Morgunblaðið - 09.10.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐBÖ, FTMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986
H§
29
Ólafur Guðmundsson
milli Hlíðarenda og Bergþórshvols
eða annarra bæja en ætla mætti
af sögunni. Hér ræður flarlægðar-
skyn utansveitarmanns ferðinni.
Fyrir bragðið verður Njáls saga
e.k. utansveitarkronika Breiðfirð-
ingsins Sturlu Þórðarsonar,
þroskaðasti ávöxtur snilldar hans.
(Bókmenntaþættir bls. 285.)
Þetta hygg ég að allir geti fallist
á — að ijarlægðarskyni utansveitar-
manns er vart treystandi.
En hvemig skýrir Matthías tilfinn-
ingu Njáluhöfundar fyrir flarlægðinni
frá Staðarfelli út í Bjameyjar á
Breiðafirði, sem er ijarri lagi, svo
ekki sé meira sagt.
Þjóstólfur fóstri Hallgerðar rær
einn á sexæringi út í Bjameyjar frá
Staðarfelli, drepur Þorvald bónda
hennar og rær sömu leið til baka, allt
í einni striklotu. Leiðin út í Bjameyj-
ar er talin um 38 km og því hefur
Þjóstólfur róið í svo til einum áfanga
um 76 km. Slíkt afrek er ef til vill
hugsanlegt, þótt það sé með ólíkind-
um.
Þetta ranga mat Njáluhöfundar á
ijarlægðinni frá Staðarfelli út í Bjam-
eyjar er augljóslega ijarlægðarskyn
utansveitarmanns, sem væri skiljan-
leg villa ef höfundur væri t.d.
Austfírðingur. En það er fráleitt að
ímynda sér að Sturlu bónda í Fagu-
rey verði á slík mistök á heimaslóð-
um.
Þama er því um utansveitarkron-
iku að ræða, sem bendir eindregið
til þess að þarna hafí hvorki Sturia
né nokkur annar Breiðfirðingur átt
hlut að máli.
í upphafi vitnaði ég til orða Ein-
ars 01. Sveinssonar „Ein ömgg
mótbára útilokar mann, hve margt
svo sem með honum mælir."
Hér að framan tel ég mig hafa
bent á 3 mótbárur gegn því að Sturia
Þórðarson sé höfundur Njálu.
I. Tímans vegna er ákaflega hæpið
að Sturla komi til greina sem
höfundur, eins og bent hefiir
verið á.
H. Hin gloppótta staðþekking höf-
undar í Breiðafjarðardölum og
hið ranga fjarlægðarskyn á
Breiðafirði útilokar Sturlu Þórð-
arson sem höfund Njálu.
m. Það er samdóma álit nær allra
fræðimanna, sem fengist hafa
við Njálurannsóknir, að tengsl
Njáluhöfundar við Austfirði hafi
verið n\jög náin. Byggja þeir á
rannsóknum, sem er of langt
mál að relga hér. En þær hafa
m.a. leitt í ljós, að sterkar líkur
em fyrir því að höfundur hafi
verið af ætt Svínfellinga eða
tengdur henni á einhvem hátt.
Þá em ættartölur í Njálu ekki
þær sömu og í Landnámu, upp-
mni þeirra mun vera frá
Suðausturlandi, að ætlan Guð-
brandar Vigfyssonar. Um þær
segir Einar Ól. Sveinsson: „ ...
virðist vafalaust, að ættartölur
Njálu styðjast ekki við hinar
vestlensku Landnámsbækur 13.
aldar."
Nú er Sturla höfundur Land-
námu (Sturlubókar), og er þá
örðugt að finna skynsamlega
skýringu á því, ef hann er höf-
undur Njálu, hvers vegna hann
notar ættartölur frá Suðaustur-
landi.
Það síðastnefnda, ásamt áður-
nefridum mótbámm, hygg ég taki
af öll tvímæli um Sturlu Þórðarson
sem höfund Njálu.
Höfundur er útibússtjóri Búnadar-
bankans í Stykkishólmi, áðursveit-
arstjóri þar en nú búsetturá
SeHjamamesi.
Hjartanlegar þakkir sendi ég öllum þeim sem
glöddu mig á 85 ára afmœli mínu 29. septém-
ber og börnum mínum og fjölskyldum þeirra
meÖ veglegu hófi i Hreðavatnsskála og gjöfum
frá þeim. Guð blessi ykkur öll.
Jóhannes G. Jóhannesson,
Borgarnesi.
Ný tískuverslun — Nýtt merki
Gallabuxur í miklu úrvalL Gallajakkar — skyrtur —
pils — kjólar. Kakibuxur — flauelsbuxur. Peysur í
miklu úrvali — skyrtur í miklu úrvali. Bémuilarjakkar
(mikíð litaúrval). SASCH-hátískuvara. SASCH fyxir
dðmur og herra. SASCH fyrir ungt fólk á ðllum aldri.
í SASCH færðu föt við þitt hæfi
Kynningarverð út næstu viku. 10% afsláttur af öllum
vörum
SASCH,
Laugavegi 69, sími 24360