Morgunblaðið - 06.12.1986, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986
43
Landgrunn íslands:
Leit að nýtanleg’-
um auðlindum
„Alþingi ályktar að fela
ríkisstjórninni að undirbúa
löggjöf og reglur um samstarf
við erlenda aðila til leitar að
nýtanlegum auðlindum í land-
grunni Islands. Verði m.a.
fjallað um réttindi og skyldur
leitaraðila, heimildir til nýting-
ar rannsónarniðurstaðna,
öryggisráðstafanir til þess að
koma í veg fyrir mengun hafs-
ins vegna auðlindarannsókna
og önnur þau atriði sem máli
skipta i þessu efni“.
Svo hljóðar tillaga sem tveir
þingmenn Sjálfstæðisflokks,
Gunnar G. Schram og Friðrik
Sophusson hafa lagt fram á Al-
þingi. í greinargerð er vitnað til
lagna nr. 41/1979 um landhelgi,
efnahagslögsögu og landgrunn,
sem kveða m.a. á um að fullveld-
isréttur íslands nái til hafsbotns-
ins og neðansjávarsvæða utan
landhelgi allt að ytri mörkum
landgrunnsins. Þessi fullveldis-
réttur tekur til rannsókna og
hagnýtingar á ólífrænum auð-
lindum sem þar eru. Sjö ár eru
liðin frá því þessu merku lög
vóru sett. Hinsvegar hafa ekki
enn verið settar reglur eða sér-
stök lagaákvæði um rannsóknir
á auðlindum landgrunnsins og
hagnýtingu þeirra.
Sljórnarfrumvörp:
Réttindi og
skyldur ríkis-
starfsmanna
Fleiri ganga til úrskurðar í Kjaradómi '
Stjórnarfrumvarp um breytingu á lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins, fylgifrumvarp með frum-
varpi um kjarasamninga opinberra starfsmanna, var lagt
fram fyrir skemmstu.
í frumvarpinu segir að þrátt
fyrir ákvæði laga um kjarasamn-
inga opinberra starfsmanna skuli
eftirtöldum aðilum óheimilt að
standa að verkfalli: 1) Starfsmenn
Alþingis og stjómarráðs, 2)
Starfsmenn skrifstofu Forseta ís-
lands og starfsmenn íslenzkra
sendiráða erlendis, 3) Hæstarétt-
arritari, starfsmenn Hæstaréttar,
héraðsdómarar, lögreglustjórar,
fulltrúar lögrelgustjórans í
Reykjavík, tollstjóri, tollgæzlu-
stjóri, 4) Starfsmenn ríkissátta-
semjara, ríkissaksóknara og
ríkislögmanns, 5) Forstöðumenn
stjómsýslustofnana ríkisins og
staðgenglar þeirra, 6) Forstöðu-
menn atvinnurekstrar- og þjón-
ustufyrirtækja ríkisins og
staðgenlgar þeirra, nema þeir séu
ráðnir sérstakri ráðningu, 7) Aðr-
ir þeir er gegna embættum sem
öldungis verður jafnað til þeirra
manna sem getið er í 1.-6. tölulið.
Ágreiningur um það, hvort maður
falli undirþessi ákvæði, skal lagð-
ur fyrir Félagsdóm.
Þá hefur verið lagt fram frum-
varp til laga um Kjaradóm, sem
einnig er hliðarfrumvarp við fmm-
varp til laga um kjarasamninga
opinberra starfsmanna, sem
breytir starfssviði dómsins til
samræmis við ákvæði þess fmm-
varps. Samkvæmt fmmvarpi
þessu er Kjaradómi ætlað það
verkefni áfram að dæma æðstu
embættismönnum laun. Við þann
hóp hefur hinsvegar verið bætt
sex starfsheitum: landlækni, yfir-
dýralækni, ríkislögmanni, rektor
Kennarháskóla, skrifstofustjóra
Alþingis og ríkisendurskoðenda.
Útivinnandi konur 79.000:
Fleiri konur en karl-
ar taka stúdentspróf
Skýrsla ráðherra um jafnrétti kynjanna.
í skýrslu félagsmálaráðherra
um mat á heimilis- og umönnun-
arstörfum til starfsreynslu,
kemur m.a. fram, að árið 1984
vóru 119.698 konur í landinu, þar
af 72.045 sem unnu „einhver
störf á vinnumarkaðinum“, alls
45.197 ársverk. 28.334 konur
unnu fullt starf (40-52 vikur),
13.275 konur unnu 3/4 vinnu-
dags, 16,229 konur vóru í hálfs
dags starfi, en 14.207 unnu fjórð-
ung úr degi. Atvinnuþátttaka
kvenna er mest á aldrinum 45-49
ára. Atvinnuþátttaka er svipuð
hjá giftum og ógiftum konum.
í skýrslu sama ráðherra um
framkvæmdaáætun til fjögurra ára
til að ná fram jafnrétti kynjanna
kemur fram að tiltækar kannanir
bendi til nokkurs launamunar á
milli kvenna og karla, bæði á al-
mennum vinnumarkaði og í þjón-
ustu hins opinbera. „Hann getur
starfað af ýmsu, t.d. menntun, vinn-
utíma, starfsaldri o.fl. Ýmislegt
bendir þó til að ekki sé hægt að
skýra þennan launamun kynjanna
eingöngu á þann hátt“. Ríkisstjórn-
in hefur ákveðið að grípa til eftirtal-
inna aðgerða: 1) Könnun á
launamun kynjanna, 2)Úrvinnslu
upplýsinga, 3) sveigjanlegum vinn-
utíma til að stuðla að jafnari
þátttöku kynjanna í heimilisstörfum
og atvinnulífi, 4) nýju starfsmati,
þar sem „hefðbundin kvennastörf"
verði sérstaklega endurskoðuð, 5)
námskeiða fyrir konur, sem stofna
vilja fyrirtæki.
í skýrslunni kemur og fram að
skólaárið 1983/1984 luku fleiri
konur en karlar stúdentsprófí. Kon-
MMnCI
ur munu og í meirihluta meðal
þeirra er stunda nám við Háskóla
Islands.
úr OCKS
[MiKáffifflíB mimdiw
sögusatm Hitchcoc
•n miííi Rioiiua'
agripuhpigmeliartokum
íhverri
ALFREÞ ^
WÍTCHCOCK
annarri í pessu einstæoa
smásagnasafni.
Magnprungm bok sem
heldur fyrir manni
vöku.
TMABÆR