Morgunblaðið - 11.09.1986, Blaðsíða 68
SEQÐU
RNARHÓLL
ÞEGAR
ÞÚ FERÐ ÚTAÐ BORÐA
SÍMI18833------
ffgmt&Ijifetfe
STERKT KORT
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
VERÐ I LAUSASOLU 50 KR.
Kröfur Rússa auka
óvissu um sölu síldar
Hljótum að endurskoða öll okkar viðskipti við Sovét-
menn náist ekki samningar segir Kristján Ragnarsson
ENN EYKST óvissan hvað
varðar fyrirhugaða saltsíld-
arsamninga á milli Síldarút-
vegsnefndar og Prodintorg.
Prodintorg sendi nefndinni
sl. mánudagskvöld drög að
samningi, þar sem m.a. er
krafist þess að síldin verði
afgreidd í hálftunnum, en
þær eru hvergi fáanlegar í
heiminum, auk þess sem
.slíkar umbúðir eru um 30%
' “^&ýrari en þær tunnur sem
síldin er afgreidd í. Þá krefj-
ast þeir verðs sem Síldarút-
vegsnefnd er sammála um
að ekki komi til greina að
fallast á. Eru sfldarsaltendur
því svartsýnni en nokkru
sinni fyrr á að síldarsölusamn-
ingar geti tekist.
Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytis-
stjóri viðskiptaráðuneytisins, sem
^g^efur leitt íslensku viðræðunefnd-
ína í almennu viðskiptaviðræðunum
við Sovétmenn í þessari viku, telur
að allt of snemmt sé að segja til
um niðurstöður samninga, sem séu
ekki einu sinni hafnir. Segir hann
Sovétmennina sem hér eru staddir
jafnframt telja að Síldarútvegs-
nefnd geri of mikið úr því sem á
milli aðila ber.
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, sagði m.a. í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins í gær: „Ég
dreg í efa að Rússar vilji halda
þessum viðskiptum áfram þegar
þeir eru að biðja um umbúðir sem
ekki eru fáanlegar í heiminum."
Kristján sagðist telja að Sfldarút-
vegsnefnd ætti hvergi að gefa eftir
í viðræðunum, hvorki hvað verð né
umbúðir snertir. Það yrði að láta á
það reyna hvort Rússar vildu þessi
viðskipti eða ekki og ef þeir vildu
þau ekki, þá hlytu öll okkar við-
skipti við þá, þ.á m. olíuviðskipti
að koma til endurskoðunar.
Einn sfldarsaltandi sagði í gær-
kveldi: „Mér sýnist sem Rússamir,
með þessum skilyrðum sínum, séu
að reyna að losa sig undan sfldar-
kaupum, á sama hátt og þeir hafa
losað sig við ullarkaup og lagmetis-
kaup."
Sjá nánar bls. 4.
Jafnt gegn Evrópu-
meisturunum
Landsleik íslands og Frakklands í
Evrópukeppninni á Laugardalsvelli
í gærkvöldi lauk án þess að mark
væri skorað en íslenska liðið átti
betri marktækifæri í leiknum.
Frakkar era núverandi
Evrópumeistarar og urðu í þriðja
sæti í heimsmeistarakeppninni í
Mexíkó í sumar. Tæplega 14.000
áhorfendur fylgdust með viðureign
liðanna og má nærri geta að mikil
spenna var í loftinu er Islendingar
fengu tækifæri það er myndin
sýnir. Pétur Pétursson komst þá á
milli frönsku varnarmannanna
Genghini og Bola en skalli hans fór
rétt yfir.
Sjá nánar á íþróttasíðum,
Morgunblaðið/RAX
Enn skelfur
Ljótipollur
VÆGIR jarðskjálftakippir urðu
í Flóanum í fyrrakvöld. Fyrst
®*?.omu örlitlir skjálftar um kvöld-
matarleytið og síðan einn sem
mældist 2,5 stig á Richters-
kvarða seinna um kvöldið.
Þyrluslysið í Jökulfjörðum:
Vitni yfirheyrð vegria
málshöfðunar ríkisins
Enn er skjálftavirkni á Land-
mannaafrétti. Þar hafa verið 20-30
litlir jarðskjálftakippir á dag síðan
24. ágúst, eða í tvær og hálfa viku.
Stærstu skjálftarnir era um 1 stig
á Richter, en flestir minni. Þeir
mælast aðeins á einum jarðskjálfta-
mæli, við Ljótapoll á Landmannaaf-
rétti, og hefur því ekki verið hægt
að staðsetja upptök þeirra nákvæm-
lega. Páll Einarsson jarðeðlisfræð-
ingur hjá Raunvísindastofnun
Háskólans sagði að þessir skjálftar
^efðu valdið vísindamönnum heila-
brotum því þeir væra nokkuð
sérkennilegir, til dæmis með lága
tíðni og stæðu þetta lengi.
Sjá nánar samantekt um
skjálftavirkni og jökulhlaup á
bls. 36 og37.
BANDARÍSKIR lögmenn
íslenska ríkisins og Sikorsky-
flugvélaverksmiðjanna hafa
undanfarna daga verið hér á
landi til að taka skýrslur af vitn-
um vegna málshöfðunar rikisins
á hendur verksmiðjunum vegna
slyssins í Jökulfjörðum í nóvem-
ber 1983, þegar þyrla Landhelg-
isgæslunnar, TF-RÁN, fórst. Níu
vitni hafa verið yfirheyrð, meðal
annars nefndarmenn í rannsókn-
amefnd flugslysa, starfsmenn
Landhelgisgæslunnar og Flug-
málastjórnar og skipstjóri
rækjubátsins sem fann hurð þyrl-
unnar.
Ríkið höfðaði málið á hendur Sik-
orsky fyrir dómstóli í Connecti-
cut-ríki í Bandaríkjunum. Að sögn
Gunnlaugs Claessen ríkislögmanns
byggist málshöfðunin á niðurstöð-
um rannsóknamefndar flugslysa
sem telur að rennihurð á þyrlunni
hafi rifnað af á flugi og slegist upp
í þyril hennar með þeim afleiðingum
að hún missti- flughæfnina og hrap-
aði í sjóinn. „Við teljum að ekkert
annað en galli hafi getað valdið því
að þetta gerðist og framleiðandi
flugvélarinnar beri ábyrgð á því,“
sagði Gunnlaugur. íslenska ríkið
gerir kröfu um að Sikorsky-verk-
smiðjurnar greiði yfir 3 milljónir
dollara í skaðabætur, en það er jafn-
virði yfír 120 milljóna íslenskra
króna.
Gunnlaugur sagði að samkomu-
lag lögmanna beggja aðila um að
taka skýrslurnar hér á landi hefði
verið íslendingum mjög til þæginda
og sparað ríkinu kostnaðinn við að
senda vitnin til Bandaríkjanna.
Hann sagði að á næstunni yrðu
yfírheyrð vitni í Bandaríkjunum.
Eftir það verður málið væntanlega
tilbúið til flutnings og bjóst Gunn-
laugur við að það gæti orðið á miðju
næsta ári.
Loðnuverðið frjálst
P
SAMKOMULAG varð á
fundi í Verðlagsráði sjáv-
arútvegsins í gær um að
gefa verðlagningu á loðnu
til bræðslu frjálsa frá 15.
september til 14. október
næstkomandi.
Er þetta í fyrsta skipti í 25
ára sögu Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins sem fískverð er gefíð
frjálst. Forsvarsmenn útgerðar-
manna og loðnuverksmiðjanna
segjast ekki gera sér grein fyrir
áhrifum þessarar ákvörðunar á
loðnuverðið. Því má búast við að
spenna ríki þegar verð verður
fyrst tilkynnt eftir helgina.
Sjá nánar „Tímamóta-
ákvörðun" á bls. 2.