Morgunblaðið - 04.01.1987, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
17
Afmæliskveðja:
Huld Gísladóttir
Jafnvel þótt allar staðreyndir
ættu að blasa við mönnum og þann-
ig ekki að koma á nokkum hátt á
óvart, eru þær sumar þann veg
vaxnar að menn hugsa sig um tvisv-
ar áður en þeir viðurkenna þær.
Ein slík er að nú skuli vera sjötíu
ár síðan merkiskonan Huld Gísla-
dóttir leit dagsins ljós á Seyðisfirði
austur, en hún fæddist í höfuðstað
Austfirðinga þann drottins dag 5.
janúar 1917. Ekki er það ætlun
mín að rekja mannkynssögu henn-
ar, heldur einvörðungu að senda
henni nokkur fátækleg orð heilla-
óska og þakka. Verður þar þó flest
ósagt sem full þörf væri að geta,
en það verður þá að gerast með
öðram hætti.
athugasemdir hennar um það sem
ofarlega er á baugi. Vona ég enn
að njóta þess um langt skeið.
Hugheilar kveðjur sendast böm-
um Hullu, Atla og Guðbjörgu Ólöfu,
tengdabömum og bamabömum í
tilefni þessa merkisafmælis.
En nú er mál að linni. Allar þakk-
lætis- og heillakveðjur ijölskyldunn-
ar sendast Hullu á þessum
tímamótum — og megi hún njóta
þeirra og komandi tíma svo sem
kostur er og í samræmi við það sem
hún hefur til unnið.
Einlæglega til hamingju, Hulla
mín. Og mig langar að ljúka þessu
með þeirri gömlu, fallegu íslensku
kveðju, þegar menn skildu eftir
vinafund: „Vertu nú blessuð og sæl
— og fegin vildum við eiga þig að.“
Lifðu jafnan heil!
Huld tekur á móti gestum sínum
á heimili dóttur sinnar, Smáraflöt
14, Garðabæ i dag, sunnudag, eftir
kl. 15. E.P.
ALLETT
Kennsla hefst á ný
fimmtudaginn 8. janúar.
Nemendur mæti á sömu
tímum og áður.
Innrítun nýrra nemenda
og allar upplýsingar I
síma 611459.
Royal
Academy
ofDancing
BALLE TTSKÓLI
Guðbjargar Björgvins
íþróttahúsinu
Seltjarnamesi.
Félag ísl. listdansara.
Seyðisfjörður hafði löngum verið
miðstöð menningar og viðskipta á
Austurlandi, og var svo í bemsku
og æsku Hullu, eins og vinir hennar
nefna hana jafnan. Athafnamenn
hösluðu sér þar völl og listaáhugi
ríkti, e.t.v. einkum á söngsviði, enda
var Ingi T. Lárasson þá eystra og
yndisleg sönglög hans á hvers
manns vöram. I því umhverfi sleit
Hulla bamsskónum og gekk á vit
æskuáranna. En lífið kallaði og þar
kom að Hulla hélt 17 ára gömui til
höfuðstaðarins í atvinnuleit. Og það
er einmitt þá sem leiðir hennar og
fjölskyldu minnar lágu saman, góðu
heilli, hafa varað síðan og munu
enn vara. Eins og einhver fjölskyld-
unnar maður orðaði það: „Hún er
ein af oss.“
Auðvitað er ákaflega margs að
minnast frá þessum tíma og mundi
æra óstöðugan að fara að tæpa á
því, enda á það fæst erindi í stutta
afmæliskveðju — og raunar einka-
mál. En þess verður að minast að
á þessum áram var áhugi Huilu á
söng mjög mikill. Sjálf var hún
gædd góðri söngrödd, hafði raunar
staðið á sviði í sýningum á Ævin-
týri á gönguför fýrir austan en í
eldhúsinu heima söng hún gjaman
fallegar melódíur úr Meyjarskemm-
unni, Nitouche, Bláu kápunni og
öðram söngleikjum sem lyftu hug-
um manna á þeim tímum. Hefur
hún enda jafnan yndi af fögram
söng og hefur átt margar ánægju-
stundir við að njóta slíkrar listar.
Hulia hefur jafnan verið mikið
vinnusöm, og hvergi látið sitt eftir
liggja í þeim efnum. Hefur hún
enda sjálfsagt slitið sér óþarflega
fyrir aldur fram með atorkusemi
sinni. — Auk ráðskonustarfa, bæði
í borg og sveit, vann hún um langa
hríð við Elli- og hjúkranarheimilið
Grand í Reykjavík af sömu elju og
samviskusemi og henni er lagin.
Hefur hún þar öðlast vináttu og
þakklæti, bæði stjómenda, sam-
starfsfólks og vistmanna, og það
að makleikum. Er enda vfst að
mörgum fannst skarð fyrir skildi
þegar hún lét af störfum.
Hún er mikill vinur vina sinna
og nýtur þess að gleðjast í þeirra
hópi. Hefur hún og ætíð haldið sam-
bandi við gamlar stöllur frá Seyðis-
fjarðaráranum, og er jafnan glatt
á hjalla þegar þær hittast og rifja
upp gamlar minningar.
Hulla er mjög traust í öllum
skiptum og hefur ákveðnar skoðan-
ir á mönnum og málefnum. Ekki
er því að leyna að hún kann þá
stundum vel að kveða að, jafnvel
svo að þýtur í. Að því er mig varð-
ar finnst mér hreinlega eitthvað
vanta í tilverana ef langt líður á
milli þess að ég heyri hressilegar
Gleðilegt nýtt ár
JAZZ SPORIÐ
stjörnuárið
1987
Þú ferð í leikfimi á árinu.
Freistaðu gæfunnar. Hringdu í síma 13880.
Þú finnur sjálfan þig í jazz-dansi.
Þú ferð í sauna og slakar á.
Þú ætlaðir í leikfimi í fyrra en ferð í ár.
Það er engin afsökun að vera strákur.
Drífðu þig í jazz-ballett.
Innritun er hafin
í síma 13880
kl. 14—17.
Munið afhendingu skírteina kl.
13—17 þriðjudaginn 6. janúar
framhaldsnemendur. Fimmtudag-
inn 8. janúar byrjendur. Takið
stundaskrána með ykkur.
2D Þú kemst í sæluvímu í nuddpotti.
Líf þitt verður jazz-ballett.
Ifcf J Þú ferð í jazz-eróbik á árinu.
Eigendur og starfsfólk Jazz-sporsins
óskar ykkur gleðilegs árs
IJSJ Þú ert á besta aldri og ferð í jazz-dans.
ŒIÆ} Nú ert þú oröin 2 ára. Dríföu þig
í jazz-ballett.
Þú ferð í jazz-ballett á árinu.