Morgunblaðið - 09.10.1986, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.10.1986, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1986 LEIÐTOGAFUNDURINN í REYKJAVÍK Fj ölmiðlamenn á þriðja þúsund Á ÞRIÐJA þúsund blaðamannasklrteini hafa veríð gefin út fyrír starfsmenn innlendra og eríendra fjölmiðla, sem fylgjast með fundi Reagans og Gorbachevs í Reykjavík. Morgunblaðið fékk þær upplýs- ingar í Alþjóða blaðamiðstöðinni í Hagaskóla síðdegis í gær, að ná- kvæmar upplýsingar um fjölda þessara manna lægju ekki fyrir. Þeir væru á milli tvö og þijú þús- und og inn í þeirri tölu væru frétta- menn, ljósmyndarar og kvikmynda- og hljóðtökumenn. Miklar annir voru við útgáfu skírteinanna í Hagaskóla í gær. Vaka Hjaltalín hjá Ferðaskrif- stofu ríkisins sagði í gær, að ferðaskrifstofan hefði þegar bókað gistingu fyrir um 750 erlenda starfsmenn Qölmiðla. Ekki væri vit- að, hve margir hefðu útvegað sér húsnæði með öðrum hætti. Nokkr- ir, sem tilkynnt hefðu komu sína, hefðu helst úr lestinni, en margir væru enn að bætast við. Götur lokaðar í ná- grenni fundar- og dval- arstaða leiðtoganna Bifeiðastöður bannaðar víða í miðbænum SVÆÐINU umhverfis banda- ríska sendiráðið við Laufásveg verður lokað allri umferð frá kl. 15.00 í dag þar sem von er á forseta Bandaríkjanna, Ron- ald Reagan, til landsins i kvöld, en hann mun búa I sendiráðinu. Laufásvegur verður lokaður frá Baldursgötu að Skálholtsstíg. Skálholtsstígur verður lokaður upp fyrir Grundarstíg og Þing- holtsstræti verður lokað frá Skálholtsstíg að Hellusundi að þvi meðtöldu. Svæðið umhverfís fundarstað leiðtoganna, Höfða, verður lokað af, a.m.k. á meðan fundir standa yfír, bæði laugardag og sunnudag. Borgartúnið verður lokað frá Skúlatúni að Nóatúni og hliðar- götur þar af. Sætúni verður einnig lokað alveg af. Búast má við því að í mið- borginni verði víða bannaðar bifreiðastöður, þar sem leiðtog- amir fara um. T.d. verða bifreiða- stöður alfarið bannaðar á Leigubíl- ar rann- sakaðir Sendiráð Banda- ríkjanna leigir 225 bíla HLUTI Ieigubílaflotans sem sendiráð Bandaríkjanna hefur tekið á leigu vegna komu Reagan til landsins er undir sérstöku eftirliti öryggisvarða. Gerð er sprengileit í bilunum og þeir siðan geymdir undir eftirliti ör- yggisvarða frá því í gærkvöldi og fram yfir helgi. Sendiráð Bandaríkjanna hefur 225 leigubfla til umráða frá öllum stærstu leigubílastöðvunum. Auk þess hefur sendiráðið Sovétríkjanna nú þegar tekið 30 bfla á leigu hjá BSR og fjölgar þeim er líður að helginni. Þá er fyöldi bfla í fastri þjónustu erlendra blaða- og frétta- manna, meðal annars hjá banda- rísku sjónvarpsstöðvunum. Framkvæmdastjórar leigubfla- stöðvanna segja að þrátt fyrir þessi miklu umsvif vegna leiðtogafundar- ins hefði gengið vel að útvega fólki leigubfla, enda væru vaktaskipti á bflunum. Hjá Hreyfli fengust þær upplýsingar að enn hefði ekki þurft að neita neinum um leigubfl, en hjá BSR fengur þær upplýsingar að einhveijir erfiðleikar væru að anna , eftirspuminni yfír háannatímann á daginn. Fríkirkjuvegi frá Skálholtsstíg að Lækjargötu, og í Lækjargötu að Skúlagötu. Að sögn Óskars Ólasonar yfír- lögregluþjóns verður lögreglan með geysimikið eftirlit um helg- ina. „Lögregluþjónar verða á öllum þeim gatnamótum, sem bflalestimar fara um og verður engin umferð leyfð á móti bflalest- um leiðtoganna. Verið er að tala um allt frá 25 upp í 40 bfla í hvorri bflalest, a.m.k. þeim er koma frá Keflavíkurflugvelli. Síðan má búast við að loka þurfí umferð ef leiðtogamir fara t.d. í heimsókn á Bessastaði eins og ráðgert er,“ sagði Óskar. Reykjavíkurhöfn: ; 'K'V-x sgg * > ^| Lögreglumenn standa vörð um Ægisgarð og hleypa engum að sovésku skipunum nema þeir eigi þangað brýn erindi. „Rússnesk landhelgi“ í Reykiavíkurhöfn 70 símalínur lagðar í skipin Oviðkomandi er nú meinaður aðgangur að Ægisgarði í Reykjavik- urhöfn. Sovéska skemmtiferðaskipið Baltika og stórt, soveskt skemmtiferðaskip, Georg Ots, lögðust þar að bryggju fyrri part- inn í gær og íslenska lögreglan hleypir engum óviðkomandi út i skipin. „Þetta er rússnesk landhelgi," beðið um að hafa frið hér á sagði lögregluþjónn, sem stóð bryggjunni og við sjáum til að vörð við skipin. „Sovétmenn hafa þeir fái hann.“ Sovéskir sendiráðsstarfsmenn og íslenskir starfsmenn Pósts og síma voru hinir einu sem komust fram hjá lögregluverðinum í gær. Símamennimir sögðust vera að leggja 70 símalínur um borð í skipin. Bannsvæði - tvö varð- skip við eftirlitsstörf SÉRSTAKAR reglur verða í gildi um siglingar á hafnar- svæði Reykjavíkur um helgina vegna leiðtogafundaríns og verða tvö varðskip auk nokk- urra báta við gæslustörf. Að sögn Gunnars B. Guðmunds- sonar hafnarstjóra í Reykjavík verður aukin öryggisgæsla hjá skipaþjónustuvakt hafnarinnar; betur verður fylgst með umferð um höfnina og skip látin tilkynna sig örar en venja er. Um helgina verður öll umferð skipa bönnuð á milli Engeyjar og Laugamess svo og umferð skemmtibáta um gömlu höfnina og inn að Laugamesi. Sagði Gunnar að skipaumferð yrði Keflavíkurvegrir: Lokað á meðan leið- togarnir fara um LÖGREGLAN mun loka Kefla- vikurvegi síðdegis í dag á meðan bílalest Bandaríkjafor- seta fer frá flugvellinum að dvalarstað hans i Reykjavík. Sama verður uppi á teningnum síðdegis á morgun þegar von er á leiðtoga Sovétríkjanna. Flugstöðinni á Keflavíkurflug- velli verður lokað nokkru áður en von er á leiðtogunum, að sögn Þorgeirs Þorsteinssonar lögreglu- stjóra á Keflavíkurflugvelli, en það á ekki að koma að sök fyrir flugfarþega þar sem þá verður væntanlega búið að afgreiða allt almennt flug. Að sögn Óskars Ólasonar yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í Reykjavík er það sameiginleg ósk beggja leiðtog- anna að ekki verði leyfð umferð á móti bflalestum þeirra þar sem ekki eru tvískiptar akgreinar með umferðareyjum á milli. Verður því öllum leiðum inn á Keflavíkurveg lokað á meðan bflalestimar fara um alveg inn í Engidal í Hafnar- fírði og á sumum götum alveg að áfangastöðum í Reykjavík. Jón Eysteinsson bæjarfógeti í Keflavík sagði að allt tiltækt lög- reglulið hjá embætti hans yrði við þessi störf. Óskar sagði að jafn- framt yrðu allir kyrrstæðir bílar á leiðinni fjarlægðir af öryggis- astæðum. Von er á Ronald Reagan til landsins um klukkan 19 í kvöld og má fólk búast við truflun á umferð á leiðinni frá þeim tíma. í bflaíest forsetans verða 30—40 bílar. Bjóst Óskar við að ekið yrði á löglegum hraða, ekki væri ástæða til annars. Mikhail Gorbachev kemur síðan síðdegis á morgun og má búast við svipuð- um truflunum á almennri umferð þegar bflalest hans fer um, og einnig á laugardag þegar stór- veldaleiðtogamir heimsækja forseta íslands á Bessastöðum. takmörkuð eins og mögulegt væri, en hún væri sem betur fer ekki mikil um helgar. Þó má geta þess að Akraborgin gengur eins og venjulega. Þröstur Sigtryggsson skipherra í stjómstöð Landhelgisgæslunnar sagði að varðskipið Óðinn yrði fyrir framan Höfða frá föstudegi og fram yfír helgi og hefði eftirlit með næsta nágrenni og strand- lengjunni, og sæi um að bann við umferð væri uirt. Landhelgis- gæslumenn sinna starfí sínu um borð í skipinu, sem mun liggja við ankeri, og úr hraðskreiðum gúm- bátum sem verða til taks. Varðskipið Týr verður á Sund- unum um helgina og er hlutverk skipveija að fylgjast með umferð skipa til og frá Reykjavík. Frá honum verður stjómað hraðbátum sem verða við Sovésku skipin sem liggja við Ægisgarð. Er hlutverk þeirra að halda skipum og bátum í sem mestri fjarlægð frá rússn- esku skipunum. Sovésku skemmtiferðaskipin eru bundin sitt hvoru megin við Ægisgarð, en við Ægisgarð hafa hvalbátamir legið á vetrum og þar hafa oft verið geymd skip sem lagt hefur verið til lengri tíma. Af þeim sökum hefur höfnin innan við Ægisgarð stundum verið nefnd „þanghafið".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.