Morgunblaðið - 11.09.1986, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
5
Olíustyrk-
ur fell-
ur niður
OLÍUSTYRKIR fyrir síðasta árs-
fjórðung þessa árs verða felldir
niður vegna lækkunar á olíu-
verði, en það er nú 6,90 kr. en
var i byrjun árs um 11 krónur.
í samanburðarkönnun sém gerð
var á upphitun 400 rúmmetra hús-
næðis með olíu og með rafmagni
kom í ljós að mismunurinn hefur
stöðugt farið minnkandi með hvetj-
um ársfjórðungi á þessu ári og var
reiknað með að olíukyndingarkostn-
aður fyrir síðasta ársfjórðunginn
yrði rúmlega 39 þúsund krónur.
Fyrir sama tíma var reiknað með
að kostnaður fyrir rafmagnskynd-
ingu yrði tæplega 36 þúsund með
niðurgreiðslum.
Það sem af er árinu hefur olíu-
styrkurinn farið hríðlækkandi. Á
fyrsta ársfjórðungi var hann 910
krónur, 800 krónur á öðrum árs-
fjórðungi og 150 krónur á þeim
þriðja, og eins og fyrr segir verður
olíustyrkur fyrir fjórða ársfjórðung-
inn enginn.
Upphaflega var greiðsla olíu-
styrkja tekin upp í kjölfar mikilla
hækkana sem urðu á verði olíu árið
1974, en ávallt var gert ráð fyrir
að um tímabundna ráðstöfun væri
að ræða.
Hvalveiðum að ljúka:
111 hvalir
af 120 komn-
ir á land
HVALVEIÐUM á þessari vertíð
lýkur væntanlega á næstu dögum
því aðeins á eftir að veiða níu
langreyðar af 80, sem ákveðið
var að veiða vegna hvalarann-
sókna Hafrannsóknastofnunar-
innar. Þegar er búið að veiða þær
40 sandreyðar, sem ákveðið var
að veiða í ár eða 111 dýr alls.
Bæði hvalveiðiskip Hvals hf., sem
annast veiðamar fyrir stofnunina,
héldu til veiða á þriðjudagskvöld.
Þá höfðu þeir komið inn með þijá
hvali. Þoka á miðunum vestur af
landinu hefur nokkuð tafið fyrir
veiðunum undanfama daga. Tals-
maður Hvals hf. sagði að skipstjór-
amir teldu sig sjá mikið af hval á
miðunum og af flestum tegundum,
sem veiðst hafa hér við land á und-
anfömum áratugum.
Drangey á
heimleið?
Sauðárkróki.
VONIR standa til að Drangey,
togari Útgerðarfélags Skagfirð-
inga, losni úr skipasmiðastöðinni
BUsum í Þýskalandi í dag, þar
sem skipið hefur verið frá því í
vor, til gagngerðra viðgerða og
endurbóta. Verkinu átti að ljúka
8. júlí sl., en vegna fjárhagserfið-
leika skipasmíðastöðvarinnar
stóðust þær áætlanir ekki.
Annartogari ÚS, Skapti, ereinn-
ig í sömu skipasmíðastöð til við-
gerða, eftir að vél skipsins bræddi
úr sér í veiðiferð í maí sl. Viðgerð-
inni á Skapta átti að ljúka 3. ágúst,
en nú er sýnt að það verður ekki
fyrr en 20. þessa mánaðar. Þessar
tafir hafa valdið fyrirtækinu mikl-
um skaða, þar sem aflabrögð hafa
undanfarið verið mjög góð. Þá hef-
ur vinna í frystihúsunum hér á
Sauðárkróki og á Hofsósi verið
minni af þessum sökum, þótt for-
ráðamönnum þeirra hafi tekist að
bæta það nokkuð upp með löndun-
um aðkomubáta og flutningi fisks
frá Siglufirði, Skagaströnd og Ak-
ureyri. Kári
I úrslit Elite-keppninnar:
„Stórkostleg’ reynsla
og spennandi tækifæri“
— segir Snæfríður Baldvinsdóttir
„ÞAÐ var stórkostleg reynsla fyrir mig að taka þátt í þessari
keppni og spennandi tækifæri sem ég fæ í framhaldi af henni,“
sagði Snæfríður Baldvinsdóttir, sem gert hefur tveggja ára samn-
ing um fyrirsætustörf í París. Snæfríður komst í úrslit keppninnar
„Elite-andlit ársins“, sem fól í sér tveggja ára fyrirsætusamning
og tekjutryggingu upp á 2,1 milljónir islenskra króna.
Snæfríður, sem er 18 ára tengist þessu. Allan tímann sem
Reykjavíkurmær, sigraði í for-
keppni hér heima í júní síðastliðn-
um og fór í lok ágúst til keppni
í bænum Forte Dei Marmi á
ítölsku rivierunni. Þar hefur hún
dvalið undanfamar tvær vikur
ásamt 56 öðmm stúlkum víðsveg-
ar að úr heiminum.
„Þetta var mikið ævintýri,"
sagði Snæfríður í samtali við
Morgunblaðið. „Þama kynntist ég
alveg nýjum heimi og alls konar
fólki. Þama var toppfólk úr tísku-
heiminum og ýmis þekkt andlit,
þekktir ljósmyndarar, umboðs-
menn og alls konar fólk sem
keppnin stóð var verið að vega
okkur stelpumar og meta með
tilliti til möguleika okkar í tísku-
bransanum. Þetta var því vissu-
lega erfitt, en samt skemmtilegt
um leið,“ sagði Snæfríður.
Hún kvaðst fara utan til París-
ar eftir hálfan mánuð og tæki hún
þá strax til starfa sem fyrirsæta.
„Þetta er mjög spennandi allt
saman og stórkostlegt tækifæri
fyrir mig, ekki síst þegar tillit er
tekið til hversu miklir peningar
geta verið í þessu," sagði Snæfrið-
ur.
Nýkomnir
vattfóðraðir denim-jakkar
ásamt úrveili
af glæsilegum haustfatnaði
l£jftKAfíNABÆR
Austurstræti 22, Laugavegi 30, Laugavegi 66, Glæsibæ, sími 45800.
Morgunblaðið/Bryndfs Valgeirsdóttir
Snæfríður Baldvinsdóttir (til hægri), ásamt sigurvegaranum í
Elite-keppninni, Mariu Lindquist frá Svíþjóð.