Morgunblaðið - 11.09.1986, Side 53

Morgunblaðið - 11.09.1986, Side 53
starfs á vinnustað. Yfir þeim öllum er heiðríkja. Fyrir hönd bekkjarsystkina og stúdenta frá MR árið 1947 vil ég færa honum þakkir fyrir samfylgd- ina, jafnframt því sem við sendum Láru og fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Lára og Hafsteinn létu sig aldrei vanta á bekkjarkvöld- in, sem við höfum haldið með reglulegu millibili, og lögðu sitt af mörkum til að gera þau eftirminni- leg. Fyrir hönd bankaráðs og banka- stjómar Verzlunarbankans vil ég færa fram þakkir fyrir dygga þjón- ustu og sérstaklega vel unnin störf á undanfömum ámm. Síðustu daga hefi ég vel fundið þann hlýhug sem viðskiptamenn bankans og sam- starfsmenn bám til Hafsteins, og hver söknuður er við hið sviplega fráfall hans. Em eiginkonu hans, börnum og fjölskyldu sendar hug- heilar samúðarkveðjur. Góður drengur er genginn langt fyrir aldur fram. Ég veit að hans er sárt saknað af þeim fjölmörgu, er honum kynntust á lífsleiðinni. En ástvinum hans er það huggun í þeirra miklu sorg að bjart er yfir minningu hans. Blessuð veri minning Hafsteins Sigurðssonar. Höskuldur Ólafsson í dag er til moldar borinn Haf- steinn Sigurðsson, hæstaréttarlög- maður í Reykjavík. Mig langar að minnast þessa nágranna míns og vinar nokkmm orðum. Hafsteinn fæddist í Reykjavík þ. 17. ágúst 1926 og varð því rúmlega sextugur að aldri. Foreldrar hans vom hjónin Ragnheiður Sara Þor- steinsdóttir og Sigurður Z. Guðmundsson og bjuggu þau lengst af á Mímisvegi 4 í Reykjavík. Þau hjón ráku Sokkabúðina á Lauga- veginum og var það þekkt verslun á sínum tíma. Hafsteinn varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1947 og lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla íslands 1953. Hafsteinn rak lengi lögfræðiskrifstofu í Reykjavík, var framkvæmdastjóri Félags ísl. stórkaupmanna um ell- efu ára skeið, en frá 1969 var hann aðallögfræðingur Verslunarbanka íslands og gegndi því starfi til dauðadags. Hafsteinn ólst upp á Mímisvegi 4 og þar bjó hann þar til fyrir tæp- um tveimur ámm að hann flutti í nýtt hús, sem þau hjónin byggðu sér að Stigahlíð 54 í Reykjavík. Við Hafsteinn vomm því lengst af ná- grannar, bjuggum hvor sínu megin við Mímisveginn. Með okkur og fjöl- skyldum okkar tókst vinátta og sennilega meiri en tíðkast milli ná- granna. Það þakka ég fyrst og fremst hinum frábæm eiginleikum Hafsteins, sem lýstu sér í hjálpsemi og greiðvikni og glaðværð í um- gengni við annað fólk. Það fór ekkert á milli mála í all mörg undanfarin ár að Hafsteinn gekk ekki heill til skógar. Var hann greinilega oft sárþjáður. Aldrei brást það þó þegar fundum bar saman á götunni að hann ætti ekki hressileg gleðiorð til að miðla manni. Eðli hans og öll framkoma var þannig að hann varpaði sér- stakri birtu á umhverfí sitt. Fyrir mörgum ámm byggði Haf- steinn sér sumarhús við Langá í Mýrarsýslu, en hann hafði fest kaup á jörðinni Stangarholti ásamt bróð- ur sínum. Þar hafði hann rétt til MORGUNBLÁÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986 laxveiða. Á þessum stað undi Haf- steinn sér greinilega best. Hann stóð í miklum framkvæmdum, byggði vegi og flugvöll, lagfærði veiðistaði í ánni og bjó til nýja og fegraði allt umhverfið sem best hann gat. Þeir sem áttu þess kost að heimsækja þau hjón þangað fundu að þar var Hafsteinn í essinu sínu. Öllum leið vel sem þangað komu, enda þau hjón einstaklega samhent við að taka á móti gestum af frábærri rausn og gestrisni. Eftir að Hafsteinn og Lára fluttu af Mímisveginum fyrir tæpum tveimur ámm fækkaði fundunum. Við söknuðum þeirra úr götunni. Þannig stóð hinsvegar á í sl. viku að þau Hafsteinn og Lára höfðu boðið okkur Sonju ásamt sameigin- legum vinum að heimsækja sig í sumarhúsið við Langá, eiga með þeim kvöldstund og renna fyrir lax daginn eftir. Við hlökkuðum til end- urfundanna. Nokkmm klukkutím- um áður en leggja átti af stað hringdi síminn: Hafsteinn hafði orð- ið bráðkvaddur nóttina áður. Þannig slitnaði sá þráður. Kvöldið áður en hann andaðist var Hafsteinn með veiðistöngina á bökkum Langár í fallegri síðsumar- sól. Hans síðustu spor vom því á þeim stað sem hann unni mest, í faðmi íslenskrar náttúm eins og hún getur fegurst orðið. Árið 1950 gengu þau í hjónaband Hafsteinn og eftirlifandi kona hans Lára Hansdóttir. Þau eignuðust þijú börn: Ragnheiði Söm, flug- freyju, sem gift er Ingva Hrafni Jónssyni, Kristin Má, sem lengi hefur búið að heimilinu á Tjalda- nesi í Mosfellssveit, og Ólöfu Lám, flugfreyju, sem býr í foreldrahús- um. Við Sonja sendum Lám og fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur; Birgir ísl. Gunnarsson I dag verður til moldar borinn vinur minn og skólabróðir, Haf- steinn Sigurðsson lögfræðingur, sem andaðist 3. þessa mánaðar. Er þá enn höggvið skarð í þann hóp stúdenta, sem útskrifuðust frá MR vorið 1947 og munu halda upp á 40 ára afmæli sitt á næsta ári. Hér verður ekki rakin ætt eða æviferill Hafsteins, aðrir munu verða til þess. Hinsvegar vil ég fyrir hönd skjól- stæðinga minna hér á Tjaldanesi flytja Hafsteini og konu hans Lám Hansdóttur, þakkir fyrir brautryðj- andastarf þeirra hér, en þau stofn- uðu þetta heimili ásamt öðm góðu fólki og létu sér ætíð mjög annt um velferð þess. Við sem hér stöndum þökkum þeim hjónum hið ágætasta samstarf og vottum frú Lám, dætmm, syni, svo og öðmm vandamönnum inni- lega samúð. Birgir Finnsson, Tjaldanesi. I dag fer fram útför Hafsteins Sigurðssonar hæstaréttarlög- manns. Við Hafsteinn kynntumst fyrst fyrir sex og hálfu ári þegar ég hóf störf hjá Verzlunarbankanum, en á þessum stutta tíma tókst með okk- ur vinátta og gagnkvæmur trúnað- ur. Hafsteinn var hrókur alls fagnað- ar hvar sem hann kom, enda sérlega gamansamur og síkátur. Við gerðum oft að gamni okkar og ætíð kom ég glaðlegri og léttari í spori eftir samvem með honum á skrifstofu hans eða í kaffítíma. Ekki var allt spaug sem á milli okkar fór. Við leituðum ráða hvor hjá öðrum og bárum saman bækur okkar innan bankans og utan. Hafsteinn tók mér sem jafningja þrátt fyrir dtjúgan aldursmun. Það sjaldgæfa viðmót var mér og er mikils virði. Ótal kostir prýddu persónuleika Hafsteins. Hann var stórhuga, bjartsýnn og óbanginn við að hrinda áhugamálum sínum í framkvæmd. Um fímmtugt tók hann einkaflug- mannspróf og flaug víða um landið á eigin vél í nokkur ár meðan heilsa hans leyfði. Hann var áhugasamur um mannlíf, umhverfi og náttúru og ferðaðist víða, innanlands sem utan. Örfáum dögum fyrir andlát sitt sagði hann mér frá því að þau hjón- in hefðu ekið hringveginn með viðkomu víða. Hann ljómaði þegar hann lýsti ferðinni og fegurð lands- ins. Hinn 3. þessa mánaðar varð Hafsteinn bráðkvaddur aðeins sex- tugur að aldri. Söknuður er sár. Megi guð blessa minningu Haf- steins Sigurðssonar. Ég votta frú Láru Hansdóttur og fjölskyldu mína dýpstu samúð. Hallgrímur Ólafsson I dag er til grafar borinn vinur minn Hafsteinn Sigurðsson, hæsta- réttarlögmaður. Leiðir okkar Hafsteins lágu fyrst saman fyrir um 30 árum, í gegnum störf okkar, en Hafsteinn vann þá á lögmannsskrifstofu, sem hann setti á stofn ásamt Einari Ásmunds- syni. Brátt tókust með okkur hjónunum mikill vinskapur, sem jókst og styrktist með hveiju árinu. Við fjölskyldan fylgdumst með hvernig ævintýraheimur Hafsteins og Láru reis við bakka Langár í Borgarfírði, í landi Stangarholts. Fjölskyldan var með eindæmum samhent við að byggja bústaðinn Bræðrasel, sem við vorum svo gæfurík að mega njóta með þeim í gegnum árin. Dugnaðurinn og krafturinn í þeim hjónum, dætrunum Ragnheiði Söru og Lóu Láru, var öllum ljós, og einnig í syninum Kristni Má, sem oft kom um helgar og tók sér störf við sitt hæfí. Vegir voru lagðir, svo kílómetrum skipti, hyljir og breiður búnar til í ánni-og glæsilegur bú- staður reistur. Einnig hjálpaði Hafsteinn vinum sínum við að byggja laxastiga við Sveðju. Fyrir nokkrum árum fékk Haf- steinn mikinn áhuga á flugi og lærði að fljúga, rúmlega fimmtugur að aldri. Hann byggði þá flugbraut á landareigninni við Langá sem oft kom í góðar þarfír. Allt sem þessi fjölskylda tók sér fyrir hendur var gert eins vel og vandlega og frek- ast var unnt. Þeir sem áttu því láni að fagna að heimsækja þau hjónin í Bræðra- sel, helgina sem Hafsteinn varð sextugur, þann 17. ágúst sl., munu seint gleyma þeirri gestrisni og þeim höfðingsskap er þar ríkti. Það var sannkallað afmæli ársins. Hjónin reyndust líka fleirum vel en vinum sínum, því fyrir um 25 árum tóku þau höndum saman með nokkrum öðrum foreldrum og létu reisa vistheimili í Mosfellssveit fyrir vangefna drengi, sem hlaut nafnið Tjaldanes. Þar hefur sonur þeirra Kristinn dvalið í mörg ár og unað vel, enda aðbúnaður þar allur til fyrirmyndar. Ævistarf Hafsteins sem lög- manns var heilladijúgt. Hann var Minning: Fæddur 26. júlí 1922 Dáinn 2. september 1986 I dag kveð ég góðan vin minn og tengdaföður, Þorbjöm Jónsson frá Hafnarhólmi, sem jarðsunginn verður í dag frá Langholtskirkju. Hann var sonur hjónanna Guð- bjargar Gestsdóttur og Jóns Konráðssonar frá Hafnarhólmi í Steingrímsfirði. Eftirlifandi kona hans er Aðalbjörg Sigurðardóttir sem einnig er frá Hafnarhólmi og eignuðust þau 13 börn, sem öll eru á lífi. Ég kynntist Þorbimi eftir að ég kynntist konu minni Kristjönu haustið 1979. Þegar litið er til baka koma margar góðar minningar upp í hug- ann, því oft fórum við tveir saman í bíltúra út fyrir bæinn, sem hann hafði yndi af því hann var mikið náttúrubam, og sátum þá oft á ákaflega vandvirkur og góðviljaður og leitaðist ávallt við að koma á sáttum á milli deiluaðila. Hann var afkastamikill með afbrigðum og mikils metinn af samstarfsfólki sínu. Hafsteinn átti við sykursýki að etja og sótti hún að honum hin síðari ár og fór þá heilsu hans nokk- uð hrakandi. Hann var þó hinn brattasti síðustu daga og óraði okk- ur ekki fyrir því að helgin fyrir rúmri viku yrði sú síðasta er við nytum samvista við hann. Það var mikið lán okkar allra í fjölskyldunni að hafa fengið að kjmnast Hafsteini og fjölskyldu hans og eiga þau sem vini. Við biðj- um Guð að styrkja þau í sinni sorg. Ólafur Ó. Johnson Við vorum æskuglöð og söngvin stúdentssystkinin frá MR 1947. Hafsteinn Sigurðsson, Haddi, var í þessum hópi og lagði sinn skerf fram í því að gera þá góðu daga litríka. Við komum oft í hús foreldra Hadda á Mímisvegi 4. Ragnheiður Sara Þorsteinsdóttir og Sigurður Z. Guðmundsson gleymast ekki vin- um Hadda. Við nutum oft gestrisni þeirra og höfðingslundar á þessum heiðríkjudögum æskunnar. Áföngum sem náðust á náms- brautinni var fagnað, vináttubönd knýttust. Vináttuböndin sem tengj- ast milli ungmenna eru oftast ofín þeim gullnu þráðum sem aldrei bresta. Sjaldnast eignast menn síðar á ævinni jafn einlæga vini og þá sem æskuárin gefa. Þá skapast vinátta fyrir það að sál fellur að sál, þar að baki er ekki yfírskin eða hags- munasjónarmið. Við áttum brekku eftir að loknu stúdentsprófí. Saman lögðum við á brattann nokkrir stúdentsbræður og vinir og að nokkrum árum liðn- um lukum við prófí frá Háskóla Islands sem candidati juris. Haddi stóð ekki einn þá. Að hlið hans var löngu komin góð og heill- andi stúlka, Lára Hansdóttir, sem eftir það vék aldrei frá hlið hans til hinsta dags. Þau giftu sig og stofnuðu heim- ili árið 1950. Böm þeirra eru þijú, dætumar Ragnheiður Sara og Ölöf Lára og sonurinn Kristinn Már. Haddi hóf þegar eftir lagapróf störf þar sem menntun hans nýttist. Hann var lengi lögfræðingur Félags íslenskra stórkaupmanna og enn lengur lögfræðingur Verzlunar- banka Islands, auk þess að sinna umfangsmiklum lögfræðistörfum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Hann vann til allra réttinda sem málflutningsmenn geta öðlast og varð Hæstaréttarlögmaður 1965. Hafsteinn sinnti lögmannsskyld- þúfu, tuggðum strá og töluðum um lífíð og tilveruna og létum okkur líða vel, og eru þetta mér ógleyman- legar minningar. Þorbjöm var frekar dulur maður og flíkaði ekki tilfínningum sínum en hann hafði góðan og skemmtilegan húmor sem ekki áttu allir aðgang að. Gerði hann góðlátlegt grín að mér eins og þegar hann manaði mig til að keyra inn í snjóskafl upp við Hafra- vatn og auðvitað festi ég bílinn, hló hann mikið þegar ég þurfti að fara út og moka bílinn upp, en allt var það í góðu eins og endranær. Síðustu tvö árin hallaði mjög undan fæti hjá honum hvað varðar heils- una og átti hann erfítt með að sætta sig við þverrandi kraft, því hann var af þeirri kynslóð sem þekkir aðeins vinnusemi og elju. Þorbjörn var maður sem sinnti starfí sínu af trúmennsku og dugn- aði þótt hann gengi ekki heill til skógar, og hversu þjáður sem hann 53 um sínum af stakri alúð, hann * vandaði undirbúning mála og máls- meðferð þannig að til fyrirmyndar var. Hadda var ekki nóg að skila starfi sem skyldan bauð, viljinn og orkan leyfðu meira. Kristinn sonur hans þurfti meiri umhyggju heldur en þau böm sem fá fullan þroska. Hafsteinn og Lára' áttu hlut að stofnun samtaka for- eldra þroskaheftra baraa. Á því sviði unnu þau með fleira fómfúsu fólki mikið starf og vistheimilið að Tjaldanesi í Mosfellssveit í Mosfells- sveit er árangur af því starfi. Þjóðin öll stendur í þakkarskuld við Hafstein og Lám og aðra fmm- heija sem stuðluðu að auknum skilningi á þörfum þroskaheftra og bættu aðstöðu þeirra í samtíð og framtíð. Faðir Hafsteins var slyngur veiði- maður sem stundaði á hveiju sumr ^ laxveiðar í Borgarfírði, einkum i Grímsá. Þar lærði Haddi að beita agni fyrir físk og hann varð slyng- ur veiðimaður. Ætíð frá þeim dögum heillaði laxveiði Hadda meira en annað sem ftjálsar stund- ir og útilíf gefa. Hann eignaðist með bróður sínum jörðina Stangarholt í Borgar- hreppi sem á land að Langá. Við það urðu á ýmsan hátt þáttaskil í lífi hans. Hann hófst handa með fleiri land- eigendum við Langá um miklar framkvæmdir til að auka laxgengd í ána og að gera svæði fískgeng, þar sem lax hafði ekki áður kom- ist. Góðir sigrar unnust við þær ' framkvæmdir. Haddi byggði sér bústað á bökk- um árinnar löngu þar sem mátti nema nið hennar. Þar varð hans helgireitur, þar undu þau Lára og börnin sér betur en á nokkrum öðr- um stað. En Haddi vildi ekki njótagleðinn- ar einn. Að Langá stefndi hann vinum sínum og bauð þeim að veiða sem það vildu. Sumir fögnuðu feng en aðrir að eiga stundir með Hadda á árbakkanum, njóta friðar og feg- ’ urðar fjallanna og horfa á silfraðan konung árinnar stikla strengi og flúðir upp í mót á nýjar slóðir sem opnast höfðu. Þarna fagnaði Haddi, fjölskylda hans og nokkrir vinir sextugsaf- mæli hans í síðasta mánuði. Við sungum glöð um góðra vina fund og „að ijúfa hvergi tryggð né vinar- koss“. Söngur okkar hljóðnaði inn í nið árinnar sem stöðugt ómar. Við nið árinnar sinnar sofnaði Haddi svefninum langa nokkrum dögum síðar. Nú berst vinur okkar „burt á tímans straumi“, en vinum hans, sem eftir standa, verður minningin um Hadda sá sólskinsblettur í heiði -* sem léttir treganna Sveinbjörn Dagfinnsson var, var brosið hans alltaf jafn ein- lægt. Kærum vini og tengdaföður flyt ég hjartans þökk fyrir samfylgdina og allar þær stundir er við áttum saman. Ég kveð Þorbjöm minn með orð- ’v um Kahlil Gibran: „Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp i mætti sínum og ófjötraður leitað á fund Guðs síns?“ Halli Þorbjörn Jónsson frá Hafnarhólmi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.