Morgunblaðið - 11.09.1986, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11 SEPTEMBER 1986
Erfiður
leikur
- sagði Sævar
Jónsson
„LEIKURINN var nokkuð erfiður
en úrslitin góð. Það var verst að
við náðum ekki að skora,“ sagði
Sævar Jónsson, sem leikur með
Brann i Noregi.
„Þetta er töluvert annað leik-
skipulag en var hjá Tony Knapp
og tel ég að það henti okkur vel á
móti svona sterkum þjóðum. Varn-
arleikurinn var góður frá upphafi
og fengum við sjálfstraust við það.
Með fimm menn á miðjunni verður
leikurinn opnari og skemmtilegri.
Það hjálpaði okkur líka að við spil-
um á heimavelli. Frakkarnir þurfa
ekki að kenna aðstöðunni um,
þeir eru vanir allskonar völlum í
Frakklandi og víðar. Það er engin
afsökun. Við vorum ekkert lakari í
þessum leik."
Get ekki
annað en
hrósað
íslendingum
- segir Sergei
Mossiagin að-
stoðarþjálfari
sovéskalands-
liðsins
„Við gerðum jafntefli við
Frakka í Mexíkó og nú horfi
ég á íslenska liðið endurtaka
sama leikinn og get því ekki
annað en hrósað Islendingun-
um,“ sagði Sergei Mossiagin,
aðstoðarþjálfari sovéska
landsliðsins í knattspyrnu, í
samtali við Morgunblaðið eftir
leikinn.
„íslenska liðið átti svo sann-
arlega skilið jafntefli í leiknum
og átti jafnvel að vinna, því það
fékk betri marktækifæri en
franska liðið. Vörnin var mjög
góð og það var mikill hreyfan-
leiki í leikmönnunum, en mér
fannst nr. 8 (innsk. Sigurður
Jónsson), nr. 10 (innsk. Ásgeir
Sigurvinsson) og nr.7 (innsk.
Arnór Guðjohnsen) bestir. Við
leikum hérna eftir hálfan mán-
uð og það verður örugglega
erfiður leikur fyrir okkur, því
ekkert landslið getur bókað sig-
ur gegn íslenska landsliðinu á
þessum velli."
Morgunblaöiö/RAX
• Hér eigast þeir við Yannick Stopyra og Arnór Guðjohnsen í leikn-
um í gærkvöidi.
Mörg jafntefli
í Evrópu-
keppninni
í GÆRKVÖLDI fóru fram nokkrir
leikir í Evrópukeppni landsliða og
vináttulandsleikja.
Finnland og Wales gerðu 1:1
jafntefli í Helsinki í 6. riðli Evrópu-
keppninnar. Ari Hjelm skoraði fyrir
Finna á 10. mínútu, en Neil Slatter
jafnaði á 66. mínútu. Danmörk og
Tékkóslóvakía eru í sama riöli.
í 7. riðli voru tveir leikir. Skot-
land og Búlgaría gerðu markalaust
jafntefli í Glasgow og leikur Belgíu
og írlands endaði 2:2. Þá vann
Rúmenía Austurríki 4:0 í 1. riðli.
Svíþjóð vann England 1:0 í vin-
áttuleik í Stokkhólmi og skoraði
Ekstrcm eina mark leiksins. Þá
vann Danmörk Austur-Þýskaland
1:0 og skoraði Eriksen markið.
Morgunblaöið/Einar Falur
Fontaine
á leiknum
• Just Fontaine setti marka-
met á HM 1958, þegar hann
skoraði 13 mörk. Hann var á
meðal áhorfenda á landsleikn-
um f gærkvöldi og sá landa
sfna ná jafntefli gegn íslandi.
LEIKURINN ITÖLUM
ísland
Frakkland
Hornspyrna Aukaspyrna Útspörk Markaskot Framhjá Varin
6 13 9 5 2 3
4 23 4 13 8 5
„Stór stund
í íslenskri
knattspyrnu"
— sagði Ellert Schram
„ÞETTA er stór stund í íslenskri
knattspyrnu. Jafntefli gegn
Frökkum er frábær byrjun f Evr-
ópukeppninni. Það var ekkert lán
að ná öðru stiginu, leikurinn gat
farið hvernig sem var,“ sagði Ell-
ert B. Schram, formaður KSÍ.
„Það voru marktækifæri á báða
bóga. Leikaðferð Sigi Held gekk
vel upp að mínu mati. Nú er bara
að vinna Rússa, því mikið vill
meira."
„Sætti mig
við jafnteflið"
- sagði Bjarni
Sigurðsson
„ÞETTA var góður leikur og það
eina sem skyggir á hann var að
við náðum ekki báðum stigun-
um,“ sagði Bjarni Sigurðsson,
markvörður fslenska liðsins.
„Ég var aðeins taugaóstyrkur í
byrjun en það fór fljótt af mér. Það
er alltaf ánægjulegt að gera jafn-
tefli við Evrópumeistarana. Þessi
leikur lofar góðu og er skref í rétta
átt. Ég sætti mig þó fullkomlega
við jafnteflið, við vinnum bara
næst," sagði Bjarni Sigurðsson.
Loksins
náðum við
að halda haus
- sagði Arnór
„LOKSINS náðum við að halda
haus. Oft höfum við tapað svona
leik niður í lokin. Þetta er von-
andi byrjunin á því sem koma
skal,“ sagði Arnór Guðjohnsen.
„Við áttum ekkert minna í leikn-
um en þeir. Við bárum enga virð-
ingu fyrir þeim og allir lögðu sig
fram um gera sitt þesta. Það hefur
oft þurft að hafa meira fyrir þessu.
Leikaðferðin hentaði okkur vel og
höfðum við góð tök á miðjunni
lengst af þannig að þeir náöu ekki
að sýna sínar sterkustu hliðar."
„Bárum enga
viðingu
fyrir þeim“
- sagði Sigurður
Jónsson
„ÞETTA var mjög skemmtilegur
leikur og mikill heiður að fá að
leika gegn svona frægum leik-
mönnum. Frakkar eru með létt-
leikandi lið en náðu ekki að skapa
sér umtalsverð færi. Við gáfum
þeim aldrei þumiung eftir,“ sagði
Sigurður Jónsson.
„Leikaðferð okkar gekk alveg
upp og spiluðum við nokkuð yfir-
vegað. Við bárum enga virðingu
fyrir þeim, þetta eru jú atvinnu-
menn eins og við. Það verður
gaman að koma út til Englands
og geta státað af jafntefli við Evr-
ópumeistarana," sagði Sigurður
Jónsson.
Nú hefur það komið fram í fjöl-
miðlum á Englandi að þeir hjá
Barnsley hafi áhuga á að fá þig.
Ert þú á leið þangað?
„Eg hef aðeins séð þetta hér í
blöðunum. Þetta hefur komið til
eftir að ég fór heim. En það kemur
í Ijós, ég vil ekkert segja til um það
á þessu stigi hvort ég fer þangað
eða ekki."
íslenska
liðið ekki
auðunnið
- segir Harald
Irmscher aðstoð-
arþjálfari aust-
ur-þýska
landsliðsins
„LEIKUR íslenska liðsins kom
mér á óvart og það var betra
í seinni hálfleik," sagði Harald
Irmscher, aðstoðarþjálfari
austur-þýska landsliðsins í
knattspyrnu, í samtali við
Morgunblaðið að leik loknum.
ísland leikur gegn Austur-
Þýskalandi í Evrópukeppninni í
lok næsta mánaðar og kom
Irmscher gagngert til landsins
til að njósna um íslenska liðið.
„Við eigum slæmar minningar
frá viðureignum okkar við
íslenska landsliðið og það tekur
stöðugum framförum. Liðið er
ekki auðunnið hér á íslandi og
við megum hafa okkur alla við
í næsta mánuði, þó við leikum
á heimavelli. Það var mikill
kraftur í íslensku leikmönnun-
um, vörnin var sterk, miðjuleik-
mennirnir léku vel og framherj-
arnir nr.11 (innsk. Pétur
Pétursson) og nr. 7 (innsk. Arn-
ór Guðjohnsen) voru stór-
hættulegir."
65
Flexello
VAGNHJÓL
Nylon-gúmmí
pumpuð
Allar stærðir
Vald Poulsen
Suðurlandsbraut 10,
sími 686499.
Þú svalar lestrarþörf dagsins