Morgunblaðið - 04.01.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4, JANÚAR 1987
33
Ómar Ragnarsson, Svavar Gests og fleiri landsfrægir
BDuti heimilismanna og Lionsmanna í heimtröðinni að Sólheimum. íþróttaleikhúsið nýja er aftast á miðri mynd.
EF ÞAÐ ER RÉTT, sem haldið
hefur verið fram, að hús hafi
sálir þá hefur nýja íþróttahúsið
að Sólheimum í Grímsnesi, - þjóð-
argjöfin mikla, eins og húsið er
nefnt, - áreiðanlega sál. Þetta
varð hverjum manni ljóst, sem
viðstaddur var Litlu-jólin með
heimilis- og Lions-mönnum
næstsíðasta sunnudag fyrir jól.
Þrátt fyrir að veðurstofan spáði
ofviðri og það hvessti utan dyra
með hverri klukkustundinni, an-
daði hlýjum straumum í nýinn-
réttuðum íþrótta- og hátíðarsaln-
um. Það var eins og salurinn og
húsið héldi vemdandi höndum
um hátíð heimilismanna, sem
þeir tóku í mót á þann eina hátt
sem böra kunna, þ.e. með opnum
hug og hjarta, enda skein föls-
kvalaus jólagleði úr hverju
andliti. Það var mjótt á munum
í lok hátíðarinnar í milli þess,
hveijir höfðu skemmt' sér best:
„Ijónin“ þrjátíu úr Ægis-klúbb-
num eða heimilismenn á Sól-
heimum, enda segja elstu
Ægis-félagarair, að jól án Sól-
heima-jóla séu hreint engin jól.
Lions-mennimir hafa haldið
Litlu-jól á Sólheimum allt frá
stofnun klúbbsins árið 1957.
Lúdó og Stefán, ásamt forsöngvurum og dragspilsleikara. Eins og sjá má er leiksviðið hentugt að stærð,
en það er, auk annarra innréttinga, gjöf frá Lionsmönnum.
Hurdaskellir erfiður
nemandi
Kynnir og dragspilsjeikari á
skemmtuninni var Tómas Grétar
Ólason, en hann er formaður Sól-
heimanefndar Ægis-klúbbsins. Af
skemmtiatriðum má nefna söng,
sem þeir Gunnar Ásgeirsson, Gunn-
ar Kristinsson og Valdimar Ornólfs-
son leiddu. Þá sýndi Tómas Ámason
töfrabrögð við miklar vinsældir.
Hann lét m.a. peninga hverfa og
birtast á óskiljanlegan hátt, enda
maðurinn seðlabankastjóri. Svavar
Gests stjórnaði spumingaleik. Svör-
in stóðu aldrei í þátttakendum úr
hópi heimilismanna og fengu þeir
bókagjafir í verðlaun. Gott dæmi
um spumingarnar er þessi: „Kom
Reynir Pétur við á ísafírði í íslands-
göngunni?" Svarið kom hiklaust,
eftir mikið kapphlaup þátttakenda:
„Nei, hann kom við á Selfossi", -
„og það var hárrétt“, tilkynnti Sva-
var Gests kunnri röddu.
Þegar Ómar Ragnarsson birtist
á staðnum kom greinilega í ljós
hver vinsælastur er allra skemmti-
krafta hér á landi. Þá fengu jóla-
Það var eins og nánir ættingj-
ar væru komnir í heimsókn,
þegar Lions-menn stigu út úr
rútunni i hlaðinu á Sólheimum.
Heimilismenn þekktu þá vel-
flesta með nöfnum, komu hlaup-
andi í fang þeirra og spurðu
tíðinda af fjölskyldunum. Reynir
Pétur fékk svolítið bágt fyrir að
hafa ekki komið gangandi á
móti rútunni, eins og hann hefur
ætíð gert, jafnvel mætt henni á
þjóðveginum undir Ingólfsfjalli.
Hann hafði þó góða afsökun sem
var hin slæma veðurspá. Þetta
var einmitt sunnudagurinn, þeg-
ar alþjóð var hrelld með spám
um aftakaveður, fólk hvatt til
að halda sig innandyra og að
fara alls ekki af stað í ferðalög.
Eftir veislu-jólamat, sem öllum
var boðið til, hangikjöt og laufa-
brauð, hófst skemmtunin með
virkri þátttöku heimilismanna.
„Svona gerum við, er við teygjum okkar þvott“.... Svavar Gests og Reynir Pétur teygja og teygja
við mikla kátínu viðstaddra.
þar til „þvotturinn" rifnaði í tvennt
Á litlu-iólunum með Lionsmönnum úr Ægi í nýja íþróttaleikhúsinu að Sólheimum
Galdrakarl úr Seðlabanka