Morgunblaðið - 04.01.1987, Síða 1
72 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
2. tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Irakar laska olíu-
höfnina á Kharg
Iranir vilja svara eiturhernaði í sömu mynt
Bagdað, Teheran, Reuter.
IRAKAR sögðust hafa laskað mannvirki í olíuhöfn írana á
Kharg-eyju í loftárás í gær. Er það önnur loftárásin, sem
Irakar gera á Kharg á árinu,
írakar sögðust hafa varpað
sprengjum á norðurhluta Kharg og
laskað mannvirki í vesturhöfn eyj-
unnar. Tilgangur árásarinnar hefði
m. a. verið að koma í veg fyrir við-
gerð á • mannvirkjum, sem löskuð
hefðu verið í fyrri árás. írakar hafa
gert loftárás á Kharg 130 sinnum
frá því í ágúst 1985.
Þá löskuðu íraskar orrustuþotur
tankskipið Galerie frá Kýpur í fyrra-
dag í nágrenni Kharg. Skipið hefur
verið í siglingum fyrir írani milli
Kharg og mynnis Persaflóa, þar sem
olíunni hefur verið umskipað í önnur
skip til útflutnings. Samkvæmt upp-
lýsingum Lloyd’s löskuðu íranir og
Irakar 99 skip á Persaflóa í fyrra.
Blaðið Abrar í Teheran, sem talið
er túlka stefnu stjómvalda, krafðist
þess í gær að íranir svöruðu efna-
vopnaárásum íraka í sömu mynt.
Blaðið sakaði íraka um að hafa not-
að eiturvopna í bardögum syðst á
landamærum ríkjanna um jól og ára-
mót því a.m.k. 400 menn, sem særst
hefðu í bardögum síðustu 10 daga,
bæru öll merki þess að hafa orðið
fyrir vopnum af þessu tagi.
Áfengismælir útilokar
akstur undir áhrifum
San Francisco, AP.
OKUMENN, sem teknir hafa verið fyrir ölvunarakstur í Kali-
forníu, eiga á hættu að þurfa í ákveðinn tíma eftir brot sitt að
blása í áfengismæli í hvert sinn sem þeir setjast undir stýri.
Yfirvöld í Kaliforníu hyggjast
skylda alla ökuþóra, sem teknir
hafa verið fyrir ölvunarakstur, til
að setja sérstakt tæki í bifreiðar
sínar sem útilokar gangsetningu
þeirra ef áfengismagn í blóði er
yfir leyfilegum mörkum.
Tækið kostar milli 350 og 450
dollara, eða 14—18 þúsund ísl. kr.,
og er tengt við kveikjukerfí bifreið-
arinnar. Til þess að opna fyrir
rafrásina verður bílstjórinn að blása
í munnstykki, sem í er vínandamæl-
ir. Mælirinn er tengdur kveikjukerfi
bifreiðarinnar og nemi hann að
áfengismagn í blóðinu sé yfir 0,25
prómill útilokar tækið gangsetn-
ingu bílsins. Er það magn langt
undir leyfilegum mörkum, því sam-
kvæmt lögum Kaliforníu telst það
ekki refsiverður ölvunarakstur fyrr
en vínandamagnið í blóði er 1,0
prómill.
„Þrátt fyrir ýmsar ráðstafanir
að undanförnu er ölvunarakstur enn
mikið vandamál. Hér um slóðir hef-
ur hann kostað mörg mannslíf á
ári hveiju. Þess vegna er full
ástæða til að reyna þessa tækni,
því hér er um að ræða athyglis-
verða nýjung í baráttunni," sagði
Ray Biancalana, aðstoðarforstjóri
umferðarráðs Kaliforníuríkis.
Bandaríkin:
Óveður og sjávarflóð
við austurströndina
New York, AP.
HIÐ versta vetrarveður hefur verið víða í Bandaríkjunum
síðustu daga og hefur það kostað a.m.k. 15 manns líflð.
Úrhellisrigning hefur fylgt veðurhamnum sums staðar
en annars staðar kyngdi niður snjónum. Stríðastur var
stormurinn við austurströndina og bætti ekki úr skák,
að þar var stórstreymt og gekk sjór á land allt frá Suð-
ur-Karólínu norður til Maine.
Snemma í gær var veðrið
verst í Maine og hafði snjóað
þar mikið og einnig í New York
og á Nýja Englandi. Vegna stór-
streymisins var sjávarborð á
þessum slóðum einum metra
hærra en á venjulegu háflæði
og veðrið jók síðan enn á sjávar-
ganginn. „Flóðið var svo mikið,
að Frelsisfrúin varð að hysja upp
um sig pilsin,“ sagði Ross Sandl-
er, yfirmaður samgöngumála í
New York, og í Marshfield í
Massachusetts braut brimið gat
á sjóvamargarð með þeim afleið-
ingum, að þriggja metra djúpt
vatn lagðist yfir hluta bæjarins.
Mörg hundruð manna komust
ekki frá heimilum sínum eða
vinnustöðum vegna flóðsins og
gripu margir til þess að skríða
upp á þak og bíða þar eftir að
vera fluttir burt á bátum.
Vegna þess hve hátt var í sjó
í New York komust farþegar
með ferjunum ekki frá borði þar
sem ógjörningur var að tengja
skipin við búnaðinn í landi. Var
þá brugðið á það ráð að ferma
þau þungavöru þar til þau voru
sigin nægilega mikið í sjó.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
ísólarátt
Nú er mesta skammdegjsmyrkrið brátt að baki með fangið fullt af fyrirheitum og vonandi verður
og daginn aftur tekið að lengja. Nýtt ár er jafnan siglt í sólarátt eins og báturinn á myndinni.
Fílabeinsströndin:
Flugvél ferst
með 49 manns
Abidjan, Fílabeinsströndinni, Reutcr.
ÓTTAST er, að 49 manns hafi
látið lífið þegar brasilísk áætlun-
arflugvél hrapaði í gær til jarðar
nokkru eftir flugtak frá Abidjan,
höfuðborg Fílabeinsstrandarinn-
ar í Vestur-Afríku. í fyrradag
fórst spænsk herflugvél undan
strönd Miðbaugs-Gíneu og með
henni 15 manns.
Flugvélin, sem var af gerðinni
Boeing 707 og i eigu brasilíska flug-
félagsins Varig, fór frá Abidjan
klukkan 13.00 að staðartíma og var
ferðinni heitið til Rio de Janeiro og
Sao Paulo í Brasilíu. Hálftíma síðar
höfðu flugmennirnir samband við
flugturninn í Abidjan og sögðust
eiga í erfiðleikum vegna vélarbilun-
ar og að þeir ætluðu að snúa aftur
til flugvallarins. Skömmu síðar
hrapaði vélin til jarðar við bæinn
Bingerville, 18 km frá Abidjan.
Að beiðni yfirvalda á Fílabeins-
ströndinni voru franskir hermenn,
sem staðsettir eru í landinu, sendir
á vettvang og fundu þeir tvo menn
á lífi i flakinu. Með vélinni voru 39
farþegar og 12 manna áhöfn.
Spænska utanríkisráðuneytið
skýrði frá því í gær, að í fyrradag
hefði flugvél frá spænska hernum
hrapað í sjóinn undan strönd Mið-
baugs-Gíneu í Vestur-Afríku og
með henni farist 15 manns, þar af
ijögur börn iðnaðarráðherrans í
landinu. Hinir 11 voru Spánveijar.