Morgunblaðið - 11.09.1986, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
55
Alyktanir í
markaðsmálum:
Söluþóknun
miðist við út-
flutningsverð
FULLTRÚAR á aðalfundi sauð-
fjárbænda samþykktu samhljóða
að leggja það til að söluþóknun
fyrir útflutt kindakjöt miðist
framvegis við útflutningsverð,
en ekki skráð heildsöluverð inn-
anlands eins og nú er. Sam-
þykktin var gerð eftir tillögu frá
markaðsnefnd fundarins og án
umræðna.
Eftirfarandi ályktanir voru einn-
ig gerðar um markaðsmálin og var
góð samstaða um þær allar:
Aðalfundur . . . telur að eitt
brýnasta hagsmunamál bænda nú
sé að auka innanlandssölu á land-
búnaðarafurðum og jafnframt að
leita markaða erlendis fyrir íslensk-
ar sauðfjárafúrðir. í þessu skyni
telur fundurinn að auka þurfí veru-
lega úrval af unnu dilkakjöti sem
haft sé á boðstólum fyrir neytendur
í kjötverslunum og á skyndibita-
stöðum. Þá telur fundurinn að halda
beri áfram að auglýsa sauðfjáraf-
urðir, til dæmis með nýjum upp-
skriftum og tilbúnum réttum.
. . . telur að bæta þurfí verulega
meðhöndlun kindakjöts í slátur-
húsum. í því sambandi bendir
fundurinn á að of algengt er að
bæði skrokkur og gæra séu stór-
skemmd í vinnslu, einnig að
skrokkar séu hárugir og óhreinir
þegar þeir koma úr þvotti. Þá vill
fundurinn benda á að það er allra
hagur að kjötið komi vel útlítandi
og án verkunargalla úr vinnslu. Þá
vill fundurinn hvetja stjómir sauð-.
fjárbændafélaga til að fýlgja þessu
máli eftir.
. . . skorar á stjómvöld og stjóm
LS að vinna að því að allar gæmr
séu fullunnar í landinu, þar sem
mikill markaður er fyrir ftillunnar
vörur úr þessu hráefni. En ekki
líðist að gæmr séu seldar lítið eða
ekkert unnar úr landi, eins og nú
gerist, enda séu innlendir aðilar
reiðubúnir að greiða sambærilegt
verð.
. . . beinir því til stjómar LS að
leita leiða til að selja óeðlilegar
birgðir af dilkakjöti þannig að ekki
verði ársgamalt kjöt á markaðnum
í upphafí sláturtíðar. Einnig verði
kannað hversu miklar birgðir bænd-
ur áttu þegar magnsamningar vom
gerðir við ríkisvaidið, og hversu
mikið þeir eiga af þeim birgðum
sem nú em í landinu.
í greinargerð með þessari álykt-
un segir meðal annars að sala á
gömlu lambakjöti í upphafi nýs
framleiðsluárs dragi stórlega úr
sölu á nýju kjöti og valdi tjóni á
markaðnum í framtíðinni. Því sé
réttlætanlegt að bændur taki á sig
einhvem kostnað til að losna við
þær birgðir sem þeir hugsanlega
eiga, og ríkið geri hið sama við sinn
hluta.
Gæöakaffi sem
gnæfir upp úr
Því verður vart lýst með orðum hvernig Merrild
kaffi bragðast, það verður hver að að reyna
sjálfur. En við getum samt nefnt það sem
Merrild hefur helst sér til ágætis: nefnilega
þennan mikla en ljúfa keim sem situr lengur
á tungunni en þú átt að venjast. Kaffið er
drjúgt og bragdmikið, en aldrei rammt. í
því eru aðeins heimsins bestu kaffitegundir
frá Kolombíu, Brasilíu og Mið-Ameríku, en
ekkert „Robusta".
Merrild kaffið er í loftþéttum umbúðum,
sem varðveita vel ferskt bragð og ilm í allt
að einu ári. Ef þú geymir kaffipokann eftir
að hann hefur verið opnaður í kaffibaukn-
um, er kaffið alltaf eins og nýtt.
Þú getur því hvenær sem þú óskar notið
bragðs af eðal-kaffi, sem hefur hlotið með-
ferð sem því hæfir.
En sem sagt, reynið gæðin og njótið bragðs-
ins.
Ný kaffitegund hefur verið að vinna á hér á landi.
Þótt þú sért ánægður með það sem þú hefur,
skaltu ekki fara á mis við Merrild kaffið. Það
svíkur engann.
'*•1 3'' ' •
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ ÚTSALA
að fá sér skáp fyrir gott verö. / SELKO SKÁPAR
Við seljum takmarkað magn gallaðra og
ógallaðra skápa á stórlækkuðu verði.
Allt að 40% afsláttur á sumum gerðum.
SELKO
SIGintÐUR
ELÍASSON HF.
Auöbrekku 1-3 Kópavogi, s:41380