Morgunblaðið - 06.12.1986, Page 76

Morgunblaðið - 06.12.1986, Page 76
76 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986 „Víáeigurr\ 72, myndir -fVá brúákuupinu okkflr 05 hönw erekki á neinni þeirra." * Ast er ... ___þóknast hvort öðru. TM Reg U.S. Pat. Off.-all rlghts reserved <D 1986 Los Angeles Times Syndicate Já, en þú fékkst líka ljósbaðiú fyrir hálfvirði . .. HÖGNI HREKKVlSI Með morgnnkaffínu Hægan! Hægan! Það er bara vindhaninn sem er bilaður! Heiðingjar eða hvað? „Hvers vegna er ekki hægt að fá þessa dýrindis vöru á sanngjörnu verði í framleiðslulandinu?“ spyr bréfritari. Hvar má fá salt- síld á eðlilegu verði? Hvar getur almenningur keypt saltsíld á eðlilegu verði? Þrátt fýrir nokkra leit hefur mér ekki tekist að fínna venjulega saltsíld á skikkanlegu verði. Ég meina svona 10 kg eða jafn- vel 25 kg kúta af venjulegri saltsíld eða kiyddsíld. í Hagkaupum fæst að vísu saltsíld (flök) í lausu á 125,00 kr. kílóið. Það er of dýrt. Það vilja margir ábyggilega sjálfir flaka sína sfld eða vinna hana að eigin geðþótta. Hvers vegna er ekki hægt að fá þessa dýrindis vöru á sanngjömu verði í framleiðslulandinu. Það á að leyfa fólki að spara. Til dæmis allir þeir sem rækta sínar eigin kartöflur sjálfir — þeir eru með því að spara. Hagstæð innkaup á ýmissi matvöru í stærri skömmtum, sem hagkvæmt er að geyma, er líka af hinu góða til að spara. Það hlýtur að vera einhvers staðar hægt að fá sfld á eðlilegu verði, en hvar? Vonandi getur Velvakandi leitt okkur síldarelskendur á sporið. Einhver síldarsaltandi ætti að koma á heimamarkaðinn 10 kg kútum á fram- leiðsluverði. Síldin er alls ekki dýrt hráefni. Margt fleira af góðri íslenskri mat- vöru er allt of dýrt í smásölu. Til dæmis má taka hvalkjötið. Það ætti ekki að þurfa að kosta hátt á annað hundrað krónur kílóið. Fólk sem vill og kann að spara verður að geta fengið til dæmis fisk, nýjan ferskan eins og hann kemur fyrir, en ekki bara roðflettan, skorinn og ég veit ekki hvað á uppsprengdu verði, sem endalausir milliliðir eru að plokka af okkur. Skrif ið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 17 og 18, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Með- al efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttar- ins, þó að höfundur óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina þvi til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Nýlega hafa séð dagsins ljós svonefnd jólafrímerki frá Póst- og símamálastjórninni. Á bréfum og kortum, sem fólk fær erlendis frá sem jólakveðjur, eru þessar sendingar venjulega frímerktar með jólafrímerkjum við- komandi lands, sem eru ávallt með einhverju trúar- eða kirkjulegu myndefni, tileinkað jólahátíðinni. Hér hefur íslenska póststjórnin skapað sér algera sérstöðu í virðing- arleysi fyrir kristinni trú, með útgáfu jólafrímerkja síðasta árs og þó sérstaklega nú í ár. Á 10 kr. merkinu eru sjáanlegir 2 sjálfblekungar, að þvi er virðist, en á 12 kr. merkinu eitthvað, sem líkist helst lim á mannslíkama, ekki vantar skræpulitina. Hér áður fyrr voru sagnir af því, að þegar negrun- um í Afríku voru gefnar litskrúðug- ar flíkur, þá veltust þeir um af hlátri og ánægju yfir dásemdinni. Nú eru þeir orðnir þroskaðri og sögur þessar tilheyra liðinni tíð. Eflaust verða einhverjir hrifnir af þessu litaflúri, en það er bót í máli að hinir eiga kost á öðrum merkjum á jólapóstinn, einu eða tveim saman, og hefur þá hver sitt. Kristinn Basar - Núll Eg fór á basar þann 8. nóvember í Hallveigarstöðum, ég varð það sein fyrir að konurnar voru famar að pakka saman. Ég fór beint í happadrættið og keypti fyrir nokk- uð hundruð krónur eins og ég ef vön, en ég fékk ekkert nema núll, en borðið var fullt af vörum, mat og öðru. Ég þykist vita að konumar skifti á milli sín ef eitthvað er eftir, en þetta varð ansi stór skammtur. Á nokkuð að verða eftir? Á ekki að vera ákveðið hlutfall á milli núlla og vinninga? Skemmið ekki góðan málstað. Kona Víkyerji skrifar Almennt má segja, að það sé fremur lítið um óvænt tíðindi í íslensku stjómmála- og viðskipta- lífi. Þar ganga hlutirnir yfirleitt sinn vanagang. Þótt aðilar vinnumark- aðarins takist á vita allir, að þeir hljóta að ná samkomulagi fyrr en seinna. Allir vona, að það gerist án verkfalla. Allir vilja, að samið verði án þess að efnahagsstarfsemin fari úr skorðum eða verðlag úr böndum. Pólitískar hræringar em nú mældar reglulega í skoðanakönnunum og með prófkjörum em teknar ákvarð- anir um skipan manna á framboðs- lista. Fastheldni á það, sem fyrir er, setur mjög mikinn svip á þjóðlíf- ið. Þegar rætt er um breytingar er oftast tiltölulega auðvelt að hræða menn frá að gera þær. Til marks um, hve langan tíma getur tekið að hrinda breytingum í framkvæmd, má nefna endurskipu- lagningu bankakerfisins. Nú þegar loks liggja fyrir ákveðnar tillögur um málið frá Seðlabanka, er með alls kyns undanbrögðum leitast við að drepa því á dreif. Eftir allt sem á undan er gengið veit í raun eng- inn enn, hvernig málinu lyktar. xxx Ef til vill em bönd vanans og fastheldninnar að losna. Úr nýlegum fréttum má nefna tvennt því til stuðnings. í fyrsta lagi söl- una á meirihluta hlutaíjár í Olís. Hún virðist til að mynda hafa kom- ið viðskiptabanka félagsins, Lands- bankanum, í opna skjöldu. Áður hafði verið skýrt frá, að fyrir til- stilli bankans hefðu farið fram viðræður um að Skeljungur hf. keypti Olís. Af því varð ekki. Þá kom nýr, óþekktur aðili skyndilega til sögunnar og eignaðist á skömm- um tíma, að því er virðist, meiri- hluta í OIís. Starfsfólk lánardrottn- ar og skuldunautar fyrirtækisins standa frammi fyrir orðnum hlut og sömu sögu er að segja um keppi- nautana. Þessi þáttur íslensks atvinnulífs hefur verið < föstum skorðum vanans og skjóli ríkisins um langt árabil. Söguleg og óvænt umskipti em kannski að verða. xxx. Seinna dæmið, sem hér skal tek- ið, um óvæntan atburð eru fréttirnar af því, að Reykjavíkur- borg vilji selja ríkissjóði Borgarspít- alann. Starfsmenn spítalans með lækna í broddi fylkingar hafa risið upp og andmælt hugmyndum um þetta. Læknaráð „lýsir furðu sinni á gerræðislegum og fljótvirknisleg- um vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið við undirbúning að sölu spítal- ans, þar sem umræður hafa farið fram og ákvarðanir teknar án þess að starfsfólk hafi verið haft með í ráðum eða upplýst um hvað til stæði." Þessi harðorðu viðbrögð einkenn- ast af tregðulögmálinu. Þeir, sem ekki þekkja til málsins, gætu hald- ið, að fyrir dymm stæði að leggja spítalann niður. Svo er þó ekki. í stað þess að Reykvíkingar eigi spítalann á hann að verða eign þjóð- arinnar allrar, sem stendur undir kostnaðinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.