Morgunblaðið - 04.01.1987, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
Fjölbrautaskóli Suðurlands:
„Þekkinguna geymir
hver maður í hjarta sínu“
- 48 nemendur útskrifaðir á haustönn
Selfossi.
FJÖLBRAUTASKÓLI Suður-
lands á Selfossi útskrífaði 48
nemendur 20. desember síðast-
liðinn, 30 stúdenta, 12 vélaverði
og 6 nemendur af tveggja ára
brautum.
Þetta er fjölmennasti hópurinn
sem útskrifast frá skólanum og sá
síðasti sem útskrifaður er af
hlaupabrautinni svonefndu. Það
nafn hefur skólinn fengið vegna
húsnæðismála sinna en kennt hefur
verið á 8 stöðum og nemendur þurft
að hlaupa á milli staða til að ná í
næstu kennslustund. Áformað er
að flytja í nýbyggingu skólans við
Tryggvagötu 10. janúar.
í skólaslitaræðu sinni gat Þór
Vigfússon þess að skólinn væri tal-
andi dæmi þeirrar staðreyndar að
skóii væri annað en hús. Hann benti
á að sá hópur sem útskrifaðist, sem
og aðrir í skólanum, hefði verið trúr
því sem skipti máli við skólahald.
Það væri samheldni og þroskavilji.
„Maður er manns gaman og
maður er manns auður," sagði
skólameistari er hann kvaddi nem-
endur sína. Og ennfremur: „Það
eina sem þið getið tekið mark á er
ykkar eigin sálarauður þegar þið
veljið ólíkar leiðir á lífsleiðinni."
Fjölmenni var við athöfnina í
Selfosskirkju og að venju söng kór
skólans. Nemendur fengu viður-
kenningar fyrir námsárangur og
störf í þágu skólans. Sá nemandi
sem flestar viðurkenningar hlaut
var Sveinn Helgason stúdent.
Á haustönn stunduðu 470 nem-
endur nám í dagskóla, 140 í
öldungadeild, 7 í meistaraskóla og
12 voru við vélavarðanám á önn-
inni. Alls er um 630 nemendur að
ræða og enn er skólinn í vexti.
Skólinn opnar nýjar
leiðir
Það var Soffía Stefánsdóttir sem
flutti ávarp stúdenta við útskriftar-
athöfnina. Hún minnti á það í
upphafi ávarps síns að andlegur
þroski sérhverrar manneskju birtist
í orðum hennar og gjörðum. Mennt-
un og þroski yrðu ekki metin til
íjár og stúdentshúfan sem borin
væri á þessum degi væri tákn um
aukna víðsýni og visku. Síðan sagði
Soffía: „Þekkinguna geymir hver
maður í hjarta sér og hún verður
ekki frá honum tekin. Reyndar má
nota þekkinguna bæði til góðs og
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sig. Jóns.
Hópurínn var sá fjölmennasti sem útskrífast hefur frá skólanum.
Sveinn Helgason hlaut flest verðlaun
fyrir námsárangur, hér tekur hann
við einum þeirra úr hendi skólameist-
ara.
Soffía Stefánsdóttir flutti
ávarp stúdenta.
ills en skólanum er meðal annars
ætlað að beina henni inn á heilla-
dijúgar brautir. Menntun felst
nefnilega ekki eingöngu í góðum
einkunnum heldur er það ekki síður
mikilvægt að leggja rækt við hinn
mannlega þátt. Ef nemandinn
gengur út sem betri og heilsteypt-
ari manneskja eftir veru sína í
skólanum hefur hann náð tilgangi
sínum. Skólinn opnar okkur nýjar
leiðir til áður óþekktra áfangastaða
og gerir okkur fær um að skoða
það umhverf sem við lifum í frá
nýju og betra sjónarhomi. Skóli
lífsins kennir okkur líka ýmislegt
sem hvorki mennta- né ijölbrauta-
skólar hafa tök á að gera en um
það verður ekki rætt hér.“
í lokin þakkaði Soffía kennurum
skólans og nemendum samfylgdina
og lauk máli sínu með þessum orð-
um: „í dag er hátíðisdagur en á
morgun opnast nýr kapítuli í
lífsbókinni fyrir okkur nýstúdenta."