Morgunblaðið - 11.09.1986, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
Afburðatölva
Tölvukaupendur fá alltaf meira og meira fyrir peningana sína.
í þeirri þróun er AMSTRAD tvímælalaust toppurinn:
64K tölva, litaskjár og innbyggt segulband.
Frábærhönnun, afloghraði, skínandi litir,
gott hljóð og spennandi möguleikar
Niöurstööur neytendablaöa á tölvumarkaði eru á einn veg:
-A very good price for a complete system. tape recorder included,
good graphics and sound A very good buy.“
Computar Choic*. september 1984.
.Extremly good value for money“
Computmg Today, oktober 1984
Verð aðeins 26.980 kr. stgr.
Umboðsmenn úti á landi: Akranes:
Bókaskemman, Akureyri: Bókabóöin
Edda, Blönduós: Kaupfélag Húnvetn-
inga, Djúpavogl: Verslunin Djúpið,
Grtndsvik: Bókabúð Grindavíkur,
Hafnarfjörður: Kaupfélag Hafnfirðinga,
Bókaverslun Þörarins Stef., isafjörð-
un Hljómborg, Keflavfk: Bðkabúð
Keflavíkur, Vostmannaeyjar: Videó-
leiga GS, Saftjamamas: Verzi. Hua-
föng.
Sðluumboð f Reykjavfk:
[j^Braga
Laugaveg 118 v/Hlemm, s: 29311, 621122
Lækjargata 2, s: 621133
TÖLVULAND H/F
YJazzballettskóli
KRISTÍIMAR
12 vikna
námskeið
byrjar
mánudaginn 15. september í
Sigtúni 20 (íþróttahús Ár-
manns) fyrir börn frá 7 ára
aldri og unglinga
Hressandi tímar fyrir konur
einu sinni og tvisvar í viku
Góð sturtu- og búningsaðstaða
Innritun í síma 39160
eftir kiukkan 17.30 öll kvöld
BrVndis
AF ERLENDUM
VETTVANGI
eftir WILLIAM SCOBIE
Otti veldur aðgerð-
um gegn alnæmi
SAMKVÆMT tillögu sem lögð verður fyrir kjósendur í Kali-
forníu þegar þeir ganga að kjörborðinu nú í nóvember geta
þúsundir alnæmissjúklinga í Bandaríkjunum átt á hættu að verða
einangraðir, settir í sóttkví, útilokaðir frá skólum, veitingahúsum
og öðrum opinberum stöðum, og þeir jafnvel merktir með húð-
flúri tii að þekkjast betur úr fjöldanum.
á fyrstu árum áttunda áratugar-
ins var hann einn þekktasti
leikmaður landsins. Frá því sjúk-
dómurinn greindist í honum fyrir
ári hefur hann létzt úr 95 í 63'/2
kíló. Nú er honum haldið við með
Kynhvarfir Bandarikjamenn óttast algjöra útskúfun
etta vekur upp ógnir fanga-
búða fyrir alnæmissjúkl-
inga,“ segir Bruce Decker,
formaður sérstakrar nefndar Kali-
forníuríkis, sem annast ráðgjöf
varðandi þennan banvæna sjúk-
dóm. „En það er einmitt þar sem
flytjendur þessarar hörmulegu til-
lögu vilja hafa þá.“
Tillagan gengur undir nafninu
Prop 64 (Proposition 64) og hún
hefur verið tekin með á kjörseðil-
inn í Kalifomíu fyrir þing- og
embættismannakosningamar í
Bandaríkjunum í nóvember. Eru
það öfgasinnuð samtök hægri-
manna undir forystu Lyndons
LaRouche sem hafa komið því til
leiðar að kjósendur verða látnir
ákveða hvort tillagan kemur til
framkvæmda. Verður þetta
víðtækasta könnun sem gerð hef-
ur verið á skoðunum almennings
varðandi þennan faraldur, og
verði tillagan samþykkt má búast
við að önnur ríki Bandaríkjanna
grípi til svipaðra aðgerða.
Og — þrátt fyrir að svo til allir
fremstu stjómmálamenn og lækn-
ar í Kalifomíu hafi fordæmt
tillöguna — er það meira en hugs-
anlegt að Prop 64 verði samþykkt.
Aðdáendur LaRouche léku sér að
því að safna 683.576 undirskrift-
um undir áskomn um að setja
tillöguna á kjörseðilinn — eða
rúmlega 70% fleiri undirskriftum
en til þurfti til að koma tillögunni
að.
Decker, sem er stjórnmálaráð-
gjafl og hefur tekið að sér skipu-
lagningu fjársöfnunar til að
berjast gegn samþykkt tillögunn-
ar, segir að í skoðanakönnun í
ágústlok hafi komið fram að hefðu
kosningar um tillöguna farið fram
þá, hefðu tveir af hverjum þremur
kjósendum samþykkt hana. Fjár-
öflunamefnd hans, sem nefnir sig
„No on 64 — Stop LaRouche“,
ætlar að reyna að safna 5 milljón-
um dollara til að nota í baráttunni
gegn Prop 64.
Sá sem samdi Prop 64 heitir
Brian Lantz. Hann hefur lengi
verið fylgismaður LaRouche og
er formaður nefndar er kallar sig
„Prevent Aids Now Initiative
Committee", skammstafað
PANIC. Lantz segir að Prop 64
muni aðeins „veita embættis-
mönnum heilbrigðisþjónustunnar
þau völd sem þeir þurfa til að
ráða við þennan faraldur". Hann
segir að menn geri sér ekki grein
fyrir því hve auðvelt sé að smit-
ast af alnæmi — „að þeir geta
fengið smit með skordýrabiti, eða
við snertingu . . . það ríkir sam-
særi hjá stjórnmálamönnum um
að þagga þetta niður.“
Samsæriskenningin er jafnan
ofarlega í huga LaRouche. I brölti
sínu á villigötum stjómmálanna í
Bandaríkjunum hefur hann sakað
brezku krúnuna um að stjóma
eiturlyfjaiðnaðinum, Alþjóða
gjaldeyrissjóðinn um að hafa vald-
ið alnæmisfaraldrinum, og Henry
Kissinger fyrrum utanríkisráð-
herra um njósnir í þágu Sovétríkj-
anna. En þótt hugmyndir hans
geti virzt spaugilegar, er ekkert
til að hlæja að við Prop 64.
„Við getum hreinlega ekki
treyst því að óbeit almennings á
LaRouche og félögum hans nægi
til að stöðva þetta,“ segir Decker,
sem er ráðunautur George Deuk-
emjian ríkisstjóra Kaliforníu í öllu
er varðar alnæmi. „Það ríkir
gífurlegur ótti og þekkingarleysi
í sambandi við þennan sjúkdóm.“
Andstæðingar Prop 64 segja
að tillagan muni enn auka vand-
ann samfara alnæmi með því að
bæta við þá mikiu niðurlægingu
sem fylgir þessum sjúkdómi sem
þegar hefur valdið dauða rúmlega
12.000 sjúklinga í Bandaríkjun-
um. Þeir álíta að þeir sem sýkjast
— en það eru aðallega kynhvarfir
karlar, hommar — muni frekar
forðast, eða draga á langinn að
leita sér læknishjálpar af ótta við
að missa vinnuna, eða jafnvel
frelsið. Tilraunir til að fylgjast
með útbreiðslu sjúkdómsins yrðu
þá allar þyngri í vöfum.
Þrátt fyrir alla umfjöllunina í
íjölmiðlum er alnæmi í Banda-
ríkjunum enn að mestu felu-far-
aldur, sérstaklega að því er varðar
þekktari nöfn í viðskiptum, íþrótt-
um og skemmtiiðnaðinum.
„Ég held að mér sé óhætt að
segja að 30% dánarfrétta sem við
birtum núna eru um menn sem
látizt hafa úr alnæmi, þótt það
sé ekki viðurkennt, jafnvel að
þeim látnum," segir Robert Peter-
son hjá blaðinu Hollywood
Reporter, sem er þekkt blað í
skemmtiiðnaðinum. „I þeim er til-
greint krabbamein, lungnabólga,
eða engin dánarorsök gefin upp —
en þetta eru allt karlar, ókvæntir,
á aldrinum 25 til 50 ára. Menn
geta lesið milli línanna."
Það kemur sjaldan fyrir að
þekktir menn segi sannleikann af
fúsumn vilja, en það gerði Jerry
Smith, ein af stjörnunum í úrvals-
liðinu í bandarískum fótbolta, um
síðustu mánaðamót. Smith er 43
ára og lék áður með Washington
Redskins í höfuðborginni. Hann
skýrði opinberlega frá því að hann
væri í sjúkrahúsi í Maryland hald-
inn alnæmi og þetta gerði hann
kvöldið áður en skrá átti hann á
heiðurslista, „Hall of Stars“, fót-
boltaleikmanna Washingtonborg-
ar.
„Mig langaði til að sjá hvort
þeir skiptu um skoðun þegar þeir
kæmust að þessu,“ sagði Smith
móður sinni að því er hermir í
fregn blaðsins Washington Post.
Þegar Smith var upp á sitt bezta
næringargjöf í æð.
Hann neitar að ræða það sem
bandarískir fjölmiðlar eru svo til-
litssamir að nefna „lífsstíl" hans;
en móðir hans sagði við Wash-
ington Post: „Af öllu sem á hann
hefur verið lagt óttaðist hann
mest að það fréttist að hann væri
með alnæmi.“
Á undanförnu ári hafa tugir
þekktra Bandaríkjamanna látizt
úr sjúkdómnum. En í svo til öllum
tilfellum — að leikaranum Rock
Hudson frátöldum — var ekki
skýrt frá sjúkdómnum fyrr en að
þeim látnum.
Meðal þeirra fómarlamba sjúk-
dómsins sem hljótt hefur verið um
má nefna fatahönnuðinn þekkta,
Perry Ellis, sem var 43 ára og rak
milljóna dollara fataviðskipti; Roy
Cohn lögfræðing og fyrrum að-
stoðarmann öldungadeildarþing-
mannsins Joes McCarthy í herferð
þess síðarnefnda gegn kommún-
istum; David Hicks stjórnanda hjá
Borgaróperu New York, sem varð
48 ára; Barry Lowen, 50 ára, sem
var annar mesti ráðamaður hjá
Aaron Spelling Productions; Paul
Jacobs, 53 ára, einn virtasta
píanóleikara Bandaríkjanna, sem
þekktur var fyrir túlkun sína á
verkum framúrstefnunnar
(avant-garde) í tónlist.
„Það er leitt til þess að vita að
þekktir menn skuli ekki geta ver-
ið opinskáir varðandi alnæmi,"
segir Jim Grahara, yfirmaður
stærstu læknamiðstöðvar og ráð-
gjafarstöðvar Washingtonborgar
fyrir alnæmissjúklinga. „Upp-
ljóstrun Jerrys Smith spillir þeirri
stöðnuðu ímynd að þetta sé sjúk-
dómur eiturlyfjaneytenda og
hárskera. Þegar einhver sem allir
virða og meta verður sjúkdómnum
að bráð, breytast viðhorfin."
Til þessa hefur bandaríska heil-
brigðisþjónustan skráð rúmlega
25 þúsund tilfelli af alnæmi. En
talið er að mun fleiri séu sýktir
og í júlí birtu yfirvöld spá þess
efnis að á næstu fimm árum
muni fjöldi alnæmissjúklinga
tífaldast í Bandaríkjunum, og þeir
þá orðnir um fjórðungur milljónar.
Höfundur er blaðamaður hjá
The Observer / London.