Morgunblaðið - 17.10.1986, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 17.10.1986, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1986 41 16—25 ára. Þar eru þó engin skörp skil á milli. Ungir misnotendur þurfa aðra meðferð Meðferð ungra misnotenda vímu- efna gerir aðrar og á margan hátt meiri kröfur en t.d. meðferð eidri misnotenda, s.s. miðaldra aikóhólista. Hún þarf t.d. að vera í stakk búin til þess að bæta úr því sem áfátt er í uppeldi einstaklingsins, skólagöngu hans, þekkingu og verkmenntun. Hún þarf að veita honum tækifæri og aðstöðu til þess að öðlast innsæi og þroska þá skapgerðarþætti og persónuleikadrætti, sem vanþroska eru. Meðferð, sem uppfyllir allt þetta, er tæplega á færi einnar deildar eða stofnunar. Þar þarf að koma til sam- eiginlegt átak fleiri aðila, bæði innan geðdeildanna og skólakerfisins. Með- ferðin þarf hins vegar að vera undir leiðsögn og stjóm þeirra sérfræðinga, sem best þekkja til á sviði þeirra vandamála, sem við er að etja. Þegar um er að ræða unga misnot- endur vímuefna á táningsaldri fer ekki á milli mála að meðferð þeirra er best komin á vegum unglingageð- deildar þar sem fyrir hendi er þekking og reynsla af því að fást við þau geðrænu vandamál, sem eru undan- fari og orsök vímuefnaneyslunnar. Þar er jafnframt fyrir hendi sam- vinna við uppeldis- og menntastofn- anir, sem nýta þarf í meðferðinni. Þar er séð fyrir þörfum táningsins til þess að fá útrás umframorku í félagslífi og skemmtun, langt fram yflr það sem yfirleitt gerist á með- ferðardeildum fyrir eldri misnotendur vímuefna. Fjöldi þeirra táninga, sem misnota vímueftii, er tiltölulega lítill og því meiri líkur til þess að ungiingageð- deild með takmarkað rými og aðstöðu geti annað þeim. Þarflr ungra misnotenda í aldurs- hópnum 16—25 ára fyrir meðferð eru að sjálfsögðu að mörgu leyti svipað- ar, enda margir þeirra mjög staðnaðir hvað áhrærir þroska og gelgjulegir. Þeir eru þó yfirleitt líkamlega þrosk- aðri, lífsrejmdari, komnir af skóla- skyldualdri og fullveðja. Þótt meðferð þeirra fari fram á meðferðardeildum fyrir eldri misnot- endur vímuefna er ekki vafi á því, að gott er að geta farið í smiðju til unglingageðlækna til þess að leita ráða um það, sem er nær þeirra þekk- ingar- og reynslusviði. Samvinna unglingageð- deildar og deildar fyrir vimuefnasjúklinga Samvinna þarf að vera góð milli deildar fyrir vímueftiasjúklinga og unglingageðdeildar um meðferð hinna ungu misnotenda. Hún þarf að vera skýrt ákveðin, en sveigjanleg og taka fyrst og fremst mið af þörf- um og hag sjúklinganna. Hún á að vera undir stjóm og á ábyrgð lækna þeirra deilda, þar sem sjúklingurinn er inniliggjandi hveiju sinni, nema annað sé sérstaklega ákveðið. Ráð- gjöf og samráð sérfræðingaliðs deildanna innbyrðis þurfa að vera greið. Til þess að auðvelda samskipti og efla miðlun fræðslu og upplýsinga milli deilda þurfa að komast á fastir sameiginlegir fundir og er það hæg- ast þegar deildimar em hluti af sama sjúkrahúsi. Aðstöðu þá, sem bamageðdeild hefur nú á göngudeild fyrir vímu- eftiasjúklinga á geðdeild Landspítal- ans, ætti að nýta á vegum unglingageðdeildar fyrir táninga sem misnota vímueftii og aðstandendur þeirra. Eg lít í stuttu máli þannig á sam- starf unglingageðdeildar og vímu- efnaskorar geðdeildar Landspítalans, um meðferð ungra misnotenda vímu- efha: Unglingageðdeild á að leggja til sérfræðiþekkingu við rannsókn, greiningu og meðferð geðtruflana, sem sérstakar em fyrir táninga. Vímuefnaskorin leggur til sérþekk- ingu á þeim vandamálum er tengjast beint vímuefnaneyslunni og afleið- ingum hennar. Þannig fær hinn ungi misnotandi besta meðferð, hvort heldur hann er innlagður á unglinga- geðdeild eða meðferðardeildir vímu- eftiaskorar, eða hann er rannsakaður og meðhöndlaður á göngudeild. Fjár er vant til þess að ljúka nauð- synlegum framkvæmdum við geð- deild fyrir unglinga. K-dagurinn er næstkomandi laug- ardag, 18. október. Þá munu Kiwanismenn bjóða þér, lesandi góð- ur, lykilinn að framtíð hóps ung- menna undir kjörorðinu „Gleymið ekki geðqukum". Ég hvet þig og aðra landsmenn til þess að bregðast vel við og leggja ykkar af mörkum til að hjálpa þeim að ljúka upp dyrum betri framtíðar fyrir þetta unga fólk. deilda við Geðdeild Landspítalans. Gunnlaugur Stefánsson Hjálparstarfið stendur og-fellurmeð afstöðu þjóðarinnar Hjálparstoftiun kirkjunnar er ólík systurstofnunum sínum á Norður- löndum að því leyti að hún er algjör- lega háð fijálsum framlögum þjóðarinnar í hjálparstarfinu. Systur- stofnanimar njóta öryggis í föstum ríkisframlögum er nema jafnvel yfir 50% af veltu, á sama tíma og íslenskt ríkisframlag til hjálparstofnunarinn- ar er óverulegt og tilviljanakennt. Sl. tvö ár hefur nafii hjálparstofnun- arinnar ekki verið að finna í flárlög- um Alþingis og á yfirstandandi ári hefur stofnunin ekki fengið eina kiónu frá ríkisvaldinu til hjálpar- starfsins. Af þessu má ljóst vera að hjálparstofiiunin stendur undir stöð- ugu eftirliti almenningsálitsins, enda er stofnunin ekkert annað en farveg- ur fijálsra framlaga til hjálparstarfs við þjáða og fátæka. Æsifréttaskrif breyta ekki þeirri staðreynd að saklaust fólk líður í fátækt og mikilli neyð víða um heim. íslendingar hafa fram að þessu kom- ið árangursríku hjálparstarfí til skila Þessa hjálp verður enn að stórefla íslensk þjóð hefur þegar öðlast dýr- mæta reynslu og þekkingu í hjálpar- starfinu. Hvort enn tekst að efla starfið er undir almenningi komið og framlögum hans. Ég hef unnið að hjálparstarfinu á vegum hjálparstofnunarinnar sl. 4 ár, bæðijhér heima og einnig á vett- vangi. Ég hef séð íslenska aðstoð koma að miklu gagni. En það sem hæst ber er samvinnan við þetta fá- tæka fólk, blásnautt fólk með þvflika reynslu af sorg og þjáningu að mér er ómögulegt að skilja. En bros þessa fólks, gleði og þakklæti í okkar garð, gleymist aldrei. Af þessu fólki má mikið læra, það er ríkt af mennsku og kærleika mitt í þjáningu og neyð. Ný blóma- verslun opnuð Ný verslun með blóm, skreyt- ingar og skreytingaefni „Blóma- list“ hefur verið opnuð í Ingólfsstræti 6. Annar eigandinn Uffe Balsten er lærður blómaskreytingameistari og hefur unnið erlendis og hér á landi sl. 20 ár. Á vegum verslunar- innar er boðið uppá neimskeið í gerð blómaskreytinga bæði fyrir almenning og fagfólk. Næsta nám- skeið hefst 16. október. Boðið er upp á sýnikennslu og styttri nám- skeið fyrir félög og minni hópa. Hægt er að panta með stuttum fyrirvara allar skreytingar og verð- ur reynt að bregðast skjótt við pöntunum utan af landi. (Úr fréttatílkynningu) Uffe Balsten og Guðbjörg Jónsdóttir eigendur verslunarinnar Blómalist. HJÁ FJÖLVERKI VESTMAN NAEYJ UM 18. OKTÓBER LAUGARDAG kl. 10:00 — 17:00 TOYOTA Höfundur er guðfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.