflokkurinn verði ut- an stjórnar fyrst um sinn eftir næstu kosningar. Þetta kemur fram í stjórnmálaályktun SUJ, sem samþykkt var á 37. þingi sambandsins í Kópavogi um síðustu helgi. Orðrétt segir í ályktuninni: „íslenska þjóðin stendur á pólitískum tímamótum. í næstu kosningum stendur val kjósenda um það, hvort þeir vilji áfram feta braut ..jjarkaðshyggju og fijálshyggju, þkr sem leiðarljósin eru þau að skammta launafólki úr hnefa, en lyfta undir fjármagnseigendur til aukins gróða, eða hvort íslenskir kjósendur velji leið jafnaðarmanna, sem beijast fyrir gnindvallarmann- réttindum fólksins í landinu; mannréttindum á borð við þau að fólk geti lifað mannsæmandi lífí af dagvinnutekjum, það geti komið þaki yfír höfuðið án þess að tapa líkamlegri sem andlegi-i heilsu, að þjóðarauði verði réttlátlega skipt, að íslenskt þjóðfélag verði grund- vallað á jafnrétti, frelsi og bræðra- lagi- Um þessi höfuðmarkmið snúast k.omandi þingkosningar. Þær fjalla um það hvort Alþýðuflokurinn fái stóraukinn styrk til að koma brýn- um framfaramálum í framkvæmd sem forystuafl í nýrri ríkisstjórn, eða hvort ftjálshyggjuöfl Sjálfstæð- isflokksins, afturhald Alþýðubanda- lagsins og blóðlaust íhald framsóknar verði áfram við stjórn þjóðarskútunnar eins og verið hefur hlélítið undanfarin fímmtán ár. 37. þing Sambands ungra jafnað- armanna telur einsýnt að áhrifa jafnaðarmanna á landsstjómina verði að gæta í stórauknum mæli. Þess verður áþreifanlega vart, sbr. niðurstöður síðustu sveitarstjómar- kosninga, að styrkur Alþýðuflokks- ins fer vaxandi með hveijum deginum. Því ber Alþýðuflokknum að taka sæti í nýrri ríkisstjóm að afloknum kosningum og taka sam- an höndum við þau öfl í öðrum flokkum sem vilja vinna á grund- velli þeirrar lífsstefnu jöfnuðar og réttlætis sem jafnaðarstefnan byggir á. í bæði Sálfstæðisflokki og Alþýðubandalagi er að fínna fólk sem skynjar mikilvægi þess að gmnntónar jafnaðarstefnunnar verði hafðir að leiðarljósi í íslensku þjóðfélagi framtíðar. Þingið telur einsýnt að Fram- sóknarflokkurinn verði utan stjóm- ar fyrst um sinn og noti þann tíma vel til endurhæfíngar og upprifjunar í þeim fræðum sem flokkurinn var í upphafi stofnaður til að koma á framfæri og í framkvæmd. 37. þing SUJ telur nauðsynlegt að áhrif ungs fólks verði stóraukin á framboðslistum Alþýðuflokksins fyrir komandi þingkosningar. Ferskri og framsækinni stefnumót- un jafnaðarmanna verður að fylgja eftir með framboðslistum sem bera með sér endurnýjun og nýja kraft- mikla talsmenn unga fólksins." Auk stjómmálaályktunar sam- þykkti þing SUJ ályktanir um utanríkismál, velferðarkerfíð á ís- landi, húsnæðismál, atvinnumál og verkalýðsmál. Þá var sambandinu kosin ný stjóm. María Kjartans- dóttir var kosin formaður, en með henni í stjórn eru Kristinn H. Grét- arsson, Öm Karlsson, Gylfí Þ. Gíslason, Erlingur Kristinsson, Magnús A. Magnússon og Kristín Knútsdóttir. Suðurnes Niarðvík — Keflavík Hvernig væri að koma línunum og skapinu í lag og skella sér í hressandi leikfimi hjá Birnu og láta góða líkamsþjálfun verða hluta af lífsmynstrinu. Allir finna flokk við sitt hæfi í íþróttahúsi Njarðvíkur og íþróttasal Myllubakkaskóla Keflavík. Dag- og kvöldtfmar 2 og 4 sinnum í viku. Kennsla efst 15. september. „Lausir" tímar fyrlr vaktavinnufólk. Rólegar æfingar við allra hæfi. Byrjendaflokkar Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir dömur á öllum aldri. Framhaldsfiokkar Góðir teygju og þoltímar fyrir hresst fólk á öllum aldri. Eróbikk Barna- og unglingaflokkar frá 6 ára aldri Jassballet Upplýsingar og innritun í síma 6062. Birna Magnúsdóttir. OG REGUUGEFOR MARKMIO ÞESSA NÁMSKEIÐS ER AÐ KENNA ÞÁTTTAKENDUM AO GERA AÐFLUTNINGSSKÝRSLUR OG VERÐÚTREIKNINGA. AUKIN ÞEKKING Á ÞEIM GRUNDVALLARATRIÐUM ER VARÐA INNFLUTNING OG TOLLMEÐFERÐ STUÐLA AÐ TÍMASPARNAÐI OG KOMA í VEG FYRIR ÓÞARFA TVÍVERKNAÐ VEGNA ÞEKKINGARLEYSIS. Efni: — Kennt að fylla út hin ýmsu skjöl og eyðu- blöó við tollafgreiðslu. — Meginþættir laga og reglugeröa er gilda við tollafgreiðslu vara — Grundvallaratriöi tollflokkunar. — Helstu reglur við verðútreikning. — Raunhæf verkefni. NÁMSKEIÐIÐ ER ÆTLAÐ ÞEIM ER STUNDA INNFLUTNING í EINHVERJU MÆLI OG EINNIG FYRIR ÞÁ ER ÆTLA AÐ HEFJA SLÍK STÖRF OG VANTAR VIDBÓTARUPPLÝSINGAR OG FRÆDSLU.______________________________ Leióbeinandi: Karl Garóarsson, viöskiptatræðingur. Deildarstjóri á skrifstofu tollstjóra. A Ánanaustum 15 • Slmi: 6210 66 Stjórnunarfélag íslands JHttgmifrliifetfe Gódan daginn! NÝTT SÍMANÚMER 69-11-00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.