Morgunblaðið - 06.12.1986, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986
GEFIÐ GÓÐAR
ÍÞRÓTTA-
VÖRURí
JÓLAGJÖF
| *
i * i
M ■
jr
Vattpeysur. Stærðir
3—9. Verð kr. 3.141.-
Aeróbikskór. Stærðir
36—42. Litur: hvítir,
svartir.
Lágir verð: 3.050.-
Uppháir: 3.428.-
Mjög mjúkt leður.
Úlpur. Verð frá
kr. 3.126.-
góðu verði frá
kr. 2.355.-
Karate- og júdó-búningar
Karate-búningar verð
frá kr. 2.285.-
Júdó-búningar, verð frá
kr. 2.203.-
Karate- og júdó-legg-
hlífar
Karate-töskur.
•Sendumí*
PÓSTKRÖFU
SPORTVÖRMRSLUN
JNGOLFS
ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 40.
A HORNIKLAPPARSTÍGS
og mrnsGöiu
S-.117S3
Dagblöð í Finnlandi:
Áhyggjur vegna rit-
skoðunar myndbanda
Helsinki, Reuter.
FINNSK dagblöð hafa lýst yfir
áhyggjum vegna frumvarps, sem
liggur fyrir þinginu, um að
stöðva sölu og leigu á mynd-
böndum, sem kvikmyndaeftirlit
finnska rikisins hefur bannað
börnum innan átján ára.
Þinglaganefnd samþykkti með
tólf atkvæðum gegn þremur að
banna ætti slík myndbönd bæði á
leigum og í verslunum til þess að
forða börnum frá ofbeldi í kvik-
myndum.
Ef þingheimur samþykkir frum-
varpið hefur það í för með sér að
hvorki verður hægt að kaupa, né
leigja mynbönd bönnuð bömum inn-
an átján ára til notkunar í heima-
húsum.
Stærsta dagblað Finnlands, Hels-
ingin Sanomat sagði í fyrirsögn
yfir frétt um málið: „Finnar verða
fmmkvöðlar í ritskoðun mynd-
banda“ og í leiðara sagði: „Bönn
og boð em framandi í þjóðfélagi
vorra daga.“
Kvikmyndaeftirlitið ákveður
hvort banna eigi myndir til sýninga
í Kvikmyndahúsum, en lítið eftirlit
er haft með myndbandamarkaðn-
um.
Dagblað jafnaðarmanna Sosialdem-
okraatti studdi þingnefndina í gær
en varað var við því að þrátt fyrir
að fmmvarpið yrði samþykkt mætti
áfram smygla myndböndum til
Finnlands og það gæti orðið upphaf-
ið að blómlegu svartamarkaðs-
braski.
Eigendur myndbandaleiga, sem
margar em á stöðum, þar sem lítið
er um kvikmyndahús, segja að
frumvarpið sé ósanngjarnt og kvik-
myndahúsum í hag.
Alnæmisrannsóknir í Svíþjóð:
NÝUPPGÖTVAÐ eggjahvítu-
efni, svonefnt „peptíð T“, kann
að reynast árangursríkt við að
hindra alnæmisveiruna í að
þrengja sér inn frumurnar, sem
hún leggst á.
Þetta nýja efni hefur verið reynt
í nokkra mánuði á fjórum langt
leiddum alnæmissjúklingum á Ro-
slagtulls-spítalanum í Stokkhólmi.
Hugsunin að baki er algerlega ný
af nálinni og hefur hvergi verið
gerð tilraun með hana annars stað-
ar í heiminum, segir Sven Britton
prófessor, yfírmaður á rannsókna-
stofu Roslagtulls-spítalans, í viðtali
við TT-fréttastofuna.
-í stað þess að reyna að koma í
veg fyrir að veiran fjölgi sér í lík-
amanum, eins og leitast hefur verið
við fram að þessu, leggjum við
áherslu á að hindra, að veiran nái
að þrengja sér inn í frumumar.
Hemur veiruna
Sú sérstaka aðferð, sem hér er
beitt, er alveg ný og byggist á niður-
stöðum bandarískrar grundvallar-
rannsóknar, sem enn hefur ekki
verið birt.
Peptíð T er eggjahvítuefni, sem
framleitt er eftir efnafræðilegum
aðferðum með því að líkja nákvæm-
lega eftir vissum efnasamöndum í
veiruhjúpnum - en efnasambönd
þessi virðast draga úr líkum á, að
veiran bindist fýrmefndum frum-
Tertan mældist 1.365,9metrar
- oghlýtursess hjá Guinness
Mynd þessi er tekin úr turni kirkju heilags Nikulásar í Örebro í
Svíþjóð, vinabæ Stykkishólms, og getur þar að líta lengstu tertu,
sem hingað til hefur verið bökuð í heiminum, 1.365,9 metra að
lengd. Tertunni var komið fyrir á 650 metra löngu borði á aðaltorgi
bæjarins sunnudaginn 23. nóvember sl., og er talið að um 20.000
manns hafi fengið sér kaffitár og gert þessum helgarglaðningi skil.
Milli svampkökulaganna var hindbeijasulta og smjörkrem og ofan á
vanillukrem, hnetuflögur og mandarínurif. Löggiltur mælingamaður,
fulltrúi Heimsmetabókar Guinness, veitti tertunni viðurkenningu,
áður en veislan hófst. Gamla metið var „aðeins“ 1.108 metrar.
Neil Kiimock í Bandaríkjunum:
Bandaríkj amenn lítt hrifn-
framgang veirumiar
Athyglisverðar til-
raunir til að hefta
Vongóðir
um árangur
Sven Britton og starfsfélagar hans
eru mjög bjartsýnir á, að þeir séu
á réttri leið, enda þótt þeir vilji
ekki tjá sig um árangurinn af þeim
tilraunum, sem þegar hafa farið
fram. En svo góður. er árangur
þeirra, að Britton ætlar að fara
fram á að fá að stækka sjúklinga-
hópinn, sem hann hefur til með-
ferðar.
-Niðurstöður þessara fyrstu til-
rauna benda til, að peptíð T geti
dregið úr möguleikum alnæmisveir-
unnar til að eyðileggja ónæmis-
kerfið, segir Lennart Wetterberg
prófessor, einn vísindamannanna, í
grein í sænska læknablaðinu.
Hefta næmi
frumnanna
Með því að hefta næmi frumn-
anna fyrir alnæmisveirunni getur
þetta nýja efni, að því er talið er,
komið í veg fyrir, að veiran þrengi
sér inn í þær frumur, sem veikastar
eru fyrir henni, en það á fyrst og
fremst við um frumur ónæmiskerf-
isins og heilafrumur.
Komið hefur í ljós, að ákveðnar
mikilvægar frumur í þessum hlutum
líkamans hafa sérstaka nema, sem
alnæmisvírusinn dregst að og binst.
Með því að gera nema þessa óvirka
getur peptíð T dregið verulega úr
getu veirunnar til að ráðast á frum-
umar.
ir af utanríkisstefnu
V erkamannaflokksins
Frá Valdimar Unnari Valdimarssyni, Lundúnum.
NEIL Kinnock, formaður breska
verkamannaflokksins, hefur
undafarna daga ferðast um
Bandaríkin og meðal annars
reynt að sannfæra þarlenda um
ágæti þeirrar stefnu Verka-
mannaflokksins að gera Bret-
land kjarnorkulaust. Svo virðist
sem Kinnock hafi ekki haft er-
ýidi sem erfiði.
Kinnock hefur farið víða um
Bandaríkin, haldið fyrirlestra í há-
skólum og víðar og reynt að veija
þá stefnu breska Verkamanna-
flokksins að losa Bretland við öll
kjarnorkuvopn og herstöðvar sem
þeim tengjast. Bandaríkjamönnum
er málið allskylt því að komist
stefna Verkamannaflokksins til
framkvæmda eru til dæmis horfur
á að bandarískar herstöðvar í Bret-
landi verði lagðar niður.
f
Stjómvöld í Bandaríkjunum hafa
varað við afleiðingum þessarar
stefnu breska Verkamannaflokks-
ins í afvopnunarmálum og það hefur
ríkisstjóm Margretar Thatcher
einnig gert. Sjálf sagði Thatcher til
dæmis í viðtali, sem birtist nú í vik-
unni í tímaritinu Jane’s Defense
Weekiy, að fyrirætlanir Verka-
Neil Kinnock
mannaflokksins um einhliða brott-
nám kjamorkuvopna yrði engum til
gagns nema Sovétmönnum. Sagði
forsætisráðherrann að með því að
gera Bretland lq'arnorkuvopnalaust
í samræmi við stefnu Verkamanna-
flokksins yrði stórt skarð höggvið
Neil Kinnock, formaður breska
Verkamannaflokksins.
í vamir landsins og byði slíkt til
dæmis heim margvíslegum þiýst-
ingi af hálfu Sovétmanna.
í Bandaríkjaför sinni hefur Neil
Kinnock gert sér far um að sann-
færa þá sem hann hefur hitt um
að stefna Verkamannaflokksins
muni á engan hátt stofna í voða
öryggi vestrænna þjóða né heldur
skaða samstarf. þe'irra á hemaðar-
sviðinu. Hefur hann lagt áherslu á
að með samhliða brottnámi kjam-
orkuvopna mundi ríkisstjórn
Verkamannaflokksins stórefla
hefðbundinn vopnabúnað Breta og
koma þannig í veg fyrir að þeir
stæðu berskjaldaðir gegn utanað-
komandi ógn.
Viðbrögð við málflutningi Neils
Kinnock vestanhafs gefa ekki til
kynna að honum hafi tekist að eyða
þeirri tortryggni sem fyrirætlanir
Verkamannaflokksins í afvopnun-
armálum, hafa vakið meðal ráða-
manna í Bandaríkjunum og annarra
sem láta sig þar mál þetta varða.
Óttast margir þar vestra að stefna
Verkamannaflokksins muni ekki
aðeins grafa undan styrk Atlants-
hafsbandalagsins heldur einnig
varpa skugga á hið nána samstarf
og gagnkvæma traust sem einkennt
hefur samskipti Bretlands og
Bandaríkjanna í öryggis- og vamar-
málum.