Morgunblaðið - 06.12.1986, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986
OKKAR HJARTANS MÁLV
IÓLAGJÖF-
TÆKIFÆRISGJÖF?
LAUGARDAGINN 6. DES. N.k. MUNU
SÖLUBÖRN BANKA Á DYR ALLRA HEIMILA í REYKJAVÍK.
ÞAU MUNU BJÓÐA TIL SÖLU HEIMILISALMANAK ÁRSINS 1987 MEÐ
TEIKNINGUM EFTIR BRIAN PILKINGTON.
Ágóði af sölu almanaksins fer til að stuðla að lækningu hjartasjúkra og að
efla fræðslu um orsakir og afleiðingar hjartasjúkdóma.
TAKTU ÞVÍ VEL Á MÓTI SÖLUBÖRNUNUM.
VERTU MEÐ
LIONSKLÚBBURINN VÍÐARR.
Heilög Jó-
hanna á fjöl-
miðlafylleríi
eftir Sverri Einarsson
Síðastliðin 2—4 ár hefír Jóhanna
Sigurðardóttir valið það sem eitt
af sínum verkefnum á Alþingi ís-
lendinga að vinna að tannlækninga-
málum. Hún hefír jafnframt talið
það þjóna verkefninu best að
ástunda ofsóknir á hendur tann-
læknastéttinni með einhveiju óskil-
greindu ofstæki sem hefír byrgt
henni sýn og firrt hana allri glóru
gagnvart þessu vandamáli. Allan
þennan tíma hefír henni tekist að
komast hjá því að láta frá sér fara
eitt einasta jákvætt orð til tann-
læknastéttarinnar. Aldrei minnst á
það einu orði að líkur séu til þess
að íslendingar eigi eina best mennt-
uðu tannlæknastétt sem nokkur
þjóð getur státað af. Stétt sem legg-
ur stolt sitt í að koma upp hlýlegum
og notalegum tannlæknastofum,
stétt sem vinnur með bestu tækjum
sem hægt er að koma höndum yfir
og notar þau bestu efni sem fást á
hverjum tíma. í stað þess hefír Jó-
hanna tileinkað sér þá mynd sem
íslenskir fjölmiðlar hafa smíðað, þar
með taldir ríkisfjölmiðlar, og byggð
er á eindæmum og birt þjóðinni.
Tannlæknir í augum Jóhönnu er
orðinn stereotypa, einhvers konar
vélmenni, sem mætir til vinnu á
hveijum degi, kemur sér fyrir í
vinnustól, ýtir á takka sem setur
færiband í gang og færir honum
sjúklinga með fullan munninn af
peningaseðlum, en stendur upp
öðru hveiju til að telja peninga ofan
í ágræddan peningakassa, með svip
Fagins í andlitinu.
Þessi mynd svífur eilíflega fyrir
sjónum Jóhönnu. Þess vegna brosir
hún framan í sjónvarpsáhorfendur
þegar hún skýrir frá því að ein-
hveijir einstakir tannlæknar hafí
haft óeðlilega lág mánaðarlaun sl.
ár. Henni er það algerlega ofraun
að láta sér detta í hug að íslenskir
tannlæknar geti orðið fyrir bílslysi
og legið á sjúkrahúsi í 3 mánuði,
að tannlæknir geti dottið á hálku
og handleggsbrotnað, að atvinnu-
sjúkdómur dragi úr afköstum
þeirra, að tannlæknir geti orðið
áfengissýkinni að bráð, að tann-
læknir geti orðið ófrískur og verið
þess vegna frá vinnu, heldur ekki
að tannlæknar eldist og dragi úr
sinni vinnu. Þá er henni einnigfyrir-
munað að láta sér detta í hug að
ungir nýútskrifaðir tannlæknar sem
eru að koma sér fyrir í þjóðfélaginu
hafi ekki alltaf nóg að gera og
þaðan af síður að markaðurinn sem
bætir við sig 8—10 tannlæknum á
ári sé orðinn mettaður. Þess vegna
hlær Jóhanna. Jóhanna trúir því af
því það hentar vel í baráttunni að
140 þús. manns á aldrinum 17—67
ára séu allir í kös að betjast við
að komast í tannlæknastólinn, þó
tölur frá öðrum þjóðum, t.d. írum,
sýni að aðeins 34% þjóðarinnar
sæki tannlækni reglulega. Hún trú-
ir þessu þrátt fyrir að sjálf hafí hún
hamrað á þeirri kenningu, sem hún
nú hefir stungið undir stól, að laun
í landinu séu svo lág og tannlækn-
ingar svo dýrar að fáir hafí efni á
að fara til tannlæknis.
í hvert skipti sem Jóhanna ræðir
þessi mál tínir hún til tölur sem
þjóna þeim tilgangi fyrst og fremst
að ófrægja og níða tannlæknastétt-
ina. Þegar hún talar um launaþróun
tannlækna (árabil 1981—1985)
þykir henni henta að nota ranga
tölu enda þótt embættismaður sá
sem töluna reiknaði og hafa vill það
sem sannara reynist hafi leiðrétt
þessa tölu. Hún leikur sér að því
VARAHLUTIR
RÝMINGARSAIA
ÁTOYOTA VARAHLUTUM ÁRGERÐ 1979 OG ELDRI.
MJÖG GOTT
VERÐE
Opið á laugardögum frá kl. 10:00 - 13:00.
TOYOTA
NÝBÝLAVEGI 8 200 KÓPAVOGUR SÍMI: 91-44144
MS-basar
ogjólakort
MS-FÉLAG íslands er að
hefja sölu á jólakortum og
merkimiðum sem Snorri
Sveinn Friðriksson hefur
teiknað. Þetta er ein af fjár-
öflunarleiðum MS-félag-sins,
og vona félagsmenn að fólk
taki vel á móti sölubörnum
um helgina, segir í frétt frá
félaginu.
Árlegur kökubasar félagsins
verður haldinn í Blómavali Sigt-
úni, sunnudaginn 7. desember kl.
13.00. Kökum verður veitt mót-
taka frá kl. 12.00 sama dag.