Morgunblaðið - 17.10.1986, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1986
3. deild:
Selfyssingar
eru nú efstir
SELFYSSINGAR eru nú efstir í
3. deildinni í handknattleik en
þeir unnu ÍH 24:16 f fyrrakvöld á
Selfossi. ÍS hefur hlotið 4 stig úr
fyrstu þremur leikjum sínum en
um síðustu helgi unnu þeir
Njarðvfkinga nokkuð óvœnt f
Seljaskólanum með 25 mörkum
gegn 23.
Hvergðrðingar, með Stefán
Halldórsson í broddi fylkingar,
unnu ÍH, en Janus Guðlaugsson
þjálfar það lið, með 21 marki gegn
16 í Hafnarfirðinum á laugardag-
inn. Janus hefur lítið sem ekkert
getað leikið með liðinu enn sem
komið er vegna meiðsla en Stefán
er ífullu fjöri með Hvergerðingum.
Einn leikur var að Laugum í 3.
deildinni en þar unnu Völsungar lið
Ögra meö 37 mörkum gegn 14.
Stórsigur það!
Staðan í deildinni er nú þessi:
Selfoss 2 2 0 0 48:30 4
IS 3 2 0 1
UMFN 2 10 1
Völsungur 3 10 2
Hveragoröl 110 0
UMlB 0 0 0 0
IH 2 0 0 2
ögrl 10 0 1
Athygli vekur að Stúdentar, sem
eru í 2. sæti, eru með óhagstæða
markatölu, 62:69, eða 7 mörk í
mínus og er það ekki algengt með-
al efstu liða.
• Siggeir Magnússon og fólagar hans hjá Vfkingi munu leika fyrri leikinn gegn St. Otmar f Laugardalshöllinni
sunnudaginn 16. nóvember.
Evrópukeppnin íhandknattleik:
• Martina Navratilova hefur unnið 1000 leiki á ferli sfnum sem at-
vinnumaður f tennis og hefur aöeins ein tenniskona unnið oftar,
Chris Evert Lloyd.
Víkingar leika
fyrri leikinn heima
- Dinos Slovan, mótherjar Stjörnunnar,
virðast vera mjög sterkt lið
VÍKINGAR hafa samið við svissn-
eska liðið St. Otmar um að leika
fyrri leik félaganna í Evrópukeppn-
inni í handknattleik hér heima en
upphaflega átti leikurinn að vera í
Sviss.
Víkingar leika því hér í Laugar-
dalshöllinni sunnudaginn 16.
nóvember og úti í Sviss viku síðar,
sunnudaginn 23. nóvember.
Ástæðan er sú að svissneska liðið
getur ekki notað höllina sem þeir
leika í fyrri helgina því þá mun
vera einhver sýning þar og þeir
fóru því fram á við Víkinga að víxla
leikdögum og var það samþykkt.
Fyrir íslenska handknattleiks-
unnendur er þetta ekki verra því
þá verða tveir stórleikir með
skömmu millibili hér á landi.
Víkingar og St. Otmar sunnudag-
inn 16. nóvember og síðan Stjarn-
Navratilova hefur
unnið 1000 sigra
- Hún er tekjuhæsti tennisleikari fyrr og síðar
MARTINA Navratiiova varö á
miðvikudaginn önnur tenniskon-
an f heiminum til þess að vinna
1000 sigra á tennisvellinum.
Þessum merka áfanga náði hún
á móti f Vestur-Þýskalandi og það
tók hana aðeins 51 mfnútu að
sigra hina 18 ára gömlu Nathalie
Tauziat frá Frakklandi á Porsche
tennismótinu. Chris Evert Lloyd
hafði áður náð þessum áfanga.
„Ég hef talið sigra mína sjálf og
samkvæmt því var þetta sigur
númer 997 en tölvan segir víst
eitthvað annað þannig að ég verð
bara að trúa henni. Þessi sigur var
ekkert merkilegri en aðrir sem ég
hef unnið," sagði hún brosandi
eftir sigurinn á miðvikudaginn.
Navratilova vann sinn fyrsta sig-
ur sem atvinnumaður í tennis árið
1973 og en alls hefur þessi drottn-
ing tennisíþróttarinnar unnið 15
stórmót á sínum ferli. Sjö sinnum
hefur hún unnið Wimbledon-
keppnina, þrívegis opna banda-
ríska mótið og það ástralska en
aðeins tvívegis það franska. Hún
hefur á ferlinum fengið yfir 11 millj-
ónir dollara fyrir sigra í þessum
mótum og er það meira en nokkur
annar tennisleikari, karl eða kona,
hefur fengið áður.
„Ég vildi mjög gjarnan vinna hin
fjögur stærstu sama árið áður en
ég hætti þessu,“ sagði Navratilova
og bætti því síðan við að það
væri mun erfiðara fyrir hana nú
en oft áður.
an og Dinos Slovan frá Jubloana
hér helgina á eftir, á meðan Víking-
ar leika úti. Ekki er enn komið á
hreint hvaða dag Stjarnan leikur
hér heima því til stóð að leika laug-
ardaginn 22. nóvember en þá er
karlakórahátíð í Höllinni og íþrótt-
um úthýst á meðan. Verið er að
reyna að fá Júgóslava til að leika
á föstudagskvöldið en ekki er enn
komið samþykki frá þeim.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem forráðamenn Stjörnunnar
hafa fengiö þá er væntanlegur
hingað 150 manna hópur með lið-
inu og þar á meðal viðskipta- og
verslunarnefnd þannig að það
verður örugglega fjör í Höllinni, ef
leikið veröur þar.
Víkingar hafa rætt 'við knatt-
spyrnumanninn Ómar Torfason í
Sviss og ætlar hann að afla upplýs-
inga um lið St. Otmar fyrir leik
liðanna þannig að Víkingar viti eitt-
hvað um liðið þegar leikurinn hefst.
Liðiö hefur verið stórveldi í hand-
knattleiknum í Sviss undanfarin ár
en er nú í fjórða sæti deiidarinnar.
Þeir eru aö byggja upp ungt lið,
svipað og Víkingar, og má því eiga
von á skemmtilegum leikjum þeirra
á milli.
Lítið er vitað um mótherja
Stjörnunnar annað en þeir eru í
öðru sæti í deildinni þar og það
segir í sjálfu sér sína sögu. Liðið
er aðeins einu stigi á eftir Metalo-
plastiga en það er eitt sterkasta
handknattleiksliðið í heiminum og
hefur verið um nokkurt skeið.