Morgunblaðið - 11.09.1986, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986
Busavígsla í Kvennaskólanum
Busar voru vígðir inn í samfélag framhaldsskólanema í Kvennaskólanum í vikunni. Hvað þessi
unga stúlka er að aðhafast er ekki gott að segja, en að likindum hefur athöfnin átt að hjálpa
busum til að átta sig á stétt sinni og stöðu.
Iglesias verður að sitja
í skugganum á næstunni
Söngvarinn Julio Iglesias, sá
hinn sami og rétt tyllti niður
tá sinni hér á landi fyrir skömmu,
segist nú verða að fara að athuga
sinn gang hvað snertir sólböð og
skemmtanir, því læknar hans hafa
varað hann við að hvorki lifur hans
né húð þoli allan þennan hamagang
öllu lengur. „Ég hef alltaf verið
mikill sóldýrkandi,“ segir Iglesias,
„notið þess að finna hvemig sólin
hitar mann alveg inn að beini. Nú
virðist ég hinsvegar hafa ofgert
húðinni, jafnvel svo, að hætta er á
húðkrabbameini, svo ég verð víst
að sitja í skugganum á næstunni.
Það er skrýtið, að það er ekki
fyrr en maður fær svona hættu-
merki varðandi heilsuna sem maður
gerir sér grein fyrir því hvað allt
er mikill hégómi samanborið við
heilbrigði og góða heilsu. Því beygi
ég mig fyrir ráðleggingum lækn-
anna, segi skilið við sólargeislana
um stund og reyni að koma mér á
réttan kjöl — þó svo það kunni að
kosta að ég verði náhvítur í nokkur
ár,“ segir söngvarinn, auðmjúkur á
svip, rétt eins og lítill skólastákur „Heilsan er það, sem mestu máli skiptir, þegar allt kemur til
sem lofar kennara sínum bót og alls,“ segir söngvarinn Julio Iglesias, sem er staðráðinn í að
betrun. hægja ferðina svolítið, segja skilið við skemmtanir og sólböð.
Hott,
hott
á
hesti
COSPER
— Veistu ekki að það er bannað að teikna á vegginn?
‘S7
V2 SVIN
NÝTT EÐA
REYKT
KJOTMIÐSTOÐIW Laugalaek l.s. 86511
VISA
Napoleon gæði
Minni fita
Betra eldi
Lægra verð
235 kr. kg.
Tilbúið í kistuna.
^FRUm
Sölu -
markaðsstjóri
Fyrirtækið er stór heildverslun í Reykjavík.
Starfsmannafjöldi 20. Áætluð velta 1986 á
annað hundrað milljónir.
Sölustjórinn kemur til með að sjá um dag-
lega stjórnun á annarri af tveimur söludeild-
um fyrirtækisins og undir hans stjórn starfa
5 sölumenn. Ennfremur skipulagningu sölu-
og markaðsaðgerða, samskipti við viðskipta-
aðila, jafnt innlenda sem erlenda, stefnumót-
un og þátttöku í framkvæmdastjórn
fyrirtækisins.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af stjórnun-
arstörfum, geta unnið skipulega og mark-
visst og eiga gott með samstarf. Góð
enskukunnátta nauðsynleg. Menntun á við-
skiptasviði æskileg.
Fyrirtækið býður góð laun og góða vinnuað-
stöðu.
Framtíðarstarf fyrir réttan aðila. Starfið er
laust eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Holger Torp.
Umsóknir skilist fyrir 17. september nk.
PFH£|Y1 Starfsmannastjómun-RáAningaþjónusta
Sundaborg I - 104 Reykjavik - Símaf 681888 og 681837
Vorum að taka upp herra blússur
og úlpur í miklu úrvali.
GEísIP