Morgunblaðið - 04.01.1987, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
3
Hundurinn Skuggi
hættir störfum
hjá því opinbera
Keflavik.
HANN ER að hætta störf-
um vegna aldurs og fer á
eftirlaun. Hver skyldi svo
sem ekki kannast við þessi
orð? Um þessar mundir er
óvenjulegur starfskraftur
að hætta hjá því opinbera.
Það er fíkniefnaleitar-
hundurinn Skuggi, sem nú
verður að draga sig í hlé
vegna aldurs, 10 ára gam-
all.
Eigandi og þjálfari Skugga er
Þorsteinn Hraundal lögreglu-
maður og sagði hann að leitar-
hundar hættu oftast þegar þeir
væru 8 ára. „En Skuggi er og
hefur verið eldhress og því fannst
mér ekki ástæða til að láta hann
hætta fyrr“, sagði Þorsteinn.
„Skugga fékk ég í Reykjavík
fyrir 10 árum, hann er Golden
Retriever sennilega eitthvað
blandaður. Á þessum tíma var
ég í lögreglunni á Neskaupstað
og þar fór þjálfun hans fram að
mestu. Ég skrifaði til Skotland
Yard á þessum árum og komst
í samband við þjálfara hjá þeim.
Hann veitti mér ákaflega mikils-
verðar upplýsingar sem áttu eftir
að koma sér vel“, sagði Þorsteinn
sem er að mestu sjálfmenntaður
í faginu.
Þorsteinn sagði að í fyrstu
hefði Skuggi eingöngu leitað að
cannabis efnum, en síðan hefðu
hvítu efnin, amfetamín og kók-
aín, komið — og Skuggi hefði
lært að fínna þau líka. „Hann
hefur verið sérstaklega duglegur
öll þessi ár og náð góðum
árangri. Mesta magn sem hann
fann í einu, var 1 kg af hassi.“
Nú hefur Þorsteinn þjálfað
arftaka Skugga, sá heitir Carlo,
blandaður Sheffer og Dober-
mann. Carlo er ákaflega vel
Þröngt mega sáttir sitja, Skuggi og Carlo i bílnum sem flytur þá á milli.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
þjálfaður og getur hvort heldur
leitað að fíkniefnum, rakið slóð
eða unnið sem lögregluhundur.
Þorsteinn sagði að Carlo væri
einstaklega kraftmikill og ynni
hann léttilega til jafns á við tvo
hunda, sambærilega Skugga.
- BB
Carlo við leit að fikniefnum í
farangri, hann er ótrúlega snar
í snúningum og ákveðin við það
sem hann gerir.
1
VINSÆLU, ÞÆGILEGU
LUNDÚNAFERÐIRNAR
MEÐ ÞAULKUNNUGUM
FARARSTJÓRA
ÚTSÝNAR.
Valin, vel staðsett hótel á
góðu verði með sérsamning-
um Útsýnar:
CUMBERLAND HOTEL við Marble Arch
á horni Oxford-strætis.
LONDON METROPOLE HOTEL á
Edgware Road.
GLOUCESTER HOTEL, skammt frá
Knightsbridge og Harrods.
REGENT PALACE HOTEL, ódýrt í hjarta
skemmtanalífsins.
WALDORF HOTEL, í hringiðu leikhúslífsins.
KENILWORTH HOTEL, ódýrt á horni Ox-
ford-strætis og Tottenham Court Road.
Y-HOTEL, ódýrt við Russel Square.
WESTBURY HOTEL, glæsihótel í hjarta
Mayfair.
KENSINGTON CLOSE HOTEL, ódýrt,
en mjög þægilegt nálægt annarri aðal-verzlunar-
götunni Kensington High Street.
CARLYLE HOTEL, vistlegt hótel skammt
frá Hyde Park.
LONDON
Viku- og helgarferðir
alla föstudaga
Hagstæð innkaup.
Fjölbreytt leikhús- og tónlistarlíf.
Heimsins mesta úrval matsölu- og
skemmtistaða.
Forvitnilegt mannlíf, þverskurður
alheimsins.
íþróttaviðburðir, listasöfn og
heimsfrægar byggingar.
Feróaskrifstofan
> ________
Austurstræti 17, sími 26611
Helgarferð frá kr. 12.900 Vikuferð frá kr. 20.700
Carlyle Hotel, 2ja manna herbergi með baði, sima, útvarpi og litsjónvarpi.
ZellamSee
Mayrhofen Ziller Tal
Fararstjórn: Skíðakennarinn Rudi Knapp verð-
ur farþegum til halds og trausts á meðan á
ferð þeirra stendur. Rudi, sem er íslendingum
að góðu kunnur eftir margra ára fararstjórn,
talar ágæta íslensku.
Brottfarir: Alla laugardaga til loka mars.
Verð frá 24.435 ítvær vikur.