Morgunblaðið - 26.11.1986, Síða 54
ALOHA-mótið á Spáni:
SveitGR
varðí
sjötta sæti
- og vakti mikla athygli fyr-
ir glæsilegan klæðnað og
prúðmannlega framkomu
SVEIT Golfklúbbs Reykjavíkur
hafnaði í sjötta sœti á ALOHA -
mótlnu í golfi sem lauk á laugar-
daginn á Spáni. Sveitin lák á 615
höggum sem er einu höggi betra
en í fyrra þannig að menn geta
verið ánœgðir með árangurinn.
Sjötta sætið er frábær árangur
jþrátt fyrir að menn hafi gert sór
vonir um að vera framar.
Hannes Eyvindsson lek best af
þeim félögum og hann varð í 12.
- 13. saeti í einstaklingskeppninni
en keppendur voru 60 talsins.
Hannes lék á 308 höggum, 80 -
77 - 75 - 76, og veröur það að
teljast mjög góður árangur
Ragnar Ólafsson varð í 16. -
17. sæti á 311 höggum en hann
lék á 80 - 76 - 75 - 80.
Sigurður Pétursson varð í 20. -
21. sæti á 313 höggum en hann
lék á 79 - 82 - 75 - 77.
Að sögn Björgúlfs Lúðvíkssonar
fyrirliða sveitarinnar var heppnin
ekki með sveit GR að þessu sinni.
„Þeir voru alveg lánlausir. Það var
bókstaflega engin heppni með
strákunum. Ég held að það megi
segja að Hannes hafi tvívegis
verið heppinn alla fjóra dagana og
það telst ekki mikið á 72 holum.
Sveitin lék mjög vel en heppnin
var ekki með þeim. Síðasta daginn
fékk Sigurður til dæmis níu sinnum
möguleika á að leika á einu höggi
undir pari en mistókst alltaf. Púttin
hjá okkur voru ekki nógu góð og
ég vil kenna því um að við höfum
ekki nógu góðar flatir hér á landi
til að leika á. Sveitin lék jafn vel,
ef ekki betur, en þeir bestu frá
teigi og inná flötina en þeim voru
mislagðar hendur í púttunum",
sagði Björgúlfur.
Björgúlfur sagði að íslensku kylf-
ingarnir hefðu oftar en ekki verið
nær holu í innáhöggum sínum en
erlendu keppendurinir en púttin
heföu ekki veriö nógu góð. „Er-
lendu keppendurnir voru ef til vill
fjórum metrum lengra frá holunni
en settu niður með einu pútti á
meðan okkar strákar voru að tví-
og þrípútta."
Metin slegin
Það náðist mjög góður árangur
á þessu sjötta ALOHA - golfmóti.
• Hannes Eyvindsson á fyrsta teig f ALOHA - mótinu. Hannes lók
á 308 höggum og varð f 12. - 13. sæti f einstaklingskeppninni. Björg-
útfur Lúðvíksson fylgist vel með bottanum.
• Þeir tóku sig vel út í fötum frá Sævari Karli . Hannes Eyvindsson, Ragnar Ólafsson, Sigurður Páturs-
son og Björgúlfur Lúðvíksson við setningu mótsins en sveitin vakti mikla athygli fyrir glæsilegan klæðnað
og prúðmannlega framkomu auk þess að leika gott golf.
Fyrir þetta mót hafði besta skor í
keppninni verið 605 högg og því
ekki óeðlilegt að ætla að íslenska
sveitin ætti möguleika á að kom-
ast í hóp þriggja efstu sveita. í ár
voru hinsvegar fjórar sveitir sem
léku betur en gamla metið. Þjóð-
verjar unnu þetta mót en þeir léku
á 585 höggum. Heilum 20 höggum
betur en gamla metið!
Frakkar urðu í örðu sæti á 593
höggum, Englendingar í því þriðja
á 596 höggum og Wales í fjórða
sæti á 599 höggum.
Svíar komust einu höggi upp
fyrir íslensku sveitina og léku á 614
höggum, GR - sveitin lék á 615
höggurjn og næstir á eftir okkur
urðu Belgar á 622 höggum.
Það voru fleiri met selgin en
mótsmetið því einn kylfingurinn,
Andrew Rogers , frá Englandi
gerði sér lítið fyrir og lék völlinn á
68 höggum síðasta daginn en það
er vallarmet. Eldra metið var einu
höggi meira.
Þjóðverjar léku mjög vel að
þessu sinni og meðalhöggafjöldi
þeirra var 73,1 högg sem er einu
höggi undir SSS vallarins. Ótrúlega
góður árangur.
Það var einnig Þjóðverji sem
sigraði í einstaklingskeppninni. Jan
Wilhelm Schuchmann lék á 294
höggum og það gerðu einnig
Francois lllouz frá Frakklandi og
Andrew Rogers frá Englandi en
Schuchmann telst sigurvegari þar
sem hann hefur hæstu forgjöf
þeirra þremenninga.
GR - sveitin vakti
mikla athygli
Sveit GR vakti mikla athygli á
þessu móti fyrir glæsilegan klæðn-
að, prúðmannlega framkomu og
góðan árangur í golfinu.
„Sveitin vakti mikla athygli á
þessu móti. Sem dæmi get ég
nefnt að þegar við vorum að koma
inn á 9. flötina síðasta daginn kom
mótsstjórinn til mfn og sagði að
þaö væri maður sem vildi endilega
heilsa upp á mig. Þar var þá kom-
inn formaður spánska sambands-
ins. Hann vildi endilega þakka
okkur fyrir gott fordæmi í klæða-
burði og framkomu: „Svo getið þið
líka leikið golf," sagði hann bros-
andi.
Einmitt þegar hann sagði þetta
sló Sigurður inná flötina, en hann
hafði verið heldur stuttur í næsta
höggi á undan. Auðvitað fór bolt-
inn beint í holuna og þá brosti sá
spánski enn breiðar enda undir-
strikaði þetta það sem hann hafði
verið að segja," sagði Björgúlfur.
„Ég held að golfhermirinn í
Öskjuhlíðinni hafi hjálpað okkur
mjög mikið. Ef við hefðum ekki
getað æft þar hefðum við hvergi
getað æft fyrir þetta mót. Golf-
hermirinn kom sérstaklega í góðar
þarfir varðandi inná skotin en þau
voru mjög nákvæm hjá strákunum
FYRIR skömmu fór fram i
Grindavík unglingakeppni í judó
milli heimamanna, Keflvikinga og
Ármenninga. Keppendur voru alls
34 á aldrinum 7 til 14 ára. Keppt
var í 8 þyngdarflokkum og sigr-
uðu Ármenningar í fjórum,
Grindvíkingar í þremur og Kefl-
víkingur sigraði í léttasta flokkn-
um.
Helstu úrslit í keppninni urðu
annars þessi:
Undir 26 kg
Benedikt Björnsson UMFK
Hjörtur Hjartarson UMFK
Óskar Guölaugsson UMFG
Undlr 29 kg
Vlöir Guömundsson UMFG
Hilmar Guðmundsson UMFG
Júlfus Daníelsson UMFG
Davíö Friöriksson UMFG
Undlr 34 kg
Magnús Sigurðsson UMFG
Halidór Magnússon UMFK
að þessu sinni. Það voru púttin
sem fóru með okkur, ef hægt er
að segj að eitthvað hafi farið með
okkur því árangurinn er góður,"
sagði Björgúlfur að lokum.
Siguröur Birgisson UMFG
Undlr 37 kg
HlynurStefánsson Ármanni
Jóhann Gunnarsson UMFG
Þorsteinn Sigurðsson UMFG
Undir 42 kg
Haukur Garðarsson Ármanni
Ólafur Þorgrimsson Ármanni
Jón Guðmundsson UMFG
Guömundur Gunnarsson UMFK
Undir 47 kg
Tryggvi Gunnarsson Ármanni
Guömundur Másson UMFG
Henning Magnússon UMFK
Jón Kristjánsson UMFG
Undir 52 ka
Jón Björgvinsson Gylfi ísleifsson Ármanni
UMFG
Heiömundur Jónsson UMFK
Davíö Gunnlaugsson UMFK
Undir 57 kg
Gunnsteinn Jakobsson UMFG
Helgi Björgvinsson Ármanni
Finnur Júlíusson Ármanni
Guðmundur Hannesson UMFK
Tómas Gunnarsson UMFG
Ungmennafélag Selfoss:
Þörf á öðru
íþróttahúsi
Selfossi.
Á RÁÐSTEFNU sem ungmenna-
félag Selfoss hólt um starfsemi
félagsins f nútíð og framtíð kom
fram að mikil þörf er á því að
koma upp öðru fþróttahúsi á Sel-
fossi til þess að geta sinnt
þörfum þeirra sem vilja stunda
líkamsrækt.
Á ráðstefnunni var fjallað um
skipulag félagsins í dag og í framtí-
ðinni, íþrótta- og félagslegan
árangur, hlutverk félagsins í bæjar-
félaginu og samstarf við foreldra.
Fram komu hugmyndir um að
félagið byggði sjálft nýtt íþrótta-
hús. Var bent á dæmi um slíkt á
Akranesi þar sem nýtt hús er í
byggingu. Varðandi nýtt íþottahús
var bent á að könnun á áhuga fyr-
ir fimleikum á Selfossi og í ná-
grenni sýndi brýna þörf en rúmlega
70 börn og unglingar hafa verið
skráð á slíkt námskeið, en iþrótta-
hús Gagnfræðaskólans er að fullu
nýtt og erfitt að koma starfseminni
fyrir.
Settar voru fram hugmyndir um
nýtt skipulag og aukin áhrif félags-
ins með það fyrir augum að nýta
betur fjármagn bæjarfélagsins til
rekstrar, framkvæmda og stjórn-
unar á íþróttavöllum. Einnig um
aukið félagslegt starf, annars en
því er viðkemur íþróttum og mögu-
leika á því að hjá félaginu starfaði
íþrótta- og æskulýösfulltrúi.
Bent var á nauðsyn þess að all-
ir gætu fundið eitthvað við sitt
hæfi hjá félaginu og að sveitarfé-
lagið fengi félaginu í hendur
verkefni sem gætu orðið til fjáröfl-
unar.
Ákveðið var að stefna að því að
vinna upp frekari útfærslu hug-
mynda um byggingu íþróttahúss
og skipulagsbreytingar og leggja
fyrir aðalfund félagsins í byrjun
næsta árs.
Sig. Jóns.
Judó á Suðurnesjum