Morgunblaðið - 06.12.1986, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 06.12.1986, Blaðsíða 80
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Reykjanesbraut: Fimm manns á slysadeild eftir harðan árekstur Góður skriður á samningaviðræðum ASÍ, VSÍ o g VMS: Kaupmáttur lágmarkslauna hækkar um 30% milli ára Morgunblaðið/Júlíus Báðir bílarnir skemmdust mikið við áreksturinn. ______________________________________________________________________________. bónus færður inn í fastakaupið, sem nemur hækkun lágmarkslauna. Þá verði kjararannsóknir efldar til þess að fylgjast með þróun raunverulega greiddra launa. Með þessum samningi telja samningsaðilar að efnahagslegur ávinningur síðustu kjarasamninga sé tryggður. Forsenda samningsins er að verðbólga verði 7-8% á næsta ári og genginu haldið stöðugu. í erindi aðila vinnumarkaðarins til ríkisstjórnarinnar er lagt á það áhersla að stjómvöld ábyrgist að opinberar hækkanir og ný skatt- lagning leiði ekki í heild til hækkana umfram hækkanir á almennu verð- lagi og að hækkunum búvara verði haldið innan sömu marka. Dregið verði úr erlendum lántökum og að- haldssamri stefnu fylgt í peninga- málum. Fjárhæðir bóta almanna- trygginga verði hækkaðar og ríkisstjómin komi í veg fyrir að Aðilar vinnumarkaðarins fremur ánægðir með svör ríkisstj órnarinnar GOÐUR skriður var á samningaviðræðum ASÍ, VSÍ og VMS um miðnættíð I nótt, eftír að búið var að leysa þann hnút sem í gærdag kom á viðræður vinnuveitenda við landssambönd innan ASÍ. Enginn vildi fullyrða neitt um hvenær nýr kjara- samningur yrði tilbúinn tíl undirritunar, enda geta ný ágrein- ingsatriði risið eftir því sem samningaviðræðunum miðar og ýmis atriði skýrast. Samningamenn voru langþreyttir, enda höfðu þeir setíð linnulítíð við samningagerðina í 36 stundir og ekki séð fyrir endann á henni ennþá. „Við munum reyna til þrautar í nótt, hvort ekki gangi saman, þó ekkert sé hægt að fullyrða um það á þessari stundu," sagði Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ. „Ég er fremur bjartsýnn. Það er ágætis skriður á þessu núna, en það er ómögulegt að segja hvort eitthvað kemur upp sem veldur erfíðleikum," sagði Gunnar J. Friðriksson, for- maður VSÍ. í sama streng tók Þorsteinn Ólafsson, formaður VMS. Aðilar vinnumarkaðarins gengu á fund ríkisstjómarinnar f gærdag og afhentu henni erindi um aðgerð- ir í efnahags-, verðlags- og skatta- málum. Eftir ríkisstjómarfund seinnipartinn f gær, sagði Steingrímur Hermannsson, forsæt- isráðherra, að ríkisstjómin gæti í grundvallaratriðum fallist á það sem fram kemur í erindinu. Aðilar vinnumarkaðaríns sögðu í gær- kveldi að þeir væm fremur ánægðir með svör ríkisstjómarinnar. Samkvæmt samningsdrögum á milli aðila eykst kaupmáttur lægstu launa um 30% á milli ára og verður á næsta ári rúmlega sá sem hann var á árinu 1980. í drögunum er gert ráð fyrir að frá og með 1. desember verði almenn lágmarks- laun 26.500 krónur og lágmarks- laun iðnaðarmanna 35.000. Gert er ráð fyrir þremur áfangahækkun- um á næsta ári. Almenn lágmarks- laun hækka um 500 krónur 1. mars, 1. júní og 1. október og verða þá 28.000. Lágmarkslaun iðnaðar- manna hækka í 35.700 krónur 1. mars, í 36.200 1. júní og í 36.800 krónur 1. október. Álag á laun er utan þessara talna. Miðað við það að kaupmáttur lægstu launa hafí verið að meðaltali 100 árið 1980, þá var hann 77,8 að meðaltali á þessu ári og verður 101,1 á næsta ári, ef þessi atriði ganga fram í nýjum kjarasamningi. „Þetta er sex ára gamall draugur sem við erum , Morgunblaðið/RAX Asmundur Stefánsson, forseti ASÍ, gerir aðalsamninganefndinni grein fyrir stöðu máia í gærkvöldi. Á innfelldu myndinni sitja fulltrúar vinnuveitenda við spil meðan beðið er tíðinda frá viðsemjendum. að berjast við að kveða niður,“ sagði einn samningamanna í samtali við Morgunblaðið um þessa tilraun til þess að hækka lægstu launin sér- staklega umfram önnur laun. Almenn laun hækkuðu um 4,59% 1. desember síðastliðinn. Sam- kvæmt samningsdrögunum er gert ráð fyrir að almenn laun hækki um 2% 1. mars næstkomandi, 1,5% 1. júní og aftur um 1,5% 1. október. Þá mun launanefnd starfa áfram og meta áhrif verðlagsþróunar á laun. Samningstíminn var ófrá- genginn um miðnætti í nótt. Vinnuveitendur vilja að samningur- inn gildi til árs, en hugmyndir eru um það innan Alþýðusambandsins að samningurinn gildi til haustsins. I samningsdrögunum er gert ráð fyrir að núverandi kauptaxtakerfí verði lagt niður og nýtt launakerfí byggt upp í fastlaunasamningum. Bónuskerfín verði stokkuð upp og framleiðsluhömlur og verðstýring verði sett á framleiðslu eggja og kjúklinga. Kartöfluskattur verði afnuminn og ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að lögbundinn verði réttur Kjararannsóknanefndar til öflunar upplýsinga. Samningsaðilar leggja áherslu á að skattakerfið verði einfaldað og tekin upp staðgreiðsla skatta. Frá- dráttarliðir verði afnumdir og í stað þeirra teknir upp sérstakir skatta- afslættir. Skattleysismörk miðist við 30 þúsund króna mánaðarlaun og skatthlutfall lækki verulega frá því sem það er að hámarki nú. Skatteftirlit verði hert. Sjá ennfremur erindi viðræðu- nefnda ASÍ, VSÍ og VMS um breytingar á tekjuskattskerf- inu og verðlags- og efnahags- mál á bls. 34-35 og viðtöl við forsætis- og fjármálaráðherra á bls. 2. FIMM manns, þrjár konur og tveir karlmenn, voru flutt á slysadeild eftir mjög harðan árekstur á Reykjanesbraut i gærdag. Konurnar þijár slös- uðust alvarlega i árekstrinum. Slysið varð á móts við Pólarlax er tveir fólksbílar lentu þar saman eftir að bfllinn, sem var á suður- leið, hafði farið framúr öðrum bfl. Þrennt var í öðrum bflnum en tvennt í hinum og slasaðist fólkið allt við áreksturinn. Ekki var vitað nánar um líðan fólksins er Morgunblaðið leitaði upplýs- inga þar að lútandi í gærkvöldi. Bflamir eru báðir mikið skemmdir eftir áreksturinn. Rannsóknarlög- reglan í Hafnarfírði óskar eftir að ná tali af ökumanni gula jepp- ans, sem ekið var fram úr er áreksturinn varð. Kjúklingabændur vilja kvótakerfi Deilur á meðal eggjaframleiðenda KJÚKLINGABÆNDUR hafa óskað eftir því við landbúnaðar- ráðherra að settur verði kvóti á framleiðslu kjúklingakjöts. Ein- hugur er í þeirra röðum um þessa ósk. Meirihluti eggjaframleið- enda hefur einnig óskað eftir kvótaskiptingu eggjaframleiðsl- unnar, en miliill ágreiningur er um málið í þeirra röðum. Drög að reglugerð um stjómun alifuglaframleiðslunnar hafa verið samin í ráðuneytinu og liggja nú á borði ráðherra til ákvörðunar. Jón Helgason hefur lýst því yfír að hann vilji fara að ósk framleiðenda við ákvarðanir sem þessar. Jónas Halldórsson formaður Fé- lags kjúklingabænda sagði í gær, að kvótaskipting framleiðslunnar væri eina leiðin út úr þeim ógöngum sem atvinnugreinin væri komin í vegna offramleiðslu. Hann sagði að kvótinn gæti orðið til þess að kjúklingabændur gætu notað hluta af því fóðurgjaldi sem þeir greiddu til að gera útflutning umfram- framleiðslunnar til Noregs mögu- legan. Geir Gunnar Geirsson á Vallá er einn þeirra eggjabænda sem leggj- ast gegn eggjakvótanum. Hann segir að þeir eggjabændur, sem em á móti kvótaskiptingu eggjafram- leiðslunnar, séu með meirihluta framleiðslunnar á sínum höndum. Hann vonaðist til að verkalýðs- hreyfíngunni tækist að stöðva landbúnaðarráðherra í að setja at- vinnugreinina undir stjóm. Sjá einnig á blaðsíðu 45. 18 DAGAR TIL JOLA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.