Morgunblaðið - 09.10.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986
13
Gámasölur í Bretlandi:
67,50 krónur fyrir ýsuna
GÁMAFISKUR var seldur í
Bretlandi fyrir samtals 35,6
milljónir fyrstu þijá daga vik-
unnar. Meðalverð fyrir þorsk
og ýsu var nokkuð mismun-
andi eftir dögum. Hæst
meðalverð var á mánudag,
67,52 fyrir ýsu og þorsk
60,54.
Á mánudag voru alls seldar
221,8 lestir af gámafíski fyrir
samtals 13.555.400 krónur.
Meðalverð var 61,10.144,8 lest-
ir voru af þorski á 60,54 krónur
að meðaltali og 25,9 lestir af
ýsu á 67,52. A þriðjudag voru
seldar 327,7 lestir að verðmæti
17.849.600 krónur, meðalverð
54,46. 236,7 lestir voru af
þorski að meðaltali á 52,04
krónur og 40,5 lestir af ýsu á
64,72. Á miðvikudag voru seld-
ar 70,3 lestir á samtals
4.219.200 krónur. Meðalverð
var 60,01 króna. Af þessu voru
37,9 lestir af þorski að meðal-
tali á 57,87 krónur og 17,8
lestir af ýsu á 59,96.
Á miðvikudag seldi Þorri SU
63,6 lestir, mest þorsk og ýsu
í Grimsby. Heildarverð var
3.694.200 krónur, meðalverð
58,06.
Félag frímerkja-
safnara:
„Reykjavík 86“
- frímerkjasýn-
ing 9.-12. okt.
Dagnr frímerkisins I dag
FÉLAG frímerkjasafnara heldur
frímerkjasýninguna „Reykjavík
’86“ dagana 9.-12. október í húsa-
kynnum Landssambands
íslenskra frímerkjasafnara að
Síðumúla 17 í Reykjavík á 2. hæð
í vesturenda. Á sýningunni verð-
ur reynt að hafa sem mesta
fjölbreytni í söfnum. Verða m.a.
sýnd tegundasöfn, sem sýna
fugia, dýr, skip, bíla o.s.frv. Þá
verður lítill samkeppnisdeild og
þar sýnd flugsafn, spjaldbréfa-
safn og átthagasafn úr Hafnar-
firði. Loks verða sýnd póstkort
með myndum frá Reykjavík á
ýmsum timum.
Aðgangur að sýningunni er
ókeypis, en sýningargestir eiga þess
kost að kaupa póstkort með mynd
af ýmsum póststimplum frá
Reylgavík. Er upplagið tölusett og
takmarkað. Kortin gilda sem happ-
drættismiðar. Vinningurinn er
frímerkjasafn, sem sýnt verður í
ramma nr. 1 á sýningunni og heitir
„Reykjavík 200 ára“.
Sunnudaginn 12. október verður
skiptimarkaður í félagsheimili Fé-
Iags frímerkjasafnara í Síðumúla
17 og verður hann haldinn á milli
kl. 13.00 og 16.00. Allir eru vel-
komnir á markaðinn, jafnt félags-
bundnir sem ófélagsbundnir
frímerkj asafnarar.
Dagur frímerkisins 1986 er í dag
og verður af því tilefni stefnt að
því að koma upp á vegum félagsins
sýningum á frímerkjum í gluggum
verslana og pósthúsum. í dag verð-
ur sýningin opin frá kl. 18.00 til
22.00, 10. okt. kl. 17.00 tii 21.00,
11. okt. kl. 13.00 til 20.00 og 12.
okt., sem jafnframt er síðasti sýn-
ingardagur, er opið frá 13.00 til
19.00.
Fréttatilkynning
Allar frekari upplýsingar og
innritun í súna
10004/21655/11109
MÁLASKÓLI
RITARASKÓU
i rnir
ÁNANAUSTUM 15
Nýja áfangakerfið sem við
tókum upp um áramótin auð-
veidar nemendum að meta
ftamfarir við tungumáianámið.
Áfangarnir eru tjórir: bvriendur.
lærlingar, sveinar og meistarar.
Námskeiðin sem nú fara í hönd
eru í a) og c) fiokkum allra
áfanganna.
Ef þú veist lítið um raunveru
lega kunnátm þína í tungu-
málinu leysa stöðuprófin úr
þeim vanda. Strax í fyrsta
bjóðum við uppá stöðupróf
fýrir þá sem vilja.
Góð málakunnátta er íslend-
ingum alger nauðsyn — en hvem-
ig náum við bestum árangri? Fyrst er
að hugsa málið, síðan hringja til Mímis.
Múnir hefur um langt árabil sérhæft sig í
vönduðu tungumálanámi og kappkostað
að tryggja nemandanum bestu fáanlegu
kunnáttu á sem skemmstum túna.
Áratuga reynsla og ánægðir nem-
endur em besta auglýsingin.
Enska
Þýska
Franska
Spænska
Danska
ítalska
íslenska
fyrir útlendinga
Kennt er tvisvar í viku, tvær
klukkustundir í senn. Öll
námsgögn eru innifalin f nám-
skeiðsgjaldi og við bjóðum
uppá veitingar í friminútum.
Öllum d) námskeiðunum lýkur
með prófi í apríl og þá
útskrifúm við fýrstu lærlingana,
sveinana og meistarana!
tima
Manudaga -
fimmtudaga
Tímar:
18.30- 22.30
20.30- 22.30
Enska,
síðdegistímar
13-15
20.
október til
4.
desember
Vilm læra önnur mngumál en
þau sem hér em nefnd? Látm
það ekki aftra þér frá því að
grípa til símans - hringdu tii
okkar og berðu fram óskir
þínar. Við reynum að koma til
móts við alla.
10% afsláttur gildir fyrir hjón,
systkini, ötyrkja, ellilífeyrisþega
og félagsmenn Stjórnunar-
félagsins. Munið: starfs-
menntunarsjóðir rikisins og
Reykjavíkurhorgar taka þátt í
að greiða námskeiðsgjöld sinna
félagsmanna á námskeiðum
Mimis.
FRYSTIKISTUR
SPAÐU I VERÐIÐ
SPÁÐU í VERÐIÐ
SPÁÐU í VERÐIÐ
SPÁÐU í VERÐIÐ
200 litra. kr. 22.000
250 lítra kr. 24.400
300 lítra kr. 25.000
350 lítra kr. 26.080
410 lítra kr. 20.080
510 lítra kr. 33.000
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 91-84670
# Innrabyrði úr
hömruðu áli
# Lok með ljósi,
læsingu, jafn-
vægisgormum
og plastklætt
# Djúpfrystihólf
# Viðvörunarljós
# Kælistilling
# Körfur
# Botninn er
auðvitað frysti-
flötur ásamt
veggjum
iggHb—^
o