Morgunblaðið - 06.12.1986, Page 28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986
Helmingur utanríkisviðskipa Is-
lands er við Evrópubandalagið
Mikilvægl að koma íslenskum sjónarmiðum á framfæri
eftir Matthías A.
Mathiesen
í inngangi að skýrslu um utanrík-
ismál, sem rædd var á Alþingi 15.
apríl sl., komst ég þannig að orði,
að nauðsynlegt væri af viðskiptaá-
stæðum að fylgjast mjög náið með
málefnum Evrópubandalagsins, _en
helmingur utanríkisviðskipta ís-
lendinga væri við bandalagið eftir
að Spánn og Portúgal gerðust aðil-
ar að því. Eg lagði til, að hið fyrsta
yrði hafist handa um mörkun fram-
tíðarstefnu gagnvart stórauknu
stjórnmálalegu og efnahagslegu
samstarfí ríkja EB, þar sem sérstök
hliðsjón skyldi höfð af yfírlýsingu
EB og EFTA-landanna í Lúxem-
borg í apríl 1984.
Það varð að ráði, að fyrst í stað
skyldi unnið að eflingu skrifstofu
fastafulltrúans hjá EB og af hálfu
utanríkisráðuneytisins var kannað
hvemig best yrði staðið að því.
Niðurstaðan varð sú, að opna sér-
staka skrifstofu við sendiráð íslands
í Brussel, sem hefði það viðfangs-
efni, auk þess að annast samskiptin
gagnvart Belgíu og Lúxemborg, að
fylgjast grannt með framvindu
málefna Evrópubandalagsins og
koma þar á framfæri íslenskum
sjónarmiðum um leið og þess gerð-
ist þörf. Þessi skrifstofa verður
opnuð hinn 10. desember nk. í þess-
ari grein mun ég víkja að nokkrum
atriðum, sem ég tel að skipti máli
í þessu sambandi.
Að efla viðskipti við
320 milljönir neytenda
Á fundi leiðtoga EB-ríkjanna í
Mílanó í júní á síðasta ári var sam-
þykkt áætlun, sem miðar að því að
ríkin 12 verði orðin að einum mark-
aði á árinu 1992. Fyrir þann tíma
er stefnt að afnámi hvers kyns tak-
markana á viðskiptum ríkjanna og
aukinni samhæfíngu, td. varðandi
tolla og önnur aðflutningsgjöld
gagnvart utanaðkomandi aðilum,
sem vilja flytja vöru og þjónustu,
eða eiga önnur viðskipti við þennan
risastóra markað 320 milljóna neyt-
enda.
Með sameiningu ríkjanna 12 á
viðskiptasviðinu er stefnt að því
marki, að evrópsk fyrirtæki verði
betur í stakk búin til að keppa á
heimsmörkuðunum við helstu sam-
keppnisaðiia sína frá Japan og
Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Þessi fyrirhugaða sameining er
mun víðtækari en áður hefur þekkst
milli svo margra sjálfstæðra ríkja
og er þáttur þess draums margra
Evrópumanna að álfan, eða flest
ríki hennar, verði að lokum ein
heild, einnig í stjómmálalegum efn-
um.
Vissulega þurfa ríki EB að
yfirstíga margvísleg vandamál áður
en þessu marki verður náð, en hinu
er ekki að neita, að þetta er stefna
aðildarríkjanna og væntanlega
verður hún að veruleika, að því er
viðskiptin snertir, einhvem tíma á
næsta áratug. Það er mikilvægt,
að menn átti sig á því sem í þessu
felst, hér yrði ekki aðeins til stærsti
markaður fyrir vörur og þjónustu,
eins og við þekkjum af núverandi
fríverslunarsamstarfí Evrópuríkja,
heldur yrði EB að svæði án landa-
mæra í bókstaflegum skilningi.
Sameiningin mun því hafa margvís-
legar stjómmálalegar afleiðingar,
sem erfítt er að sjá fyrir á þessari
stundu. En meðal þátta, sem sam-
einingin mun vafalaust snerta, eru
t.d. öryggis- og vamarmál.
Meðal þeirra efnahagslegu þátta,
sem nú er unnið að innan EB, em
t.d. samræming skatta og tollalaga
og sameiginlegt mynt-svæði. í
framtíðinni munu evrópsk fyrirtæki
auka samvinnu sín á milli og það
verður auðveldara að láta markaðs-
lögmálin ráða, en það mun þegar
fram líða stundir leiða til aukinnar
framleiðni og verkaskiptingar.
Þetta er þó vitaskuld framtíðar-
sýn, sem auk þess hefur meiri
þýðingu fyrir ríkin innan EB heldur
en ríki, sem standa utan þess. Eigi
að síður er mikilvægt að ríki utan
bandalagsins fylgist vel með fram-
vindunni og marki sér stöðu
gagnvart henni.
Sérstaða EFTA-ríkj-
anna utan Evrópu-
bandalagsins
Ýmsar ástæður valda því, að
ríkin sem standa að EFTÁ kjósa
sér framtíð utan Evrópubandalags-
ins. Hvað Islendinga snertir ræður
þar mestu sérstaða framleiðslunnar
og fámenni landsins. Hins vegar
eru Islendingar evrópsk þjóð og sem
slíkir viljum við eins náin og greið
samskipti við álfu okkar og mögu-
legt er, án þess að fóma í nokkru
fullveldi okkar og ráðstöfunarrétti
á gæðum lands og sjávar.
Ónnur EFTA-ríki hafa svipaða
stöðu. Þetta eru fremur fámenn ríki
sem búa við góð lífskjör og eru því
f heild góður markaður fyrir önnur
ríki Evrópu. Það eru því sameigin-
legir hagsmunir, sem ráða því að
bandalögin tvö hafa myndað með
sér svo náin samskipti, sem raun
ber vitni. Þess má geta td., að íbú-
ar EFTA-ríkjanna eru nú aðeins
um 0,7% af íbúum heimsins en þessi
ríki eiga um 5% af heildarútflutn-
ingi og um 5% af heildarinnflutningi
í heimsviðskiptum, samkvæmt
áætlunum OECD. Flest ríkjanna
eru mjög háð utanríkisviðskiptum,
td. ísland, en u.þ.b. helmingur þjóð-
arframleiðslu okkar fer í útflutning.
Samstarf við EFTA og
EB til mikils ábata
fyrir Island
Við inngöngu íslands í EFTA
fyrir 15 árum réð mestu sú hugs-
un, að nauðsynlegt væri „að skjóta
fleiri stoðum undir atvinnulífíð", svo
vitnað sé til gamalkunnugs orða-
lags. Felldar voru niður í áföngum
ýmsar hömlur á iðnaðarvöru frá
öðrum aðildarríkjum og um svipað
leyti voru gerðir tvíhliða samningar
um fríverslun iðnaðarvara við EB.
Þetta átti að auðvelda okkur að
keppa við aðrar þjóðir á nýjum svið-
um framleiðslunnar. Þetta samstarf
hefur verið okkur til mikils ábata,
enda hefur verið tekið tillit til sér-
stöðu í framleiðslu þjóðarinnar og
við fengið niðurfellingu tolla á okk-
ar útflutning, sem að mestu er
sjávarafurðir, þótt fríverslunarsam-
starfíð miðist að öðru leyti og
almennt við iðnaðarvörur.
Ég vil geta þess hér, að það var
viðreisnarstjómin sem á sínum tíma
markaði þessa framsýnu stefnu
gagnvart samstarfí ríkja Evrópu. í
tíð þessarar ríkisstjómar hefur
síðan verið byggt á þeim grunni og
nýjasta dæmið er ákvörðunin um
að efla og treysta samskiptin við
EB með opnun sérstakrar skrif-
stofu.
íslendingar á verði
í viðskiptaþróun EB
Meðal þeirra atriða sem huga
þarf að gagnvart Evrópubandalag-
inu eru samskipti hinna tveggja
fríverslunarsvæða í Evrópu, þ.e. EB
og EFTA, en samskiptin þar á milli
hafa jafnan verið mjög náin og
góð. Eftir að Bretar og Danir gengu
úr EFTA og í EB snemma á síðasta
áratug voru gerðir tvíhliða fríversl-
unarsamningar milli bandalagsins
og hvers EFTA-ríkis, eins og minnst
var á hér að framan. Samstarfíð
var enn treyst á sameiginlegum
fundi ráðherra EFTA- og EB-ríkja
í Lúxemborg fyrir tveimur árum,
þar sem lýst var yfír vilja til að
færa samvinnu samtakanna út fyrir
fríverslunarsamninga, svo hún nái
einnig t.d. til orkumála, efnahags-
mála, samgangna og umhverfis-
mála. Á fundinum var rætt um
ýmsar vemdaraðgerðir aðrar en
tolla, t.d. ríkisstyrki og aðrar óbein-
ar viðskiptahindranir í vegi þeirra,
sem vilja eiga viðskipti við ríki EB.
Miklir hagsmunir í húfi
í þessum efnum verða íslending-
ar ávallt að vera vakandi ekki síst
vegna sérstöðu sinnar og einhæfs
útflutnings. Valdamiklir aðilar inn-
an bandalagsins vilja tengja saman
viðskiptafríðindi og fískveiðirétt-
indi, þannig að togarar frá banda-
lagsríkjunum fái að veiða á
íslandsmiðum í staðinn fyrir niður-
Matthías Á. Mathiesen
0
„Ymsar ástæður valda
því, að ríkin sem standa
að EFTA kjósa sér
framtíð utan Evrópu-
bandalagsins. Hvað
Islendinga snertir ræð-
ur þar mestu sérstaða
framleiðslunnar og fá-
menni landsins. Hins
vegar eru Islendingar
evrópsk þjóð og sem
slíkir viljum við eins
náin og greið samskipti
við álfu okkar og mögu-
legt er, án þess að fórna
í nokkru fullveldi okkar
og ráðstöfunarrétti á
gæðum lands og sjáv-
ar.“
fellingu tolla eða annarra viðskipta-
hindrana. Sú afstaða lá að baki
deilunnar sem reis á milli íslands
og EB fyrir tveimur árum þegar
bandalagið hugðist fella úr gildi
einhliða tollaniðurfellingu banda-
lagsins á innfluttum saltfíski,
saltfískflökum og skreið, í tengslum
við aðild Spánar og Portúgals. að
bandalaginu. Slík ráðstöfun hefði
haft mjög alvarleg áhrif og þýtt að
saltfískur og skreið lenti í allt að
13% tolli en saltfískflök í allt að
20% tolli. Þessar vörur hafa verið
tollfrjálsar allt frá 1971 og þess
má geta að útflutningurinn, sem
hinn fyrirhugaði tollur átti að taka
til, nemur á milli 10 og 15% af
heildarútflutningi Islendinga. Hér
eru því miklir hagsmunir í húfi, sem
tókst að leysa í þetta skipti, en
enginn vissa er fyrir því að slík
mál eða önnur sams konar geti
ekki komið upp á nýjan leik.
Að nýta samstarf á
sviði hátækni og visinda
Af framangreindum sökum hlýt-
ur mest að brenna á okkur sjálfum
gagnvart EB. Ríkisstjóm hefur full-
an skilning á því og hefur gætt
þess, að íslendingar geti nýtt sér
samstarf Evrópuríkja, t.d. á sviði
hátækni og vísinda, eins og nýleg
aðild að EUREKA er til vitnis um.
Að auki er með opnun framan-
greindrar skrifstofu hjá EB verið
að leggja grunn að bættum tengsi-
um við EB, en það er dæmi um
viðbrögð við þeirri stórauknu þýð-
ingu sem Evrópubandalagið mun
fá í framtíðinni. íslendingar hafa í
öllum meginatriðum staðið vel að
þessum málum til þessa, t.d. með
aðild sinni að EFTA og nú á að
bæta skilyrðin fyrir því, að svo
megi áfram verða.
Höfundur er utanríkiaráðberra.