Morgunblaðið - 11.09.1986, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
Lee Baggett yfirmaður herafla NATO á Atlantshafi:
Deilnrnar við Banda-
ríkin alvarlegs eðlis
Segir alvöru málsins ekki fara fram hjá
æðstu valdamönnum Bandaríkjanna
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Frá fundinum í forsætisráðuneytinu í gær: F.v. Anderson, yfirmaður
varnarliðsins, Lee Baggett, yfirmaður herafla NATO á Atlantshafi,
Steingrímur Hermannsson, Ruwe, sendiherra Bandaríkjanna á Is-
landi, og Sverrir Haukur Gunnlaugsson, skrifstofustjóri.
Heildarsamtök opinberra starfsmanna:
Sameinast í afstöðu
um samnings- og
verkfallsréttinn
OLL heildarsamtök opinberra starfsmanna hafa ákveðið að koma
sameiginlega fram í viðræðum við ríkisvaldið um samnings- og verk-
fallsrétt opinberra starfsmanna. Forystumenn samtakanna tilkynntu
fjármálaráðherra þessa ákvörðun sína í gærmorgun.
LEE BAGGETT, flotaforingi og
yfirmaður herafla NATO á Atl-
antshafi, segir, að deilur
íslenskra og bandarískra stjórn-
valda að undanförnu séu alvar-
legs eðlis og mikilvægt sé að
lausn finnist á þeim hið fyrsta.
Steingrimur Hermannsson, for-
sætisráðherra, ræddi deiluefni
íslendinga og Bandaríkjamanna
ítarlega á fundi með Baggett í
gper og kvaðst hafa tjáð honum,
að nauðsynlegt væri að þessi mál
leystust alveg á næstunni, ef
sambúð í kringum völlinn ætti
að vera eins góð og hún þyrfti
að vera, eins og hann komst að
orði.
Baggett er hér í kurteisisheim-
sókn, en hann hefur ekki fyrr komið
hingað til lands eftir að hann tók
við embætti Wesley McDonald
flotaforingja hjá Atiantshafsbanda-
laginu um síðustu áramót. í gær
átti hann klukkustundar viðræður
við Steingrím Hermannsson í for-
sætisráðuneytinu, en þann fund
sátu að auki Sverrir Haukur Gunn-
laugsson, skrifstofustjóri vamar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytis-
ins, Ruwe, sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi og Ander-
son, jrfirmaður vamarliðsins.
Forsætisráðherra sagði í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins, að
hann hefði gert Lee Baggett ítar-
lega grein fyrir deilunum við
bandarísk stjómvöld er snúa að sjó-
flutningum fyrir vamarliðið og
innflutningi kjöts. Kvað hann Bagg-
ett hafa sýnt alvöru málanna
skilning. „Eg tel gagnlegt að nefna
þessi mál því það undirstrikar þá
alvöru, sem íslensk stjómvöld sjá í
þeirn," sagði Steingrímur.
Lee Baggett sagði í samtali við
Morgunblaðið að vandamálin í sam-
skiptum íslendinga og Bandaríkja-
manna væru úrlausnarefni
stjómmálamanna og sem hershöfð-
ingi hefði hann enga lausn á þeim
á takteinum. Hann hefði hins vegar
áhyggjur af þeim og kvaðst vita,
að alvara þessara mála færi alls
ekki fram hjá æðstu valdamönnum
í Bandaríkjunum.
Fram kom í samtölunum við
Steingrím og Baggett að á fundin-
um hefðu þeir einnig rætt hemaðar-
uppbyggingu Sovétmanna á
Kólaskaga, sem að sögn Baggett
hefur verið jöfn og þétt í rúma tvo
áratugi. Steingrímur kvað þessa
uppbyggingu áhyggjuefni fyrir þá
sem vildu kjamorkuvopnalaust
svæði frá Grænlandi til Úralfjalla.
Baggett lagði áherslu á þýðingu
vamarstöðvarinnar í Keflavík fyrir
varnir Evrópu og Bandaríkjanna og
sagði að mikilvægi hennar hefði
alls ekki minnkað á undanfömum
árum. '
I fréttatilkynningu frá þessum
heildarsamtökum — Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja, Launa-
málaráði ríkisstarfsmanna í BHM
og Bandalagi kennarafélaga — segir
að í bókunum með kjarasamningum
allra heildarsamtaka opinberra
starfsmanna sé gert ráð fyrir endur-
skoðun laga um samningsrétt.
„Fyrstu hugmyndir ríkisins eru um
stórfellda skerðingu á samningsrétti
BSRB,“ segir í tilkynningunni. „Þær
veita öllum samtökunum alls ófull-
nægjandi samningsrétt.
Þau heildarsamtök, sem hér eiga
hlut að máli, hafa í meginatriðum
sömu stefnu varðandi samningsrétt,
að tryggja öllum opinberum starfs-
mönnum möguleika til samninga um
kaup og kjör á grundvelli félaga-
frelsis og þeirra réttinda, sem önnur
stéttarfélög búa við.
I ljósi þessa hafa samtökin til-
kynnt fjármálaráðherra að þau hafi
ákveðið að koma sameiginlega fram
í viðræðum um samnings- og verk-
fallsrétt opinberra starfsmanna,"
segir ennfremur.
Þorsteinn A. Jónsson, formaður
BHMR, sagði í gær að samninga-
nefnd ríkisins hefði haldið einn fund
með forystumönnum hverra sam-
taka og að þar hefðu verið kynntar
hugmyndir ijármálaráðherra um að
setja ein lög fyrir öll heildarsamtök
opinberra starfsmanna. „Grundvall-
arafstaða þessara samtaka til
samnings- og verkfallsréttar er mjög
svipuð og því þykir okkur rétt að
ganga sameinaðir til verksins. Það
ætti að auðvelda samningana, ekki
bara fyrir okkur heldur einnig ríkis-
valdið,“ sagði hann.
Fulltrúar þessara samtaka munu
setjast á rökstóla á næstu dögum
til að móta sameiginlega afstöðu
fyrir viðræðurnar við samninga-
nefnd ríkisins, sem Þorsteinn A.
Jónsson kvaðst vona að gætu hafist
í annarri viku.
V er slunar skólinn
settur í nýju húsnæði
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS var í gær settur í fyrsta sinn í
nýju húsnæði í Kringlunni. Endanlega var lokið við framkvæmdir
í húsinu klukkan hálftvö sama dag, einungis hálftíma áður en setn-
ingarathöfnin hófst. Þetta var í 82. sinn sem Verslunarskólinn er
settur. í vetur verða í skólanum 820 nemendur í dagskóla, 170 i
öldungadeild, 100 I starfsnámi og 2-300 í styttri námskeiðum.
„Þetta er geysileg breyting frá því sem var, segja má að í gamla
húsnæðinu hafí hvorki verið pláss fyrir nemendur né kennara," sagði
Þorvarður Elíasson, skólasfjóri Verzlunarskólans, í samtali við Morgun-
Blaðið. Skólastofur voru allar of litlar, í kennarastofunni voru ekki sæti
fyrir alla kennarana og snyrtiaðstaðan ein kompa undir þröngum stiga.
Nú hafa bæði nemendur og kennarar fengið hér mjög góða vinnuað-
stöðu, en það var óþekkt fyrirbrigði áður. Hver kennsludeild fær sitt
eigið vinnuherbergi og nemendur rúmgott bókasafn".
Auknar kröfur Rússa til að
komast hjá síldarkaupum?
ÞUNGLEGA horfir nú um sölu saltsíldar til Rússlands, og
ganga sumir síldarsaltendur meira að segja svo langt að segja,
að þeir telji að þessum viðskiptalið landanna sé að ljúka, þar
sem svo mikið beri á milli. Rússar séu einfaldlega, með kröfu-
gerð sinni, að losa sig við síldarkaupin, á sama hátt og þeir
hafi losað sig við ullarvörukaupin á þessu ári. Þórhallur As-
geirsson, ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytisins, telur of
snemmt að segja til um niðurstöðu síldarsölusamninga, þeir
séu ekki einu sinni hafnir ennþá, og ávallt hafi náðst samning-
ar hingað til.
Sfldarútvegsnefnd fundaði í
fyrradag, og þar voru samnings-
drög þau og kröfugerð sem
Prodintorg sendi nefndinni á
mánudag kynnt. Heimildir Morg-
unblaðsins herma að skilyrði
Sovétmannanna fyrir samningum
hafí m.a. verið þau að umbúðir
síldarinnar yrðu svokallaðar hálf-
tunnur, en það eru umbúðir sem
hvergi eru fáanlegar. Auk þess
munu þeir krefjast þess að fá
síldina við mun lægra verði en
þeir kaupa hana á í ár.
Síldarútvegsnefnd hefur samið
svardrög, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, þar sem Prodint-
org er gerð grein fyrir því að
ekki komi til greina að ganga að
þessum kröfum. Mun Ledentsov,
yfírmanni Vesturlandadeildar ut-
anríkisviðskiptaráðuneytisins í
Moskvu, verða greint frá þessari
niðurstöðu sfldarútvegsnefndar í
dag. Hann hefur í samtali við
Matthías Bjamason og Þórhall
Ásgeirsson lýst sig reiðubúinn til
að mæla með því við komuna til
Moskvu að fulltrúar Prodintorg
komi hingað til samningavið-
ræðna fyrir næstu mánaðamót,
og flýti þar með komu sinni.
Eins og kunnugt er, hefur oft-
ast verið búið að ganga frá
síldarsölusamningum við Sovét-
menn um þetta leyti, og eru
síldarsaltendur nú mjög uggandi
um sinn hag, þar sem nú styttist
óðum í að sfldarvertíð hefjist, og
telja þeir mjög slæmt að hún hefj-
ist án þess að menn viti hveijir
koma til með að kaupa vöru þá
sem þeir framleiða, og þá á hvaða
verði. Þetta var samdóma álit
þeirra saltenda sem blaðamaður
Morgunblaðsins ræddi við í gær.
„Dreg í efa að þeir
vilji halda þessum við-
skiptum áfram“
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, var í gær spurður hveijar
hann teldi horfurnar í síldarsölu-
samningum: „Maður dregur
náttúrlega í efa, þegar Rússamir
eru að biðja um umbúðir sem
ekki eru fáanlegar í heiminum
(hálftunnur), að þeir vilji halda
þessum viðskiptum áfram. Á hinn
bóginn hafa Rússar oft verið með
alls konar sérvisku fram eftir við-
ræðunum. Mér fínnst alveg
ástæðulaust að gefa neitt eftir,
hvorki um verð né umbúðir. Við
eigum einfaldlega að láta á það
reyna hvort Rússar vilja eiga við
okkur viðskipti eður ei.“
Kristján sagði stöðu mála hjá
frystiiðnaðinum núna vera þá, að
sölusamtök hans væru að hálf-
neyða frystihúsin til að framleiða
upp í samning við Rússa sem
væri mjög óhagkvæmur. „Það er
alveg augljóst að í þeirri eftir-
spum sem nú er eftir fiski erum
við algjörlega óháðir Rússum með
að selja þeim fisk, annað en það
að við höfum átt mjög góð við-
skipti við þá með sfld og ef þeir
ekki vilja kaupa af okkur sfld, þá
hljóta öll okkar viðskipti við þá
að koma til endurskoðunar. Þá
hljótum við m.a. að flytja þessi
olíuviðskipti á ftjálsari markað,
vegna þess að við höfum engan
hag af þeim ef við emm hættir
að skipta við þá. Á það verður
bara að láta reyna, hvort þeir vilja
halda þessum viðskiptum áfram
eða ekki. Eg hef því trú á því að
þeir muni semja við okkur á líkan
hátt og áður, eins og þeir hafa
gert undanfarin haust, þegar á
hefur reynt," sagði Kristján.
„Ómögnlegt að meta
stöðuna fyrr enaðilar
hafahist“
„Það er náttúrlega enginn máti
að reyna að semja um síldarsölu,
eða raunar hvað sem er, í gegnum
fjölmiðla. Það er ómögulegt að
meta stöðuna fyrr en báðir aðilar
hafa hist,“ sagði Þórhallur Ás-
geirsson ráðuneytisstjóri við-
skiptaráðuneytisins í samtali við
Morgunblaðið. Hann sagði að oft
hefði útlitið verið svart, en alltaf
hefðu samningar náðst. Þórhallur
sagði að Rússamir hefðu haldið
því fram í almennu viðskiptavið-
ræðunum nú í vikunni, að of mikið
væri gert úr því sem á milli bæri
hjá Síldarútvegsnefnd og Prodin-
torg.
Þórhallur sagði að Ledentsov
væri reiðubúinn að beita sér fyrir
því að fulltrúar Prodintorg kæmu
hingað til lands fyrir mánaðamót
til samningagerðar um síldar-
kaup. Sagði hann að viðskiptavið-
ræðumar í vikunni hefðu gengið
vel, og væru báðir aðilar sammála
um að auka bæri viss viðskipti.
íslendingar hefðu lagt áherslu á
ullarvömmar og Sovétmenn
hefðu lagt áherslu á að íslending-
ar keyptu fjiilbreyttari vömr frá
Sovétríkjunum en þeir hefðu gert
hingað til.