Morgunblaðið - 04.01.1987, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1987
57
Poindexter og Weinberger: Ósnmmáln.
Contra-skœruliðar:
Innistæður í Sviss.
áhuga á dirfskufullum ævintýrum,
sem jöðruðu jafnvel við lögbrot.
Þeirra kunnastur var Oliver North
ofursti, sem hafði raunar starfað
fyrir forsetann síðan 1981.
Einum mánuði eftir Poindexter
tók við starfi sínu þurfti hann að
gera Reagan grein fyrir því sem
hann þurfti að segja þjóðinni í ár-
legri yfirlitsræðu um ástand og
horfur, m.a. um viðskiptaþvinganir
gegn Líbýu, aðstoð við Contra-
skæruliða í Nicaragua og samskipti
austurs og vesturs. Hann var hrein-
skilinn, reyndi ekki að fegra
ástandið og sagði við forsetann: „Þú
ættir ekki að segja þetta“, „Það
væri betra að þú orðaðir þetta
svona“ og „Þetta er ekki rétti
tíminn til að tala um þetta mál.“
Ekki var ljóst hvort Poindexter
hefði mikil bein áhrif á stefnumót-
unina, en hann virtist ekki hafa
nógu mikið vald eða myndugleika
til að eyða töluverðri óvissu, sem
hefur ríkt um stöðu Þjóðaröryggisr-
áðsins vegna tíðra mannaskipta.
Brzezinski, sem starfaði fyrir Cart-
er, sagði um samband Poindexters
.og Reagans: “Hann kvaðst hafa
verið fullvissaður um að hann fengi
aðgang að forsetanum - af Donald
Regan. Þessi skilaboð bárust frá
Reagan til Regans, en ekki beint
frá Reagan til Poindexters, og virð-
ast hafa verið yfirlýsing um
nákvæmlega sömu óstjórnina og
gáleysið og McFarlane þreyttist á.“
Reagan hefur haft þann hátt á
að dreifa ábyrgð og völdum meðal
undirmanna sinna og það kann að
hafa verið undirrót þrálátrar valda-
togstreitu, tíðra mannaskipta í
Þjóðaröryggisráðinu og skorts á
festu og órofnu samhengi í utanrík-
isstefnunni. Alls hafa fímm menn
veitt Þjóðaröryggisráðinu forstöðu
á sex árum.
Poindexter og George Shultz ut-
anríkisráðherra voru sammála um
að svara yrði hryðjuverkastarfsemi
Gaddafys Líbýuleiðtoga með hem-
aðarlegum ráðum (Caspar Wein-
berger landvarnaráðherra var því
hins vegar andvigur og lokið var
við áætlunina um árásirnar á Líbýu
í vor þegar hann var erlendis).
Áróðursherferðin gegn Líbýumönn-
um, sem hann var höfundur að,
varð Bandaríkjamönnum álits-
hnekkir þegar í ljós kom hvemig
að henni hefði verið staðið og jafn-
framt var honum kennt um hik,
glundroða og tafir, sem settu svip
sinn á Daniloff-málið fyrst í stað.
Eins og aðrir ráðunautar forsetans
taldi hann að forsetinn ætti að bjóða
þinginu byrginn í deilunum um refs-
iaðgerðir gegn Suður-Afríku.
Poindexter þótti seinn að móta
svar við tillögu Mikhail Gorbachevs,
leiðtoga Sovétríkjanna, um fækkun
kjamorkuvopna í áföngum og var
gagnrýndur vegna þess að stjómin
þótti fara óhönduglega með þá ák-
vörðun sína í maí í vor að virða
ekki takmarkanir SALT II. Tak-
mörkun kjarnorkuvígbúnaðar var
aldrei sterkasta hlið Poindexters og
hann var sakaður um að hafa ekki
varað forsetann við þeirri hættu að
láta blekkjast af tillögum Rússa á
Reykjavíkurfundinum eins og Kiss-
inger og Brzezenski flýttu sér að
að gera.
Asakanir
Þegar fréttir um hergagnasöluna
til írans fóru að síast út bámst
böndin að Poindexter og samstarfs-
mönnum hans og þeir vom sakaðir
um að vara Reagan ekki við hætt-
um, sem kynnu að leynast. Opin-
berlega hélt Donald Regan áfram
að standa með undirmanni sínum
og kvað hann “heiðarlegan" og frá-
bæran.“ Síðan spurðist að Regan
væri farinn að gera lítið úr Po-
indexter og haft var eftir fýrrver-
andi aðstoðarmönnum forsetans að
e.t.v. yrði Poindexter rekinn áður
en langt um liði.
Því var haldið fram að Poindext-
er hefði haft mjög óljósa hugmynd
um gerðir Norths ofursta, en hann
var sakaður um að hafa fengið
Reagan til að samþykkja skipti á
vopnum og bandarískum gíslum í
Líbanon eftir krókaleiðum. North
kveðst ekkert hafa gert án vitundar
Poindexters. Meese dómsmálaráð-
herra sagði að Poindexter hefði
vitað hvað North aðhafðist, en ekki
spurt hann um einstök atriði og
ekki reynt að stöðva hann. Hvað
sem því líður er ljóst að Poindexter
kom við sögu vopnasölunnar frá
byijun.
Að sögn McFarlanes sat Po-
indexter fund í Hvíta húsinu í ágúst
1985 þegar ákveðið var að ísraels-
menn sendu bandarísk vopn til
írans og tók niður minnispunkta.
McFarlane og William Casey, yfir-
maður CIA, höfðu lagt til að reynt
yrði að nota hergögn til að afla
stuðnings “hófsamra" leiðtoga í ír-
an og afstýra hugsanlegri valda-
töku kommúnista þegar Khomeini
félli frá. Shultz, Weinberger og
fleiri í Þjóðaröryggisráðinu voru
þessu andvígir. I október átti Po-
indexter leynifund með írönskum
fulltrúum, sumir segja í Genf, aðrir
í Washington. Nokkrum vikum
síðar voru bandarísk vopn send til
ísraels og þaðan til írans.
McFarlane snerist gegn vopna-
sölunni, þótt hann hefði hvatt til
hennar, og taldi að hætt hefði verið
yejtnyur í sköletrutrrii
Ertu í 7., 8. eða 9. bekk?
Ertu stopp í stærðfræði,
mát í málfræði eða farin(n)
að kvíða fyrir prófurtum?
Kynntu þér NÁMSAÐSTOÐ okkar til að
komast aftur á skrið.
Smáhópar og eínkakennsla í flestum bóklegum
greinum grunnskóla.
Bjóðum framhaldsskóla- og háskólanemum einnig aðstoð.
1©
LEIÐSOGN SF.
• I Mjóddinni, Þangbakka 10, 109 Rvk. S 91-79233
KERFI
LÍKAMSRÆKT OG MEGRUN
fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum.
FRAMHALDSFLOKKAR
Þyngri timar, aðeins fyrir vanar.
MEGRUNARFLOKKAR
4x í viku fyrir þær sem þurfa og vilja missa aukakílóin núna.
„_..oe/c j.s.b.
Okkar útfærsla af þrektimum með góðum teygjum. Hörku púl- og svitatímar
fyrir ungar og hressar.
KERFI
KERFI
RÓLEGIR TÍMAR
fyrir.eldri konur eða þær sem þurfa að fara varlega.
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
BYRJUM AFTUR 12. JANÚAR
Við eigum afmæii!
Líkamsrækt JSB
óskar nemendum
Osínum öllum gleði-
legs nýs árs og
þakkar öll frábaeru
20 árin.
Ps. Afmælísveisla
ársins í lok vetrar.
LÍKAMSRÆKT
JAZZBALLETTSKÓLA
BÁRU
Morgun- dag- og kvöldtímar,
sturta — sauna — Ijós.
AHir finna flokk við
sitt hæfi hjá JSB
Innritun hafin.
Suðurver, sími 83730.
Hraunberg sími 79988.