Morgunblaðið - 17.10.1986, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1986
Tilkynnt var i gær að Wole Soyinka frá Nígeriu hefði hlotið
bókmenntaverðlaun Nóbels i ár. Hann ritar verk sin á ensku
og þykir framúskarandi leikritahöfundur.
Wole Soyinka frá Nígeríu bókmennta-
verðlaunahafi Nóbels:
Hlýtur verðlaunm
fyrstur Afríkubúa
Stokkhólmi, AP.
WOLE SOYINKA, rithöfundur frá Nígeríu, hlaut í gær bók-
menntaverðlaun Nóbels. Soyinka er fyrsti Afríkubúinn sem
hlýtur þessi eftirsóttu verðlaun. Hann ritar verk sín á ensku
og hefur einkum getið sér orð fyrir leikritagerð.
I úrskurði Sænsku Akademí-
unnar sagði að ljóðrænan í leikrit-
um Woles Soyinka væri einstök
og fáir, ef nokkrir, þeirra höfunda
sem rita á enskri tungu hefðu náð
sambærilegum tökum á þessu
formi skáldskapar. í úrskurðinum
var leikriti Soyinkas „Dauðinn og
húskarl konungs" (Death and The
Kings Horseman) lýst sem meist-
araverki.í framhjáhlaupi má geta
þess að leikrit þetta verður fært
upp í Lincoln-listamiðstöðinni í
New York á næsta ári.
Wole Soyinka er stjómarform-
aður Alþjóða leikhússtofnunarinn-
ar sem er innan vébanda
Menningar- og fræðslustofnunar
Sameinuðu þjóðanna. Hann var
staddur á fundi stofnunarinnar í
París þegar honum barst fréttin
um að hann hefði hlotið verðlaun-
in þetta árið. „Þetta kemur mér
algjörlega á óvart" sagði Soyinka.
„Þetta er viðurkenning á menn-
ingu og siðvenjum okkar sem
byggjum Afríku. Önnur menning-
ar-samfélög, þar á meðal hið
evrópska, hafa oftlega virt menn-
ingu og sköpunargáfu Afríkubúa
að vettugi" sagði hann ennfremur.
Wole Soyinka er 52 ára gamall
og hlaut menntun sína á Eng-
landi. í skrifum sínum hefur hann
jafnan verið óhræddur við að
gagnrýna stjómvöld hinna ýmsu
Afríkurfkja. Aðspurður kvaðst
hann vona að afskipti hans af
stjómmálum hefðu ekki ráðið úr-
skurði Akademíunnar. „Fjölmarg-
ir afrískir rithöfundar hafa ýmist
verið myrtir eða fangelsaðir vegna
þess að þeir hafa staðið upp í
hárinu á stjómvöldum," sagði
hann. „Ég fæ ekki séð hvemig
Nóbelsverðlaunin ein og sér geta
breytt hlutskipti þeirra."
lákssonar hyggst á næstunni gefa
út rit um stjómarskrármál, þar sem
unnið verður úr hugmyndum Buchan-
ans og Friedmans miðað við íslenskar
aðstæður, en Buchanan hefur frá
upphafi verið einn af útlendum ráð-
gjöfum Stofnunarinnar.
Mikill íslandsvinur
Hugur Buchanans hefur á síðari
árum hneigst æ meir að stjómmálum
eða öllu heldur stjómarskrármálum,
en í hópi hagfræðinga er hann hins
vegar kunnari fyrir ýmis hátæknileg
rit, einkum á sviði ríkisfjármála.
Fjögur helstu hagfræðirit hans eru
líklega: The Calculus of Consent
(með Gordon Tullock) frá 1962, Dem-
and and Supply of Public Goods
frá 1968, Cost and Choice frá sama
ári (sem hann segir mér, að hann
telji besta rit sitt) og The Power to
Tax (með Geoffrey Brennan) frá
1984. Hann hefur verið prófessor í
Ríkisháskólanum í Flórída, Virginíu-
háskóla, Kalifomíu-háskóla i Los
Angeles og Ríkisháskólanum í Virg-
iníu, en er nú prófessor í George
Mason-háskóla í Virginíu og yfírmað-
ur sérstakrar rannsóknastofnunar
þar.
Buchanan hefur verið forseti Mont
Pélerin-samtakanna frá 1984, en þau
eru alþjóðasamtök frjálslyndra fræði-
manna, þar á meðal nóbelsverðlauna-
hafanna Miltons Friedmans,
Friedrichs Hayeks og Georges Sti-
glers. Þess má geta, að Friðrik
Friðriksson, fjármálastjóri IBM á ís-
landi og fyrrverandi formaður Félags
ftjálshyggjumanna, lauk á sínum
tíma hagfræðiprófi undir umsjón
Buchanans í Ríkisháskólanum í Virg-
iníu.
Því er að lokum við að bæta, að
Buchanan er mikill fslandsvinur. Þeg-
ar hann kom hingað árið 1982 til
þess að halda fyrirlestur í Háskóla
Islands, lýsti hann sérstakri hrifningu
sinni á því, sem ísland hefur upp á
að bjóða: lostætum sjávarréttum og
fögrum konum. Og ég átti þess kost
síðastliðið sumar að ræða við hann
um rannsóknir mínar á stjómskipan
og hagkerfí íslenska þjóðveldisins, og
hafði hann á þeim lifandi áhuga.
Reyndar má segja, að íslenskir fom-
menn hafí best skilið þá hugmynd
Buchanans, að þar sé fríðvænlegast,
sem menn ná viðhlítandi samkomu-
lagi um hvað sé mitt og hvað þitt.
Séreignarrétturinn sé afkastamesti
sáttasemjari mannanna. Eins og þeir
orðuðu þessa hugmynd: Garður er
granna sættir.
Höfundur er lektor í Háakóla fs-
lands og framkvæmdastjóri
Stofnunar Jóns Þorlákssonar,
stundaði sl. sumar rannsóknir við
George Mason-háskóla í samvinnu
við James M. Buchanan.
Frakkland:
Undirbúnmgur næstu
forsetakosninga hafinn
París, AP. ' '
VALERY Giscard D’Estamg,
fyrrum Frakklandsforseti, átti
i gær fund með Raymond
Barre, sem gegndi um fjögurra
ára skeið embætti forsætisráð-
herra í valdatíð D’Estaings.
Fundur þessi hefur vakið mikla
athygli í Frakkland því þetta
er í fyrsta skipti í fimm ár sem
þessir menn eiga viðræður eins-
lega.
Talið er víst að þeir Barre og
D’Estaing hafí rætt um forseta-
kosninganar f Frakklandi árið
1988. Vitað er að báða fýsir þá
að gegna því virðulega embætti.
Hið sama gildir um þá Jaques
Chirac, forsætisráðherra, og
Francois Leotard, ráðherra. I
frönskum Qölmiðlum eru uppi get-
gátur um að þeir Raymond Barre
og Valery Giscard D’Estaing hygg-
ist mynda bandalag gegn þeim
Chirac og Leotard.
Fran?ois Mitterrand, forseti
Frakklands, hefur enn ekki gefíð
afdáttarlausa yfírlýsingu um það
hvort hann hyggst bjóða sig fram
að nýju. Mitterrand, sem er sósíal-
isti, er nú sjötugur og talið er
líklegt að flokkur hans bjóði aðeins
fram einn frambjóðanda í forseta-
kosningunum einkum þar sem
kommúnistar eiga nú mjög undir
högg að sækja. Þar með gæfist
sósíalistum kostur á að sigra strax
í forkosningunum en sá frambjóð-
andi sigrar sem hlýtur meira en
helming greiddra atkvæða.
Valery Giscard D’Estaing bar
til baka sögusagnir um að hann
Tel Aviv, AP.
ÍSRAELSKUR þingmaður, sem
sneri í gær til heimalands síns
frá Reykjavík, komst svo að orði,
að stjórn ísraels hefði látið ginn-
ast af blekkingum Sovétmanna
með því að trúa því, að þeir hygð-
ust koma á eðlilegum samskipt-
um við ísrael.
„Síðastliðið eitt og hálft ár hefur
stjóm ísraels trúað því, að Sovétrík-
in hefðu áhuga á því, að taka upp
eðlileg samskipti við ísrael. Sú
reynsla, sem fékkst af Reykja-
víkurfundinum, sýna að þetta var
aðeins blekking," sagði þingmaður-
inn, Uzi Landau, sem tilheyrir
Likudbandalaginu.
Landau benti á það sem hann
nefndi „verulegan mun á framkomu
og Raymond Barre hefðu rætt
hugsanlegt kosningabandalag.
Sagði hann viðræður þeirra hafa
snúist um efnahagsmál og stjóm-
málaástandið í Frakklandi.
og yfírlýsingum sovézkra embættis-
manna opinberlega og þeim rudda-
legu aðferðum, sem þeir beita
gagnvart gyðingum undir öðrum
kringumstæðum."
í för með Landau var Josef
Mendelevitch, sem dvaldist 11 ár í
sovézkum fangelsum og Henrietta
Orlovsky, mágkona Vladimirs Slep-
ak, eins elzta andófsmanns í
Sovétríkjunum, en honum hefur
verið meinað að flytjast frá Sov-
étrílq'unum síðan 1970.
Með hópnum var ennfremur Mik-
hail Shirmann, sovezkur andófs-
maður, sem er haldinn hvítblæði
og á líf sitt undir því að systur
hans, Inessu Flerov, verði leyíft að
fara frá Sovétríkjunum, svo að hann
geti fengið blóðmerg frá henni.
Hafa engan áhuga á
eðlilegum samskiptum
- segir ísraelski þingmaðurinn, Uzi
Landau, um Rússa
Mike McGrady,
N.Y. Newsday.
„Þriller, sem hittir í mark."
Joel Siegel, WABC/TV.
Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11.10.
Bönnud innan 16 ára.
Hækkað verð.
Med dauðann á hælunum
(8 Mllllon Ways to Dle)
Matt Scudder (Jeff Bridges) er fyrrum
fíkniefnalögregla, sem á erfitt með að
segja skilið við baráttuna gegn glæp-
um og misrétti. Hann reynir að hjálpa
ungri og fallegri vændiskonu, en áður
en það tekst, finnst hún myrt. Með
aðstoð annarrar gleðikonu hefst
lífshættuleg leit að kaldrifjuðum morð-
ingja.
Hörkuspennandi hasarmynd með
stórleikurunum Jeff Bridges, Rosanna
Arquette, Alexandra Paul og Andy
Garcia. Leikstjóri er Hal Ashby (Com-
ing Home, The Last Detail, Shampoo,
Being There, The Landlord). Kvik-
myndir Ashbys hafa hlotið 24 útnefn-
ingar til Óskarsverðlauna.
Myndin er gerð eftir samnefndri sögu
Lawrence Block, en höfundar kvik-
myndahandrits eru Oliver Stone og
David Lee Henry. Stone hefur m.a.
skrifað handritin að „Midnight Ex-
press“, „Scarface" og „Year of The
Dragon". Henry hefur skrifað margar
metsölubækur og má þar m.a. nefna
„Nails", „King of The White Lady“ og
„The Evil That Men Do“.
Nokkur ummæli:
„Myndin er rafmögnuð af spennu,
óútreiknanleg og hrífandi."
Dennis Cunningham
(WCBS/TV)
„Rosanna Arquette kemur á óvart
með öguðum leik. Sjáið þessa mynd
— treystiö okkur.“
Jay Maeder,
New York Daily News.
„Andy Garcia skyggir á alla aðra leik-
endur með frábærri frammistöðu í
hlutverki kúbansks kókaínsala."
PHOOUŒHS SAILS ORGANtfATiON ma
JEFF DHIOGtS HOSANNA ADUUt TTi
AlfXANORA PAIA ANOV GARClA **• x
>CMAntfeS MOl.VT.JiiU.
•&!£&£ STCPHKN M. 8UR0M. >.%< “v:«í‘v
■ OUVSR SIONF OAVIO tfef. Hf.NHY ^ STCVF. RO'
?•> aSTEVE ROTM m**'*x»
'•« MiíUON VYAYS TO 0!f.
JAMC-.S NC-WTON HOWARO
STUART PAHf't
I.AWRC NCf: SUXK
HAL ASmOY