Morgunblaðið - 06.12.1986, Síða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1986
Minning - Guðmund
ur Kristjánsson frá
Borgamesi
Á köldum haustdegi barst frétt
um það handan yfir höfin blá, að
náfrændi minn og vinur, Guðmund-
ur Kristjánsson, söngvari frá
Borgamesi, hefði kvatt þennan
heim hinn 26. október sl., saddur
lífdaga, orðinn háaldraður (fæddur
1901) og farinn að heilsu. Hann
átti heima í heimsborginni miklu,
New York, þar sem hann hafði alið
meginhluta starfsævi sinnar, og
i ekki átt þess kost í hálfan sjötta
áratug að sjá aftur gamla landið
sitt, en að söng og tónlistamámi
loknu og nokkmm starfsferli í
ópemsöng í Evrópu auk Ameríku,
hafði hann hafið starfsferil í „nýja
heiminum" vestra, nokkm fyrir
1930.
Um þennan góðlynda og elsku-
lega frænda minn hefir verið Qarska
hljótt allar götur frá því er hann
ungur að ámm hvarf til framandi
landa til náms og til þess síðan að
keppa eftir þeim tækifæram, sem
hugurinn stóð til á sviði þeirrar list-
greinar — ópemsöngsins — sem
átti hug hans og hjarta. Sjálfur
verð ég að játa, að eftir að ég sem
unglingur hafði síðast séð hann
ásamt ungri, glæsilegri eiginkonu
sinni, Mary, árið 1931, er hann
síðast sótti landið sitt heim, hvarf
hann mér nánast sjónum.
Árin liðu — áratugir hurfu að
baki — frá Guðmundi fréttist lítið,
enda hann gert lítið til að halda á
lofti fregnum af sér hér heima og
um starfsferil sinn í hinu nýja
heimalandi, þótt mér hafi borist til
eyma einhvem tíma, að einhveijir
hér hafi eignast og e.t.v. eigi upp-
tökur af söng hans. — Margt mun
þó hafa drifið á daga Guðmundar
á þessum ámm og hann ekki setið
athafnalaus, heldur áorkað nokkm
og unnið sér orðstír þar vestra.
Þetta þekki ég samt ekki af eig-
in raun eins og greint er frá áður,
og verð ég því að láta öðmm eftir
að segja frá þeim hlutum í stómm
dráttum. í bréfi frá góðvini þar
vestra, rituðu við fráfall hans, seg-
ir „Hann fór frá íslandi til söng-
náms hjá Alexander Anthes í
Dresden í Þýzkalandi, og síðar
Giuseppi Anselmi og Femando
Carpi í Mílanó á Ítalíu. Hann réðst
til starfa að námi loknu hjá Madame
Gadskis German Grand Opera
Company, sem m.a. fór í sýninga-
ferðir til Bandaríkjanna og Kanada
(en hann var eini söngvarinn í þeim
flokki, sem ekki var Þjóðverji), og
þar fór hann með stærri tenórhlut-
verk, þetta mun hafa verið á
ámnum 1929—30 en nokkm síðar
sezt hann að í Chicago-borg, þar
sem hann er við konserthald og
kennslu. Þama kynnist hann konu-
efni sínu, Mary Bailey, píanókenn-
ara, og þar stofna þau til hjúskapar,
en hana missti hann árið 1970.
Eftir komu sína til New York
hafði hann aðsetur með stúdíó sitt
í Camegie Hall, en bjó hinsvegar í
West Greenwich Villiage, New York
City. Á stríðsámnum starfaði hann
á vegum Bandaríkjahers eins og
skyidan bauð, og þá mun hann
m.a. hafa ferðast um hemaðar-
svæðin í Kyrrahafinu vítt og breitt
á vegum deildarinnar US Camp
Shows og tekið þátt í sýninga- og
söngleikahaldi er deildin stóð fyrir.
Á ámnum 1947—48 mun hann
hafa verið aðstoðarprófessor og
stjómandi söngmenntar við Greens-
boro College School of Music,
Greensboro, North Carolina.
Til viðbótar þessum sundurlausu
brotum, liggur hjámér gamall pési,
sem gefur til kynna að Guðmundur
hafi komið víða við þar vestra. Um
tímann sem hann tekur til veit ég
lítið; get mér til tímabilið
1931—1940. Efnið segir nokkuð um
hvað Guðmundur hafði fyrir stafni
þar á listasviðinu, svo og hvemig
Guðmundur hefir komið listdóm-
endum, sem sóttu hljómleika hans
fyrir sjónir. Eftirfarandi er tekið
upp úr blöðum í New York: „Söngv-
amir vom heillandi (íslenzk ein-
söngslög) og svo var einnig um
rödd hins íslenzka tenórs, Guð-
mundar Kristjánssonar... hún er
sérstæð, björt og verkar sérlega
hrífandi." Henry Beckett, Post.
„Guðmundur Krístjánsson sýndi sig
að ráða yfír umtalsverðum lista-
mannshæfileikum og beitti hinni
björtu rödd sinni af listrænni fæmi
við túlkun á tónlist er spannaði allt
frá Handel og Carrissimi til Griegs
og Sibeliusar." Irving Kolodin, Sun.
„Hinn ljóðræni stíll ásamt ylhýrri
túlkun söngvarans komu músíkinni
og textanum til skila með aðlaðandi
hætti." Times. Þá em blaðadómar
frá Winnipeg í Kanada: Einar P.
Jónsson ritar í Lögberg: „Söngurinn
var eins og maðurinn sjálfur, ein-
lægur og yfirlætislaus... hin
ljóðræna innlifun leiftraði fram í
allri túlkuninni." Og í Svenska
Amerikanen segin „... Þetta var
smekkleg og fagmannleg söng-
skrá — og flutningurinn auð-
kenndist af aðdáunarverðri
framsögn, fáguðum hljómlistars-
mekk og fögm yfirbragði ljóðræns
þokka og tilfinningalegrar einlægni
í túlkun." segir Glenn Gillard í
Herald and Examiner, og þá ritar
Eklward Moore í Chicago Tribune:
„Guðmundur Kristjánsson, sem
sérstakiega hefir lagt fyrir sig
söngva eldri og yngri norrænna
tónskálda, getur státað af bæði
glæsilegri rödd og áhrifamikilli
túlkun."
Hér er aðeins drepið á örfá atriði
af fjölmörgum, sem þama koma
fram um frammistöðu frænda míns
og umsvif, en annað sem ekki er
rakið frekar hér er allt með sömu
ummerkjum — svo þetta verður að
nægja til að gefa nokkra innsýn í
æviferil Guðmundar sem mun flest-
um ókunnur — enda langt um liðið
frá þessum atburðum.
Um það hafði ég heyrt fyrr á
ámm, að hu'gur Guðmundar frænda
míns hefði þegar í æsku hneigst til
söngs og síðan söngnáms, og hafi
hann verið styrktur af velunnumm
til utanfarar, þar eð þeir höfðu trú
á hæfileikum hans. Mun hann þann-
ig hafa farið aðeins 19 ára að aldri
til Þýzkalands og stundað þar nám
í fimm ár og síðan 3 ár til viðbótar
á Ítalíu eins og áður er getið um.
— Mun hann hafa verið samskóla
þama og kynnst þeim þjóðkunna
öðlingi og góðvini sínum, Þórði
Kristleifssyni frá Stóra-Kroppi, sem
að loknu námi snéri heim aftur til
að hefja þar störf. Þá mun hann
einnig hafa kynnst þeim merka
söngfrömuði Sigurði Birkis og
tengst honum vináttuböndum á
þessum tíma, þótt ekki þekki ég
nánar til þar um. Og um samband
þessara tveggja vina við Guðmund
eftir þetta veit ég heldur ekki, þeg-
ar hann hafði lokið námi og hafið
störf í Evrópu við ópemsöng og
síðan að lokum sezt að í Banda-
ríkjunum, eins og vinur hans nefnir
að framan. Svo sem áður greindi,
hvarf frændi minn mér nánast sjón-
um ungum að ámm, og hafði ég
ekki um hálfrar aldar skeið hitt
hann, fyrr en ég átti þess kost fyr-
ir sem næst 7—8 ámm að heim-
sækja hann vestra, en þá
aldurhniginn og farinn að heilsu.
Eiginkonu sfna, Mary, hafði hann
misst fyrir allmörgum ámm eins
GOLFEFNIFYRIR JOI!
Útborgun eftir áramót!
Allir handhafar greiðslukorta [^] og Q gcta nú Qárfest í:
gólfteppum, mottum, gólfdúkum, parketi og gólfflísum tímanlega fyrir jól og greitt
útborgunina eftir áramót.
Eftirstöðvamar má svo greiða með hinum hagstæða
samningi, eða á skuldabréfí með greiðslukortatrygg
afborgunar-
ingu.
'J
m
1
I.
I Teppalandi . . .
. . . bjóðum vlð 5 ára skriflega slitþolsábyrgð
á fjölmörgum teppum. Blái stimpillinn tryggir
þér örugga endingu og þú færð undinritað
ábyrgðarskírteini.
Í Teppalandi . . .
. . . bjóðum við pottþétt og hentug skrifstofu-
teppi.
I Teppalandi . . .
. . . gerum við húsfélögum hagstæð tilboð í efni
og vinnu auk þess sem þau njóta vildarkjara. Sér-
hönnuð stigahúsa- og skrifstofuteppi.
í Teppalandi . . .
. . . er langmesta úrval af stökum teppum og mott-
nm í einni verslun hérlendis. Stðk teppi og mottur
i hundruðum lita frá 15 helstu framieiðendum
Evrópu.
í Teppalandi . . .
. . . er sérpöntunarþjónusta á einstaklega fallegum
glnggatjöidiim í hæsta gæðaflokki. Svissnesku
v efn a ða rv e r k s m i ðj u rn a r ets***j /„baumaim eru í
algjörum sérflokkl i framlelðslu gluggatjalda,
áklæða og ofinna veggefna. Afgreiðslufrestur er
venjulega aðeins 10—15 dagar.
í Dúkalandi . . .
. . . fást auðvitað gólfdúkar t.d. Extra 200 frá
Tarkett. Einstakur dúkur á geyslhagstæðu verði.
Dúkur sem þarf ekki að bóna.
Nýtísku litir og hefðbundin mynstur.
í Dúkalandi ...
. . . færðu úrvalsparket frá vlðurkenndum verk-
smlðjum llL'i'JJ. Harning og JllIICkCrS Parket er
endlngargott og náttúrulegt gólfefni. Að sjálfsögðu
fæst undlrlag og lím fyrir parketið.
Í Dúkalandi ...
. . . færðu failegar portúgalskar gólfflisar CINCA
og ROCA sem eru ódýrari en þig grunar en með
öllum helstu gæðastimpium.
í Dúkalandi . . .
. . . fást ýmis konar gúmmidreglar sem henta vel
i anddyri og sem slabb-dreglar.
í Dúkalandi_______
. . . fást hentug varanleg gólfefni A stofnanir og
stórhyggingar. Gemm tilboð og bjóðum i öll verk
— stór og smá.
Heitt nýtt katB i könnumd og konfekt
með.
í Teppalandi og Pnkalnndi nýtur þú hagstæðustu greiðslukjara á gólfmarkaðnum. Ef þú
kaupir „gólfpakka“, þ.e.a.s. tvenns konar gólfefni, færðu aukaafslátt. Þeir, sem borga út
i hðnd, fá að sjálfsögðu haesta ■tadgreiðslnafalátt um þekkist og hinir komast allir að
hagstæðu greiðslusamkomulagi.
Opið imugardaga til ki. 16.00.
HJA OKKUR NA GÆÐIN I GBGN
Teppaland Dúkaland
GRENSÁSVEGI 13, 108 R., SÍMAR 83577 OG 83430.
og vinur hans greindi frá að fram-
an, en hún var sérlega mikilhæf
kona, afburða gáfuð og dugmikil (
og hafði verið honum mikill styrkur
og stoð, og m.a. verið undirleikari
hans á konsertferðalögum. Á seinni
ámm átti hann samt að fagna
kærleiksríkri umönnun af hendi
hinnar mætu og gáfuðu nábýlis-
konu sinnar, Normu Hoag, sem hlúð
hafði að og litið tii með honum af
einstakri elskusemi þegar að
kreppti, eftir því sem hennar eigin
geta leyfði, en sjálf er hún og hefir
verið heilsuveil. Hafi hún Guðs þökk
og okkar ættingjanna fyrir sín ófáu
kærleiksverk í þessu tilliti.
Sem unglingur og nánast bam
minnist ég ávallt Gumma frænda
míns frá þeim tíma er ég dvaldi á
summm hjá afa mínum og ömmu
í Borgamesi — fyrir gæflyndi hans
og þolinmæði við mig. Þar minnist
ég sérstaklega atviks, þar sem ég,
drenghnokkinn, var að basla við að
tálga mér litla skútu eða jullu. Mér
var gjörsamlega fyrirmunað að fá
rétt lag á skutinn, hvemig sem ég
reyndi. Þá kom Gummi frændi, sem
staddur var heima á Fróni, fram í
bílaskúrinn hjá afa og ömmu, og
hann var ekki lengi að bjarga þessu
við, og tálgaði svo fallegt lag á
skutendann, að eftirleiðis var mér
ekki vandi á höndum um slíka smíð
eftir að fyrirmyndin var fengin. —
Og þessu hefi ég aldrei getað
gleymt, og væntumþykjan til
Gumma frænda ávallt verið tengd
þessu atviki um gæði hans við lítinn
dreng, sem fékk lausn hjá honum
á sínum vanda með þessum ljúf-
mannlega hætti. Og af því sem ég
sé skrifað um hann sýnist mére
einmitt að þessi elskulega hlýja og
góðsemi hafí verið eitt af hans
ríkustu einkennum, enda minnist
ég hans einmitt þannig, og það er
í samræmi við þær skoðanir sem
ég hefi heyrt hjá öðmm, sem þekktu
hann sjálfir.
Og nú hefir hann horfið inn í
framtíðarlandið, og eins og það er
víst að enginn tekur neitt með sér
þangað af þessum heimi — nema
sjálfan sig eins og hann er — og
þar sem það hvemig maður er, sýn-
ir sig á skapeinkennum og fram-
komu við annað fólk, þá veit ég að
hann hefír gott veganesti. Hann
eignaðist nýtt heimaland, og þar
lifði hann sínu lífi ijarri landinu þar
sem hann átti sínar rætur. Þar mun
hann án efa hafa lifað margar sæl-
ar stundir og verið þakklátur fyrir
allt, sem þar gafst honum til upp-
fyllingar æskudraumanna, og það
land verið honum gott og gjöftilt.
— En nú við leiðarlok hins svipula
jarðlífs var það samt hans hinzta
ósk, eftir að hafa verið brenndur
þar vestra, að askan, hans síðustu
leifar þessa heims, mætti verða
jarðsett á æskustöðvunum í Borgar-
nesi, við hlið elskulegra foreldra
sinna í kirkjugarðinum á Borg á
Mýmm, sem var sóknarkirkja fjöl-
skyldunnar á æskuámm hans.
Ég vil að lokum óska mínum
kæra frænda, Guðmundi Kristjáns-
syni frá Borgamesi, blessunar
Guðs, Hins hæsta, á nýjum leiðum
eilífðarlandsins, og þakka honum
allt hið góða frá þeim tíma er við
áttum samleið á æskuámm mínum
á öndverðri öldinni, sem þó sýnast
svo skammt undan,' enda viðstaðan
öll svo örskömm í þessum hverfula
og oft óskiljanlega heimi ljóss og
skugga, með öllum sínum breytileik
og litbrigðum.
Guðmundur Kristjánsson, söngv-
ari, fæddist 16. ágúst 1901 í
Búðardal í Dalasýslu, en fluttist í
bemsku til Borgamess með foreldr-
um sínum, en þau vom Friðborg
Friðriksdóttir frá Hofakri (Akri) í
Hvammssveit í Dölum og Kristján
Jónasson frá Skarði í Dölum, kauþ-
maður, síðast í Borgamesi, en böm
þeirra er komust til fullorðinsára,
auk Guðmundar, vora Jónas, áður
kaupmaður í Borgamesi, Elínborg,
húsmóðir í Reykjavík, Kamilla, hús-
móðir og síðar bókavörður í
Stykkishólmi, sem öll em látin, en
yngstur og hinn eini eftirlifandi
þeirra systkina er Kristján M.
Kristjánsson, kaupmaður í Kópa-
vogi.
Sveinn Ólafsson