Morgunblaðið - 11.09.1986, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 11.09.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐŒ), FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986 33 Pólland: Samið um erlendar TRIUMPH viðskiptaskuldir Vinarborg, AP. PÓLSK stjórnvöld og vestrænir bankar hafa gert með sér samning um nýtt greiðslufyrirkoniulag á skuldum að fjárhæð yfir 2 milljarð- ar dollara, sem gjaldfalla á þessu Það var Dresdner Bank í Vestur- Þýzkalandi, sem annaðist þessa samninga. Erlendar skuldir Pól- veija nema nú yfir 31 milljarði dollara og þar af eru 7 milljarðar dollara skuldir við viðskiptabanka á Vesturlöndum. Pólveijar hafa gert samninga af þessu tagi áður, síðast 1984. Samn- ári og því næsta. ingamir nú ná til vanskilaskuldaj sem þar með verður komið í skil. I yfirlýsingunni, sem gefín var út, sagði að markmiðið með þessum samningum væri að „aðstoða Pól- veija við að halda áfram að standa í skilum með skuldbindingar sínar við erlenda lánardrottna." Ekkja meints morðíngja sonar Lindberghs: Vill að þingið lýsi mann sinn saklausan Trenton, New Jersey, AP. ANNA Hauptmann, ekkja Brunos Richard Hauptmann, sem líflátinn var fyrir hálfri öld fyrir að ræna og myrða son flughetjunnar Charles A. Lindbergh, fór þess á leit við ríkisþing New Jersey að það lýsti mann hennar formlega saklausan. „Guð veit að maðurinn minn var saklaus. Hann sá aldrei son Lind- bergs," sagði ekkjan, sem boðist hefur til að láta niður falla mála- ferli, þar sem krafizt er 10 milljóna dollara skaðabóta, ef þingið hreins- ar nafn manns hennar. Fordæmi er ekki fyrir samþykkt af því tagi í sögu ríkisþingsins. Forseti öldungadeildar þings New Jersey, John Russo, sagði það vera hlutverk dómstólanna að dæma menn eða sýkna. Robert Bryan, lögfræðingur Anna Haupt- mann, hefur talað máli hennar við Russo og ritað öllum þingmönnun- um bréf þar sem þess er farið á leit að hann fái að mæta á þing- fund og skýra frá máli hennar. Lögfræðingurinn heldur því fram að nýlega hafi komið fram í dags- ljósið skjöl, sem sanni sakleysi Bruno Richards Hauptmann, en þau höfðu verið týnd í um hálfa öld. Díana prinsessa: Glæsilegust allra Breta London, AP. DIANA prinsessa af Wales er glæsilegust og tollir best í tískunni allra Breta, samkvæmt Gallup-könnun sem birt var í London sl. þriðjudag. Ríkisarf- inn, maður hennar, var í öðru sæti. Sjö meðlimir bresku konungs- fjölskyldunnar voru í tíu efstu sætunum. Andrew prins varð í þriðja sæti ásamt sjónvarpsmannin- um Terry Wogan og kona hans, Sara, vatð í fimmta sæti. Þúsund manns tóku þátt í könn- uninni og var hver og einn beðinn um að nefna 10 konur og 10 karla. Díana prinsessa fékk 534 tilnefn- ingar í fyrsta sæti og Karl prins 158. Elísabet drottning lenti í sjötta sæti og drottningamóðirin í því níunda. Bandaríkjamaður og forseti Lionsklúbba: Fórnarlömb mannræningja Beirút, Washington, AP. FORSETA samtaka 39 Lionsklúbba í Líbanon og Jórdaníu, Victor Kenou, sem er af sýrlenskum ættum, var rænt í gær, rétt við franska sendiráðið í Beirút. Daginn áður var Frank Herbert Reed, banda- rískum yfirmanni libansks skóla í Beirút, rænt, er hann var á leið frá heimih sinu í Vestur-Beirút 17 útlendinga í haldi. Reed er fyrsti Bandaríkjamaður- inn sem rænt er í Líbanon í 15 mánuði og er litið svo á, að ránið sé bein ögrun við Sýrlendinga, sem í júní skipulögðu aðgerðir til þess að tryggja öryggi í Beirút. Samtök öfgasinnaðra múhameðstrúar- manna, Heilagt stríð, er talin eru í tengslum við ríkisstjómina í íran, hafa lýst ábyrgð á ráninu á Reed á hendur sér. Segja þau að hann sé njósnari leyniþjónustu Banda- ríkjanna, CIA. Reed hefur búið í Líbanon undanfarin 8 ár og unnið út á golfvöll. Hafa skæruliðar nu við skólastofnanir. Hann er kvænt- ur sýrlenskri konu og tók múham- eðstrú fyrir nokkrum árum. Larry Speakes, talsmaður Hvíta hússins, sagði í gær að Bandaríkja- stjórn hvetti þá, er rænt hefðu Reed og öðrum er haldið væri í gíslingu í Líbanon, til þess að láta þá lausa nú þegar. Ekki er vitað hve margir Bandaríkjamenn dvelja enn í Líban- on, mjög margir þeirra hafa flutt úr landi á síðustu árum, en giskað er á að þeir gætu verið um fimm hundruð 7aTRIllMPH Einar J. Skúlason hf. Gott merki hjá traustii fyrirtæki Grensásvegi 10- Sími 68 69 33 Vestur-þýsk gæðavara. RS 232 raðtengi eða centronics hiiðartengi. Hefur verið tengdur flestum tölvutegundum. Gott verð, góð greiðslukjör. SKÓL'NN dansnýjung Og nú í frábærum sal á Hverfisgötu 46, Frostaskjóli í KR-húsinu og Hlégarði, Mos- Innritun hafin í síma 46219 frá kl. 10.00-18.00. AJhending skirteina er i Tónabæ frá kl. 13.00—17.00 og í Hlégaröi frá kl. 18.00— 20.00 sunnudaginn 14. sept. ATH. NÝTT NÝTT Hjónatímar og konu- tímar i léttum dansi og dansæfingum. Tiskusýningarnámskeið fyrirbörnogunglinga frá 4ra ára aldri, og nú leitum við eftir fólki i sýningar- hópa. Burt með feimni og ófram- fæmi, bæði dans- og tískusýningarnámskeið stuðla að öryggi og góðri framkomu. SKILABOÐTIL ALLRA UNGLINGA Á STÓR-REYKJAVÍKURSVÆÐINU ísplunkunýjum sal byrjum við að dansa meðfrá- bœra dansa, allir nýjustu dansarnir úr Harlem show auk fjölda annarra dansa. Dansarnir okkar eru góðir, það hefur árangur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.