Morgunblaðið - 26.11.1986, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
21
Heimsfrægnr fiðluleik-
ari leikur með Sinfóníu-
hljómsveit Islands
GYORGY Pauk, hinn heimsfrægi
ungverski fiðluleikari, leikur ein-
leik með Sinfóníuhljómsveit
íslands á tónleikum sveitarinnar
í Háskólabíói nk. fimmtudags-
kvöld. Pauk leikur einleik á
Fiðiukonsert í e-moll, op. 64 eftir
Mendelssohn. Önnur verk, sem
flutt verða á tónleikunum eru
forleikur óperunnar Oberon eft-
ir Weber og tónaljóðið Svo mælti
Zaraþústra, eftir Richard
Strauss. Stjórnandi verður
grísk-þýski hljómsveitarstjórinn
Miltiades Caridis.
Gyorgy Pauk er fæddur í Búda-
pest og hóf komungur nám í
fíðluleik við Franz Listz tónlistar-
háskólann í fæðingarborg sinni.
Hann hefur leikið víða um lönd og
unnið til margra verðlauna. Hann
hefur verið búsettur í Englandi
síðan árið 1961.
Stjómandi Sinfóníuhljómsveitar-
innar á fimmtudagskvöld verður
Miltiades Caridis. Hann stjómaði
fyrstu tónleikum sveitarinnar á
síðasta starfsári. Caridis er af
grísk-þýskum ættum. Hann hefur
starfað víða sem hljómsveitarstjóri,
meðal annars um tíma í Danmörku
og í meira en áratug í Osló.
Caridis hefur meðal annars hlotið
viðurkenningu sem kennd er við
ungverska tónskáldið Béla Bartók.
Tónleikamir á fimmtudagskvöld
verða fímmtu tónleikamir af átta
áskriftartónleikum á fyrra misseri
þessa starfsárs Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands.
(Fréttatilkynning).
Miltiades Caridis, hljómsveitar-
stjóri.
NÝTT SÍMANÚMER
69-11-00
Auglýsingar 22480 • Afgreiðsla 83033
ÍLI
d
Góð bók
Sigling Dagfara
eftir C. S. Lewis.
Þriðja bókin um töfra-
landið Narníu. Játvarð-
ur og Lúsía fara í
ævintýralega sjóferð
með Kaspían konungs-
syni. Með í för er þeirra
leiðinlegi frændi,
Elfráður Skúti.
CS.LtWib
á, Alþýðubankinn á Blðnduósi
Alþýðubankinn hf
Alþýöubankinn á Blönduósi hefur
starfsemi sína fimmtudaginn 27. nóv. 1986.
Afgreiðslutími er kl 9:15-16:00 virka daga
og 17:00-18:00 á fimmtudögum.
Bjóöum ykkur velkomin í viöskipti og bendum
sérstaklega á fjölbreytilega valkosti '
innlánskjörum. Auk almennra reikninga
vekjum viö athygli á æskusparnaði, lífeyris-
sparnaði og stjörnusparnaöi.
I tilefni dagsins, fyrir alla landsmenn
BÚMANNSBÓKlN, nýr innlánsreikningur
sem sameinar kosti söfnunarreiknings og
geymslureiknings á afbragöskjörum.
Nánari upplýsingar á öllum afgreiöslustööum í
Reykjavík, Akureyri, Akranesi, Húsavík og
nú á Blönduósi.
Viö gerum vel viö okkar fólk