Morgunblaðið - 26.11.1986, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
Gorbachev á Indlandi:
Gandhi fagnar komu
„krossfara friðarins“
Nýju-Delhi, Reuter, AP.
MIKHAIL S. GORBACHEV, leið-
togi Sovétríkjanna, kom í gær til
Indlands og mun hann dveljast
þar næstu fjóra daga i boði Rajiv
Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands. Gandhi fagnaði komu
Sovétleiðtogans og sagði hann
vera „krossfara friðarins". Ekki
voru allir jafnsáttir við komu
Gorbachevs og handtóku lög-
reglumenn 40 landflótta Afgani
sem hugðust mótmæla innrás
Sovétmanna í Afganistan.
Gobachev kvaðst í gær vera kom-
inn til Indlands til að treysta
samband ríkjanna tveggja. Báðir
leiðtogamir fluttu ávarp á flugvell-
inum í Nýju-Delhi og lögðu þeir
áherslu á samstöðu ríkjanna
tveggja í gegnum tíðina. „Við fögn-
ísrael:
Herzog tilkynnir
f ör til Þýskalands
Tel Aviv, Reuter, AP.
CHAIM Herzog, forseti ísraels, er nýkominn aftur úr ferð til Austur-
landa fjær, sem kom af stað fjaðrafoki. f gær tilkynnti Herzog að
hann hygðist fara í opinbera heimsókn til Vestur-Þýskalands í apríl
og má búast við því að sú för komi enn meiri deilum af stað.
Láti Herzog verða af för sinni,
verður hann fyrsti forseti Israels
til að fara til Vestur-Þýskalands
síðan samskipti komust á milli
ríkjanna árið 1965.
Talsmaður Herzogs, Ami Gluska,
sagði í ísraelska útvarpinu að förin
yrði farin „til minningar" um fóm-
arlömb nasista og til þess að auka
vitund manna um helför gyðinga,
sem nú væri að falla í gleymsku.
Herzog barðist gegn nasistum í
heimsstyijöldinni síðari og átti einn-
ig þátt í að bjarga gyðingum frá
Þýskalandi.
Tilkynningin vakti reiði meðal
ýmissa málsmetandi ísraela, sem
lifðu af ofsóknir nasista.
„Ég trúi ekki mínum eigin eyr-
um,“ sagði þingmaður Likud-
bandalagsins, Eliahu Ben-Elissar,
sem flúði frá Póllandi 1942. „Sú
stund er enn ekki runnin upp. Ein-
hvem tíma verður slík heimsókn
tímabær, en ekki meðan þessi kyn-
slóð lifir."
um yður, herra aðalritari, sem
krossfara friðarins," sagði Rajiv
Gandhi. „Þér virðið hlutleysi okkar
og við virðum friðarviðleitni yðar,“
sagði indverski forsætisráðherrann
ennfremur. Að móttökuathöfninni
lokinni hófust viðræður leiðtoganna
og er talið að þær muni einkum
snúast um afvopnunarmál og ör-
yggi Asíuríkja.
Þúsundir Indverja þyrptust út á
götumar sem bílalest Gorbachevs
ók um og var séð til þess að apar,
betlarar og nautgripir héldu sig í
hæfilegri Ijarlægð.
Sovétríkin og Indland gerðu með
sér vináttusáttmála árið 1971 og
telja stjómir beggja ríkjanna sam-
skipti þeirra mikilvæg. Þetta er í
fysta skipti sem Mikhail S. Gorbac-
hev kemur til Indlands en Rajiv
Gandhi hefur fimm sinnum komið
til Moskvu. Gorbachev mun ávarpa
báðar deildir indverska þingsins á
flmmtudag. Þá verða einnig undir-
ritaðir samningar m.a. um efna-
hagsaðstoð Sovétstjómarinnar sem
renna mun til kola- og olíuiðnaðar
Indveija.
Norges Fiskarlag:
Á æfingu
Öryggisráðstafanir í sambandi við geimferðir hafa verið hertar
mjög í Bandaríkjunum eftir að Challenger flaug sprakk rétt
eftir að henni var skotið á loft frá Kanaveralhöfða 28. janúar
sl. Þessi mynd er tekin á æfingu nýlega við Kennedy geimstöð-
ina og eru geimfarar að bera særðan félaga sinn á öruggan
stað eftir misheppnað geimskot.
Austurríki:
Fara fram á 1.500 millj.
n. króna í ríkisstyrki
Ósló, frá Hirti Gíslasyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
Sljórnarmynd-
un talin taka
nokkrar vikur
Vínarborg, AP, Reuter.
KURT Waldheim, forseti Aust-
urríkis, tók í gær á móti lausnar-
beiðni rikisstjórnar landsins i
kjölfar kosninganna sl. sunnu-
dag. Stjómin mun sitja áfram
þar til ný sljóm hefur verið
Kairó:
María mey
læknar
trúaða
Kairó, AP.
FJÖLDI kristinna Egyptar flyk-
kist nú daglega til kirkju einnar
í Kairó þar sem sagt er að Maria
mey birtist trúuðum og lækni þá.
Hinir trúuðu segjast hafa séð
Maríu mey birtast í ljósgeisla á
veggjum kirkjunnar, sem kennd er
við heilagan Damiana. Snerti geisl-
inn hina sjúku og lækni þá. Sýn
þessi hefur birst síðan í marsmán-
uði sl. og hefur prestur kirkjunnar
skráð hjá sér nöfn þeirra er lækn-
ast hafa. Yfirmenn Koptakirkjunn-
ar, sem hefur innan sinna vébanda
um 6 milljónir Egypta, hafa ekki
viljað láta hafa neitt eftir sér um
málið. Aðstoðarmnaður Shenouda
III, páfa, sem ekki hefur viljað tjá
sig opinberlega um fyrirbæri þetta,
sagði þó að páfinn tryði því að þama
væri um kraftaverk að ræða.
mynduð, en það er tahð geta tek-
ið nokkrar vikur.
Endanlegar niðurstöður kosning-
anna eru þær, að Jafnaðarmenn
fengu 80 þingsæti, Þjóðarflokkur-
inn 77, Fijálslyndiflokkurinn 18 og
Græningjar 8. Jafnaðarmenn hafa
lýst því yfir, að þeir kjósi að mynda
stjóm með Þjóðarflokknum, en leið-
togi hans, Alois Mock, sagði í gær,
að flokkur sinn vildi skoða alla
möguleika sem fyrir hendi væru.
Ef stóm flokkamir tveir mynda
stjóm yrði það fyrsta stjóm þeirra
síðan árið 1966. Vranitzky, forystu-
maður Jafnaðarmanna ákvað að
slíta samstarfi við Fijálslyndaflokk-
inn eftir að Joerg Haider var kosinn
formaður í september sl. og sagði
hann á sunnudag, að hann hefði
ekki getað hugsað sér að starfa
með Haider í september og gæti
það ekki frekar nú.
Fijálslyndiflokkurinn tvöfaldaði
fylgi sitt í kosningunum á sunnu-
daginn og sagði Haider að hann
væri tilbúinn til samstarfs við báða
stóru flokkanna, en hann væri sann-
færður um að þeir hefðu þegar
komist að ákveðnu samkomulagi.
Ýmis teikn eru þó á lofti um, að
áhugi sé innan Þjóðarflokksins á
samstarfi við Frjálslyndaflokkinn,
t.d. sagði Robert Graf, talsmaður
flokksins í efnahagsmálum, af sér
á mánudag þar sem hann sagðist
aifarið á móti samstarfí við aðra
flokka en Jafnaðarmannaflokkinn.
Enginn flokkanna þriggja virðist
hafa áhuga á samstarfí við nýja
flokkinn á austurríska þinginu,
Græningja.
NORGES Fiskarlag (Sjómanna-
samtök Noregs) kynnti í gær
kröfur sínar um ríkisstyrki á
blaðamannafundi í Ósló. Sam-
kvæmt þeim fara samtökin fram
á styrki að upphæð 1.481,6 millj-
ónir norskra króna (um 8 millj-
arða ísl. kr.). Á þessu ári var
ríkisstyrkurinn 1.330 milljónir.
Ekki hefur náðst samkomulag
við stjórnvöld um það, hve há
upphæðin verður að þessu sinni,
en á fjárhagsáætlunum fyrir
næsta ár er gert ráð fyrir 500
Islamabad, AP.
ÖRY GGISS VEITIR í Kabúl
handtóku í síðustu viku stuðn-
ingsmenn Barbraks Karmal,
fyrrum leiðtoga Kommúnista-
flokks Afganistan, að því er
vestrænir stjórnarerindrekar
þar sögðu i gær. Virðist sem
mennirnir hafi veríð handteknir
tíl að fyrirbyggja að þeir gætu
mótmælt því að Karmal var sett-
ur af sem forseti „afganska
byltingarráðsins".
Einn heimildarmannanna, sem
kom til Kabúl, höfuðborgar Afgan-
istan í síðustu viku, kvaðst hafa séð
sovéska og afganska hermenn með
alvæpni víða um borgina auk skrið-
dreka og brynvarðra bíla. Fréttir
herma að 25 stuðningsmenn Bar-
braks Karmal hafi verið handteknir
á fimmtudaginn en þá var tilkynnt
að hann hefði verið sviptur öllum
embættum. Svo virðist sem ekki
hafi verið um skipuleg mótmæli að
ræða. í tilkynningu stjómarinnar í
Kabúl sagði að Karmal hefði óskað
eftir því að setjast í helgan stein
sökum heilsubrests.
í maí á þessu ári var Karmal
settur af sem aðalritari afganska
milljónum króna til styrkja í sjáv-
arútvegi.
Einar Hepsö, formaður Norges
Fiskarlag, og Finn Bergesen, aðal-
ritari samtakanna, kynntu kröfum-
ar á blaðamannafundinum. Töldu
þeir nauðsynlegt að veija 843,1
milljón króna (rúmlega 4,5 milljörð-
um ísl. kr.) til verðbóta og lagfær-
inga til handa þorskveiðiflotanum
og þeim hluta flotans, sem veiðir
skyldar fisktegundir. Jafnframt
töldu þeir þörf á, að síldar- og hring-
nótaflotinn fengi 638,5 milljónir
kommúnistaflokksins. Almennt er
talið að Sovétstjóminni hafi þótt
framganga Karmals í stríðinu við
frelsissveitir Afgana slæleg og því
hafi honum verið hafnað. Karmal
var gerður að aðalritara í deserpber
árið 1979 skömmu eftir að Sovét-
menn réðust inn í Afganistan.
Gengi gjaldmiðla
London, AP.
B AND ARÍ KJ ADOLL ARI lækk-
aði gagnvart helstu gjaldmiðium
heims í gær. Gull hækkaði í verði.
Dollarinn kostaði síðdegis í gær
163,9 japönskjen (164,20) íTókýó.
Sterlingspundið kostaði 1,4215
dollara (1,4175) þegar gjaldeyri-
sviðskiptum lauk í London.
Gengi annarra helstu gjaldmiðla
var á þann veg að dollarínn kost-
aði: 1,9950 vestur-þýsk mörk
(2,0212), 1,6650 svissneska franka
(1,6918), 6,5350 franska franka
(86,6135), 2,2545 hollensk gyllini
(2,2830), 1.382,50 ítalskar iímr
(1.399,50) og 1,38515 kanadíska
dollara (1,38575).
króna (tæplega 3,5 milljarða ísl.
kr.).
Kröfur Norges Fiskarlags um
ríkisstyrki á þessu ári námu rúm-
lega 2 milljörðum króna, og em
kröfur þeirra fyrir næsta ár því um
30% lægri. Það skýrðu fulltrúar
samtakanna með því, að hagur út-
gerðarinnar hefði í vissum tilfellum
batnað, útgerðarkostnaður lækkað
og markaðs verð ýmissa fiskteg-
unda farið hækkandi.
Styrkjakerfið miðast nær ein-
göngu við fiskverð til sjómanna og
er tilgangur þess einkum tvenns
konar: að koma í veg fyrir byggðar-
öskun og tryggja sjómönnum
sambærileg laun við iðnaðarmenn
í landi, en þau em áætluð á næsta
ári 134.600 krónur (um 726 þús.
ísl. kr.) miðað við heilsárslaun.
Samningaviðræður Norges Fisk-
arlag við stjómvöld hafa staðið yfir
í nokkum tíma og verður haldið
áfram á næstunni. Nokkuð ber í
milli varðandi kostnaðarútreikn-
inga, sem aðilar hafa ekki getað
komið sér saman um, hvemig haga
skuli.
Á fjárhagsáætlun norsku ríkis-
stjómarinnar fyrir næsta ár er gert
ráð fyrir 500 milljónum króna til
styrkja í sjávarútvegi. Reiknað er
með aukinni hagkvæmni, hækkandi
verði á þorskafurðum og vemlega
vaxandi afla á næsta ári. Á hinn
bóginn er verra útlit að því er varð-
ar loðnuna, en loðnuveiðar í
Barentshafí hafa bmgðist og ekki
talið, að um þær verði að ræða á
árinu, svo að nokkm nemi. Enn
fremur em erfiðleikar í sölu og
markaðssetningu á sfld.
ERLENT
Afganistan:
Fylgismenn fyrrum
leiðtoga handteknir