Morgunblaðið - 06.12.1986, Side 16

Morgunblaðið - 06.12.1986, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986 Sýning Omars Stefánssonar Myndlist Valtýr Pétursson Þýzk menning hefur um langan ald- ur verið stutt undan í menningarlífi íslendinga. Hér á árum áður fóru margir íslenzkir myndlistarmenn til náms í Þýzkalandi og koma mér þá í hug Guðmundur heitinn Einarsson frá Miðdal, Jóhann Briem og Finnur Jóns- son, en allir stunduðu þeir list sína á þýzkri grund. Nú er fjöldi ungra mynd- listarmanna að koma frá námi þar í landi og sumir þeirra hafa þegar efnt til sýninga á verkum sínum, en aðrir koma fram með verk sín von bráðar. Það er því ekkert nýtt, að þýzkra áhrifa gæti hérlendis og er ekki nema gott eitt um það að segja. í Gallerí Svart á Hvítu er á ferð ungur myndlistarmaður, nýkominn frá Berlín. Það er Ómar Stefánsson og sýnir hann átján hressileg málverk, sem öll eru máluð með olíulitum, að einu undanskildu sem unnið er með blandaðri tækni. Þessi verk eru öll meira og minna sprottin úr þeim áhugamálum, sem einna mest hafa þvælzt fyrir myndlistarmönnum á al- þjóðavettvangi að undanfömu og ekki hvað sízt hjá þeim þýðversku, en mér sýnist þó Ómar léttari í lund en þeir þar í landi og leiti sér frekari fanga hjá amerískum expressjónistum, en sá hópur er ef til vill orðinn gamaldags, mörgum gleymdur og genginn fyrir bí. Draga mætti þá ályktun af því, sem ungur listamaður lét eftir sér hafa á prenti nýlega, en hann sagði, að hrað- inn í myndlist væri orðinn það mikill, að vart væru málverkin þomuð, áður en þeirra tími væri runninn. Það má einnig tengja þessi verk Ómars Stef- ánssonar Cobra-tímabilinu, sem senni- lega heyrir fornöldinni til í hugum þeirra ungu manna, sem fylgjast vilja með. En hvað um það: Ómar er ungur og ómótaður listamaður, sem sýnir vissa hæfileika. Sýning hans er fjörug, þar kennir margra grasa, og það er sannarlega lífsmark með þessum unga manni. Fyrir daga sjónvarpsins var það einn helzti kostur á íslenzku samfélagi, að það hagnýtti sér áhrif úr ólíkum þátt- um og það er sannarlega ánægjulegt að sjá það gerast í myndlist okkar. Ómar Stefánsson er einn þeirra, sem ekki fór til Hollands eins og hinir. Það eitt sýnir ef til vill sjálfstæði og svolít- inn anarkisma. TÖLVUR FRÁ KR. 49.900. TÖLVUBORÐ FRÁ KR. 1 FACIT STÓLAR FRÁ KR RITVEL BROTHER AX10 KR. 25.900,- FACIT GÆÐALETURS■ PRENTARI 4509 PRENTARI FACIT KR. 17.900, IBM STOÐ FORRIT KR. 7 1*n '- SKÁPUR FYRIR heimilistölvur KR. 14.000,- diskettug eymsl ur FRÁ KR. 245,- VASAREIKNI VÉLAR KR. 830,- FACIT 2104 REIKNIVÉL KR. 1.850,- '20 MB SEGULDISKAR Oet rnore oirt ©t your peri*>«ud tompuw Áhugaverðar alagianr ÞETTA ER AÐEINS SÝNISHORN AF FJÖLMÖRGUM ÁHUGA VERÐUM JÓLAGJÖFUM FRÁ GÍSLA J. JOHNSEN. OPtÐ IDAG 77L KL 16.00 GÍSLI J. JOHNSEN Nýbýlavegi 16. Sími 641222. I Glerárgötu 20 Akureyri. Sími 96-25004. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Selfosskirkja og nýbygging hennar sem nú er fokheld. Selfoss: Aðventu- kvöld í Sel- fosskirkju Selfossi. Á AÐVENTUKVÖLDI í Sel- fosskirkju 7. desember verður þess meðal annars minnst að “ýbygging kirkjunnar er öll komin upp og fokheld. Turn- bygging kirkjunnar hefur náð fullri hæð, 24 metrum og er þar kominn ákjósanlegur út- sýnisstaður. Þess verður ekki langt að bíða að fólk geti farið upp í kirkjutum- inn og virt fyrir sér útsýnið þaðan. I fréttatilkynningu frá séra Sig- urði Sigurðarsyni sóknarpresti um væntanlega aðventusámkomu í kirkjunni er þessa getið. Á aðventukvöldinu 7. desember mun kirkjukórinn og kór Fjöl- brautaskóla Suðurlands syngja aðventu- og jólalög og Svavar Gestsson alþingismaður mun flytja ávarp kvöldsns. Eftir samkomuna i kirkjunni verður komið saman í safnaðar- heimilinu þar sem kvenfélag kirkjunnar býður upp á veitingar. Kvenfélagskonur munu einnig gefa fólki kost á að kaupa nýbak- að laufabrauð og jólavaming í anddyri safnaðarheimilisins. Þar verður einnig til sölu jólabókin sem Gísli Sigurbjömsson hefur gefíð út um árabil. Hann gaf kirkjunni hluta af upplaginu og mun ágóði af sölu bókarinnar renna í hjálpar- sjóð Selfosskiiju sem stofnaður var á síðasta aðalfundi safnaðar- ins. Sig. Jóns. HÍIHiIHHMb

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.