Morgunblaðið - 04.01.1987, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
19
20 nýstúdentar
frá Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ
HINN 20. desember sl. voru útskrifaðir 20 stúdent-
ar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Fimm luku
prófi á málabraut, fjórir á viðskiptabraut, fjórir
á félagsfræðibraut, þrír á náttúrufræðibraut, þrír
á eðlisf ræðibraut, tveir á heilsugæslubraut og einn
á íþróttabraut. Bestum námsárangri náði Sigurjón
Þór Kristjánsson og Jóhann H. Sveinsson, báðir
á eðlisfræðibraut.
Hátíðleg athöfn var haldin í skólanum og fluttu
ávörp m.a. Þorsteinn Þorsteinsson, skólameistari, sem
afhenti prófskírteini, Pétur Stefánsson, formaður
skólanefndar og sr. Bragi Friðriksson, sóknarprestur.
Nemendur skólans voru tæplega 400 á haustönn
1986. Með stúdentahópnum á myndinni eru Þorsteinn
Þorsteinsson, skólameistari t.v. og Gísli Ragnarsson,
aðstoðarskólameistari t.h.
Stúdentahópurinn sem útskrifaðist frá Fjöibrautaskólanum í Garðabæ ásamt Þorsteini Þorsteinssyni skóiameistara t.v.
og Gísla Ragnarssyni, aðstoðarskólameistara t.h.
Stúdentarnir 27 sem útskrifuðust frá Flensborgarskólanum ásamt Kristjáni Bersa Ólafssyiu skólameist-
ara.
27 stúdentar frá
Flensborgarskóla
27 STÚDENTAR voru braut-
skráðir frá Flensborgarskólan-
um við skólaslit haustannar, sem
fram fór föstudaginn 19. des. sl.
Flestir stúdentanna eða 9 luku
prófi af viðskiptabraut, 6 af upp-
eldisbraut, 4 af félagsfræði-
braut, 4 af náttúrufræðibraut, 3
af málabraut, 2 af íþróttabraut
og 1 af heilsugæslubraut. Tveir
luku prófi af tveimur brautum í'
senn, uppeldisbraut og félags-
fræðibraut og eru þvi tvitaldir.
Bestum námsárangri náðu Hjör-
leifur Helgi Hansson, sem útskrif-
aðist af náttúrufræðibraut eftir 6
anna nám með 42 A og 8 B; Lilja
Ólafsdóttir sem lýkur prófi af við-
skiptabraut eftir nám í öldungadeild
skólans með 32 A og 11 B; Gréta
Pálsdóttir, einnig með próf af við-
skiptabraut eftir nám í öldunga-
deildinni með 32 A, 15 B og 3 C;
og Alda Baldursdóttir sem útskrif-
aðist af málabraut með 27 A, 20 B
og 3 C.
Meirihluti hinna nýju stúdenta
eru konur, alls 19, en karlar í hópn-
um eru aðeins 8. Fimm kvennanna
stunduðu nám sitt í öldungadeild
skólans, en hún var sett á stofn
haustið 1982. Skólameistari Flens-
borgarskólans er Kristján Bersi
Ólafsson.
;tST ( RAUÐU, BLÁU, HVÍTU OG GULU. SÖLUUMBOÐ:
epol h(
. SlÐUMÚLA 20, S(MI 36677