Morgunblaðið - 28.10.1986, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1986
15
Hold og blóð, morð
og nauðganir
Kvikmyndlr
Arnaldur Indriðason
Hold og blóð (Flesh and
Blood). Sýnd í Háskólabíói.
Stjörnugjöf: ☆ ☆ ☆
Bandarísk/hollensk. Leik-
stjóri: Paul Verhoeven. Fram-
leiðandi: Gys Verluys. Handrit:
Gerard Soeteman, byggt á sögu
Soeteman og Verhoeven. Kvik-
myndataka: Jan De Bont.
Helstu hlutverk: Rutger Hauer,
Jennifer Jason Leigh, Tom
Burlinson og Jack Thompson.
Það líður varla svo mínútan í
þessari miðaldasögulegu mynd
Hollendingsins Paul Verhoevens
(Turkish Delight), sem hann kýs
að kalla Hold og blóð (Flesh and
Blood), að ekki sé einhver myrt-
ur, einhverri nauðgað, einhveiju
rænt eða einhveijir sláist. Ejöful-
skapnum linnir aldrei. Láfíð er
ekki nema til að eyða því. Þetta
er það sem Verhoeven kalla sann-
verðuga og raunsæja lýsingu á
lífínu á miðöldum. Um það má
sjálfsagt deila en mjmdin hans er
a.m.k. talsvert öðruvísi en maður
á að venjast.
Það eru engar hetjur i þessari
mynd um flokk málaliða, sem fer
ruplandi og rænandi um ótilteknar
byggð'r Evópu, seint á sextándu
öld. Sumir drepast fljótt og auð-
veldlega, aðrir ekki fyrr en þriðja
spjótinu er stungið í gegnum búk-
inn. Ung stúlka fær sverð í
höfuðið og læknirinn mokar
gumsinu inn aftur. Það er ekki
til sú kona sem ekki er nauðgað
í þessari mynd. Móðir hendir sér
fram af kastalavegg með dóttur
sína í fanginu til að lenda ekki í
klónum á málaliðunum, sem hol-
lenski leikarinn Rutger Hauer
stjómar, en þeir em samsafn
skúrka sem Charles Manson væri
sjálfsagt ánægður með. Allt, sem
málaliðamir gera, gera þeir með
blessun heilags Martins en þeir
draga líkneski af honum upp úr
drullupolli og hafa að leiðarljósi f
ránsferðum sfnum.
Það er eiginlega hvorki upphaf
né endir á Holdi og blóði. Og það
má þræta um hvað Verhoevens
sé að fara með henni. Stundum
er eins og hann sé bara leiður
orðinn á hinum sífelldu sverða-
og særingamyndum með galdra-
mönnum og prinsessum og
þokueffektum og fallegum endi.
Hold og blóð er ekki svoleiðis
mynd ef einhver skyldi halda það.
Hún er eins óbeisluð og persón-
umar í henni, eins fmmstæð og
lostafull og málaliðamir. Hún
treður niður hetjudýrkun og skop-
ast að skurðgoðadýrkun og kirkj-
Rutgcr Hauer i hlutverki Martins i myndinni Hold og blóð sem sýnd er í Háskólabíói.
unni. Og eins og til að kóróna
hnignunina og niðumíðsluna, sem
myndin gerist í, blandast Svarti-
dauði í spilið og viðbjóðurinn
magnast um helming.
En samt er Hold og blóð ástar-
saga þótt ótrúlegt sé. Hún hefst
á því þegar nokkrir málaliðar með
Martin (Rutger Hauer) í farar-
broddi era sviknir um ránsfeng
sinn af aðalsmanninum Amolfini,
sem hann hafði lofað þeim fyrir
að hertaka einhvem kastalann.
Þeir stofna þá sinn eigin flokk og
hyggja á hefndir. Þeir ræna
Agnesi (Jennifer Jason Leigh),
sem á að giftast Jehan (Tom
Burlinson) syni Amolfini, og
heimanmundi hennar öllum. Je-
han leggur allt í sölumar til að
frelsa Agnesi en hún verður skot-
in í Martin og þegar kemur að
lokauppgjörinu og hún verður að
velja á milli veit hún ekki lengur
í hvom fótinn hún á að stíga.
Þetta er blóðug, klámfengin og
hrottaleg ástarsaga. Miðaldimar
í huga Verhoevens em ekki sér-
lega vinalegur tími en þessi
ofbeldisfulla sýn hans er f það
minnsta athyglisverð. Það væri
gaman að sjá hvað hann gerði við
Sturlungaöldina okkar.
f
LANDSLEIKUR í HANDKNATTLEIK
ísland— A-Þýzkaland
FORSALA í LAUGARDALSHÖLL
FRÁ KL. 17.00
Ávallt jafn
góöur
^ Holta- V
kjúkHngur
HOLTABITIÐ
Sva/a/
Heimsmeistarakeppnin sl. vor:
A-Þýzkaland í 3. sæti
ísland í 6. sæti
VÆRZlUNflRBANKINN
-vituiun. með þéri!
í LAUGARDALSHÖLLINNI í KVÖLD KL. 20.30.
HEIMSKLASSA
HANDBOLTI