Morgunblaðið - 04.01.1987, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
55
Saga Fróð-
árhrepps
undir Jökli
Á VEGUM Átthagafélags
Fróðárhrepps er nú unnið
að ritun sögu Neshrepps inn-
an Ennis á Snæfellsnesi,
síðan Fróðárhrepps, sem tek-
ur til svæðisins frá Búlands-
höfða til Ólafsvíkurennis.
Neshreppur hefur frá því á
miðöldum verið þéttbýlt hér-
að og sögufræg sveit. Þar
varð sjósókn snemma ábata-
samur atvinnuvegur. Saga
Fróðárhrepps er mikilvægt
tillag til sögu byggðar við
Breiðafjörð.
Áformað er að saga Fróðár-
hrepps verði í tveimur bindum og
fjallar hið fyrra sem nú er væntan-
legt um tímabilið frá landnámi
fram á 19. öld. Neshreppur innri
og síðar Fróðárhreppur var hvort
tveggja öflugt landbúnaðarsvæði
og dæmigerð sjávarbyggð, þar
sem voldugir aðilar tókust á um
jarðeignir.
í bókinni segir frá landnámi og
þróun byggðarinnar á miðöldum,
þéttbýlismyndun, atvinnuháttum
og helstu jarðeigendum. Er um-
fjöllunin tengd þjóðarsögunni og
víða leitað samanburðar. ítarlega
er ijallað um sögu byggðarinnar
á 18. öld og varpað ljósi á stöðu
bænda og almúga á þeim erfíðu
tímum drepsótta og hallæra. Sögð
saga verslunar og kirkju.
Ennfremur er í fyrsta bindi
bókarinnar mjög ítarleg ömefna-
lýsing ásamt fjölda mynda og
korta til skýringar.
Höfundar eru sagnfræðingamir
Ólafur Ásgeirsson, Eiríkur Guð-
mundsson og Jón Árni Friðjóns-
son.
Formaður Átthagafélags Fróð-
árhrepps er Ólafur Kristjánsson,
Skálholti 15, Ólafsvík, og geta
væntanlegir áskrifendur að sögu
Fróðárhrepps snúið sér til hans.
(Fréttatilkynning)
Reglur verði
settar um
heilsurækt-
arstöðvar
AÐALFUNDUR íþrótta-
læknisf ræðif élags Islands,
haldinn í Laugardal 6. des.
'86, lýsir yfir áhyggjum
sínum vegna aðgerðarleysis
stjórnvalda hvað varðar
starfsreglur um rekstur
líkams- og heilsuræktar-
stöðva og þekkingu þeirra,
sem þar sinna leiðbeinenda-
störfum.
Ljóst er, að ófaglært fólk starf-
ar að mestum hluta sem leið-
beinendur á slíkum stöðvum og
dæmi um að slíkir aðilar sinni
meðhöndlun meiðsla með ýmis
konar hætti, sem ekki á sér fag-
legan eða vísindalegan grunn.
Fundarmenn telja að setja þurfí
reglur, sem kveði á um, hvaða
starfsemi megi fara fram á slíkum
stöðvum og um kunnáttu þeirra,
sem þar leiðbeina.
Fundarmenn hvetja heilbrigðis-
ráðherra til að taka þetta vaxandi
vandamál til umfjöllunar og úr-
lausnar sem allra fyrst.
(Fréttatilkynning)
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöam Moggans!
f / 1
I % r 111 1
\ji UIU
til afinælisveislu
Brunabótafélag íslands hóf starfsemi sína 1. janúar 1917
og á því 70 ára starfsafmæli nú í upphafi árs 1987.
------------Opió hús 5. janúar 1987--------------
í tilefni þessara tímamóta í sögu
félagsins munum viö hafa opið hús og
taka á móti viðskiptavinum og vel-
unnurum á aðalskrifstofu Bruna-
bótafélagsins, Laugavegi 103,
Reykjavík og í eftirtöldum
umboðum okkar: Akranes, '9
Ölafsvik, Grundar-
fjörður, Stykkis-
Sauðárkrókur, Siglufjörður, Ólafs-
fjörður, Dalvík, Akureyri, Húsavík,
Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Reyðar-
(*) fjörður, Eskifjörður, Norðfjörður,
Vestmannaeyjar, Selfoss,
Hveragerði, Mosfells-
'7 hreppur, Hafnarfjörður,
Kópavogur, Garða-
-j--, --j- , , bær, Grindavík og
hólmur, Isafjörður, BRUNABOTAFEIAG Keflavík.
ÍSLANDS