Morgunblaðið - 09.10.1986, Side 39
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986
39
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fuiltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, simi 83033.
Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakiö.
Ronald Reagan
í Reykjavík
Ikvöld er Ronald Reagan,
Bandarílqaforseti, væntan-
legur til Reykjavíkur. Forsetinn
kemur hingað með skömmum
fyrirvara en erindi hans er brýnt:
að ræða við Mikhail Gorbachev,
flokksleiðtoga Sovétríkjanna,
um samskipti ríkjanna, sem ráða
mestu um þróun alþjóðamála. í
útvarpsávarpi til bandarísku
þjóðarinnar í tilefni af
Reykjavíkurfundinum sagði Re-
agan meðal annars og vísaði til
þess, þegar hann hitti Gorbac-
hev í Genf fyrir tæpu ári: „Við
vorum í um fímm klukkustundir
einir saman á fundum, og í
meira en 15 stundir ræddum við
saman ásamt með viðræðu-
nefndum okkar. í sannleika sagt
þá kynntumst við þama á ný
sannleiksgildi orðanna: þjóðir
vantreysta ekki hver annarri af
því að þær eru vopnaðar; þær
eru vopnaðar af því að þær van-
treysta hver annarri. Eg talaði
tæpitungulaust um þetta við
Gorbachev og sagði honum, að
við teldum, að ástæðuna fyrir
þessu vantrausti væri að fínna
í viðleitni Sovétmanna til að
þröngva hugmyndafræði sinni
upp á aðra og sölsa þá undir
sig.“
I þessum orðum má greina
það, sem fyrir Ronald Reagan
vakir á fundum þeim, sem hann
á með Mikhail Gorbachev; leið-
togamir ræða ekki um sérgreind
atriði heldur kanna þeir hvaða
baráttumálum sínum þeir geta
náð fram við mótun sameigin-
legrar meginstefíiu. Frá því að
Ronald Reagan tók við embætti
Bandaríkjaforseta í ársbyijun
1981 hefur hann sýnt og sann-
að, að hann er stjómmálamaður,
sem er einstaklega laginn við
að vinna málstað sínum fylgi.
Hann er fullviss um að samn-
ingatækni sín og sannfæringar-
máttur dugar ekki síður á
Sovétmenn en aðra. Reagan nær
ekki árangri með því að fara í
launkofa með hugsjónimar, sem
búa að baki steftiu hans.
Eftir að skýrt var frá hinum
óvænta Reykjavíkurfundi þeirra
Reagans og Gorbachevs, hafa
áhrifamenn um mótun stefnu
Bandaríkjanna í utanríkis- og
vamarmálum skipst í tvö hom
í afstöðu sinni til fundarins. Á
Bandaríkjaþingi fagnaði Thom-
as O’Neill, forseti fulltrúadeild-
arinnar, sem ekki er flokks-
bróðir forsetans, því, að til
fundarins yrði gengið. Margir
sérfræðingar um alþjóðamál og
landflótta Sovétmenn telja fund-
inn á hinn bóginn varasamt
fyrirtæki; forsetinn hafí verið
of fljótur að verða við óskum
Gorbachevs. Stefna Reagans í
öryggismálum sætir gagnrýni
frá vinstri á þingi en hægri utan
þings.
Reagan leggur mikið undir
með því að koma til Reykjavík-
ur, þegar tæpar fjórar vikur em
til þingkosninga í Bandaríkjun-
um. Hann ætlar sér að sjálf-
sögðu að nýta fundinn í
pólitíkinni heima fyrir. Hann
hefur hvatt þingmenn til að sýna
Sovétmönnum það svart á hvítu,
að Bandaríkjamenn standi ein-
huga saman út á við. Og segir
hiklaust að markviss uppbygg-
ing á herafla Bandaríkjanna
síðastliðin fímm og hálft ár hafí
átt mestan þátt í að fá Sovét-
menn til að setjast að samninga-
borðinu. Það þarf töluverða
rökfími til að sannfæra fólk um
að þessi fullyrðing sé röng.
í forsetatíð Ronalds Reagan
hafa Bandaríkjamenn endur-
heimt sjálfstraust sitt út á við.
Sumum fínnst nóg um þá þjóð-
emiskennd, sem forsetinn setur
á oddinn. Samherjum Banda-
ríkjanna þykir, að ekki sé ávallt
tekið nægilegt tillit til sjónar-
miða þeirra; viðhorf þeirra njóti
ekki sama skilnings og áður.
Við íslendingar höfum ekki far-
ið varhluta af þessu undanfaraa
mánuði eins og umræður um
sjóflutninga til vamarliðsins og
hvalveiðar hafa sýnt. Því ber að
fagna að fulltrúar þjóðanna hafa
komist að sameiginlegri niður-
stöðu um þessi mál. Enginn
vafí er á því, að koma Reagans
til íslands dregur athygli forset-
ans og annarra ráðamanna í
Washington sterkar að íslensk-
um máleftium en nokkru sinni
fyrr. Sú pólitíska inneign getur
komið okkur að verulega góðum
notum næst þegar bjátar á í
hinum nánu og vinsamlegu sam-
skiptum þjóðanna.
Ronald Reagan er annar for-
seti Bandaríkjanna, sem sækir
ísland heim. Hann kemur hing-
að þann dag, sem Bandaríkja-
menn hafa kennt við Leif
Eiríksson, er fann Vínland fyrir
1000 árum. Þá sköpuðust fyrstu
tengsl íslendinga við Norður-
Ameríku. En það er á síðustu
hálfu öld, sem þau hafa dafnað
og blómstrað með einstökum
hætti, þegar litið er á stærð
þjóðanna annars vegar og þá
hagsmuni, sem eru í húfí hjá
báðum. Morgunblaðið fagnar
komu Ronalds Reagan ti! ís-
lands og vonar að hún treysti
enn hið góða vináttusamband
þjóðanna um leið og tekið er
undir þær óskir alls mannkyns
að fundur hans með Mikhail
Gorbachev hér í Reykjavík beri
góðan ávöxt.
Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna:
Ástsæll og umdeildur
en óskoraður leiðtogi
Ronald Wilson Reagan, fertug-
asti forseti Bandaríkjanna, sem
í dag kemur til fundar við Mik-
hail Gorbachev, leiðtoga Sov-
étríkjanna, í Reykjavik, er
umdeildur maður. Aðdáendur
hans eru vissir um, að hans verði
getið f sögubókum sem ástsæl-
asta forseta landsins en öðrum
finnst, að hann sé sá ólíklegasti
þeirra, sem gegnt hafa þessu
embætti. Það viðurkenna hins
vegar allir, að um Reagan leiki
einhver óskilgreinanleg bjart-
sýni, sú trú, að ameríski draum-
urinn geti ræst, og það voru
þessar hugsjónir, sem færðu hon-
um forsetaembættið.
Jafnvel hörðustu andstæðingar
Reagans viðurkenna, að hann hafi
gefíð forsetaembættinu aftur það
vald og þá virðingu, sem það hafði
misst í tíð þriggja fyrirrennara hans
og karlmennska hans og kímnigáfa
þegar hann var að ná sér eftir bana-
tilræðið í apríl árið 1981 brenndi
sig inn í hjörtu bandarísku þjóðar-
innar. Þá minntust margir þess,
sem Reagan sagði þegar hann tók
fyrst við embætti: „Þeir, sem halda
því fram, að við lifum á hetjulausum
tíma, vita ekki hvar þeir eiga að
leita."
Reagan hefur sérstöðu um margt
í forsetaembættinu. Hann er ekki
aðeins fyrsti leikarinn, sem leggur
undir sig Hvíta húsið, heldur einnig
fyrsti maðurinn, sem er fráskilinn
og auk þess elstur allra fyrirrenn-
ara sinna, rúmlega sjötugur, til að
sveija embættiseiðinn. Einu sinni
bauðst hann til þess í hálfkæringi
að segja af sér ef læknar fyndu
einhver merki um elliglöp hjá hon-
um en sannleikurinn er sá, að f
augum landa sinna er hann
lífskrafturinn holdi klæddur og
þróttmeiri en nokkur andstæðinga
hans á þingi.
Ronald W. Reagan fæddist 6.
febrúar árið 1911 í Tampico í Illino-
is, uppi yfír aðalversluninni í
bænum. Hann var annar sonur
drykkfellds sölumanns og hann átti
erfiða æsku. Faðir hans, Jack,
rammkaþólskur íri, fluttist úr ein-
um bænum í annan í atvinnuleit,
átti aldrei sína eigin íbúð og 55
dollarar voru mestu vikutekjumar,
sem hann vann sér inn um ævina.
í móður Reagans, Nellie, var
meira spunnið. Hún var mótmæl-
andi, kalvínskur presbyteri, algjör
bindindismanneskja, sem notaði
hverja stund, sem gafst, til að
hjálpa þeim meðbræðmm sínum,
sem áttu bágt. Það var hún, sem í
raun framfleytti fíölskyldunni með
saumaskap og kennslu í sunnu-
dagaskólanum og til að fá útrás
fyrir áhuga sinn á leiklist las hún
upp úr klassískum verkum fyrir
fangana í bæjarfangelsinu. Reagan
tók þetta hvort tveggja í arf frá
móður sinni, leiklistaráhugann og
trúna, og hann hefur verið í söfti-
uði presbytera alla tíð.
Að loknu menntaskólanámi sett-
ist Reagan i Eureka-háskólann í
Dixon skammt frá Chicago þar sem
hann lagði stund á hagfræði og
kostaði sig sjálfur með því að vinna
fyrir sér sem strandvörður og upp-
þvottamaður á veitingashúsum.
Sem námsmaður skaraði Reagan
ekki framúr en það gerði hann hins
vegar í íþróttum og í leikfélagi skól-
ans. Það var líka á þessum árum,
sem hann sýndi fyrst foringjahæfí-
leika sfna, þegar hann skipulagði
og stjórnaði árangursríku nemenda-
verkfalli, sem var fáheyrt á kreppu-
árunum, til að mótmæla niðurskurði
á fjárframlögum til skólans.
Reagan kynntist Hollywood
flmm árum eftir að hann lauk námi
við Eureka-skólann. íþróttafrétta-
maður við bæjarútvarpið kynnti
hann þá fyrir einum útsendara
Wamer Brothers-kvikmyndafélags-
ins og honum leist svo vel á unga
manninn, Reagan var þá 26 ára
gamall, að eftir reynslutökur fékk
hann sjö ára samning við félagið.
„Ástin liggur í loftinu" hét fyrsta
kvikmyndin, sem Reagan lék f og
þar fór hann með hlutverk ástsjúks
íþróttafréttamanns.
Reagan fékk aldrei neinn Óskar
og var ekki einu sinni tilnefndur til
hans fyrir þær 50 kvikmyndir, sem
hann lék í um dagana, og venjulega
var hann látinn leika góða strákinn,
sem alltaf spilaði á aðra flðlu og-
var aldrei nógu heppinn sjálfur til
að hreppa draumadisina. „Gerum
Reagan að ríkisstjóra," sagði frétta-
maðurinn Jack Wamer árið 1966
við heldur litlar undirtektir til að
byija með. „Nei, styðjum heldur
Jimmy Stewart og kynnum Reagan
sem hans besta vin,“ sögðu aðrir.
Þetta vanmat á Reagan var gryfja,
sem margir áttu eftir að falla í.
Fyrstu stjómmálareynsluna fékk
Reagan í starfi sínu fyrir banda-
ríska leikarafélagið. Að lokinni
síðari heimsstyijöld var hann demó-
krati í anda Roosevelts og stjómaði
kosninganefndinni í Hollywood fyrir
Hany Tmman en skoðanir hans
áttu eftir að breytast. Hann varð
formaður leikarafélagsins á erfiðum
tímum, þegar verkföll ógnuðu kvik-
myndaiðnaðinum og kalda stríðið
var í algleymingi, og smám saman
færðist hann til hægri f hinu
pólitfska litrófl.
Reagan var kallaður fyrir sem
vitni fyrir óamerísku nefndinni á
dögum McCarthys og þótt hann
reyndi að veija rétt félaga sinna í
leikarafélaginu varð hann eins og
aðrir að sætta sig við, að sumir
þeirra vom reknir, þeir, sem ekki
gátu hreinsað sig af öllum gmn um
„kommúnískar tilhneigingar". Enn
áttu þó eftir að líða tíu ár þar til
hann snerist til liðs við Repúblik-
anaflokkinn.
Tvennt átti mestan þátt í skoð-
anaskiptum hans. Skömmu eftir að
hann skildi við leikkonuna Jane
Wyman varð á vegi hans ung og
metnaðargjöm leikkona að nafni
Nancy Davis en faðir hennar var
virtur skurðlæknir og áhrifamikill
repúblikani á austurströndinni. Þau
gengu í hjónaband árið 1952 og
Nancy, sem aldrei velktist í vafa
um pólitískar skoðanir sínar, hafði
mikil áhrif á eiginmann sinn. Hitt
var svo, að árið 1954, þegar Reag-
an áttaði sig á, að dagar hans í
kvikmyndunum vom brátt taldir,
gerðist hann „gestgjafi“ í sjón-
varpsþætti, sem stórfyrirtækið
General Electric kostaði, „Leik-
húsinu á öldum ljósvakans", og í
því starfí gmndvallaði hann sfna
pólitísku framabraut. Viku eftir
viku og mánuð eftir mánuð ferðað-
ist hann um Bandaríkin þver og
endilöng vegna sjónvarpsþáttarins
og smám saman varð hann að þeim
mælskumanni, sem fáir standast
snúning.
Reagan gekk í Repúblikana-
flokkinn árið 1962, baiðist fyrir
Nixon og gat sér mikið orð í barátt-
unni fyrir Barry Goldwater.
Goldwater var mikill andkommún-
isti og það var Reagan einnig en
sá var munurinn á þeim tveimur,
að Goldwater hræddi fólk með yfír-
lýsingum sínum en Reagan vakti
traust og tiltrú. Eftir þessu var tek-
ið og frammámenn í viðskiptaheim-
inum f Kalifomíu lögðu brátt að
honum að bjóða sig fram sem ríkis-
stjóra. Reagan var til í slaginn og
hann kom, sá og sigraði. Hann
vann kosningamar gegn demó-
kratanum Pat Brown með einnar
milljónar atkvæða meirihluta.
Stjómmálaskoðanir Reagans
breyttust allmikið meðan hann
gegndi embætti ríkisstjóra í Kali-
fomíu og þar lagði hann gmnninn
að hægrisveiflunni árið 1980 með
baráttu sinni gegn „bákninu" og
áherslu á fomar dyggðir. Hann
varð frægur fyrir vinnusemi, fyrir
að kunna að velja sér hæfa sam-
starfsmenn og einstaka málamiðl-
unarhæfileika. Andstæðingar hans
meðal frammámanna í rikinu
minnast hans enn með söknuði.
Hinum bandaríska hversdags-
manni féll Reagan vel í geð. í hans
augum var hann hinn dæmigerði
fíölskyldumaður, vinnusamur, hóf-
samur og trúrækinn. Á sunnudags-
morgnum mátti ganga að honum
vísum ásamt Nancy við messu í
presbyterakirkjunni í Bel-Air og
það ber sjaldan við, að hann taki
meira en eitt glas. Tóbak hefur
hann aldrei snert.
Þegar Reagan sigraði í forseta-
kosningunum árið 1980 urðu
straumhvörf í bandarfsku þjóðlífi.
Það var ekki aðeins, að fólk lýsti
óánægju sinni með Jimmy Carter
og mistök hans við að leysa gísla-
deiluna f íran, heldur var einnig um
að ræða uppgjör við hefðbundin
áróðursbrögð demókrata. Fjórðung-
ur þeirra kjósenda, sem áður höfðu
fylgt demókrötum, gekk nú til iiðs
við Reagan, kaþólskir menn jafnt
sem mótmælendur, verkamenn
jafnt sem fijálslynt fólk á austur-
ströndinni. Þessi saga endurtók sig
þegar Reagan sigraði Walter Mond-
ale með enn meiri yfirburðum í
forsetakosningunum árið 1984.
Flestum fréttaskýrendum ber
saman um, að Ronald Reagan hafí
það til að bera, sem geri hann að
meira en meðalmanni í forsetaemb-
ættinu. „Hann er enginn svipur,
sem líður hjá á sviði sögunnar,"
segir Robert Murray, sagnfræðing-
ur við háskólann í Pennsylvaníu.
„Hann hefur fært forsetaembætt-
inu vald og virðingu meðal þjóðar-
innar og án slíks leiðtoga getur
lýðræðið ekki þrifist."
Reagan trey stir
á eigið hugboð
eftír James Reston
MARGIR vilja gefa Reagan for-
seta ráð áður en fundur hans
með Mikhail Gorbachev hefst á
íslandi, og flestir eru ráðgjafarn-
ir neikvæðir.
Henry Kissinger fyrrum ut-
anríkisráðherra hefur opinber-
lega lýst því yfir að svo stuttir
og skyndilegir leiðtogafundir
séu “hættulegir".
Aðrir utanríkissérfræðingar,
sem er Kalda stríðið enn i fersku
minni, taka undir með Kissinger
og segja að takmörkun kjarn-
orkuvopna sé of flókið mál til
að selja í hendur vinglgjörnum
og tæknilega fáfróðum stjóm-
máialeiðtogum.
Skjalamöppur Reagans til undir-
búnings leiðtogafundinum eru því
fullar af aðvörunum og vangavelt-
um um það, hvemig fari, ef...
Hvemig fer, ef Gorbachev fellst
i á mikla fækkun kjamorkuvopna
með því skilyrði að forsetinn slái
„Stjömustríðs" áætlun sinni á frest
og fallist á bann við öllum kjam-
{ orkuvopnatilraunum?
Hvemig fer, ef Sovétleiðtoginn
meinar ekki það sem hann segir,
og hann, samstarfsmenn hans eða
eftirmenn ganga á bak orðanna á
fundinum í Reylqavík?
Forsetinn gerir sér fulla grein
fyrir þessum möguleikum og hefur
sjálfur oftsinnis haft orð á þeim.
Ráðgjafa hans greinir á, og í huga
hans sjálfs takast á neikvætt álit á
Sovétríkjunum og vonir um frið,
auk þess sem hann dreymir enn um
vamarflaugar úti í geimnum.
Hingað til hefur Reagan tekist
að koma öðmm í klandur, en slopp-
ið sjálfur. En tfminn er naumur og
hann verður að velta fyrir sér hvem-
ig fari ef...
Hvemig fer, ef hann hlustar á
þá sem örvænta? Hvemig fer ef
hann aðhefst ekkert í heimi sem í
eru 50.000 kjamorkuvopn og áfram
geysar vígbúnaðarkreppa, fíárlaga-
, kreppa og viðskiptakreppa? Hvem-
| ig fer, ef hann gerir ekki enn eina
úrslitatilraun til að fá Gorbachev
til að fallast á hugsjón sína um
meira öryggi í heiminum?
Ronald Reagan kann ef til vill
ekki góð skil á flóknum og hættu-
legum flækjum samninga um
takmörkun á Igamorkuvopnum, en
hann hefur fulla trú á getu sinni
til að tala sig út úr vandanum.
Nýlega sagði hann nokkram
blaðamönnum í Hvíta húsinu frá
því að komið hefðu jákvæð svör frá
Rússum og hreyfing væri á viðræð-
um. „Mér finnst þeir hafa bragðist
ótrúlega vel við, og það hafa þeir
reyndar gert frá því að hann
[Gorbachev] komst til valda. ...
Eftir því sem ég best veit, er hann
fyrsti rússneski leiðtoginn sem
nokkum tíma hefúr í raun og vem
lagt til að vopnum verði útrýmt...
jafnvel lýst sig fúsan til að útrýma
langdrægum eldflaugum. Þetta er
breyting... Ég tel þetta tækifæri
sem við megum ekki missa af.“
Þetta er einnig breyting á tals-
máta forsetans, en hann hefur hinn
bóginn fulla trú á því að sér takist
að ná fram breytingum.
„Á fundi okkar (Gorbachev) í
í Genf, sagði ég við hann,“ hélt for-
setinn áfram, „að við tveir væram
í einstakri aðstöðu til að láta þriðju
heimsstyijöldina skella á, en við
gætum á sama hátt komið á friði
í heiminum. Ég gerði honum full-
ljóst að okkur geðjist ekki að þeirra
þjóðfélagskerfi og við vitum að þeim
líkar ekki okkar kerfi, en við verðum
að búa saman í þessum heimi, og
báðum vegnar betur ef friður
ríkir...“
Á þessum tveimur dögum sem
Bandaríkjaforseti fundar með
Gorbachev á íslandi, gæti farið svo
að hann geri lítið annað en að
hamra á þessari grandvallarstað-
reynd og ákveði auk þess dagskrána
sem aðstoðarmenn beggja munu
undirbúa fyrir leiðtogafundinn í
Washington síðar á þessu ári eða
snemma á næsta ári.
En maður getur vart tekið undir
með þeim sem telja fundinn á ís-
landi vonda og hættulega hugmynd.
Forsetinn fer þangað ekki til að
ákveða hversu margar eldflaugar
hvor um sig megi eiga, hvar megi
geyma þær, hversu margar þær
stóra megi vera eða hvað eigi að
gera við stýriflaugar í skipum.
• Reagan fer ekki til íslands til að
ræða um tækjabúnað, hann fer
þangað til að ræða heimspeki -
hann mun ekki einungis ræða um
; forsendur vígbúnaðar heldur einnig
um mannréttindi og ráðstafanir
vegna svæðisbundinna átaka, og
vegna njósnara og blaðamanna.
Forsetinn er líklega, eins og
venjulega, of bjartsýnn um árangur
! í þessum málaflokkum. En sagan
kennir okkur samt sem áður, að
átök milli ríkja sem aðhyllast mis-
munandi heimspekistefnur þurfi
ekki að standa um aldur og ævi.
í lok síðustu aldar virtist mesta
ógnun við heimsfriðinn vera það
hatur sem ríkti milli Bretlands og
Frakklands. Á þessari öld hefur
engin þjóð virst ógna heimsfriðnum
jafn mikið og Þýskaland Hitlers.
En vandamál sem virðast óleys-
anleg, líkt og trúarstríðin sem stóðu
öldum saman, leysast á endanum.
Þannig var bundinn endir á óvin-
áttu Frakklands og Þýskalands, og
Bandaríkjanna og Japans.
Reagan forseti hefur jafnvel
gerst svo djarfur að spyija: Hvernig
fer, ef Gorbachev meinar raun-
verulega það sem hann segir? Við
skulum ( það minnsta kanna það
nánar.
James Reston er blaðamaður New
York Times.
JÁSþýddi.
Komin þreyta
í prófkjörin
- segir Sveinn H. Skúlason formaður full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
SVEINN H. Skúlason formaður
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík mun eftir næstu
kosningar leggja til að athugað
verði með breytingar á vali fram-
bjóðenda flokksins vegna galla á
prófkjörsleiðipni.
„Það er komin ákveðin þreyta í
þetta fyrirkomulag. Prófkjörin hafa
þróast út í slag á milli manna um
ákveðin sæti sem ljóst er að marg-
ir eru ekki tilbúnir að fara út í vegna
návígisins og kostnaðarins sem bar-
áttunni fylgir. Þetta prófkjör okkar
nú með 15 þátttakendum sýnir okk-
ur það,“ sagði Sveinn. Sagði hann
nauðsynlegt að leita að öðra fyrir-
komulagi sem gæti gengið eitt sér
eða samhliða prófkjöram. Sagðist
Sveinn hafa talað fyrir uppstillingu
framboðslista í kjörnefnd, að und-
angenginni skoðanakönnun í full-
trúaráði. Ætti það að gefa góða
vísbendingu um vilja flokksmanna
því í Reykjavík ættu 1.300 manns
sæti í fulltrúaráðinu. Taldi hann að
tími væri kominn til að reyna eitt-
hvað nýtt eftir komandi kosningar.
Frá lokaundirbúningi á Stöð 2 i gærkveldi.
Stöð 2 byrjar útsendingar í dag:
„Erum bæði
kátir og kvíðn-
ir í senn“
- segir Jón Ottar Ragnarsson,
sj ónvarpsstj óri
„ÞAÐ hefur gengið á ýmsu i
lokasprettinum og segja má að
við séum bæði kátir og kvíðnir í
senn,“ sagði Jón Óttar Ragnars-
son, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, i
samtali við Morgunblaðið í gær,
en fyrsta útsending nýju sjón-
varpsstöðvarinnar hefst kl. 18.45
í kvöld með ávarpi Jóns Óttars
og siðan verða fréttir á dagskrá,
þar á meðal bein útsending frá
komu Ronalds Reagans, Banda-
ríkjaforseta, til íslands.
„Nú er aðalatriðið að fólk stilli
tæki sfn inn á stillimyndina til að
ná útsendingunni. Það hefur verið
rosaleg vinna og álag á starfsfólk-
inu hér þessa síðustu daga og hefur
leiðtogafundurinn óneitanlega bætt
við álagið sem hér var fyrir við að
koma á fót nýrri sjónvarpsstöð.
Allir fréttamennimir okkar sex
verða á kafí ( fundinum og höfum
við m.a.s. bætt við einum frétta-
manni, Helga Péturssyni, í viðbót á
meðan á honum stendur auk þriggja
viðbótar upptökuhópa. Starfsfólkið
hefur unnið allt upp (18 til 20 tíma
á sólarhring þessa síðustu daga og
allar vélamar okkar hafa verið (
stöðugri notkun. Við höfum tekið
upp fullt af fréttaefni, fyrsta inn-
lenda umræðuþáttinn tókum við
upp á sunnudaginn - umræðuþátt,
sem Magnús Magnússon hjá BBC
stjómar, og verið er að vinna úr
erlendum fréttaþáttum út af leið-
togafundinum. Ennfremur höfum
við verið að ganga frá kynningar-
myndum fyrir sjónvarpsstöðina."
Jón sagði að búið væri að panta
hátt á fjórða þúsund lykla og búið
væri að afgreiða um 1.600. Hann
sagði að ljóst væri að nokkur vand-
ræði yrðu með að anna eftirspum
lyklanna fram á næsta ár, en það
í yrði ýtt á eftir pöntunum eins og
I hægt er. Jón Óttar sagði að upp-
ranalega hefði verið ætlunin að
hafa útsendingu Stöðvar 2 opna
þijá til fjóra fyrstu dagana, en
vegna þess að ekki er búið að af-
greiða nema hluta þeirra lykla, sem
pantaðir hafa verið, sagðist Jón
Óttar vonast til að hægt verði að
hafa dagskrána alla opna í viku í
viðbót.
Eftir fréttir og beina útsendingu
frá komu Reagans frá Keflavíkur-
flugvelli verður á dagskrá Stöðvar
2 breskur grínþáttur er nefnist
„Spéspegill" (Spitting Image) en í
honum er óspart gert grín að stjóm-
málamönnum og heimsmálapólitflc
þar á meðal þeim Reagan og
j Gorbachev. Þá verður á dagskrá
bandarískur framhaldsþáttur er
heitir „Bjargvætturinn". Umræðu-
þáttur Magnúsar Magnússonar um
leiðtogafundinn verður á dagskrá
um kl. 22.00 og að honum loknum
verða á dagskrá tvær kvikmyndir,
, „Hann er ekki sonur þinn“ og „48
! stundir".