Morgunblaðið - 06.12.1986, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986
Okkar vinsæla villibráðakvöld verður
föstudags- og laugardagskvöld í Blómasal
Hótels Loftleiða.
Forréttir:
Hreindýrapaté með ávaxtasósu
eða
Villibráðaseyði með rifsberjum og sveppum
Aðalréttir:
Smjörsteikt rjúpubringa með villibráðasósu
eða
Heilsteiktur hreindýravöðvi með Kvannarótasósu
eða
Ofnsteikt villigæs með Waldorf salati
Eftirréttir:
Heit bláberjakaka með rjóma
eða
Kampavíns kryddað ferskt ávaxtasalat
og að sjálfsögðu okkar rómaði sérrétta matseðill.
Sigurður Þ. Cuðmundsson leikur Ijúfa tónlist
fyrir matargesti.
Borðapantanir í síma 22322 — 22321
HÓTEL LOFTLEIÐIR
FLUCLeiDA/mr hótel
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Glerlistaverkið Straumhvörf sem sett hefur verið upp í húsi Iðnaðarbankans á horni Vonarstrætis og
Lækjargötu.
Iðnaðarbankinn set-
ur upp glerlistaverk
IÐNAÐARBANKINN hefur látið stækka og breyta húsnæði sínu við
Lækjargötu og er ein breytingin sú að komið hefur verið fyrir gler-
listaverki eftir Sigríði Ásgeirsdóttur myndlistarmann í þeim glugga
hússins sem snýr út að Vonarstræti. Listaverkið heitir Straumhvörf
og er 12 fermetrar að stærð.
„Ég notaði mest liti Iðnaðarbank-
ans, grátt, hvítt og rautt, í þessu
verki, og lagði út af þeim breyting-
um sem orðið hafa á bankastarf-
semi á tölvuöld. Það má einnig finna
samsvaranir við tölvur í heiti verks-
ins þó það sé óhlutbundið í sjálfu
sér,“ sagði Sigríður Ásgeirsdóttir
þegar Morgunblaðið spurði hana
um listaverkið.
Vinnsla verksins hefur tekið
nokkra mánuði og vann Sigríður
það í vinnustofu sinni í Hafnar-
húsinu, þó hún segi það sjaldgæft
að hún vinni sjálf svona stór verk
hér á landi. Sigríður hefur gert gler-
listaverk fyrir fleiri íslensk fyrir-
tæki, þar á meðal Sparisjóð
Reykjavíkur og nágrennis, Borg-
arspítalann og smáréttabúðina
Frost og funa. Á námsárum sínum
í Skotlandi vann Sigríður meðal
annars samkeppni um gerð lista-
verks í kapellu kvennafangelsisins
í Stirling.
„Gler er eins og hvert annað efni
sem listamaður velur sér til að vinna
með,“ sagði Sigríður aðspurð. „Gler
er miðill sem byggir á ljósinu sem
fellur í gegn um það. Glerverk eru
aldrei eins því birtan er alltaf mis-
munandi, og því eru þetta alltaf ný
og ný verk, sem gerir þennan list-
miðil spennandi.“
Skipt hefur verið um allar inn-
réttingar í húsi Iðnaðarbankans og
eru þær nýju íslensk smí’ði. Ýmir
á Akureyri smíðaði gjaldkerastúk-
umar, og skrifborð og stólar eru
frá Kristjáni Siggeirssyni hf. Gunn-
ar Magnússon innanhúsarkítekt sá
um breytingamar.
Hlaut vís-
Myndarleg
Jolakort
Jólakortin bera innilegar
jólakveðjur til ástvina
um allan heim. Falleg og
persónuleg Ijósmynd með
jólakortinu gefur kveðjunni
meira gildi
og er
ánœgjulegra.
Við bjóðum jólakort með
stórri litmynd (10x15 sm),
eftir þinni fyrirmynd og
með nœgu plássi inni í
fyrir ,jstóra“ jólakveðju.
o-— Kort, mynd
Tþi FRAMKÖLLUN
ulporn kostar 30 kr.
AUSWfíSTRÆn 22 - S 621360
Vélin gefur Ijósmerki þegar Sérstakl Ijós kviknar
nauðsynlegt er að nota flass. þegar flassið er tilbúid.
Öruggt handgrip
minnkar hœttuna á
hreyfðum myndum
Valroft fyrir mismunandi
filmur 100,200og 400 ASA
GóÓ mvnrtíivél
Framan á linsunni
er öryggishllf sem
slekkur á vélinni.
4 litir, svart, rautt, gvllt, bleikt. Þessi fallega myndavél og allt
Nett og þægileg h fðar- sem henni fylgir kostar aðeins
taska fylgir ........... 2.800. kr.og
með hverri CD A # # #A# hún er med
myndavél. * * ^JAiwamWJm M % ##W árs ábyrgð.
wi ATViamiaiaif
AUSWRSTRÆn 22 - S 621350
(Sendum í póstkröfu)
indastyrk
ALEXANDER von Humbolt-
stofnunin í Bonn hefur nýlega
veitt prófessor Þór Whitahead
hinn eft.irsótta vísindastyrk
stofnunarinnar.
Próf. Þór mun starfa að vísinda-
störfum sínum í háskólabænum
Preiburg í Breigau.
Próf. Þór Whitahead.
VJterkur og
k J hagkvæmur
auglýsingamiðill!