Morgunblaðið - 11.09.1986, Page 67

Morgunblaðið - 11.09.1986, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986 67 Sanngjarnt jafntefli gegn Evrópumeisturunum ísland - Frakkland 0:0 Evrópumeistarar Frakka uröu að sætta sig við markalaust jafn- tefli er liðið hóf titilvörn sína í Evrópukeppninni á Laugardals- velli í gærkvöldi. íslenska liðið hefði í fullu tré við Evrópumeist- arana og sanngjörnustu úrslitin voru án efa markalaust jafntefli því lítið var um marktækifæri í leiknum. Frakkar voru greinilega ekki alveg á því að sætta sig við að tapa öðru stiginu hér á landi því eftir leikinn voru flestir þeirra með hundshaus og vildu ekki þakka leikmönnum íslands fyrir leikinn, nokkuð sem er, sem bet- ur fer, mjög sjaldgæft. Sumir þeirra litu þó á þessi úrslit björt- um augum enda er alltaf ágætt að fá stig á útivelli. Þeir 13.730 áhorfendur sem mættu á Laugar- dalsvöllinn studdu vel við bakið á liðinu í gær. Fyrri hálfleikur í þessum leik var mjög rólega leikinn af beggja hálfu og kom það á óvart hversu seint Frakkar keyrðu upp hraðann í leiknum en það gerðu þeir ekki fyrr en um miðjan síðari hálfleik. Þessi hraði hentaði íslenska liðinu ágætlega og strákunum tókst að skapa sér nokkur þokkaleg mark- tækifæri. Litlu munaði Tvivegis á sömu mínútunni, þeirri fimmtu, mátti ekki muna miklu að ísland næði forystunni. Pétur Pétursson var nærri kominn inn í sendingu frá Bats markverði en varnarmaður náði að bjarga áður en í óefni var komið. Síðan náði Pétur knettinum aftur og gaf á Ásgeir sem gaf fyrir markið á Arnór en skot hans fór yfir. Það hefði ekki verið amalegt að skora á upphafsmínútum leiksins og til þess hefði ekki þurft nema smá- veigis heppni. Frakkar voru nokkrum sinnum nærri því að skapa sér færi en þau voru þó flest hættulaus. Eitt þeirra var þó verulega hættulegt en það var á 14. mínútu er Stopyra átti hörkuskot að marki en Bjarni varði meistaralega. Þetta var eina um- talsverða marktækifæri Frakka i fyrri hálfleik. Góð marktækifæri Amór átti skot að marki úr góðu færi á 15. mínútu eftir geysilega skemmtilega og vel útfærða sókn upp hægri kantinn. Það var Sigurð- ur sem hóf sóknina og gaf upp í hornið á Ragnar sem lék á einn Frakka og lyfti knettinum inn í vita- teig þeirra. Ómar skallaði knöttinn fyrir fætur Arnórs en skotið fór í varnarmann og þaöan i horn. Þetta var besta marktækifæri leiksins en það fór forgörðum. Eitt umtalsvert færi áttu íslend- ingar enn áður en flautað var til leikhlés. Arnór tók þá hornspyrnu á 22. mínútu og eftir að knettinum hafði veriö fleytt áfram að stöng- inni fjær reyndi Sævar skot úr erfiðri aðstöðu en Ragnar var í mjög góðri aðstöðu fyrir aftan hann og hefði náð góðu skoti. Greinilegt að Sævar vissi ekki af honum og því fór sem fór. Seinni hluti fyrri hálfleiks var mjög rólegur og tíðindalítill — reyndar alveg tíðindalaus. Frakkar náðu yfirhöndinni á miðjunni fram að leikhléi en enn sem fyrr gekk Morgunblaóiö/Júlíus • Besta marktækifæri leiksins. Sævar Jónsson teygir sig í boltann án þess að vita af Ragnari Margeirs- syni fyrir aftan sig í upplögðu marktækifæri. hvorki né rak hjá þeim að finna leiðina að markinu. Þar var vörnin við öllu búin og braut allar tilraun- ir þeirra á bak aftur. Sá seinni betri Síðari hálfleikur var mun skemmtilegri en sá fyrri. Meiri hraði og betri knattspyrna. Strax á 49. mínútu bjargaði Bjarni meist- aralega skoti frá Vercruysse sem var kominn einn i gegn. Islending- ar byggðu upp sókn sem endaði með því að Atli ætlaði að skjóta en hitti illa. Arnór náði þó knettin- um áður en hann fór útaf og gaf á Sigurð sem gaf fyrir þar sem Ásgeir náði góðu skoti dálítið á ská við markiö, en beint á Bats. Það var greinilegt að það fór í taugarnar á þeim frönsku að þeir skyldu ekki ná yfirhöndinni eftir að þeir keyrðu upp hraðann i leiknum. Þeir fóru að brjóta klaufalega af sér og það endaði með því að Ferguson dómari varð að sýna þeim Amoros, Ayache og Ver- cruysse gula spjaldið en Péturfékk einnig að sjá það um svipað leyti eftir að hann lenti í samstuði við Bats. íslendingar beittu nú skyndi- sóknum meira en áður enda sóknarlotur Frakkanna bæði lang- ar og þungar. Ásgeir sendi eina „gullsendingu" á Arnór sem reyndi að hlaupa Bola af sér en það gekk ekki enda var Boli einn sterkasti maður Frakka í þessum leik. Arnór var enn einu sinni á ferð- inni þegar hann og Sigurður tóku nett þrihyrningsspil framhjá tveim- ur varnarmönnum Frakka en skot Arnórs rétt „lak“ framhjá stöng- inni. Nú var sóknarlotum íslands lokið og komið að Frökkum að þjarma dálítið að íslenska markinu. Stórsókn Frakka Á lokamínútum leiksins áttu þeir ein þrjú þokkaleg marktæki- færi. Stopyra komst nærri því í gegn en Sævar bjargaöi á síðustu stundu eftir að Ágúst Már hafði kinksað hroðalega. Sævar bjargaði síðan aftur er Paille var rétt að skjóta sér inn fyrir vörnina en besta færi leiksins kom þó þegar leikið hafði verið í 91 mínútu. Vercruysse fékk þá knöttinn al- einn rétt utan við markteigshorn Islendinga en hann var allt of seinn að átta sig á því sem var að ger- ast og Gunnar Gíslason náði af honum boltanum. Þarna skall hurðin fræga svo sannarlega nærri hælum. Vercruysse haföi greini- lega ekki búist við knettinum þvi hann rúllaði í gegnum vítateig ís- lands án þess nokkur næði honum, en sem betur fer bjargaðist málið á síðustu stundu. Góð úrslit íslenska liðið stóð sig ágætlega i þessum leik, baráttan var í góðu lagi og með smá heppni hefði það getað skorað mark. Ef það hefði tekist þá er víst að leikurinn hefði orðið mun skemmtilegri, en það varð nú ekki. Leikaðferð liðsins var rétt, það að leika með Gunnar sem aftasta mann var viturlegt. Skipt- ingarnar hjá varnarmönnunum voru góðar og sárasjaldan að það kom upp misskilningur milli manna þar. Bjarni markvörður stóð sig mjög vel í markinu. Öruggur og yfirvegaður. Miðjumennirnir stóðu einnig fyr- ir sínu, sérstaklega með tilliti til varnarinnar en það myndaðist oft á tíðum of stór gat á milli sóknar- innar og miðjunnar. Framlínan var einnig ágæt í leiknum en þó hefur Pétur oft leikið betur en núna. Þeir eru þó stórhættulegir, Pétur og Arnór, og það má aldrei líta af þeim, þá er voðinn vis. í fyrri hálfleik tóku miðjumenn íslands á móti Frökkum frekar framarlega á vellinum og mun framar en búast hefði mátt við. Þetta gaf góða raun á meðan Frakkar léku sinn rólega bolta en er þeir juku hraðann í síðari hálf- leik urðu miðjumenn okkar að bakka til að taka þá aftar á vellinum og við það þyngdust sóknarlotur Frakkanna en þeim tókst þó ekki að skapa sér mörg hættuleg mark- tækifæri. Frakkar slakir Franska liðið olli miklum von- brigðum í þessum leik og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Þá léku þeir rólega á milli sín, reyndu ekk- ert upp á eigin spýtur og virtust vera að þreifa sig áfram. Þessar þreifingar tóku allt of langan tíma og liðið komst aldrei almennilega í gang. Bestu menn þeirra að þessu sinni voru þeir Tigana sem er heil- inn á bak við allar sóknir þeirra og Fernandez sem er geysilega hreyfanlegur á vellinum og hjálpar bæði til í vörn og sókn. Skemmti- legur leikmaður það. Boli átti einnig góðan leik og greinilegt að þar er á ferðinni framtíðarmiðvörð- ur Frakka. Amoros er greinilega ekki eins og hann á að sér og hefur oftast verið betri. Fyrirliði þeirra, Battiston, átti einnig ágæt- an dag en sem lið náði franska landsliðið aldrei saman. „Náðum ekki að sýna okkar bolta“ - sagði Jean Tigana „VIÐ náðum ekki að sýna okkar bolta f kvöld. Völlurinn var of þröngur og við náðum þar af leið- andi ekki að opna vörnina hjá íslendingum og dreifa þannig betur spilinu,u sagði Jean Tigana, ein helsta stjarna franska liðsins eftir leikinn í gærkvöldi. „íslenska liðið kom okkur mjög á óvart. í því eru margir skemmti- legir leikmenn. Þetta er áfall fyrir okkur að tapa stigi hér en svona er knattspyrnan," sagði Tigana og var greinilega mjög vonsvikinn með úrslit leiksins eins og allir leik- menn franska liðsins. Tigana hefur leikið alls 48 landsleiki fyrir Frakk- land. Hann lék alla 7 leiki liðsins í heimsmeistarakeppninni í Mexíkó. #----- TIMKEN keilulegur FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.