Morgunblaðið - 04.01.1987, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
MIKIL
VERÐLÆKKUN
Seljum á mánudag og þriðjudag
áiia Puffin’s kuldaskó á stór-
lækkuðu verði.
Verið velkomin —
Gerið góð kaup.
Skóval
við Óðinstorg.
Sími 14955.
Amnesty International:
Fangar mánaðarins
— desember 1986
Mannréttindasamtökin Am-
nesty International vilja vekja
athygli almennings á máii 5ftirfs.r=
andi samviskufanga í desember.
Jafnframt vonast samtökin til að
fólk sjái sér fært að skrifa bréf til
hjálpar þessum fongum og sýna
þannig í verki andstöðu sína við að
slík mannréttindabrot séu framin.
íslandsdeild Amnesty hefur nú
einnig hafíð útgáfu póstkorta til
stuðnings föngum mánaðarins, og
fást áskriftir á skrifstofu samtak-
anna.
Perú: Policarpio Condori
Vargas er 48 ára bóndi og verka-
maður frá Puno-héraði. Hann var
handtekinn á leið úr vinnu þann
27. júní 1984, og voru þar að verki
varðsveitir borgara, sem komið var
á fót vegna baráttu hersins við
SkrgruHðasamtökin „Skínandi
braut“. Næstu tvær vikurnar sætti
hann kerfisbundnum pyntingum af
hálfu lögreglunnar, og var sakaður
um hryðjuverkastarfsemi. Neitaði
hann staðfastlega að hafa beitt eða
hvatt til ofbeldis, og styðja heimild-
ir AI þann vitnisburð; ástæðuna
fyrir handtökunni telur AI vera
búsetu hans á svæði þar sem skæru-
liðasamtökin eru sterk. Policarpio
var fluttur til E1 Frontón-fangelsis
skömmu fyrir 18. júní 1986, en þá
braust út fangauppreisn bæði þar
og í tveimur öðrum fangelsum.
Herinn bældi uppreisnina niður af
mikilli hörku, og er vitað um
★ Evrópuskólinn
7 vikna námskeið,
þýska, ítalska,
spænska, franska
og íslenska.
★ Erlendir
kennarar
★ Æskuskólinn
12 vikna nám-
skeið, enska fyrir
börn 10-12 ára.
Unglinganám-
skeið, enska fyrir
unglinga 13—15
ára.
★ Sanngjarnt
verð
★ Viðskiptaskólinn
Viðskiptaenska,
verslunarbréf og
tæknienska, mis-
munandi löng
námskeið.
★ Öll námsgögn
innifalin
EN SKU SKÓLINN
★ Bættu við kunnáttuna
★ Gríptu tækifærið og
hringdu strax í síma
25330
Innritun stendur yfir
★
Enskuskólinn
7 vikna enskunámskeið tvisvar í
viku.
Morgunnámskeið kl. 10-12
Síðdegisnámskeið kl. 1-3 og 3-5
Kvöldnámskeið 6.30-7.30 og
8.30-10.30.
★ Happy Hour 5.30-6.30 þrisvar í
viku
TÚNGÖTU 5, SÍMI 25330
★ Láttu nú einu sinni ný-
ársheitið rætast!
★ Lærðu tungumálið
tímanlega fyrir sumar-
fríið
víðtækar fjöldaaftökur í einu fang-
elsinu eftir uppgjöf fanganna.
Opinberar heimildir fullyrða að
fangar í E1 Frontón hafí grafist í
rústum hruninna bygginga, utar.
34 sem komust af og 30 sem hafí
látist í átökunum. Háfu ári síðar
hafa einungis 4 lík fundist, en 115
hafa „horfíð“, þ. á m. Policarpio
Condori.
Zimbabwe: Norman Zhikali er
meðlimur stjómarandstöðuflokks-
jns ZAPU og fyrrum verkalýðs-
foringi. Hann var handtekinn af
leyniþjónustunni ásamt tveim
flokksfélögum í nóvember 1984, en
þeir voru á leið frá Bulawayo til
Beitbridge í erindagjörðum flokks-
ins. Attu þeir að rannsaka innan-
flokksátök sem þar höfðu brotist
út í kjölfar morðs á þingmanni
stjómarflokksins. Handtaka þeirra
studdist við sérstaka löggjöf sem
'heimilar ótakmarkaða fangavist án
réttarhalda. Þeir voru síðar fluttir
til Chikumbi-öryggisfangelsisins í
Harare, og var félögum Norman
Zikhali sleppt án ákæm á árinu
1985. Alls vom 80 manns fangels-
aðir vegna átakanna í Beitbridge,
flestir stuðningsmenn ZAPU; öllum
nema 22 var síðar sleppt. í júlí
1986 vom fímm fanganna ákærðir
fyrir morð stjórnarþingmannsins,
en hlutu sýknu. Norman Zhikhali
virðist ekki liggja undir gmn um
aðild að morðinu eða átökunum;
eina ástæðan fyrir varðhaldi hans
virðist vera starf hans fyrir ZAPU.
Hann er einn af brauðiyðjendum
verkalýðsbaráttu í landi sínu, og
var í fangelsi árin 1973—78 (í tíð
fyrri ríkisstjómar) af þeim sökum.
Búlgaría: Kostadin Kalmakov
er 56 ára gamall rafeindavirki frá
Kamobat. Hann er áhangandi
hvítasunnusafnaðarins og neitar að
bera vopn, og hefur áður sætt fang-
elsisvist fyrir að neita að gegna
herþjónustu. Sonur hans hefur einn-
ig verið fangelsaður 4 sinnum af
sömu ástæðu. Kostadin var hand-
tekinn 8. mars 1982 eftir að hafa
límt upp veggblöð gegn fangeslun
þeirra sem af samvizkuástæðum
neita að gegna herþjónustu. Hann
var ákærður fyrir „áróður gegn
ríkinu" og dæmdur í 4 ára fangelsi
í nóv. sama árs vegna brots á 108.
grein almennra hegningarlaga, og
á sama tíma gekk í gildi eins árs
skilorðsbundinn dómur sem hann
hafði áður hlotið fyrir gagnrýnið
umtal um fæðuskortinn í landinu.
AI hefur borist til eyma að Kostad-
in hafí sætt slæmri meðferð,
einkum eftir að hann mótmælti því
að jóladagur yrði gerður að venju-
legum vinnudegi í fangelsinu.
Þeir sem vilja leggja málum þess-
ara fanga lið, og þá um leið
mannréttindabaráttu almennt, em
vinsamlega beðnir að hafa samband
við skrifstofu íslandsdeildar Amn-
esty, Hafnarstræti 15, Reylqavík.
MANErre nelms
kennir
m JAZZDANS
• N UTIMADANS
• KLASSISKAN
BALLETT
• S teppoans
NANETTE
NELMS
tra NEW YORK JUBILATIONS
UCECOMPANY
KRPtrn
WSI&
Símar: 15103 og 17860