Morgunblaðið - 11.09.1986, Qupperneq 29
MORGUNB'LAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPtEMBER 1986
29
Höfum við
gengið
til ffóðs?
eftir herra Pétur
Sigurgeirsson biskup
Vegna blaðaskrifa og fyrir-
spuma, sem birst hafa í Morgun-
blaðinu að undanfðmu um
fóstureyðingar af félagslegum
ástæðum sem ég fer um nokkmm
orðum í hirðisbréfí mínu, fínn ég
ástæðu til þess að fjalla um það
mál nokkm nánar. Það er þó ekki
ætlun mín að standa í ritdeilum.
Vandamál þetta tók ég til at-
hugunar vegna þess, að lausn
þess er ekki eingöngu læknis-
fræðileg heldur líka siðferðiieg og
trúarleg. Eðlilega hlýt ég að miða
skoðanir mínar við það, hvað ég
telji rétt og rangt án þess að vita
fyrirfram hvort þær skoðanir hafí
mikið eða lítið fylgi. Kirkjan á
heldur ekki að vera spegilmynd
af þjóðfélaginu, heldur salt þess
og ljós, því aðeins getur hún orð-
ið að liði og rækt köllun sína.
Við hljótum í þessum vanda
sem öðmm að athuga vel hvar
við erum stödd: „Höfum við geng-
ið til góðs götuna fram eftir veg,“
spyr Jónas Hallgrímsson í kvæði
sínu, Island farsældafrón. Með
farsæla lausn í huga getum við
ekki reitt okkur á annað en sið-
ferðisvitund hvers og eins byggða
á kristilegri lífsskoðun. Þjóðfélag
okkar er komið í mikinn vanda
með fóstureyðingar af félagsleg-
um ástæðum. Tölur þar að lútandi
taka af öllu tvímæli. Þegar vegið
er að rótum lífsins, hlýtur að
vakna spurning, hver sé réttur
lífsins. Lotning fyrir lífínu er að-
alsmerki þjóðar, sem ber virðingu
fyrir tilveru sinni.
Að verða að gera mun á réttu
og röngu, góðu og illu, er víðs
fjarri því að vilja setja sig í dóm-
arasæti. Ef svo væri, hvað eigum
við þá að álíta um það, sem Meist-
arinn sjálfur segir í kenningu
sinni: „Eg er ekki kominn til þess
að dæma heiminn, heldur til þess
að frelsa heiminn." (Jóh. 12:47.)
Hann vildi, að við kynnum að
meta rétt það, sem máli skiptir.
Orð hans minna okkur á að gera
slíkt hið sama.
Fóstureyðingar eru viðkvæmt
mál. Minna skal á, að „miskunn-
semd Guðs má ei gleyma" hvað
varðar það, sem hendir okkur
mannanna böm. Það sjónarmið
viidi ég og láta koma fram í bréfí
mínu. Þar stendur: „Síst af öllu
er hægt, að nokkur setji sig í
dómarasæti og dæmi þá, sem ráða
ekki við ofurþunga tilfínning-
anna." Því viðhorfí er ekki hægt
að lýsa betur, en þegar Páll post-
uli segir: „Hið góða, sem ég vil,
gjöri ég ekki, en hið vonda, sem
ég vil ekki, það gjöri ég.“ (Róm.
7:9.) — Hvað er þá að segja um
okkur hin? En ekkert myrkur get-
ur slökkt ljós fyrirgefningar Guðs.
Löggjafínn í kristnu þjóðfélagi
er til þess kjörinn að gera sitt til
að vemda mannslífin. Við getum
Pétur Sigurgeirsson
„Vegna blaðaskrifa og
fyrirspurna, sem birst
hafa í Morgnnblaðinu
að undanf örnu um
fóstureyðingar af fé-
lagslegum ástæðum,
sem ég fer um nokkr-
um orðum í hirðisbréf i
mínu, f inn ég ástæðu
til þess að fjalla um
það mál nokkru nánar.
Það er þó ekki ætlun
mín að standa í rit-
deilum.“
tekið svo einfalt dæmi sem um-
ferðarreglur. Boðorðin eru sama
eðlis. Ut frá kristnu sjónarmiði fæ
ég ekki séð hvenær og hvemig
er hægt að að greina fóstur frá
mennskju eftir að það verður til
í móðurlífi. Ef verðandi móður
finnst óbærilegt að fæða barn sitt
af félagslegum ástæðum eða per-
sónulegum, sem oft er erfíðast
að ráða við, verður samfélagið að
veita hjálp, styrk og stuðning á
annan hátt en með fóstureyðingu.
Oft leysast hin viðkvæmustu mál
á undraverðan hátt, þegar bamið
er fætt.
Samábyrgð þjóðfélagsins þarf
að eiga sér stoð í lögum og regl-
um, er við setjum okkur til að lifa
eftir. Ef það á að kallast „löglegt
athæfí" að ganga á helgasta rétt,
sem Guð hefur sett lífinu, þá
sjáum við kannski best, hve mikil
þörf er á því, að numið sé staðar.
Hugleiðum vel hvert stefnir í
þessu máli, sem snertir hvert
mannsbarn og alla íslensku þjóð-
ina.
NÝTT SÍMANÚMER
69-11-00
Augýsingar 22480
Afgreiðsla 83033
IBM System/36
QUERY/36
Query/36 er gagnasafnskerfi hannaö fyrir
tölvur af geröinni IBM System/36. Meö
Query getur notandi unnið með sín gagna-
söfn sjálfur án aöstoðar kerfisfræöinga.
Notandinn getur bæði búiö til fyrirspurnir,
eöa útbúiö prentlista og jafnvel breytt
skrám þeim sem geymdar eru á diskum
tölvunnar.
Markmið: Tilgangur þessa námskeiös er
aö kenna notkun Query/36 þannig aö þátt-
takendur geti aö námskeiöi loknu unniö
hvers konar fyrirspurnir á skrám þeim sem
þeir hafa aðgang aö.
Efni:
- Skráakerfi S/36
- Uppbygging skráa
- Grundvallaratriði
Query/36
- Skipanir í Query
- Tengsl við IDDU
- Fyrirspurnir
- Útprentun
- Uppfærsla á skrám
Leidb.: Ragna Sigurdard.
Guðjohnsen
Þátttakendur: Námskeiðiö er ætlað notendum Syst-
em/36 sem áhuga hafa á aö kynnast og notfæra sér þaö
mikla hagræöi sem notkun gagnasafnskerfa hefur í för
meö sér.
Tími: 22.—24. september, kl. 13.30—17.30.
AStjórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
eiriháttar
Haust-tilboð!
Nú er hægt að gera reyfarakaup á
öllum okkar hjólum.
20—30% afsláttur!
Til dæmis:
20“ BMX - Áður kr. 9.604.- Nú kr. 6.740.-
26“ kvenreiðhjól: Áður kr. 9.796.- Nú kr. 6.860.-
Komið og skoðið úrvalið.
Sérverslun /.• Reiðhjólaverslunin--
“ ORNINNl
/ Spítalastíg 8 vió Óóinstorg simar: 14661,26888