Morgunblaðið - 09.10.1986, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986
Tarkowsky-myndin Fórnin
Draumar, heimsendir
og* íslensk völva
Sovéski
kvikmyndaleikstjórinn,
Andrei Tarkowsky, með
áritaða mynd af húsinu sem
atburðir Fómarinnar gerast
í.
Útitaka: Annað skot á
snjóinn eftir nöktum fótum
barns. Lítill drengur bíður
eftir föður sínum; hinn sex
ára gamli Tommi er með
hræðilegt kvef.
Mikill undirbúningur.
Draumar. Myndavélinni er
beint að blautri forinni á
jörðinni. Tarkowsky leggur
niður dagblöð, rífur myndir
úr bók af sænska
heimskautafaranum
Nordenskjöld, setur
útlenskar myntir í hrauk.
Myndavélin á að fara yfir
þetta.
„ A þetta að tákna
eitthvað,“ spyr einhver.
„Tákna?“ svaraði Tarkowsky
og brosir. „Ekki spyrja mig.
Hvernig á ég að vita það?
Þetta er það sem draumar
eru gerðir úr ...“
Um næstu helgi verður frumsýnd
í Háskólabíói sænska myndin
Fómin eftir sovéska kvik-
myndahöfundinn Andrei
Tarkowsky. Guðrún Gísladóttir
leikkona, sem fer með hlutverk í myndinni,
átti frumkvæðið að því að fá myndina hing-
að til lands í tilefni fundar þeirra Ronalds
Reagan og Mikhails Gorbachev í Reykjavík.
Haft var samband við dreifingaraðila
Tarkowskys í Svíþjóð og fékkst myndin
hingað í örfáa daga til sýningar.
„Það er tilvalið að sýna hana hér núna
þegar þessi stórveldafundur stendur yfir, “
sagði Guðrún Gísladóttir í samtali viðMorg-
unblaðið. Myndin segir frá mögulegum
heimsenda af völdum kjamorkunnar, en
honum er afstýrt meðal annars af völu frá
fslandi. Og kannski er þetta eina tækifærið
Rætt við
Guðrúnu Gísla-
dóttur sem fer með
hlutverk í Fórninni
og fjallað um
Tarkowsky
og mynd hans
sem Gorbachev hefur til að sjá myndina.
Tarkowsky, sem naut mikilla vinsælda í
heimalandi sínu, segir að þó hann hafi gert
mynd í Sviþjóð, sé það samt sem áður
rússnesk mynd fyrir rússneska áhorfendur.
Þeir hafa bara ekki tækifæri til að sjá hana
i bili. Það væri gaman ef þeir Reagan og
Gorbachev skelltu sér i bíó um helgina og
fengju sér popp.
Tarkowsky gerði Fómina í Svíþjóð á
síðasta ári, en með helstu hlutverk í henni
fara Erland Josephson, Susan Fleetwood,
Sven Wollter, Valérie Mariesse, Allan Ed-
wall og Guðrún Gísladóttir, sem leikur hina
áðumefndu íslensku völu. Kvikmyndatöku-
maður er Sven Nykvist. Tarkowsky stóð í
stappi við sovésk jrfírvöld um að fá ungan
son sinn yfir til Vesturlanda á meðan á
kvikmyndatökunni stóð. Skömmu seinna
fékk hann að vita að hann væri haldinn
krabbameini. Honum var vart hugað líf sl.
vor, og héldu menn að Fómin yrði hans
síðasta mynd. Mitterrand Frakklandsforseti
gekk á endanum í það að fá son Tarkowsk-
ys sendan til föður sins eftir að uppvíst
varð um krabbameinið, og Sovétmenn létu
undan. Síðan berast þær fréttir að krabba-
meinið sé horfíð úr Tarkowsky.
Ég held að fólk sem kemst í gegnum
svona veikindi sé heilagt. Ég held að hann
hafi fengið krabbameinið til að ná syni
sínum úr Sovétríkjunum. Eftir að það tókst
hvarf sjúkleikinn. Hann var í endurhæfíngu
í Þýskalandi hjá antroposophistum og er
kominn aftur til Ítalíu, þar sem hann á nú
lögheimili. Ég held líka að hann sé ánægður
með að myndin skuli vera sýnd héma núna.
Hann vill stuðla að friði; myndin er um það
hveiju einstaklingurinn er tilbúinn til að
fróna fyrir friðinn. Einstaklingurinn á að
líta svo á að hann skipti máli í þessu sam-
bandi, en það er þung byrði að bera. Ég
veit ekki lengur út af hveiju ég er í þess-
ari mynd; af því að ég er leikkona; af því
að ég er íslendingur. Fýrst hélt ég að það
væri bara afþví að ég varsvona freknótt.
Fómin er sýnd þessa dagana á kvik-
myndahátíð í New York og kvikmyndagagn-
rýnandi The New York Times, Walter
Goodman, fer lofsamlegum orðum um hana
og segir hana „siáandi fallega". Hann segir
að Tarkowsky eigi tveimur gamalreyndum
sænskum kvikmyndamönnum mikið að
þakka, þeim Sven Nykvist og Erland Joseph-
son. Goodman segir myndina íjalla um
andleg skipbrot mannkyns á atómöld. At-
burðir myndarinnar eða draumar virðast
eiga sér stað eina langa nótt á afmæli Alex-
anders, sem Josephson leikur. Viðstaddir
eru eiginkona hans (Susan Fleetwood), tán-
ingsdóttir hennar (Filippa Franzén), tveir
vinir, læknir (Sven Wollter) og póstmaður
(Allan Edwall), að hluta til gáfumaður, yfir-
skilvitlegur, en að hluta vitleysingur og að
auki tvær þjónustustúlkur. Þessi heldur
drungalega samkunda er trufluð skyndilega
af öflugum stormi, þrumur dynja og dular-
full óp heyrast úr ijarska. Rödd í sjónvarpinu
talar um hörmungar af völdum kjamorku-
slyss eða sprengingar og Alexander, sem
tekur sekt mannkynsins á sínar herðar,
býðst.til að fóma öllu sem hann á, ef fjöl-
skylda hans megi bjargast.
„Ég hafði séð tvær myndir eftir Tark-
owsky áður en ég lék í Fórninni, “ segir
Guðrún. „Það voru myndimar Stalker og
Solaris. Fyrir þremur árum sat ég hér heima
með vini minum, Lárusi Ými Óskarssyni,
leikstjóra, og hann spurði mig með hveijum
ég vildi helst vinna ef ég mætti velja. Og
ég sagði Tarkowsky. Þegar Láms hafði
tækifæri til, laumaði hann Ijósmynd af mér
í myndabunka af skandinavískum leikurum
sem Tarkowsky ætlaði að Ifta yfir þegar
hann var að físka eftir leikumm i Fómina.
mSm w fi £*?!*&■ ■