Morgunblaðið - 04.01.1987, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
9
Tölvur í leikhúsi:
Leikmynd unnin eftir
þrívíddarteikningum
hjá íslensku Óperunni
ÍSLENSKA Óperan frumsýnir
óperuna Aidu, eftir Verdi, þann
16. janúar n.k. Vinnuteikningar
fyrir sviðsmynd eru unnar á all
nýstárlegan hátt og frábrugðinn
þvi sem hingað til hefur tíðkast
í íslenskum leikhúsum. Til þess
að auðvelda vinnuna, bauðst
hljómsveitarstjórinn, Gerhard
Deckert til að vinna tölvuforrit,
eftir teikningum Unu Collins,
sem hannar leikmynd og búninga
fyrir óperuna Aidu.
Gerhard Deckert, hljómsveitar-
stjóri er fæddur í Vín. Þar nam
hann verkfræði, samtímis því að
leggja stund á tónlistamám. Um
tuttugu ára skeið stjómaði hann
ríkisóperunni í Vínarborg og sinnti
tónlistinni eingöngu öll þau ár. Það
var því von að vekti forvitni hvort
tölvuteikningar í þrívídd væm ein-
göngu áhugamál Deckerts:
„Bæði já og nei. Ég er menntað-
ur verkfræðingur, en hef ekki
stundað verkfræðina í tuttugu ár,
heldur helgað mig tónlistinni alger-
lega. A síðustu ámm hefur tölvu-
tækni hins vegar fleygt fram og
tölvur em orðnar hveijum manni
aðgengilegar. Eðlilega vöktu þær
forvitni mína. Sjáðu til, það kom
þetta augnablik í lífi mínu að mig
langaði að breyta til. Það er alveg
sama hversu ánægjuleg vinna
manns er, með tímanum verður hún
meira og minna sama hringrásin.
Svo langar mann að söðla um, gera
eitthvað nýtt og það er mjög
ánægjulegt að geta leyft sér það.
Fyrir nokkmm ámm fór ég að
vinna að forriti, sem var ekki tengt
tónlist, heldur læknisfræði. Þetta
var „prógram" sem gerir manni
kleift að skoða heilann. Fram að
þeim tíma var aðeins hægt að skoða
heilann eftir sneiðmyndum, en með
þessari þessari nýju þrívíddartækni,
sem mér var falið að þróa, er hægt
að skoða hann frá öllum hliðum.
Þannig að þegar um er að ræða
æxli í heila, er hægt að fínna ná-
kvæmlega hvar það er og beina
geislum beint á æxlið til að eyða
því. Með fyrri aðferðum hafa lækn-
ar þurft að áætla meira um æxli
og ekki getað verið vissir um að
vera á réttum stað þegar að með-
ferð kemur. Nú orðið em nokkrir
Gerhard Deckert
spítalar, víðsvegar um heiminn,
búnir að fá sér þann útbúnað sem
þarf fyrir þrívíddarmyndatökur.
Þetta er geysilega dýr og pláss-
frekur útbúnaður, en allur sjúkra-
hússútbúnaður er dýr. Ég mundi
segja að svona útbúnaður ætti að
vera til í hveiju landi. Þetta er það
sem koma skal, því þetta gefur
manni möguleika á fullkominni ná-
kvæmni.
Það er þó ekki þar með sagt að
þessari þrívíddartækni sé aðeins
hægt að beita í rannsóknum á heila-
sjúkdómum. Það er óhjákvæmilegt
að allt nýtt sem fram kemur í tölvu-
tækni, sé hægt að nýta á mörgum
sviðum. Ég gerði það mest að gamni
mínu að biðja Unu Collins um teikn-
ingar af sviðsmyndinni fyrir Aidu
til að vinna út þrívíddarmyndir af
henni. Það er gífurlegur vinnu-
spamaður í því að vinna eftir
þrívíddarteikningum. Það er hægt
að skoða leikmyndina frá öllum
hliðum og hægt að færa alla hluta
hennar til og frá á skjánum. Þann-
ig er hægt að velta fyrir sér ýmsum
hugmyndum, sem upp koma um
möguleika með sviðsmynd," sagði
Gerhard Deckert og bætti síðan
við:„Þessar vinnuteikningar að leik-
myndinni eru bara skemmtilegur
leikur fyrir mig, ég var alls ekki
ráðinn í þetta verkefni. En þetta
er gaman."
Síóu
bo«of™'*’*ivuw>b"A,>A
leguadir loWop PP -
o
M«YRII»PAse»NOTAl*A*e«
ÓM.SS/VNW HYBUBtAÐA
FYRIR EINN
OG SAMA
tölvuprentarann.|;
38000
FjARFESTINCARFEl7\GIÐ
VERÐBREFAMARKAÐURINN
Genqióídaq
4. JANUAR 1987
Veðskuldabréf - verðtryggð
Lánst. 2afb. áári Nafn- vextir HLV Sölugengi m.v. mlsm. ávöxtunar- kröfu
12% 14% 16%
1 ár 4% 95 93 92
2 ár 4% 91 90 88
3ár 5% 90 87 85
4ár 5% 88 84 82
5ár 5% 85 82 78
6ár 5% 83 79 76
7ár 5% 81 77 73
8ár 5% 79 75 71
9ár 5% 78 73 68
10 ár 5% 76 71 66
Markaösfréttir
Veðskuldabréf - óverðtr.
Lánst.
1 afb.
áári
1 ár
2ár
3ár
4ár
5ár
Sölugongi m/v.
mism. nafnvexti
20% HLV 15%
89
81
74
67
62
84
72
63
56
50
85
76
68
61
56
KJARABRÉF
Gengl pr.1/1 1987 = 1,832
Nafnverð
5.000
50.000
Söiuverö
9.160
91.600
TEKJUBRÉF
Gengipr.1/1 1987 =1,059
Nafnverð
100.000
500.000
Söluverð
105.900
529.500
KJARABRÉFIN
SKILUÐU EIGENDUM SÍNUM
Á ÁRINU 1986 13,1% RAUNÁVÖXTUN EÐA
29,7% ÁRSÁVÖXTUN.
SPARIFJÁ REIGENDUR KYNNIÐ YKKUR
KOSTI KJARABRÉFA.
Tekjugreiðsla fyrsta ársfjórðungs ’87: 100.000 - 4.900, 500.000 - 24.500.
- s
Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7,101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 símsvari allan sólarhringinn