Morgunblaðið - 26.11.1986, Qupperneq 46
46
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIS, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
og Marie, skutu þeir þau í bijóst-
ið með haglabyssu. Eftir að hafa
hirt um eitt hundrað Bandaríkja-
dali (jafngildi um 4.000 ísl. króna)
og viskíflösku af bamum gengu
þeir út inn í bílinn. Sú ökuferð
varð þó ekki löng, því að þeir óku
bflnum inn um sýningarglugga
bflasöiu. Þar veifuðu þeir haglar-
anum framan í skelfda ræsti-
tækna og rændu pallbfl.
Eftir að hafa verið reknir út
af vinkonu sinni vom þeir eltir
af lögreglunni í tvígang og tókst
að stöðva þá í seinna skiptið. Þeg-
ar fjórir lögregluþjónar nálguðust
þá með varúð sté Wentz út og
fleygði blóði ötuðu fénu fyrir fæt-
ur þeirra og sagði: „Þama hafið
þið peningana".
Við yfírheyrslur bar Wentz að
Miller hefði verið sá sem skaut
hjónin, en Miller segist ekkert
muna.
Framleiðslu Da//as-þáttanna
hefur verið frestað í bili, en
Patrick Duffy, sem leikur Bobby
Ewing, flaug heim til Boulder um
leið og fréttist af illvirkinu. Þar
tók Joan systir hans á móti hon-
um, en hún er lögregluvarðstjóri
í Seattle. Enn sem komið er óvíst
hvenær framleiðsla Da//as-þátt-
ana hefst að nýju.
Guðlaug Jónsdóttir, Stjama HoUywood.
Drukku viskí
með líkin fyrir
framan si g
- Óhugnanlegt morð á foreldrum Patricks Duffy
sjó“, sagði yfírmaður þeirra hjá
fyrirtækinu.
Kenneth Miller ólst upp í Mont-
ana og af góðu fólki kominn. í
skóla var hanri miðlungsnemandi,
en hann komst á sakaskrá fyrir
ýmis minniháttar afbrot. Aldrei
hafði þó neitt borið á kauða, enda
ekki til forystu fallinn.
í afskekktum sveitaþorpum
Montana var Wentz hins vegar
heimsmaður. Hann gerði gys að
sveitamennsku þorpsbúanna og
var tíðrætt um hið góða líf í Kali-
fomíu, þar sem nóg var af sól og
gjálífum stúlkum. Afrekaskráin
fólst helst í því að hafa stolið
bflum og verið í linnulausum eitur-
lyfjarús. — Tveimur dögum fyrir
illvirkið sagði Wentz samstarfs-
mönnum: „Við Kenny ætlum að
sýna ykkur hvemig á að skemmta
sér. Við ætlum að mála bæinn
rauðan".
Kvöldið hjá félögunum hófst á
því að þeir stálu Wolksvagen og
óku svo á milli öldurhúsa sýslunn-
ar þangað til þeir óku inn í
smábæinn Boulder, sem í eru þrír
barir og annálaður fyrir rólegheit.
Skömmu eftir að þeir komu inn
á bar Duffy-hjónanna, Terence
Sljarna
Hollywood krýnd
Síðastliðið fímmtudagskvöld fór
fram krýning Stjömu Holly-
wood í veitingahúsinu Broadway.
Samtals kepptu átta stúlkur um
titilinn, enda til mikils að vinna.
Sigurvegarinn skyldi fá nýja bifreið
af gerðinni Lancia auk margs ann-
ars. Þá vom allir keppendumir
leystir út með gjöfum og fara þær
m.a. saman til Ibiza næsta sumar
í boði ferðaskrifstofunnar Pólaris.
Margt fleira var til skemmtunar
um kvöldið, Hollywood Models
sýndu nýjustu vetrartískuna og
Dansstúdíó Sóleyjar sýndi nýjan
dans eftir Shirlene Blake.
Það var átján ára námsmær við
Menntaskólann, Guðlaug Jónsdótt-
ir, sem hneppti hnossið, en Hólm-
fríður Karlsdóttir, fyrrverandi
Ungfrú heimur, krýndi hana.
Ennfremur var kjörin sérstök
Sólarstjama Pólaris, Svava Sigur-
jónsdóttir. Ekki var krýningum þó
enn lokið, því Guðríður Sverris-
dóttir var kjörin „Hollywood Spes“.
Það voru fleiri fegurðardísir en
keppendur á svæðinu, þvi þama
voru m.a. Sif Sigfúsdóttir, Þóra
Þrastardóttir, fegurðardrottn-
ing Reykjavíkur, Gígja Birgis-
dóttir, fegurðardrottning
íslands, og Hólmfríður Karls-
dóttir.
Dómnefndin, en i henni voru Ólafur Laufdal, Margrét Guðmunds-
dóttir, fulltrúi Rögnu Sæmundsdóttur, sem er i Japan þessa dagana,
Þórunn Gestsdóttir, ritstjóri Vikunnar, Karl Sigurhjartarson, frá
ferðaskrifstofunni Pólaris, Sif Sigfúsdóttir, Ungfrú Skandinavía, og
Baldvin Jónsson.
Patrick Duffy við heimkomuna
til Boulder.
Eins og sagt var frá á þessum
stað í gær, vildi Patrick Duffy
þakka aðdáendum sínum um heim
allan fyrir hlýhug sér sýndan,
vegna morðsins á foreldrum hans.
Morð þetta þykir mjög óhugnaleg
vegna algers tilfínningaleysis
morðingjanna, tveggja unglinga.
Foreldrar Duffys, báðir á sjö-
tugsaldri, vom skotnir til bana í
smábænum Boulder í Montana,
en þar ráku þeir vínstofu. Það sem
morðingjamir höfðu upp úr krafs-
inu vom u.þ.b. eitt hundrað
Bandaríkjadali og flösku af ódým
viskíi. Á meðan þau lágu í blóði
sínu á gólfínu fengu morðingjam-
ir sér í glas, endurhlóðu hagla-
byssuna í rólegheitum og gengu
sfðan út í hægðum sfnum með
flöskuna.
Um klukkustund síðar heim-
sóttu þeir sameiginlega vinkonu
sína og stærðu sig af ódæðinu.
„Tveir liggja“, sagði Sean Wentz,
stráklingur frá Washington-fylki,
sem flækst hefur um Bandaríkin,
en alltaf hrakist stað úr stað.
Hann var enn ataður blóði for-
eldra sjónvarpsstjömunnar.
Félagi Wentz, hinn bamalegi
Kenneth Miller, sýndi engin svip-
brigði. Vinkona þeirra missti
stjóm á sér og rak þá út, en
hringdi í foreldra sína og sagði
þeim frá þessari óhugnanlegu
heimsókn. Þeir höfðu strax sam-
band við lögregluna.
Morðingjamir höfðu þekkst í
fimm mánuði, eða allt frá því að
Wentz kom til Boulder frá Kali-
fomíu.
Þeir kynnust í vinnu hjá ræst-
ingafyrirtæki nokkm í Boulder.
„Þeir dmkku mikið og slæptust.
I sjálfu sér vom þeir ekki slæmir
strákar, en þeir vom gersamlega
stefnulaus reköld í lífsins ólgu-
Morgunblaðið/Einar Falur
Hinn föngulegi hópur í upphafi keppni: Svava Sigurjónsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Jónheiður
Steindórssdóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Guðrfður Sverrisdóttir, Anna Brynja Sigurgeirsdóttir, Ingibjörg
Kaldalóns og Björk Jakobsdóttir.